Morgunblaðið - 31.03.1989, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.03.1989, Blaðsíða 23
MOKGUÍt'íffl-ÁÐIÐ FÖSTUDÁGUR 31. MARZ 1989 unm brigðisstofnunum enda liggur mikið við. Nokkuð góður árangur hefur einnig náðst því að þeim stofnunum fækkar ört sem „fara framúr" fjár- lögum. Sem dæmi um „afköst“ jókst sjúklingaflæði á deildarskipt- um sjúkrahúsum á árunum 1960—83 um 83% en rúmum hefur fjölgað um 24%. Að ýmsu leyti hefiir þó verið gengið of hart fram: 1. T.d. hafa orðið slys sem vekja óþægilegar grunsemdir um að þau megi rekja til þess að á staðnum var ekki sérhæft fólk sem ef til vill hefði getað komið í veg fyrir mistök og slys. 2. Á hverju ári standa nú marg- ar sjúkradeildir lokaðar vegna skorts á fjármunum og á starfsfólki (aðallega hjúkrunarfræðingum). 3. A mörgum deildum ríkir „bann“ við ráðningu fólks til auka- vakta og kallar það á aukna vinnu starfsfólks. Nú koma til mín hópar heilbrigðisstarfsmanna er kvarta yfir of miklu vinnuálagi enda hafi legið við slysum af þessum sökum. Sem dæmi skal nefnt að á ýmsum stofnunum hérlendis starfa allt að 30—40% færri hjúkrunarfræðingar, ljósmæður og sjúkraliðar en á sam- bærilegum stofnunum austan hafs ísland Danmörk Fjöldi heilbrigðisstarfsmanna 1986 1986 á deildaskiptum sjúkrahúsum á rúm 2,3-2,6 (1) 2,7-3,1(2) Á blönduðum sjúkrahúsum 1,3 2,1 (1) Reykjavík, (2) Stærri borgir. Ólafiir Ólafsson og vestan. Á hjúkrunarheimilum er vinnuálagið gífurlegt enda skortur á hjálpartækjum. Af þessu hefur skapast óöryggi og óánægja og meðal annars orðið til þess að nýlið- um í þessum stéttum hefur fækkað verulega. Landlæknisembættið hefur óskað eftir úrbótum í þessu efiii sem þýðir fjölgun starfsfólks og þar með aukinn kostnað. Sjúkl- ingum fjölgar stöðugt meðal annars vegna fjölgunar eldra fólks og meiri þjónustu er þörf. Hagræðingarráð- gjafar verða að skilja að þó að unnt sé að ná fram hagræðingu í iðnaði t.d. með tölvuvæðingu gilda ekki þær reglur fyrir sjúkraþjónustu. Tölvur og vélmenni hjúkra ekki. Með öðrum þjóðum hefur tölvuvæð- ingin ekki orðið til þess að fækka starfsfólki. Vissulega skortir oft fé til þess að bæta aðbúnað á ýmsum sviðum í þjóðfélaginu en ef van- búnaður hefur í för með sér heilsu- tjón verður að grípa til aðgerða. Stjómendum stofnana er nokkur vorkunn þvi að aðhald í fjármálum er strangt. Þeir stjórnendur er fara fram úr fjárlögum em miskunnar- laust hengdir út á síðum og skjám fjölmiðla og eru jafnvel kallaðir óreiðumenn. Raunhæfar sparnaðaraðgerð- ir: Sjálfsagt er að vinna sem áður að aukinni hagræðingu í rekstri. Án efa má endurskoða vaktafyr- irkomulag sjúkrahúsanna, símenntunarkostnað lækna og annarra heilbrigðisstétta. En meðan ekkert fé fæst til framhalds- og símenntunar lækna innanlands er ekki margra kosta völ. Án efa bregðast sjúkrastofnanir við á þann hátt að loka deildum en ekki er hægt að fallast á að lokað verði deildum sem þegar búa við langa biðlista s.s. bæklunardeildum. Ef loka þarf deildum er eðlilegra að aðrar deildir verði fyrir valinu, t.d. lýtalækningadeildir. Flestar sparn- aðaraðgerðir sem hafa einhveija þýðingu eru þó þess eðlis að til þess að framkvæma þær þarf pólitískan vilja. 