Morgunblaðið - 31.03.1989, Page 43
43
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1989
KORFUKNATTLEIKUR / BlKARURSLiT
Njarðvíkingar bikarmeistarar annað árið í röð:
Alvöru úrslKaleikur!
Njarðvíkingarsigruðu með einu stigi
eftirframlengdan leik
Logi Bergmann
Eiðsson
skrifar
NJARÐVÍKINGAR tryggðu sér
bikarmeistaratitilinn í körfu-
knattleik í gær er þeir sigruðu
ÍR-inga í Laugardalshöll með
eins stigs mun, 77:78. Leikur-
inn var hreint ótrúlega spenn-
andi, einkum á lokamínútum
síðari hálfleiks og í f ramleng-
ingunni. Sigurinn hefði getað
fallið hvoru liðinu sem var í
skaut en það voru Njarðvíking-
ar sem fögnuðu sigri í lokin.
Fæstir áttu von á spennandi leik,
enda Njarðvíkingar taldir með
mun sterkara iið. í upphafí leit út
fyrir nokkuð öruggan sigur þeirra,
en IR-ingar voru á
öðru máli. Þegar
tæpar fímm mínútur
voru eftir höfðu
Njarðvíkingar 9
stiga forskot. En á skömmum tíma
náðu IR-ingar að minnka muninn
í eitt stig.
Fnðrik Ragnarsson skoraði fyrir
Njarðvíkinga þegar 13 sekúndur
voru til ieiksloka, 71:69. En Vignir
Hilmarsson jafnaði fyrir ÍR-inga á
síðustu sekúndunum, eftir að hafa
fengið glæsilega sendingu frá Jóni
Emi.
Njarðvíkingar bytjuðu vel í fram-
lengingunni og náðu strax fímm
stiga forskoti. En góður kafli hjá
IR-ingum færði þeim foiystuna í
fyrsta sinn, síðan f upphafi leiks,
76:65. Njarðvíkingar komust yfír
að nýju, 76:78. Jón Öm hitti úr
öðm af tveimur vítaskotum sínum
þegar 10 sekúndur vora eftir og
það vora Njarðvíkingar sem náðu
frákastinu og héldu boltanum til
leiksloka.
Njarðvíkingar hafa verið efstir í
deildakeppninni tvö undanfarin ár.
Samt hafa þeir mátt horfa á eftir
íslandsbikamum til annarra liða.
Bikarinn er sárabót, og jafnvel gott
betur, því þeir hafa þurft að hafa
mikið fyrir honum. Andstæðingar
þeirra hafa verið sterkir og liðið
hefur átt sína bestu leiki í keppn-
inni.
Kristinn Einarsson og Helgi
Rafnsson vora þeir leikmenn sem
mest mæddi á og þeir stóðust álag-
ið. ísak Tómasson lék einnig vel
og Teitur nýtti færi sín vel er hann
losnaði úr strangri gæslu ÍR-inga.
Baráttuglaðir ÍR-ingar
ÍR-ingar lentu í miklum villu-
vandræðum og undir lokin höfðu
fímm leikmenn fengið fullan
skammt af villum. En liðið efldist
við hveija raun og eftir því sem
villunum fjölgaði því betur lék liðið.
ÍR-ingar, sem flestir töldu auðvelda
bráð fyrir Njarðvíkinga, vora hárs-
breidd frá sigri og eiga hrós skilið
fyrir gífurlega baráttu og sigurvilja.
Bjöm Steffensen var besti maður
IR-inga, hitti mjög vel og var sterk-
ur í vöminni. Ragnar Torfason lék
einnig vel og Jón Öm Guðmundsson
stjómaði spili þeirra af röggsemi.
Glæsilegur endir
Annað árið í röð hefur körfu-
knattleiksvertíðin endað á glæsileg-
an hátt. Skemmtilegir og spennandi
leikir í úrslitakeppninni og bikar-
keppninni hafa glætt körfuboltann.
Þessi leikur var viðeigandi endir
sem bauð upp á flest það besta í
körfuknattleik.
Njarðvíkingar fagna sigri að leik loknum. Frá vinstri:
Hreiðar Hreiðarsson fyrirliði, Bogi Þorsteinsson sem
afhenti bikarinn og ísak Tómasson.
