Morgunblaðið - 02.04.1989, Síða 13

Morgunblaðið - 02.04.1989, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. APRIL 1989 13 OLAFUR SKIIVSOA \V KJÖKIA\ BISKUP ÍSIiWPS MUdlI sljórnandi - mlnnl kcnnimaóur ÓLAFUR Skúlason, nýkjörinn biskup íslands, er geysilega dugleg- ur og góður skipuleggjandi. Um það eru allir sammála og vitna í uppbyggingarstarf hans í Bústaðasókn og æskulýðsmálum Þjóð- kirkjunnar því til sönnunar. Viðmælendur Morgunblaðsins töldu hann verða röggsaman og verkmikinn biskup, en margir sögðu að hann væri frekar veraldlegur stjórnandi en andlegur leið- togi. Ekki væri gott að festa hendur á guðfræði hans og ræður hans væru oft innihaldsrýrar þó þær væru hið besta fluttar og á góðu máli. Ólafúr á sér vissulega andstæðinga innan kirkjunn- ar, en allir viðmælendur blaðsins voru sammála um að hinn ótví- ræði sigur hans í fyrstu umferð biskupskosninganna myndi skapa honum góðan frið á biskupsstóli. Þrátt fyrir allan guðfræðilegan og persónulegan ágreining eru menn sammála um að með Ölafi Skúlasyni hafi kirkjan fengið mjög hæfan stjórnanda og fram- bærilegan biskup næstu tíu árin eða svo. Olafur er fæddur í Birt- ingaholti í Hruna- mannahreppi, þann 29. desember 1929 og verður því sextugur á þessu ári. Hann er elstur ijögurra bama hjónanna Skúla Oddleifssonar og Sigríðar Ágústsdóttur. Fjölskyld- an fluttist snemma til Keflavíkur, þar sem Ólafur var virkur í skáta- hreyfingunni. Æskufélagar hans minnast þess ekki að hann hafi verið öðrum bömum guðræknari, en Helgi Skúlason, leikari og bróðir Olafs, segir það ekki hafa komið sér á óvart að hann fór í guðfræði, því á heimili þeirra hafí verið trúarlegt andrúmsloft og til dæmis alltaf hlustað á messur í útvarpinu. Þá em margir prestar í móðurætt Ólafs og hann heitir eftir einum þeirra, séra Ólafi Bri- em, syni Valdimars Briem, sálma- skálds. Að loknum gagnfræðaskóla hélt Ólafur til Reylq'avíkur og settist á skólabekk í Verslunar- skólanum. Nám hans þar hefur komið honum að góðum notum í starfí. Hann er sagður mikill málamaður og góður í vélritun. Hann vélritar allar sínar ræður sjálfur og segir Ebba Sigurðar- dóttir, eiginkona hans, það hafa verið mikinn tímaspamað fyrir hann. Að loknu stúdentsprófí hóf hann nám í guðfræðideild Há- skóla íslands, þar sem hann þótti duglegur og samviskusamur yuf n atmtf— nemandi. Meðal ■ RU skólabræðra hans þaðan, má nefna séra Sig- urð Hauk Guð- jónsson, en þeir Ólafur hafa alla tíð síðan verið miklir vinir og studdi Sigurður Ólaf í biskupslqori. Ekki mun Ólafur þó hafa verið alls kostar ánægður með poppmessur sem séra Sigurður Haukur hélt í Lang- holtskirkju á sjöunda áratugnum og skammaði unglinga úr Bú- staðasókn sem fóra þangað. Að námi loknu fór Olafur til Norður-Dakóta og var þar sóknar- prestur í ijögur ár hjá íslenskum söfnuði í Mountain-prestakalli. Ólafur varð að sögn fyrir miklum áhrifum af safnaðarstarfínu þar sem var mjög náið, og vitnaði meðal annars oft í reynslu sína í Amenku á fyrstu árum sínum í Bústaðakirkju. Eftir heimkomuna var hann sóknarprestur í forföll- um í æskubyggð sinni í Keflavík í flóra