1) Flest efnisleg rök mæla með því að beinn aðgangur að sérfræð- ingum og stofnunum án tilvísana frá lækni eða faglegs mats sé ekki ákjósanlegur kostur út frá kostnað- arsjónarmiði. Pólitískar ákvarð- anir í þessum málum hafa geng- ið þvert á faglega ráðgjöf í þessu efiii. Þjóðir sem „leyfa“ beinan aðgang að sérfræðingum s.s. Bandaríkjamenn, V-Þjóðveijar og Svíar greiða mun meira til heil- brigðisþjónustu en t.d. Bretar, Kanadamenn og Svisslendingar þar sem tilvísunarkerfið er við lýði. Nú er verið að gera tilraun til aftur- hvarfs til fyrra fyrirkomulags. Fijáls aðgangur að elli- og hjúkr- unarheimilum eins og tíðkast hér á landi í ríkum mæli er geðþótta- ákvörðun sem fáar þjóðir leyfa leng- ur. Þessu fyrirkomulagi má líkja við að við ráðum háskólaprófessor til þess að kenna bami lestur. 2) í tannlæknaþjónustunni eru mörg dæmi um að sérfræðingum er „selt sjálfdæmi" og megináhersla lögð í viðgerðarþjónustu í stað for- varna. Þannig á ekki ekki að fara með fé skattborgara. Þó að við höfum á að skipa ágætlega mennt- uðum tannlæknum og fjöldi þeirra sé svipaður og í mörgum nágranna- löndum er tannheilsa íslendinga mun verri en margra nágranna okkar. 3) Gild rök hafa verið færð fyrir því að lækka megi lyfjakostnað vemlega með raunhæfum aðgerð- um án þess að skerða þjónustu. (Lyf og lyfjaverð. Landlæknisemb- ættið 1988.) Tillögur og umræður um þetta mál hafa þegar leitt af sér nokkum spamað. Nú er unnið að þessum málum á vegum heil- brigðismálaráðherra. 4) Án efa má ná fram hagræð- ingu með aukinni samvinnu eða samræmingu sjúkrahúsa í Reykjavík—og að stærri sjúkrahús taki upp rekstur dag— og vikudeilda eins. og flest nágrannalönd hafa gert. Alkunna er að á þann hátt má spara bæði mannaflaog fé— auk þess stytta biðlista vemlega. 5) Frískt eldra fólk er sett á elli- lífeyri og „neytt til þess að hætta störfum" langt fyrir aldur fram. Óvirkni hefur í för með sér ellihmm- leika og sjúkdóma. Taka þarf upp sveigjanlegan eftirlaunaaldur. I öldrunarþjónustunni ríkir of mikill stoftaanaandi, en um 17% 67 ára og eldri vistast á stoftaun- um hérlendis en um 10% af fólki á svipuðum aldri í nágrannalönd- um. En hvers vegna beinum við ekki sjónum okkar að þeim þáttum í samfélaginu sem em heilsuspill- andi og tökumst á við þá og náum fram sparnaði? Sem dæmi má nefna eftirfarandi: 6) Á sama tíma og leiða má sterk rök að því að kostnaður þjóðfélags- ins vegna áfengisneyslu (fram- leiðslutap, eignatjón, trygginga- bætur, löggæsla, heilsutjón o.fl.) gæti hæglega svarað tii helmings heilbrigðisútgjalda, auðvelda mun stórlega aðgengi að áfengi. Því ber þó að fagna að í fyrsta sinn í lang- an tíma hefur fjármálaráðuneytið tekið tillit til óska heilbrigðisyfir- valda við verðlagningu á áféngi. 7) Talið er að fleiri hundmð manns látist árlega af völdum reykinga. Landlæknisembættið hef- ur ásamt öðmm meðal annars reynt að koma upp sjálfsögðum varnarað- gerðum eins og reykingavarnarná- mskeiðum á öllum heilsugæslu- stöðvum en aðgerðir hafa dregist úr hömlu vegna skorts á nokkur hundmð þúsund króna fjárveitingu. Gróði ríkisins af tóbakssölu skiptir hundraðum milljóna! 8) Slys og afleiðingar þeirra þekkja allir. Hvers vegna tekur 9—10 ár að ná fram einföldustu lagabreytingum sem stórlega hafa dregið úr meiðslum og sparað stórfé? Borgaryfirvöld sinna t.d. ekki nægilega þeirri sjálfsögðu skyldu vikum saman að ryðja snjó og ís af gangstéttum. Kostnaður við hvert lærbrot er ekki undir hálfri milljón, ef örorka hlýst af getur kostnaður hlaupið á 5—10 mil(jónum. Lokaorð: Heilbrigðisgeirinn á íslandi hefur fram að þessu veitt þjónustu eins og best gerist meðal nágrannaþjóða en með heldur minni faglærðum mannafla. Spamaður