„Heppnin með okkur
- sagði Chris Fadness, þjálfari Njarðvíkinga
Ileikjum sem þessum skiptir
heppni alltaf máli. Að þessu sinni
voram það við sem höfðum hana
með okkur. Það stefndi i auðveldan
sigur en þá urðum við kæralausir.
í lokin máttum við reyndar þakka
fyrir sigurinn," sagði Chris Fad-
ness, þjálfari Njarðvíkinga, eftir
leikinn. „Við lékum vel framan af
en siðari hálfleikurinn var slakur.
Það vantaði kraft í sóknina og við
gáfym of mikið eftir.
í mínum huga er bikarkeppnin
jafn stór og íslandsmótið. Við höf-
um þurft að hafa mikið fyrir sigram
okkar og ánægjulegt að fá bikarinn
eftir erfíðan vetur," sagði Fadness.
nHéh við myndum springa"
„Ég var alveg á taugum í lokin
og hélt að við myndum springa í
lokin. Við voram komnir vel af stað
í fym hálfleik en gáfum eftir í þeim
síðari," sagði Hreiðar Hreiðarsson.
fyrirliði Njarðvíkinga. „Mér fannst
dómaramir vera okkur óhagstæðir
en það hafði ekki áhrif. Við náum
bikamum og í mínum huga er hann
jafn eftirsóknarverður og íslands-
meistaratitillinn" sagði Hreiðar.
„Stoltur af strákunum"
„Ég er stoltur af strákunum.
Þeir léku mjög vel og eiga hrós
skilið. Það sem gerði þó útslagið
var slæm vítanýting okkar í lokin,“
sagði Sturla Örlygsson, þjálfari
ÍR-inga. „Ég var óánægður með
dómarana. Njarðvíkingar fengu að
leika fast en fengu færri villur en
við. Auk þess var mikið af vafasöm-
um dómum. En ég vil óska
Njarðvíkingum til hamingju með
titilinn," sagði Sturla.
Þrefalt hjá Jóni
Jón Kr. Gíslason er án efa mjög niðurlútur þessa dagana! Ekki í
andlegum skilningi heldur líkamlegum. Jón hefur nefnilega unnið
þrefaldan sigur á þessu ári. Hann er þjálfari karla- og kvennaliðs
IBK. Karlamir sigraðu í íslandsmótinu og konumar í íslandsmótinu
og bikarkeppninni. Jón er því kominn með þijá þunga verðlaunapen-
inga um hálsinn og það skýrir því Jón er svo niðurlútur!
IR—UMFN
77 : 78
Laugardalshöllin, úrslitaleikur Bikar-
keppni KKÍ, fimmtudaginn 30. mars
1988.
Gangur leiksins: 4:4, 4:11, 13:11,
19:19, 22:26, 24:33, 28:38, 33:39,
39:42, 33:46, 41:50, 47:52, 47:58,
57:61, 59:68, 67:68, 67:70, 69:70,
69:71, 71:71, 71:75, 76:75, 76:78,
77:78.
Stig ÍR: Björn Steffensen 25, Jón Öm
Guðmundsson 13, Bragi Reynisson 10,
Sturia Öriygsson 10, Jóhannes Sveins-
son 8, Ragnar Torfason 4, Kari Guð-
laugsson 3, Vignir Hilmarsson 2 og
Pétur Hólmsteinsson 2.
Stig UMFN: Helgi Rafnsson 18, Teitur
Öriygsson 18, Kristinn Einarsson 14,
Isak Tómasson 12, Friðrik Rúnarsson
9, Hreiðar Hreiðarsson 5 og Friðrik
Ragnarsson 2.
Dómarar: Gunnar Valgeirsson og
Bergur Steingrfmsson. Höfðu ekki
nógu góð tök á leiknum.
Ahorfendun 700.
■ PÉTUR Péíursson og Bjöm
Rafíisson skoraðu sitt hvort mark-
ið er KR sigraði Val 2:0 í
Reykjavíkurmótinu í knattspymu í
frkvöldi. _ . _
NJARÐVÍK varð í gærkvöldi
íslandsmeistari í 1. flokki í körfu-
knattleik er liðið sigraði Val 79:64.
Þorsteinn Bjaraason fór á kostum
í liði UMFN.
■ NORÐURLANDAMÓTW í
handknattleik karla verður haldið í
Færeyjum næsta haust.