mánuði, en árið 1960 tók hann til starfa sem fyrsti Æsku- lýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar. Ólafur byggði upp mjög öflugt æskulýðs- starf, sem kirkjan nýtur góðs af enn í dag, að sögn viðmælenda efitrHuga Ólafison og Urdi Gunnarsdóttur blaðsins. Hann kom meðal annars á alþjóðlegum nemendaskiptum kirkjunnar. í Bústaðakirkju í aldarfjórðung Ólafur naut góðs af skipulags- hæfíleikum sínum og reynslu í æskulýðsmálum þegar honum var veitt Bústaðaprestakall í Reykjavík í árslok 1963. Hann stofnaði æskulýðsfélag í sókninni og fyrsti formaður þess var Ómar Valdimarsson, blaðamaður. Hann sagði að æskulýðsfélagið hefði fljótt orðið aðalfélagskapurinn í Bústaða- og Smáíbúðahverfinu og hálfsmánaðarlegir fundir þess hefðu alltaf fyllt stóran samkomu- sal í Réttarholtsskóla. Hundruð unglinga hefðu óskað eftir að láta séra Olaf ferma sig fremur en einhvem annan. Olafur dreif byggingu Bústaðakirkju líka upp á mettíma. Hann þótti harður Qáraflamaður og nýtti starfs- krafta unglinganna til að hreinsa timbur og fleira. Að margra dómi býr enginn söfnuður á landinu við betri aðstöðu en Bústaðasöfnuður. Ólafur Skúlason er sagður glaðlegur og hress í umgengni, skemmtilegur og skapmikill. Þó bráður fremur en langrækinn. Kona hans, Ebba Sigurðardóttir, segir hann óþolinmóðan og ná- kvæman, hann þoli ekki að vera of seinn. Séra Sigurður Haukur ■■■■■■■■ Guðjónsson segir að hann sé hrein- skiptinn, hafí ákveðnar skoð- anir og þori að standa við þær. Fleiri sögðu að hann kæmi til dyranna eins og hann væri klædd- ur. Hann á auðvelt með að um- gangast fólk og þau hjónin eru sögð gestrisin og góð heim að sækja. Öllum ber saman um að Ólafur sé feikilega duglegur og benda á verk hans og feril því til sönnunar. Sumir segja þó að hann hafi færst full mikið í fang með því að gegna störfum dómprófasts og vígslubiskups, auk þess að þjóna stórri sókn með miklum skyldum. Aðrir segja að það sé ekki sanngjöm gagnrýni; embætti vígslubiskups sé til dæmis ekki launað. Einn viðmælandi sagðist vonast til að hann bæri gæfu til að leita sér aðstoðar, en ynni ekki einn að verkunum, sem hefði vilj- að brenna við hingað til. Viðmæl- endur blaðsins sögðu það augljóst að maður sem hefði gegnt jafn mörgum trúnaðarstöðum og séra Ólafur hefði mikinn metnað. Séra Sigurður Haukur sagði að hann hefði fremur metnað fyrir hönd kirkjunnar en sjálfs sín og annar Hann er hreinskiptinn, hef- ur ákveðnar skoðanir og þorir að standa við þær Hann erfulltrúi eldri kyn- slóða og hugmynda sem leggja meiri áherslu á for- mið en innihaldið Teikning/Pétur Halldórsson Hann er mikill skapmaður; bráður en ekki langrækinn viðmælandi sagði hann fremur metnaðargjaman en metorða- gjaman. Óljós goiðfræði Viðmælendur Morgunblaðsins voru ekki margorðir um guðfræði og trúarskoðanir nýja biskupsins. Viðkvæði margra var að ekki væri gott að festa hendur á því efni í ræðum hans og hann hefði nánast ekkert ritað um guðfræði- leg málefni fyrir utan lokaritgerð sína í guðfræðinni, sem nefndist „Helgist þitt nafn - nokkrar at- huganir á bæninni og heilagleika- hugtakinu