í Qárveiting- um og skortur á hjúkranarliði und- anfarinna ára hefur meðal annars orðið til þess að mörgum deildum er lokað á ári hveiju og jafnvel hálfum spítölum. Vinnuálag er gífurlegt á hjúkmnarfólki og hefur meðal annars valdið því að stórlega hefur dregið úr nýliðun í þessum stéttum svo að til stórvándræða horfir ef ekki verður úr bætt. Óheppilegar pólitiskar ákvarðanir hafa leitt til þess að horfið hefur verið frá þeirri gmndvallarreglu að veita góðar úrlausnir á ódýrasta máta. Fólk leitar oft langt yfir skammt í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingar með smávægilega kvilla leita til sérfræðinga og jafnvel inn á stofnanir sem em á dýrasta þjóri- ustustigi heilbrigðisgeirans, án fag- legs mats hjá lækni. Vissulega kost- ar heilbrigðisþjónustan veralegt fé en ekki er liklegt að kostnaður fari úr böndum því að stöðugt er mikil umræða í gangi um hvem kostnað- arlið og hverri krónu margsnúið áður en henni er eytt. Ýmsar leiðir em færar til hagræðingar, en spamaður má ekki verða til þess að stórlega verði dregið úr mennt- unarmöguleikum heilbrigðisstarfs- fólks og þjónustu við sjúkt fólk — það er niðurskurður. Ákvörðunar- vald í fjármögnun heilbrigðisþjón- ustunnar þarf að flytja nær notend- um þjónustunnar t.d. með þvi að efla sjúkrasamlögin Heimildir: Nordic yearbook of Stat. Stokkhélmur 1980, 1987. Morgunblaðið 19.2. 1988. Sammenligning av utgifler til Sociala Kontant ydelser i Norden. Nordic Stat. Sekretariat. Kaupmannahöfn 1988. Umferðarslys. Fylgirit við Heilbrigðis- skýrslur 1984. Ólalur Ólafsson: Úr gögnum Hjarta- vemdar. Kvinnor och mánn: Norræna ráðherra- nefndin 1988. Lyf og lyfjaverð. Landlæknisembættið 1988. Health and Wealth (J. Maxwell 1981). Höfundur er landlæknir. ísland Danmörk Noregur Fjöldi lækna, hjúkr.fr., sj.liða og sj.þjálf. á 1.000 íbúa 1985 14,2 19,9 20,5 Hlutfallslegur fjöldi lækna á íslandi er svipaður en aðrar faglærðar stéttir em fáliðaðri en í Danmörku og Noregi. Fjöldi innlagna á sjúkrahús á 1.000 íbúa(1987)(l) 204 202 156 (l)Hjúkmnarheimilum er sleppt í þessari töflu. Ólaftar Oddsson Við skulum taka íslenskufræðing- inn unga sem dæmi. Ég hygg að högum hans sé þannig háttað að hann muni í mesta lagi kenna „fulla kennslu“ og er það reyndar ærið verkefni. Hann verður að leggja til sjálfur skrifstofuaðstöðu heima ásamt viðeigandi handbókakosti og . fleira. Vemlegur hluti starfsins er runninn heima. Ef hann hæfi „Það hefur lengi tíðkast að leita til liðlega tvítugra íslenskunema til að kenna ungmennum í þessari grein. Þetta gerði ég ung- ur maður og þetta hafa aðrir gert. Eg hef hug- leitt þetta og ég er ein- dregið þeirrar skoðunar að svo ungur og lítt menntaður maður sé óhæfur til slíks starfs og þetta sé hvorki honum né nemendum til góðs. í húfi er íslenskunám ogþroski ungmenna. Þetta er auð- vitað afar mikilvægt en enginn er hæfiir til að kenna íslensku (eða aðrar greinar) nema hann hafi hlotið viðeigandi mennt- un til starfans. Fólk á rétt að vita af því að víða er pottur brotinn í þessum efhum og þjóðfélagið í heild tapar á þessu.“ kennslu nú fengi hann í mánaðar- laun u.