Morgunblaðiö/Einar Falur
Twelr af lykllmðnnum ÍBK-liðsins, Björg Hafsteinsdóttir, t.v., og Anna
María Sveinsdóttir, hampa bikamum í gærkvöldi.
ÍBK - ÍR 78 : 68
Laugardalshöll, úrslitaleikur bikarkeppni kvenna, fimmtudaginn 30. mars 1989.
Gangur leiksins: 3:0, 6:2, 10:5, 15:10, 15:19, 19:19, 22:27, 32:33, 38:36, 42:36, 50:38,
52:48 57:48, 59:59, 71:62, 78:68.
Stig IBK: Marta Guðmundsdóttir 29, Anna María Sverrisdóttir 14, Björg Hafsteins-
dóttir 12, Margrét Sturiaugsdóttir 9, Bylgja Sverrisdóttir 9, Kristín Blöndal 4, Eva
Sveinsdóttir 1.
Stig ÍR: Linda Stefánsdóttir 16, Hildigunnur Hilmaradóttir 16, Harpa L. Guðbrandsd-
tóttir 13, Sigrún Hauksdóttir 12, Vala Úlfijótsdóttir 6, Hrönn Harðardóttir 4, Ingibjörg
Magnúsdóttir 2.
Áhorfendun 250.
Dómarar: Kristján Möllcr og J6n Otti Ólafsson og dæmdu þeir mjög vei.
„Meiriháttar"
- sagði Marta Guðmundsdóttir, sem fór á kQstum
er ÍBK sigraði ÍR og varð bikarmeistari
„ÞETTA var meiriháttar ieikur
og mjög gaman að vinna hann.
Fyrir leikinn vorum við ákveðn-
ar í að vinna og það tókst,“
sagði Marta Guðmundsdóttir,
sem fór á kostum með iiði ÍBK
gegn ÍR í gærkvöldi, er Suður-
nesjadömurnartryggðu sér
sigur í bikarkeppni KKÍ, annað
árið í röð. ÍBK sigraði einnig á
dögunum á íslandsmótinu, og
hefur reyndar einnig unnið það
tvívegis í röð.
eikurinn var jafn mest allan
tímann. ÍBK bytjaði mjög vel
en á 9. mín. komst IR yfír 16:15.
Á næstu mínútu fóra Björg Haf-
HHBHBI steinsdóttir og Anna
Skúli Unnar María út af meiddar
Sveinsson hjá ÍBK - snéra sig
skrifar báðar. Það blés því
ekki byrlega fyrir
íslandsmeistarana því þær eru með-
al bestu leikmanna liðsins. Björg
hafði t.d. verið í miklum ham, skor-
að 12 stig, þar af tvær þriggja stiga
körfur. Hún kom ekki inn á aftur
fyrr en um sex mín. voru eftir af
leiknum, og lék þá aðeins á hálfum
hraða.
ÍBK komst 10 stigum yfír fljót-
lega í síðari hálfleik, en ÍR náði svo
aðjafna, 59:59. ÍR-stúlkurnar héldu
hins vegar ekki út á lokamínútun-
um, enda komnar í mikil villuvand-
ræða. Vala og Linda fóra báðar af
velli með fímm villur er hvorki
meira né minna en níu mín. voru
eftir af leiknum, og munaði um
minna fyrir ÍR.
Talsverð taugaspenna var í báð-
um liðum og glötuðu leikmenn
knettinum oft klaufalega. Þó verður
að segjast að bæði lið hafa leikið
mjög vel lengst af.
Marta var best hjá ÍBK sem fyrr
segir, skoraði mikið og „stal“ bolt-
anum oft f vöminni. Björg Haf-
steinsdóttir var í miklum ham með-
an hennar naut við, Anna María
dijúg í fráköstum eins og venjulega
og skoraði mikilvægar körfur undir
lok leiksins, en annars lék liðið vel
í heildina. Hjá ÍR var Linda mjög
góð og stjómaði sóknarleiknum, en
það háir henni svolítið að hún getur
aðeins rekið knöttinn með annarri
hendi. Keflvíkingar færðu sér það
vel í nyt og stálu oft af henni boltan-
um. Hildigunnur stóð sig einnig vet-
og Harpa tók mikið af fráköstum.
Sigrún var og góð en hefði að
ósekju mátt skjóta meira.