Morgunblaðið - 02.04.1989, Síða 21
6861 JÍÍMA .S HU0AQUMMU8 GIQAJaVIUOflOM . OS
ATVINNU RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Fj ármálafulltrúi
Þekkt iðnfyrirtæki í Reykjavík auglýsir í blaðinu í dag eftir
fjármálafulltrúa. Fram kemur að hér er um að ræða traust
fyrirtæki með 25 manns í vinnu og árlega söluveltu um 200
milljónir króna. Starfíð heyrir undir framkvæmdastjóra og
felst í umsjón með daglegum fjármálum, áætlanagerð, arð-
•semisútreikningum og eftirliti með tekjum og gjöldum fyrir-
tækisins. Starfið er sagt kjörið fyrir ungan og efnilegan við-
skiptafræðing með starfsreynslu sem vill sýna hvað í honum
býr.
Framkvæmda-
stjóri flármagns-
markaðar
Hagvangur auglýsir eftir framkvæmdastjóra hjá traustu
fyrirtæki á íjármálamarkaði sem hefur ákveðið að opna
markaðsskrifstofu. Starfssvið .'"ramkvæmdastjóra verður
skipulagning og uppbygging starfseminnar, mannaráðningar
o.fl. ásamt stjómun og ábyrgð á daglegum rekstri. Leitað
er að manni með háskólamenntun eða aðra haldgóða mennt-
un og þekkingu á viðskiptalífí. Reynsla af störfum við verð-
bréfaviðskipti og/eða aðra fjármálastarfsemi nauðsynleg.
Forstöðumaður
leikskóla
Forstöðumaður óskast að leikskólanum Hlaðhömrum í fullt
starf og er fóstrumenntun áskilin. Leikskólinn er í nýupp-
gerðu húsi með þremur deildum.
RAÐAUGL ÝSINGAR
Atöppun á öli
Innkaupastofnun ríkisins óskar eftir tilboðum í átöppun á öli
á dósir, flöskur og plastkúta fyrir Afengis- og tóbaksverslun
ríkisins. Tilboðum þarf að skila fyrir kl. 11.00 f.h. mánudag-
inn 17. apríl n.k. þar sem þau verða opnuð í viðurvist við-
staddra bjóðenda.
Húsnæði við
Austurstræti
Um 250 fm. húsnæði á 2. hæð í Austurstræti 14 er auglýst
til leigu í blaðinu í dag. Þar var áður til húsa gjaldeyriseftir-
lit Seðlabankans. Þá er Austurstræti 12a einnig auglýst til
leigu þar sem áður var veitingahúsið Óðal.
SMÁAUGL ÝSINGAR
Skíðagöngur
í dag gengst Ferðafélag íslands fyrir tveimur dagsferðum
og eru brottfarir frá BSI kl. 10.30 og 13.00. í fyrri ferðinni
verður gengið á skíðum á Hellisheiði. Eftir hádegi verður
lagt upp í gönguferð á Skarðshlíðarfjall en á eftir gengið á
skíðum á Hellisheiði. Fargjald er kr. 800. Útivist gengst
fyrir skíðagöngu frá Rauðavatni um þægileg heiðarlönd að
Langavatni og Hafravatni. Ef snjóalög breytast verður farið
austar. Brottför er frá BSÍ kl. 13.00. og fargjald er kr. 500.
Nu orðið hljótast lítil vandræði af farþegum og telja leigubílstjórar unga fólkið
sérstaklega til fyrirmyndar í þessum efnum.
Fækkun í stéttarfé-
Egilsstaðir;
Dregið hef-
ur úr at-
vinnuleysi
Egilsstöðum.
HELDUR hefur dregið úr at-
vinnuleysi á Fljótsdalshéraði að
undanförnu en það hefúr verið
óvenju mikið í vetur. Nú eru á
milli 40 og 50 manns á atvinnu-
leysisskrá, aðallega verkafólk.
Einnig hefúr vinna verið lítil hjá
vörubílstjórum.
M enn eru bjartsýnir á að úr
þessu rætist þegar lengra líður fram
á vorið. Atvinnuástand verka-
kvenna hefur verið ótryggt allt
síðastliðið ár eftir að ptjónastofan
Dyngjan hætti starfsemi fyrir rúmu
ári.
Vinnuframboð við fískverkun á
nærliggjandi íjörðum hefur verið
minna það sem af er vetri en undan-
farin ár og gætir áhrifa þess hér,
því héraðsmenn hafa ávallt sótt
vinnu tímabundið niður á fírði.