þ.b. 55 þús. kr. Miðað er við nám hans, BA-próf án uppeldis- fræða. Hann fengi ekki annað utan smávægilegra stílapeninga í lok misseris. Stefnan í þessu efni er mjög skýr. Hún laðar ekki ungt hæfileikafólk til starfa. Einhveijir kunna hér að andmæla og segja að ýmsir kennarar fái hærri laun. Satt er það að reyndir kennarar og þeir sem annast stjómunar- og eft- irlitsstörf hafa betri kjör, en þetta kemur nýliðum að engu gagni, enda gegna þeir ekki slíkum störfum. Fyrir fáeinum ámm hættu tveir íslenskukennarar að kenna í fram- haldsskóla einum. Þeir fóm í óskyld störf og gerðist annar þeirra t.a.m. skrifstofumaður. Þetta vora all- reyndir menn og vel menntaðir. Við tóku þrír ungir menn, reynslu- og próflitlir. Þeir vora áhugasamir og ekki að efa að með meiri menntun og reynslu hefðu þeir orðið hinir nýtustu kennarar. En þegar þeir kynntust starfinu, aðbúnaði og launakjörum, vildu þeir hætta sem fyrst og vom reyndar allir hættir um vorið. En hvað gerist svo ef vel mennt- aðir og hæfir ungir kennarar fást ekki til starfa? Því er auðsvarað. Það er bara ráðinn einhver til þess að kenna ungmennum, kannski stúdent. Það er nauðsynlegt skólum að geta boðið upp á störf vel mennt- aðra kennara. Tökum dæmi úr öðr- um greinum til þess að skýra þetta nánar. Engum dytti í hug að leita til liðlega tvítugs læknastúdents vegna veikinda, því að hér er heilsa í húfi. Stúdentinn er á því stigi óhæfur, þótt hann verði líklega vel hæfur síðar með meiri menntun og reynslu. Og engum dettur í hug að leita til liðlega tvítugs laganema um ráð í mikilvægum lögfræðileg- um álitamálum. Hér em fjármunir eða æra manns í húfi. En vonandi verður hinn ungi maður vel hæfur síðar með meiri menntun og reynslu. — Þá skulum við huga að íslenskunema. Það hefur lengi tíðkast að leita til liðlega tvítugra íslenskunema til að kenna ung- mennum í þessari grein. Þetta gerði ég ungur maður og þetta hafa aðr- ir gert. Ég hef hugleitt þetta og ég er eindregið þeirrar skoðunar að svo ungur og lítt menntaður maður sé óhæfur til slíks starfs og þetta sé hvorki honum né nemend- um til góðs. I húfi er íslenskunám og þroski ungmenna. Þetta er auð- vitað afar mikilvægt en enginn er hæfur til að kenna íslensku (eða aðrar greinar) nema hann hafi hlot- ið viðeigandi menntun til starfans. Fólk á rétt að vita af því að víða er pottur brotinn í þessum efnum og þjóðfélagið í heild tapar á þessu. Þó að hér hafi einkum verið fjall- að um íslenskukennslu, þar sem ég þekki þar best til, þá þarf vart að geta þess að kennsla í ýmsum öðr- um greinum er einnig afar mikil- væg. Ég hef áður (Mbl. 1.9. ’89) minnst á furðulega og fjandsamlega umfjöllun sumra fjölmiðla um kenn- ara. En þetta skaðar þá ekki því að íslendingar era svo vel menntað fólk að þeir taka ekkert mark á slíkum rógi. Hins vegar hafa þessir náungar orðið sér til skammar og mun þeirra skömm lengi uppi. Það er yfirlýst stefna ráðamanna að æskan skuli „eiga kost á bestii menntun, menntun sem gerir henni bæði kleift að varðveita þann arf sem hún tekur við, tunguna, söguna og hin íslensku þjóðareinkenni, en jafnframt að tileinka sér og þjóð sinni það besta úr óðfluga þróun tækni og vísinda." (Áramótaávarp forsætisráðherra, Mbl. 3.1.’89.) Undir þessi orð skal hér tekið. Um þetta efni mun reyndar ekki ágrein- ingur milli ráðamanna eða flokka. En hvemig væri nú að menn reyndu að koma fyrrgreindri stefnu í fram- kvæmd en létu ekki orðin tóm nægja? Það verður að bæta að- búnað í ýmsum skólum og gera störf kennara eftirsóknarverð ungu fólki. En auðvitað þarf að huga hér að öðmm mönnum og ástandi þjóð- mála yfirleitt. Menn verða að semja í þessum efnum sem öðmm. Höfundur er (slenskuSræðingur og kennari í MR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.