Morgunblaðið - 31.03.1989, Side 27

Morgunblaðið - 31.03.1989, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1989 27 Stiörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Bogmaöur og Steingeit Bogmaður (22. nóvember — 21. desember) og Steingeit (22. desember — 20. janúar) eru ólík merki og eiga þvi ein sér ekkert sérlega vel saman. Samband þeirra ein- kennist því af togstreitu og þörf fyrir málamiðlanir. A hinn bóginn geta þau bætt hvort annað upp. BogmaÖurinn Bogmaðurinn þarf að fást við fjölbreytt og lifandi mál, stunda íþróttir eða ferðast og vera á hreyfmgu í daglegu lífí. Hann þarf frelsi til að víkka sjóndeildarhring sinn og safna að sér nýrri þekk- ingu, enda verður hann fljótt leiður á vanabindingu og end- urtekningum. Hinn dæmi- gerði Bogmaður er jákvæður og hress í fasi og að öllu jöfnu þægilegur, friðsamur og um- burðarlyndur. Hann er forvit- inn og leitandi og því oft víðsýnn. Steingeitin Steingeitin er jarðbundin og þarf að fást við áþreifanleg og uppbyggileg verkefni til að viðhalda lífsorku sinni. Hún þarf öryggi og fast land undir fótum og vill skipu- leggja fram í tímann. Stein- geitin er byggingarmeistari sem leggur einn stein í einu og þó heildarmyndin sjáist ekki við fýrstu sýn er hún oftar en ekki að vinna að byggingu stórrar stjómsýslu- hallar. Vinna skiptir hana miklu og ábyrgðarkennd hennar er sterk. I skapi er Steingeitin frekar þung og alvörugefín. Hún er formföst og yfirveguð. Metnaöur og þekkingarleit Mögulega erfíðleika í sam- bandi Bogmanns og Stein- geitar má rekja til ólíks upp- lags merkjanna. Annars veg- ar er Steingeitin, jarðbundin streðari, sem stefnir að árangri á einu ákveðnu sviði og hins vegar leitandi maður sem vill upplifa margbreyti- leika lífsins og þarf því oft að skipta um vettvang. Frjálslyndi og íhaldssemi Þó aðrar plánetur í korti þessara aðila geri að verkum að Bogmaðurinn sé ekki mjög hvikull og Steingeitin ekki fyrst og fremst metnaðar- gjöm streðari, er skapferlið ólíkt, er annars vegar létt og hins vegar þungt. Viðhorfin em einnig ólík, annars vegar fijálslyndi og hins vegar íhaldssemi og viss stifni. Nútíö ogframtíð Til að Steingeitin nái mark- miði sínu þarf hún að aga sig og skipuleggja tíma sinn en til að Bogmaðurinn nái markmiði sínu þarf hann að vera án hafta, reglu og skipu- lags. Öryggisþörf og það að skipuleggja getur því stang- ast á við það að lifa í nútíð- inni og grípa tækifærin þegar þau gefast. Stefnufesta Steingeitarinnar sem getur orðið að stífni og sveigjan- leiki Bogmannsins sem getur orðið að ábyrgðarleysi geta rekist saman. Raunhœfar áœtlanir Til að vel gangi þurfa Bog- maður og Steingeit að varast að dæma hvort annað. Slíkt leiðir einungis til óhamingju eða sprenginga. Það jákvæða er að saman geta þau skapað sér íjárhagslegt öryggi og traustan lífsstíl en jafnframt ferðast og lifað lífinu. Þor Bogmannsins til að takast á við það nýja getur bundist getu Steingeitarinnar til að skipuleggja og gera áætlanir raunhæfar. GRETTIR BRENDA STARR 1//0 CZfZU/M EHN ne>fí.EyNA AB F/NNA /UANLeV ÞfNGAAANN, Sp/N ÍS/Q S/LDU/M PA yNPCJfí SA/TlAN /' þSiPT/NA/. í VATNSMÝRINNI Þetta var frábært leikrit, Magga! BÓKASKRIFARI! BÓKASKRIF- ARI! Höfundur! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Spilin í A-úrslitum íslands- mótsins í sveitakeppni vom tölvugefin og þau sömu í öllum leikjum. Eins og venjulega þegar tölvan sér um gjöfina þykjast menn sjá ófreskjur í hveiju homi, litarslöngur og skipting- arskrímsli. Svo reyndist þó ekki vera í þetta sinn, þótt vissulega bæri nokkuð á fjömgum spilum. Síðasta spil mótsins var eitt af þeim: Vestur gefur; AV á hættu. Norður ♦ - ♦ Á985 ♦ ÁG76542 ♦ Á9 Vestur ♦ D954 VK6 ♦ - ♦ 10876532 Suður Austur ♦ ÁG1083 ♦ 73 ♦ KD109 ♦ DG ♦ K762 ♦ DG1042 ♦ 83 ♦ K4 í tveimur leikjum vom sex hjörtu sögð og unnin á spil NSr— Spilið reyndist meðal annars mjög afdrifaríkt í leik Flugleiða og Modem Iceland. Bræðumir Hermann og Ólafur Lárussynir sögðu slemmuna þannig á móti Jóni Baldurssyni og Val Sigurðs- syni: Vestur Norður Austur Suður Pass 1 tígull 1 spaði 2 työrtu 4 spaðar 6 työrtu Pass Pass Pass Spaði út steindrepur spilið í þessari legu, þar eð útilokað verður að fríspila tígulinn. En Jón valdi lauf og þar með hafði Ólafur nægan samgang til að verka tígullitinn eftir að hafa tekið tvisvar tromp. Á hinu borð- inu fengu Aðalsteinn Jörgensen og Ragnar Magnússon 500 fyrir að spila vöm í fjórum spöðum dobluðum, svo sveit Flugleiða tapaði 10 IMPum á spilinu. Stefán Guðjohnsen og Hauk- ur Ingason, liðsmenn Deltu, unnu einnig hjartaslemmuna í leiknum við Samvinnuferðir. { leik Polaris og Braga Hauksson- ar hitti Karl Sigurþjartarson á spaða út gegn slemmunni og hún fór þijár niður. Það var þó ein- ungis 2ja IMPa gróði, þvi hinu megin spiluðu Þorlákur Jónsson og Guðm. Páll Amarson fimm tígla doblaða, einn niður. Umsjón Margeir Pétursson Á opna mótinu í New York um páskana, sem nú er að Ijúka, kom þessi staða upp f skák þeirra Jóns L. Ámasonar, sem hafði hvftt og átti leik, og hollenska alþjóða- meistarans Pliester. 30. Rxe5! - Bxe5 31. Bxe5 - Hxe5 (31. - Dxe5 32. Hf8+ - Kg7 33. Hg8 er mát) 32. Hf7 - Dg6 33. Hg8+ og svartur gafst upp, því hann er mát í næsta leik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.