Útlit er fyrir töluverðar bygg-
ingaframkvæmdir í sumar en hér
er bæði um að ræða íbúðarhúsnæði
og atvinnuhúsnæði, m.a. nýja iðn-
garða þar sem 5 fyrirtæki sem nú
eru starfandi fá aukið húsnæði fyr-
ir starfsemi sína.
Nýtt fískverkunarfyrirtæki tekur
til starfa hér síðari hluta apríl sem
mun þurrka þorskhausa fyrir
Nígeríumarkað. Gert er ráð fyrir
að þetta fyrirtæki skapi 10 ný störf
á svæðinu.
- Björn
lagi leigubílsijóra
Hreyfill stærsta bifi’eiöastööin
NOKKUR fækkun leigubílstjóra hefúr
átt sér stað firá því á sama tímabili i
fyrra. Er orsökin aðallega sú, að 1. júlí
1988 voru innkölluð Ieyfí fyrir bílstjóra
75 ára og eldri. í Frama, stéttarfélagi
leigubílsljóra eru nú 614 félagsmenn, en
voru í fyrra á sama tíma 633.
ð sögn Ingólfs Ingólfssonar
framkvæmdastjóra Frama er yfír-
leitt lítil tilfærsla milli bifreiða-
stöðva. Þó hafi allmargir starfs-
menn farið frá BSR yfir til annarra
félaga fyrir nokkrum mánuðum
vegna óánægju starfsmanna með
að fyrirtækið bauð út akstur án
samráðs við þá. Taxti leigubíla sé
ákveðinn af Verðlagsstofnun og
þegar búið sé að greiða kostnað af
bílnum sé það sem eftir er laun
bílstjórans. Þegar veittur hafi verið
33% afsláttur af upphaflegu verði
rýri það laun bílstjórans.
Flestir bílstjóranna vinna
hjá Hreyfli
Flestir bílstjóranna eru hjá
Hreyfli eða rúmlega 230 manns,
hjá Bæjarleiðum í kringum 180
manns, hjá BSR eru rúmlega 150
manns og hjá Bifreiðastöð Hafnar-
fjarðar og Borgarbílum um 25
manns hjá hvoru fyrirtæki.
Aðspurður sagði Ingólfur að
umræðan í vetur um að leigubílar
hafí ekki sýnt næga þjónustu á
álagstímum væri ósanngjörn. Óeðli-
legt ástand hefði verið seinni part
vetrar, mikill snjór og ófærð, og
að sjálfsögðu kæmi það niður á
leigubflum sem öðrum samgöngu-
tækjum. Álag á bílstjóra ykist og
og meiri hætta væri á árekstrum
og tjónum. Félagið hefði gripið til
þess ráðs að heimila tvísetningu á
bíla, þannig að að sem flest farar-
tæki væru í umferð.
Ingólfur sagði það einnig vera
eilíft vandamál, að skemmtistaðir
loka allir á sama tíma og þegar
12—15 þúsund manns kæmu út á
göturnar á svipuðum tíma væri
ekki auðvelt að sjá öllum fyrir fari.
Skynsamlegast væri að loka
skemmtistöðunum á mismunandi
tímum til að dreifa álaginu. Hann
sagði það varla koma fyrir nú orðið
að vandræði hlytust af farþegum
og unga fólkið væri til mikillar prýði
í þessum efnum. Meira að segja
sæktu leigubílstjórar í það um helg-
ar að þjónusta unga fólkið í mið-
bænum.
Súðavík:
Slæmt
tíðarfar
Súðavik.
SLÆMT tíðarfar hefúr sett svip
sinn á atvinnumál í Súðavík frá
áramótum. Iljá hraðfrystihúsinu
Frosta hf., sem er langstærsti
atvinnuveitandinn á staðnum,
hafa fallið niður þrír dagar í
vinnslu vegna hráefúisskorts þar
sem skipin gátu stopult sótt sjó-
inn um tíma vegna veðurs.
að er mjög óvenjulegt að hér
falli niður vinna vegna hráefnis-
skorts. Að öðru leyti hefur atvinna
verið jöfn og góð eins og mörg
undanfarin ár.
Frosti hf. hefur þurft að leita út
fyrir landsteinana eftir vinnufúsum
höndum í fískvinnu eins og flestir
aðrir fiskverkendur á Vestfjörðum
síðastliðin ár. Nú eru 13 útlending-
ar starfandi hjá Frosta hf. og er
reyndar mikil ásókn um þessar
mundir frá útlendingum að komast
í fískvinnslu. Það sama er ekki
hægt að segja um íslendinga þótt
atvinnuleysi hafí aukist á sumum
landsvæðum.
- DóJó