Morgunblaðið - 02.04.1989, Side 17

Morgunblaðið - 02.04.1989, Side 17
Þefta sófasett heitír Top og er afft klætt meó góóufeórí. Þaó fæst i mörgum IHunu Verdkr. 129.100,- Skodið glæsileg húsgögn / skemmfilegri verslun Vió erum 1 „Nútíð“ Faxafeni 14, sími 680755 IIUSGOGN MOIjSjfflfBLAPŒ Eiturlyfjasali sem „starfsbróAir“ lumbraði ð: ekki skotinn." „heppinn að vera Handteknir eftir skotbardaga: „höfuðborg morða í Bandaríkjunum". Eiturlyfjaneytandi: óskipulögð viðskipti. Barry borgarstjóri: bendlaður við eiturlyfjamál. Lögreglumaóur í Washing- ton: krakksalamir betur vopnaðir. myrtir í Washington, helmingi fleiri en á sama tíma í fyrra, og svo get- ur farið að alls verði 800 myrtir á þessu ári. Lögregluforinginn Isaac Fuller hefur kallað 1988 „smánarár" í sögu Washingtons, ekki aðeins vegna þess hve mörg morð voru framin, heldur einnig vegna þess að glæpamennimir sýndu ótrúlega grimmd. „Starfsmenn morðdeildar- innar hafa ekki séð eins óhugnanleg sár síðan í Víetnamstríðinu," sagði hann nýlega. Kvöld nokkurt fyrir skömmu fundust tveir menn nær dauða en lífí í jeppa sínum. Eiturlyijakaup þeirra höfðu farið út um þúfur og þeir gátu talizt heppnir að sleppa lifandi með brotna hauskúpu, hand- leggi, fætur og rifbein. Þeir höfðu að minnsta kosti ekki verið skotnir í höfuðið. Þótt flestir séu myrtir með skotvopnum hafa margir verið kyrktir (þar á meðal 93 ára gömul kona í íjölbýlishúsi) og stungnir til bana. Öðmm er drekkt og enn aðr- ir em kæfðir eða brenndir til bana. Lögreglumenn eiga alltaf von á því að íbúar svokallaðra „krakk- húsa", sem þeir fýlgjast með, og ökumenn, sem þeir stöðva á götun- um, stökkvi út og fari að skjóta. Krakksalamir em betur vopnaðir en lögreglan. Eftirlit með skotvopn- um í Washington er með því strang- ara í Bandaríkjunum, en stutt er fyrir krakksalana að fara til Virg- iníu, þar sem þeir geta keypt gnægð skotvopna í miklu úrvali, þar á meðal ísraelskar Uzi-vélbyssur, sem era vinsælastar, og sjálfvirka, sovézka AK-47-riffla, sem skæm- liðar í Beirút hafa dálæti á. Þótt Iögreglumennimir séu að- eins vopnaðir skammbyssum hafa þeir stundum haglabyssu í bílnum og klæðast skotheldum vestum. Þrátt fyrir óöldina er sjaldan skotið á lögreglumenn og fátítt er að lög- reglumenn séu myrtir. Sennilega fínnst krakksölunum það ekki borga sig, því að hart er tekið á morðum á lögreglumönnum. Einnig er sjaldan skotið á venjulegt fólk, sem er ekki viðriðið eiturlyfjavið- skiptin. Skálmöld Skálmöldin í Washington er fyrst og fremst vandamál svartrar undir- stéttar. Innan við 5% morðanna em framin í hverfum hvítra manna bak við þinghúsið á Capitol Hill og í norðvesturhluta borgarinnar. All- flölmenn og velefnuð millistétt blökkumanna, sem hefur setzt að í norðurhlutanum eða fyrir utan borgarmörkin, hefur talið sig til- tölulega óhulta til þessa. Hins vegar hefur millistétt hvítra manna og svartra fyllzt reiði og ugg eftir skot- árás í framhaldsskóla svartra fyrir nokkm. Tilefni árásarinnar var að skóla- piltur settist við hliðina á vinkonu annars pilts í matsal skólans. Síðar um daginn skutu tveir piltar á hóp félaga sinna á skólalóðinni og fjórir úr körfuknattleiksliði skólans særð- ust. Lögreglan taldi málið ekki stór- vægilegt úr því að enginn beið bana, en það hefur ýtt undir kröfur um að skjótur endi verði bundinn á óöldina. Um þijár milljónir manna búa í úthverfíim Washington og fá betri laun en gengur og gerist. Flestir þeirra em starfsmenn sístækkandi alríkiskerfís og aka daglega til vinnu sinnar eða starfa heima við tölvur í kjöllumm húsa sinna. Böm- in standa sig vel í skóla og for- eldrarnir geta „trimmað“ í friði í garðinum hjá sér á kvöldin. Höfuðborgin fær ekki skatta af tekjum þessa fólks í úthverfunum, þótt það starfi í borginni. Það háir einnig borginni að hún hefur haft takmarkað sjálfsforræði. Ekki var gert ráð fyrir því að íbúar höfuð- borgar Bandaríkjanna hefðu pólitísk áhrif þegar henni var valinn staður við Potomac-fljót á sínum tíma. íbúamir fengu ekki að taka þátt í forsetakosningum fyrr en 1964 og fjármál borgarinnar hafa verið í höndum þjóðþingsins, sem hefur margt annað á sinni könnu og hefur verið sakað um skilnings- leysi á málefnum borgarbúa. Umdeildur Marion Barry, sem hefur verið borgarstjóri undanfarin 11 ár, er af nýrri kynslóð svartra borgar- stjóra í bandarískum stórborgum. Hann fæddist í fátækt í Mississippi og tók virkan þátt í réttindabaráttu blökkumanna áður en hann