Morgunblaðið - 31.03.1989, Síða 19

Morgunblaðið - 31.03.1989, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1989 19 FLUGUHNÝTINGAR 1. og 2. apríl Sláið strax til, námskeiðið hetst á morgun. Stendur laugardag og sunnudag frá kl. 10-16:30. Tilvalið námskeið fyrir áhuga- menn um veiöiskap og fluguhnýtingar. Leiðbeinandi: Sigurður Pálsson. Staður: Gerðuberg. Reuter Ekkjan ógnar Skömmu eftir morðið á tveimur andlegum leiðtogum stærstu mosku múslima í Belgíu í fyrradag hljóp kona út úr húsinu og mundaði skammbyssu í allar áttir. Hljóp hún að sjónvarpsfréttamanni og ógnaði honum með byssunni eins og sést á myndinni hér að ofan. Lögreglan hljóp til og yfirbugaði konuna og má sjá það á innfelldu myndinni. Talið var í fyrstu að þarna væri morðingi mannanna á ferðinni og því hart brugðist við. Reyndist konan vera ekkja Abd- ullahs al-Ahdals, forstöðumanns moskunnar, sem hafði nýfallið fyr- ir morðingja hendi. Bretland: Lögreglumenn gleyma sprengju í farþegaþotu Lundúnum. Reuter. BRESKA lögreglan hefúr viðurkennt að hafa skilið sprengju eftir í þotu breska flugfélagsins British Airways af gerðinni Boeing-747, sem fór í farþegaflug eftir að hafa verið notuð við sprengjuleitaræfingar. Sprengjan, sem var óvirk og án sprengjuþráðar, fannst undir sæti aftarlega í vélinni þegar ver- ið var að hreinsa hana. Breski flugmálaráðherrann, Brabazon lávarður, sagði að lögreglumenn, sem notuðu þotuna til að þjálfa hunda í að finna sprengjur, hefðu viðurkennt að hafa skilið sprengj- una eftir. Talsmenn flugfélagsins og lögreglu lögðu ríka áherslu á að sprengjan hefði ekki getað sprungið og hefði ekki verið hættuleg. Stjórnarformaður Brit- ish Airways, King lávarður, fyrir- skipaði þó rannsókn á málinu. „Við lítum þetta afar alvarlegum augum,“ sagði hann á frétta- mannafundi. „Ég veit að sprengj- an var ekki hættuleg en það er ekki aðalatriðið. Hún hefði getað verið hættuleg." TOSHIBA OG TATUIMG sjónvarpstæki 14-15-20-21-22 25 og 28“ skermar. Tæknilega fullkomin tæki í öllum verðflokkum. Góð greiðslukjör. Elnar Farestvett&Co.hf. BOROARTÚWI28, SlMI 1899B. Lalð 4 stoppar vlA dymar GRÓÐURSKÁLAR/ GRÓÐURHÚS. Námskeiðið hefst n.k. mánu- dag 3. apríl kl. 19:45 og stendur til kl. 22:00. Kennt er á sama tíma næstu þrjá mánu- daga þar á eftir. Fræðandi námskeið fyrir allt áhugafólk. Leiðbeinandi: Hafsteinn Hafliðason. Staður: Iðnskólinn í Reykjavík. FÖT FYRIR SUMARIÐ. Námskeið í fatasaumi. Hefst n.k. fimmtudag, 6. apríl og stendur frá kl. 19 til 22. Samtals 4 kvöld, einu sinni í viku. Forvitnilegt og gagnlegt námskeið. Leiðbeinandi: Ásta Kristín Siggadóttir. - Staður: Iðnskólinn í Reykjavík. Leitið strax frekari upplýsinga. TÓMXTUMÐA SKOUNN Skólavöiöustig28 Sími 621488 Góðan daginn! 2486.-kr.'«®» sparnaður* * með Dulux El spamaðar perunni. Til dæmis Dulux El 15w I Sparar 2486 kr. í orkukostnaði miðað við orkuverð Rafmagns- veitu Reykjavíkur 5,18 kr/kw.st. I Áttföld ending miðað við venju- lega glóperu. OSRAM H

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.