Morgunblaðið - 31.03.1989, Síða 26
Leikfélag Akureyrar:
Frestun á
Sólarferð
Kristbjörg Kjeld
með í sýningunni
FRUMSÝNINGU Sólarferðar hjá
Leikfélagi Akureyrar hefur verið
frestað um viku og verður frum-
sýningin 14. apríl. Sólarferð eftir
Guðmund Steinsson er síðasta
verkefiii leikársins.
Kristbjörg Kjeld, leikkona og eig-
inkona höfundarins, fyllir skarð
Sunnu Borg í sýningunni, en hún
forfallaðist. Kristbjörg Kjeld hefur
ekki áður leikið með Leikfélagi Ak-
ureyrar.
Sólarferð var sýnd hjá Þjóðleik-
húsinu fyrir um tíu árum og hlaut
þá feikigóðar viðtökur og var sýning-
um hætt fyrir fullu húsi. í verkinu
er fjallað um spaugilega sem og al-
varlega atburði er hent geta fólk á
ferðalagi um ókunnar slóðir. Með
aðalhutverk fara Theodór Júlíusson
Anna Einarsdóttir, én alls eru
hlutverkin níu. Leikstjóri er Hlín
Agnarsdóttir.
„Við ætlum að skapa sólarlanda-
stemmningu á frumsýningunni, eftir
harðan vetur er vel við hæfi að taka
forskot á sæluna og reyna að gera
eitthvað skemmtilegt," sagði Val-
gerður Bjamadóttir, formaður leik-
húsráðs, en vildi ekki upplýsa nánar
hvað um væri að ræða.
Samúel sýnir
í Gamla Lundi
SAMÚEL Jóhannsson opnar í
kvöld, fóstudagskvöld, kl. 19.00
Qögurra daga sýningu á mynd-
verkum sínum í Gamla Lundi við
Eiðsvöll á Akureyri.
Þetta er sjötta
einkasýning
Samúels, en auk
þess hefur hann
tekið þátt í fjöl-
mörgum samsýn-
ingum, m.a. á Ak-
ureyri, Kjarvals-
stöðum og í Norr-
æna húsinu. Flest-
ar myndimar em
unnar á þessu ári.
Sýningin stendur yfir eins og
áður segir í íjóra daga, föstudag
frá k.19.00-21.00, laugardag og
sunnudag frá kl.14.00-19.00 og
sýningunni lýkur mánudaginn 3.
apríl en þann dag er opið frá kl.
16.00-20.00.
260 bílar biðu eftir að komast yfir Öxnadalsheiði:
Ekkí óvanir að vera sakað
ir um amlóðahátt og leti
• |V•• T> t /1 p ] • / /V • |>i •
— segu ryorii örynjoussoii ujit vegneiui'iiuiiu
„VIÐ auglýstum aldrei að búið
værí að opna Öxnadalsheiðina og
sögðum fólki sem í okkur hríngdi
íyrri part dags, að það væri mik-
il bjartsýni ef tækist að opna heið-
ina um hádegið. Það er því bráð-
læti fólks um að kenna hafi það
orðið fyrir óþægindum meðan það
beið þess að heiðin opnaðist,"
sagði Bjöm Brynjólfsson vegaeft-
irlitsmaður á Akureyrí.
Alls biðu um 260 bílar þess að
Borgarbíó:
Inngöngu í NATO minnst
Alþýðubandalagið og Æsku-
Iýðsfylking Alþýðubandalagsins á
Ákureyri minnast þess laugar-
daginn 1. apríl að þann 30. mars
árið 1949 gekk ísland í NATO.
’f'undur af þessu tileíni verður
haldinn í Borgarbiói og hefst
hann kl. 14.00.
Ragnar Arnalds og Benedikt Sig-
urðarson munu flytja ávörp á fundin-
um, þekktar hljómsveitir munu spila,
ljóð verða lesin og einnig munu lista-
menn koma fram, segir í fréttatil-
kynningu um fundinn.
komast yfir heiðina síðastliðinn
þriðjudag, en ekki varð fært yfir
fyrr en undir klukkan sex um dag-
inn. Bjöm sagði að hafist hefði ver-
ið handa við mokstur klukkan fjögur
um nóttina, en fyrsti bíll sem vildi
yfir var kominn um klukkutíma
síðar. Til að byija með voru þrjú
tæki við mokstur, en síðar bættust
fleiri við. Bjöm sagði að afar erfitt
hefði verið við moksturinn að eiga
og fullyrti að vegagerðarmenn hefðu
aldrei lenti í jafnmiklum erfiðleikum
við að lyðja mönnum leið og þennan
dag á Oxnadalsheiðinni.
„Við emm alls ekki óvanir því
hér, vegagerðamenn, að vera sakað-
ir um amlóðahátt og leti, en fólk sem
hingað hringdi eftir upplýsingum
Landanir hjá ÚA:
Tæplega 900
tonn á hálf-
úm mánuði
SÓLBAKUR landaði í gær,
fímmtudag, um 135 tonnum físki.
