Morgunblaðið - 31.03.1989, Page 18

Morgunblaðið - 31.03.1989, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1989 Washington: Ekki tíltökuniál að sjá mann skotinn Washington. Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞAÐ hefir vakið nokkra athygli húsinu á dögunum, taldi það ekki og umtal hér í Washington, að ómaksins vert að tilkynna lög- öldungadeildarþingmaður, sem regiunni atburðinn varð vitni að því, að maður var skotinn á götu skammt frá þing- Öldungadeildarþingmanninum, Mark Hatfield, repúblikana frá Oregon, segist svo frá, að hann hafi verið að aka heim á leið frá veitingahúsi ásamt fjölskyldunni þegar hann sá allt í einu, að skotið var á mann á götunni skammt frá þinghúsinu. „Ég steig hemlana í botn. Eg heyrði fimm skot og sá eldblossana úr byssunni. Maðurinn, sem skotin hittu, féll í götuna. Byssumaðurinn, sem virtist stinga við, hljóp upp íbíl og ók burtu. Þetta tók allt sam- an 20 sekúndur eða svo. Ég ók eins og byssubrenndur á móti rauðu umferðarljósi og hugsaði um það eitt að forða lífi fjölskyldu minnar og mínu. Ef þetta hefði gerst heima í Oregon hefði ég vitanlega tilkynnt lögreglunni það sem ég hafði orðið vitni að. En hér í Washington er þetta daglegur viðburður. Ég er viss um, að hefði ég tilkynnt þetta til lögreglunnar hefði hún sagt: „Nú, sei, sei, jæja, og hvað um það?““ Oskarsverð- launaha&rnir Los Angeles. Reuter. Eftirfarandi myndir og lista- menn hlutu Óskarsverðlaunin í fyrrinótt, þegar þau voru af- hent í 61. sinn. Besta myndin: „Regnmaður- inn“ (Rain Man) - framleiðandi Mark Johnson. Besti leikarimr. „Regnmaður- inn“ - Dustin Hoffman. Besta leikkonam „Hinir ákærðu" (The Accused) - Jodie Foster. Besti ieikstjórinn: „Regnmað- urinn“ - Barry Levinson. Besti leikarinn í aukahlutverkr. - „Fiskurinn Wanda" (A Fish Called Wanda) - Kevin Kline. Besta leikkonan í aukahlut- verki: JL faraldsfæti" (The Ac- cidental Tourist) — Geena Davis. Besta frumsamda handritiá. „Regnmaðurinn" - Ronald Bass og Barry Marrow. Besta ófrumsamda handritiá. „Háskaleg kynni“ (Dangerous liaisons) - Christopher Hampton. Besta erlenda myndinr. „Sigur- vegarinn Pelle“ (Pelle erobreren) - dönsk. Besta stutta teiknimyndin: „Tin Toy“ - John Lasseeter og William Reeves. Besta stutta myndin um raun- verulegan atburá. „The Appoint- ments of Dennis Jennings" - Dean Parisot og Steven Wright. Besta klippingin: „Hver skellti skuldinni á Kalla kanínu?" (Who Framed Roger Rabbit) - Arthur Schmidt. Bestu tæknibrellumar. „Hver skellti skuldinni á Kalla kanínu?" - Ken Ralston, Richard Williams, Edward Jones og George Gibbs. Besta stutta heimildarmyndim „You Don’t Have To Die“ - Will- iam Guttentag og Malcolm Clarke. Besta heimildarmyndin í fullri lengá „Hotel Terminus: The Life and Times of Klaus Barbie" - Marcel Ophuls. Besta kvikmyndun: „í ljósum Reuter Geena Davis („Háskaleg kynni“) hlaut Óskarsverðlaunin fyrir leik í aukahlutverki. logum (Mississippi Buming) - Peter Biziou. Besta frumsamda tónlistin: „The Milagro Beanfield War“ - Dave Grusin. Besta frumsamda lagið: Úr „Working Girl“ - „Let the River Run,“ eftir Carly Simon. Besta útlitshönnun: „Háskaleg kynni" - Stuart Craig og Gerard James. Bestu búningar. „Háskaleg kjmni" - James Acheson. Besta förðun: „Beetlejuice" — Ve Neill, Steve La Porte, Robert Short. Besta hljóðstjóm: „Fugl“ (Bird) - Les Fresholtz, Dick Alexander, Vem Poore, William Burton. Sérstök heiðursverðlaun: Kvik- myndastofnun Kanada. Richard Williams fyrir stjóm teiknimynda, þar á meðal „Hver skellti skuld- inni á Kalla kanínu?" Bandaríkin: Enganeinka- skólaafslátt Washington. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjafor- seti sagðist í gær vera andvíg- ur þvi að foreldrar, sem sendu börn sín í einkaskóla, fengju skattaafslátt. Hann sagði að eina leiðin til að styrkja ríkisskólana væri að foreldrar sendu böm sín í þá en ekki í einkaskóla. Er afstaða Bush í mótsögn við stefnu Ron- alds Reagans, fyrrum forseta, sem reyndi f átta ár að fá þing- ið til að samþykkja skattaaf- slátt. „Regnmaðurinn“ hlýt- ur fem Oskarsverðlaun Jodi Foster, sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir leik í aðalhlutverki, og Dustin Hoffman, sem valin var besti leikarinn, hampa verðlaunastyttum sínum eftir afhendinguna í fyrrinótt. Danski leikstjórinn Billie August heldur á verð- Iaunastyttunni sem hann fékk fyrir myndina „Sigurvegarinn Pelle“. Rcuter Dönsk mynd valin besta erlenda myndin annað árið í röð Los Angeles. Reuter. KVIKMYNDIN „Regnmaðurinn" hlaut fem Óskarsverðlaun þegar þau vom afiient við hátíðlega athöfii i fyrrinótt og varð Dustin Hoffinan, sem lék eitt af aðalhlutverkunum í þeirri mynd, fyrir valinu sem besti leikarinn. Sigoumey Weaver fékk engin verðlaun þrátt fyrir að hún hefði hlotið tvær tilnefiiingar. Þá varð myndin „í Ijósum logum“ (Mississippi Buming), sem hlaut sjö tilnefiiingar, einungis einu sinni fyrir valinu. Danska myndin „Sigurvegarinn Pelle“ (Pelle obreren) var valin besta erlenda myndin og er þetta annað árið í röð sem dönsk mynd hlýtur Óskarsverðlaun. Hoffman sagði þegar hann veitti Jodie Foster varð fyrir valinu sem verðlaununum móttöku að litlu besta leikkonan fyrir leik sinn í hefði munað að myndin „Regn- maðurinn“ hefði aldrei verið gerð, því þrisvar sinnum hefði legið við að hætt yrði við kvikmyndunina. Þrír leikstjórar höfðu glímt við myndina þegar lokst tókst að ljúka henni. Myndin var valin besta myndin og hlaut verðlaun fyrir besta leikstjóm, besta leikarann og besta frumsamda handritið. myndinni „Hinir ákærðu“, þar sem hún leikur fómarlamb nauðgara, en hún hafði einu sinni áður hlotið tilnefningu til Óskarsverðlauna. Sigoumey Weaver hafði verið til- nefnd fyrir leik í aðalhlutverki í myndinni „í þokumistrinu" (Gorillas in the Mist) og í aukahlutverki í myndinni „Working girls“, en hlaut hvorag verðlaunin. Aðeins þrjár leikkonur höfðu áður hlotið tvær tilnefningar og hlutu þær allar verð- laun fyrir leik í aukahlutverki. Þau verðlaun hlaut hins vegar Geena Davis í þetta skipti, fyrir leik í myndinni „Á faraldsfæti" (The Accidental Tourist", en þar leikur hún sérvitran hundatemjara. Max von Sydow, sem hlaut til- nefningu fyrir leik sinn í „Sigurveg- aranum Pelle“, sagði að hann hefði aðeins verið búinn að lesa 25 blað- síður í handriti myndarinnar þegar hann hefði ákveðið að leika í henni. Sydow leikur mann sem fer með syni sínum til Danmerkur í von um betra líf en verður aðeins fyrir mótlæti. í fyrra varð danska mynd- in „Gestaboð Babettu" (Babetteá Gæstebud) fyrir valinu sem besta erlenda myndin. Þingkosníngarnar í Sovétríkjunum: Úrslitin sýna stuðning al- mennings við perestrojku - segir Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi Moskvu. Reuter. MÍKHAÍL S. Gorbatsjov, aðalrítari sovéska kommúnistafiokksins, sagði á fimdi með sovéskum rítsjórum á miðvikudag að niðurstöður kosninga til hins nýja fulltrúaþings Sovétríkjanna sýndu stuðning almennings við umbætur þær sem hann hefiir reynt að koma á í Sovétríkjunum og kenndar eru við perestrojku. Vítalí Korotítsj, ritstjóri tímarits- ins Ogonjok sagði í samtali við fréttamann Reuíers-fréttastofunn- ar í gær að Gorbatsjov hefði lagt áherslu á að engin ástæða væri til að fyllast ótta þó svo íjölmargir háttsettir embættismenn innan kommúnistaflokksins hefðu ekki náð kjöri. Nú gerðu menn sér betur grein fyrir raunveralegu lífi þjóðar- innar og fengist hefði bein reynsla af þróun í lýðræðisátt. Þá hefði komið fram í máli leiðtogans að „hreinsanir" væru ekki á dag- skránni en talsmaður sovéska ut- anríkisráðuneytisins hafði áður lát- ið að því liggja að embættismenn, sem ekki náðu kjöri, yrðu látnir gera grein fyrir ástæðum ósigurins og að þeim kynni að vera vikið úr starfi. Korotítsj kvaðst telja hugsanlegt að Gorbatsjov hefði kallað ritstjór- ana á sinn fund vegna þess að hon- um hefði þótt gæta örvæntingar í röðum embættismanna eftir kosn- ingamar, en íjölmiðlar á Vestur- löndum hafa almennt túlkað niður- stöður þeirra sem veralegt áfall fyrir Kommúnistaflokk Sovétrikj- Tyrkland: Þingmaður Ankara. Keuter. Tyrkneskur stjómarþingmað- ur var í gær í varðhaldi vegna morðsins á stjórnarandstæðingn- um Abdurrezak Ceylan í þing- húsinu í Ankara á miðvikudag. Idris Arikan, sem er í Föður- landsflokknum, var vopnaður byssu þegar hann var handtekinn. Lög- í varðhaldi reglan var með sérstakar varúðar- ráðstafanir til að koma í veg fyrir hugsanlega árás á þingmanninn, en fregnir hermdu að sex langferða- bifreiðar væra á leiðinni til Ankara með ættingja og stuðningsmenn Ceylans. Arikan neitar að hafa orð- ið Ceylan að bana og sakar annan þingmann um morðið. anna. Kjósa þarf að nýju í þeim kjördæmum þar sem enginn fram- bjóðenda hlaut tilskilinn meirihluta og hefur fyrsta fundi fulltrúaþings- ins nýja verið frestað af þessum sökum. Gert hafði verið ráð fyrir því að þinghald hæfist í lok apríl en embættismenn sögðu í gær að ákveðið hefði verið að kosningar færa fram að nýju þann 14. maí. Skýrt var frá því í gær að nokkr- ir herforingjar og flotaforingjar hefðu ekki náð kjöri í kosningunum , sem fram fóra á sunnudag. Þann- ig höfnuðu kjósendur Boris Snetkov hershöfðingja en hann er yfírmaður herafla Sovétmanna í Austur- Þýskalandi og bauð sig fram í borg- inni ívanovo, skammt frá Moskvu. Feliks Gromov, flotaforingi og yfir- maður sovéska Norðurflotans, tap- aði fyrir ungum herforingja í Múr- mansk en þar eru höfuðstöðvar flot- ans. Þá bárast þær fréttir að yfir- maður Kyrrahafsflotans, Viktor Jermakov flotaforingi, hefði beðið ósigur. Athylgi vakti að Rauða stjaman (Krasnaja Zvezda), mál- gang hersins, skýrði ekki frá þess- um úrslitum en í blaðinu var hins vegar fjallað um niðurskurð þann sem Gorbatsjov hefur beitt sér fyr; ir á íjárframlögum til flotamála. í viðtali við blaðið sagði herforingi einn, Júrí Oleiník, sem kjörinn var til setu á þingi, að hann hygðist beita sér fyrir því að umbótaáform- in yrðu ekki til þess að veikja vam- ir Sovétríkjanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.