varð borgarstjóri. Blökkumenn hafa ver- ið hreyknir af honum eins og öðram svörtum borgarstjóram, því að þeim fínnst þeir sýna að barátta þeirra hafí borið nokkurn pólitískan árangur. Traust kjósenda á Barry hefur hins vegar dvínað mjög, því að hon- um hefur ekki tekizt að stemma stigu við aukinni eiturlyfjaneyzlu og fjölgun glæpa. „Eiturlyfjastríð- ið“ hefur veikt pólitíska stöðu hans og jafnvel leiðtogar blökkumanna hafa gagnrýnt hann. Ekki bætir úr skák að Barry hefur sjálfur verið sakaður um eit- urlyfjaneyslu. Hann hefur að vísu ekki verið ákærður eða fundinn sekur um slíkt, en rannsóknardóm- stóll kannar kærur gegn honum. Tveir varaborgarstjórar og átta aðrir nánir samstarfsmenn hans hafa verið dæmdir fyrir spillingu og ýmsir aðrir samstarfsmenn hans hafa verið neyddir til að láta af embættum sínum. Einn þessara manna er Charles Lewis, sem hefur verið sakaður um að hafa verið viðriðinn kókaínsölu. Mikið uppnám varð þegar í Ijós kom í desember að Barry hafði heimsótt Lewis sex sinnum á hóteli í Wash- ington, þar sem hann dvaldist á kostnað alríkisins. Barry neitaði þvi að hann hefði vitað að Lewis hefði verið bendlaður við eiturlyfjamál og sjálfur neytt eiturlyija þegar hann heimsótti hann. Samkvæmt því sem fram kom var starfsmönnum eiturlyijalög- reglunnar eitt sinn meinaður að- gangur að hótelherbergi í Wash- ington, þegar þeir ætluðu að kaupa eiturlyf til að afla sönnunargagna. Gripið var til þessa ráðs þegar starfskona hótelsins hafði greint frá því að Charles nokkur Lewis væri að reyna að selja kókaín í einu her- berginu. LífVerðir Þeir sem hindraðu starf lögregl- unnar reyndust vera lífverðir Mari- ons Barrys borgarstjóra, sem sat á fundi með Charles Lewis í hótel- herberginu. Málið vakti þjóðarat- hygli og kom Barry í klípu, en hann virtist bjarga sér út úr erfíðleikun- um, að minnsta kosti í bili. En fyrir nokkmm vikum var Lewis handtekinn fyrir að hafa kókaín undir höndum og dreifa því. Enn varð Barry borgarstjóri fyrir álitshnekki og deilumar um eitur- lyfjatengsl hans blossuðu upp á ný. Hann hélt því hins vegar fram í yfirlýsingu að hann hefði aldrei séð eiturlyf, hvað þá neytt þeirra. Hart hefur verið lagt að Barry borgarstjóra að gera eitthvað rót- tækt til að stöðva glæpafárið, en það hefur gert hann nánast hjálpar- lausan og óvíst er að hann verði endurkjörinn í kosningum, sem fara fram á næsta ári. Hann hefur tekið dræmt í hug- myndirnar um útgöngubann, en lagt til að viðurlög við vopnaburði verði hert. En þar sem strangt eftir- lit er með sölu skotvopna í höfuð- borginni telja fáir að hótanir um harðari viðurlög við vopnaburði muni hafa áhrif. Borgarstjómarfulltrúar hafa gagnrýnt Barry fyrir að neita að ráða fleiri lögreglumenn til starfa. Fyrir nokkmm vikum hvatti lög- reglusljórinn í Washington, Maurice Tumer, til þess í sjónvarpsávarpi að 700 nýir lögreglumenn yrðu ráðnir. Þá höfðu kunnur glæpafor- ingi og þrír menn aðrir fallið í bar- dögum um eina helgi og fímm særzt alvarlega. Fyrír bardagana höfðu 400 nýliðar og skrifstofumenn í lögreglunni verið settir í gæzlu- störf, en það dugði ekki til. Morð, eiturlyf og fátækt em ekki einu vandamálin, sem við er að stríða í Washington. Bamadauði er t.d. helmingi meiri í borginni en í landinu í heild og hún er orðin „krabbameins-höfuðborg" Banda- ríkjanna. En fleiri borgir eiga við vandamál að etja, t.d. Miami, Chicago, Detroit og New York. Undirrót vandans er eymd svartrar undirstéttar, sem er fátæk, ómennt- uð og varla læs eða skrifandi. Samkvæmt nýlegri skýrslu býr þriðjungur blökkumanna í Banda- ríkjunum við fátækt. Svertingjar em 12 af hundraði þjóðarinnar, en 46 af hundraði allra fanga em blökkumenn. Þeim svertingjum sem stunda framhaldsnám fækkar með ári hveiju. Mæður 61 af hundraði allra svartra bama, sem fæddust 1988, vom einstæðar og minnihluti feðranna styður uppeldi barna sinna. Forstöðumaður sjóðs, sem styrkir svört böm, segir að óskil- getnum bömum ijölgi svo ört að telja megi „næsta víst að næsta kynslóð svartra bama muni lifa í fátækt". Vandinn virðist óleysanlegur og örvænting blökkumanna eykst stöð- ugt. Bush forseti, sem sér vanda- málin blasa við á „baklóðinni" í Washington, hefur heitið því að bæta kjör blökkumanna, en ekki er ljóst hvemig hann ætlar að fara að því. Ástandið í höfuðborginni verður eitt helzta viðfangsefni „eit- urlyíjazars" hans, Williams Benn- etts.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.