Uppistaða aflans var karfi, eða
um 65 tonn, þorskur taldi um 40
tonn og ýsa um 20 tonn. Næg
vinna hefiir verið í frystihúsi Út-
gerðarfélags Akureyringa að
undanförnu.
Kaldbakur kom inn til löndunar
með 224 tonn 18. mars. Aflinn var
þannig samsettur að 165 tonn vom
af þorski, 26 tonn af ufsa og 15
tonn af karfa. Hrímbakur kom að
landi með 154 tonn þann 21. mars
og var aflinn að langmestu leyti
þorskur. í kjölfar Hrímbaks kom
Harðbakur degi síðar með 214 tonn,
98 tonn af þorski, 39 af karfa, 36
af ufsa og ýsa var um 30 tonn af
aflanum. Sl. þriðjudag landaði Sval-
bakur 135 tonnum og var þorskur
98 tonn aflans og grálúða um 28
tonn.
Fundarmenn á fulltrúaráðsfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fulltrúaráðsfundur Sambands íslenskra sveitarfélaga:
Áætluð þörf um 1400
kaupleiguíbúðir á ári
- segir Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra
JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sagði á fulltrúar-
áðsfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga að atvinnumálin væru
stærsta sameiginlega verkefiii ríkis og sveitarfélaga sem takast
þyrfti á við á næstunni. Þegar þrengdi að á vinnumarkaði reyndi
á sveitarstjómir og atvinnumálanefndir. Fulltrúaráðsfundurínn,
sem var sá 44. í röðinni, hófst á Hótel KEA í gær, fimmtudag,
og em áætluð fúndarlok í dag kl. 17.00. Verkaskipting milli ríkis
og sveitarfélaga er veigamesta mál fiindaríns.
Félagsmálaráðherra gerði í drap á í ávarpi sínu má nefna
ávarpi sínu grein fyrir ýmsum
þeim verkefnum sem unnið hefur
verið að í ráðuneytinu síðustu
mánuði. Hún fjallaði um frumvörp
um tekjustofna sveitarfélaga og
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga og sagðist leggja áherslu á
að þau yrðu að lögum fyrir þing-
slit. Hún sagði því mikilsvert að
sveitarstjómarmenn leggðu sitt
lóð á vogarskálarnar svo það
mætti ná fram að ganga.
Af öðrum málum sem Jóhanna
umhverfismál, lögheimilislög og
sameiningu sveitarfélaga og sagði
hún æskilegt að hækka lámarks-
Qölda íbúa hvers sveitarfélags upp
í 200. Þá ræddi hún einnig um
millistig í stjómsýslunni, þriðja
stjómsýslustigið svokallaða, og
sagði umræður þar um komnar í
sjálfheldu sem brýnt væri að losa
þær úr. Nefnd á vegum ráðuneyt-
isins vinnur nú að greinargerð um
skipan sveitarstjórnarmála á
Norðurlöndunum, m.a. hver
reynslan væri af fylkjaskipan og
sagði Jóhanna að vænta mætti
greinargerðarinnar um mitt ár.
Húsnæðismál vom og á meðal
þeirra málafiokka er ráðherra
ræddi á fundinum og vísaði hún
m.a. til skýrslu Byggðastofnunar
um kaupleiguíbúðakerfið. Sam-
kvæmt henni er áætlað að þörf
verði fyrir byggingu tæplega
1.400 kaupleiguíbúða á landinu
öllu á árunum 1988-1993. Þá
kemur fram í skýrslunni að kaup-
leiguíbúðakerfinu megi beita sem
hagstjómartæki, það geti dregið
út atvinnuleysi, en samkvæmt
úttekt Byggðastofnunar er áætlað
að í kringum byggingu um 100
íbúða skapist störf fyrir allt að
300 manns. Slíkt gæti orðið mikil
lyftistöng fyrir flölmörg sveitarfé-
lög.
Jóhanna Sigurðardóttir, fé-
lagsmálaráðherra.
Jóhanna nefndi að í sveitarfé-
lögum þar sem brottflutningur er
umfram aðflutning gæti verði
hentugra að kaupa eldra húsnæði
heldur en hefja nýbyggingar, þar
sem slíkt gæti aukið á vanda
þeirra sem væm að selja hús-
næði. ísafjörð, Bolungarvík, Vest-
mannaeyjar og Siglufjörð nefndi
hún sem dæmi um slík sveitarfé-
lög. Akureyri nefndi hún sem bæ,
sem alla burði hefði til að nýta
kaupleiguíbúðakerfið einkar vel.
Af öðmm málaflokkum sem
félagsmálaráðherra ræddi á fund-
inum má nefna atvinnumál
kvenna í dreifbýli og aukin mennt-
unartækifæri starfsfólks á lands-
byggðinni.
Það tóku því ekki allir þunglega
að þurfa að bíða á Öxnadals-
heiðinni nokkra tíma, á meðan
heiðin var rudd.
fékk þau svör að ekki væri búið að
opna heiðina. Það er hins vegar al-
gengt að fólk hafi það að engu sem
við segjum og fari samt af stað,“
sagði Bjöm Brynjólfsson.