samkvæmt Biblíunni". Hann er sagður góður ræðumaður í þeim skilningi að hann flytji sínar ræður vel og hafi gott vald á tung- unni, en margir telja innihaldið vera heldur rýrt. Einn viðmælandi sagði að umbúðimar vildu verða fyrirferðameiri en innihaldið í ræðum hans, en ósanngjamt væri að álasa Ólafi sérstaklega fyrir þetta, þar sem æði margir prestar séu undir þá sök seldir. Séra Sig- urður Haukur sagði að hann ræddi fremur um málefni líðandi stundar en um guðfræðileg efni í predikunarstólnum. Flosi Magnússon, prófastur á Bfldudal, segir Ólaf vera fulltrúa eldri kynslóða og hugmynda, bam síns tíma þegar samfélagið var að breytast úr gamla klerkaveld- inu og áherslan var lögð á falleg- ar byggingar og form. Flosi sagð- ist telja að friður myndi ríkja um Ólaf á biskupsstóli, en undir sléttu yfirborðinu væri gífurlegur ágreiningur um hugmyndafræði innan kirkjunnar. Ekki væri þó um það deilt að með Ólafí hefði kirlq'an sem stofnun eignast hæf- an ffamkvæmdastjóra. Annar kirkjunnar maður sagði að Ólafur hefði útskrifast áður en guðfræði- deildin tók miklum stakkaskiptum og hann væri ekki mikill lærdóms- maður. Herra Sigurbjöm Einars- son biskup segir Ólaf hafa verið farsælan í sínu starfi sem sóknar- prestur og hann eigi von á því að svo verði farið um Ólaf í emb- ætti biskups. Hann reikni þó ekki með miklum breytingum. Ólafur sé enginn byltingarmaður en hann sé vissulega opinn fyrir nýjung- um. Kirkjunnar menn ætlist til mikils af honum, en menn verði að gæta sín að gera ekki óraun- hæfar kröfur til biskups. Fótboltaunnandi Að loknum vinnudegi fínnst Ólafí gott að slaka á með góða bók. Hann er heimakær og mikill fjölskyldumaður. Böm hans og Ebbu era þijú; Guðrún Ebba, Sigríður og Sigurður Skúli, og bamabömin fjögur. Ólafur hefur gaman af spilum og spilar bridds einu sinni í viku með skólafélögum sínum, ef tími gefst til. Hann er ákafur fótboltaáhugamaður og stuðningsmaður Víkings, þó hann eigi stundum í minniháttar sál- arstríði þegar hverfisliðið hans keppir við íþróttabandalag Keflavíkur. Sjálfur syndir Ólafur á hveijum morgni fyrir vinnu og leikur badminton. Hann hefur gaman af því að horfa á góðar bíómyndir, sér í lagi spennumynd- ir. Ebba segir þau hjón oft slaka á yfír bíómyndum þegar álagið sé mikið. Yfírleitt horfi þau á myndir heimavið, en bregði sér stöku sinnum í kvikmyndahús. Þó að Ólafur Skúlason hafí fengið ótvíræða kosningu í bisk- upsstól hefur hann ijarri því verið óumdeildur innan kirkjunnar. Einn viðmælandi blaðsins sagði Ólaf eiga ákafa stuðningsmenn, en einnig nokkra harða andstæð- inga. Annar sagði að gagnrýni á hann væri fremur á vinnubrögð hans, og jafnvel persónulegs eðlis, frekar en að hún snerist um mál- efni eða hugmyndafræði. Kosn- ingabaráttan síðast var nokkuð hörð, en þá var Pétur Sigurgeirs- son kjörinn biskup með aðeins einu atkvæði umfram Ólaf. Allir viðmælendur Morgunblaðsins vora hins vegar sammála um að kirkjunnar menn myndu samein- ast í kringum hinn nýja biskup og gefa honum tækifæri til þess að sanna sig með verkum sínum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.