Morgunblaðið - 02.04.1989, Side 36

Morgunblaðið - 02.04.1989, Side 36
jefæfææ/væ; FERSKLEIKJ^^^ Aukin þægindi ofar skvium^_* MESTÁ REmiR FLUGLEIÐIR ' UORGUNBLADW, ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, POSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR. Icelandic Freezing Plants Ltd.: Skemmdir á 100 manns bætt á launaskrána ICELANDIC Freezing Plants Ltd., dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, hefúr undanfarið vakið athygli í Grimsby. Þann- ig var aðalfrétt á forsíðu blaðsins Grimsby Evening Telegraph á dögunum um að fyrirtækið hefði séð verkafólki í Grimsby fyrir páskaglaðningi, því það hafí bætt 100 manns á launaskrá sína fyrir páskana og væri enn að bæta við starfsfólki. Tæplega 400 manns starfa nú hjá fyrirtækinu. Icelandic Freezing Plants Ltd., sem stofnað var fyrir fímm árum, á stóra verksmiðju í Grimsby, þar sem framleiddir eru unnir fískréttir. Ingólfur Skúlason forstjóri sagði við Morgunblaðið, að nú væri að sjást árangur heils árs markaðs- starfs og vöruþróunar, en ýmsar nýjar framleiðsluvörur seldust nú vel í Bretlandi. Einnig hefði fyrir- tækið náð markaði víða erlendis með unna fískrétti, m.a. í Japan þar sem salan hefði gengið framar öllum vonum. Mikill uppgangur er í Grimsby um þessar mundir í tengslum við sjávarútveg og fískvinnslu. Haft er eftir borgarstjóranum, Sarah Woodliff, í Evening Telegraph, að hún hvetji önnur fyrirtæki til að stökkva upp í velgengnislestina, áður en það verði of seint, þar sem landrými sé takmarkað. Hótelin nánast *fiillbókuð í júní NOKKUR stór hótel í Reykjavík eru svo til fúllbókuð í júní í sumar og einnig er mikið bókað í maí. Flestir þeirra sem pantað hafa her- bergi á hótelunum í mai og júní koma hingað til lands til að sitja ráðstefnur. Útlit fyrir júli og ágúst er einnig gott, en þá er meira um pantanir frá einstaklingum. Hjá Hótel Sögu fengust þær upplýsingar að vegna þess hve margir afpöntuðu bókanir í fyrra- sumar hefði verið gengið fastar eftir því að bókanir fyrir sumarið væru staðfestar. Þar er svo til full- bókað í maí og júní af ráðstefnu- gestum og er líka búist við þeim seinni hluta ágúst. Á Hótel Loftleiðum er einnig mest bókað í maí og júní, en minna í júlí og ágúst. Þó eru 10 dagar í júlí fullbókaðir. Fullbókað er í júní á Holiday Inn og mikið bókað í maí, júlí og ágúst. Hjá Hótel KEA á Akureyri voru komnar fleiri bók- anir á sama tíma í fyrra en nú. Gunnar Karlsson hótelstjóri sagðist þó ekki vera svartsýnn. Hann sagði að þokkalega hefði gengið í ár og þær bókanir sem nú hafa borist væru öruggari þvf betur hefði geng- ið að fá þær staðfestar. Gunnar sagði að samgöngur hefðu sett strik í reikninginn hjá hótelinu í vetur. Aðeins helmingur þeirra sem pöntuðu herbergi um páskana komust til Akureyrar og flug hefði verið ótruflað aðeins tvær helgar frá áramótum. MÆTTIR MEÐ STÖNGINA Selfossi. KVIKUR silungur og sjó- birtingur heilla til sín veiði- menn á vori hveiju. Á myndinni renna þeir Rósar Eggertsson og Ólafur Hauksson fyrir silung í Þorleifslæk (Varmá) í Olf- usi í gærmorgun. Þetta er þrítugasta vorið sem Rósar mætir á bakka Þorleifs- lælqar. Fyrsti veiðidagur- inn var bjartur og hlýr, nýfallinn snjór á jörð og gott líf við enda línunnar hjá veiðimönnunum. Á minni myndinni er Paul David Okeeffe með fyrsta fískinn úr ánni í ár, tveggja punda silung sem fékkst á laxaflugu númer átta. — Sig Jóns. Laxastofhar í ám við Faxa- flóa taldir í útrýmingarhættu 90 prósent septemberlaxa í Botnsá reyndust eldislaxar TÆPLEGA 90 prósent veiddra laxa í Botnsá í Hvalfirði í septem- ber á síðasta ári reyndust vera af eldis- og hafbeitaruppruna. 69 prósent alls sumaraflans var af sama meiði. Sé miðað við að einstakir laxar úr Botnsá nái yfirleitt fimm ára aldri, þá myndi hinn villti stofii árinnar hverfa á 7 árum miðað við óbreytt ástand. Enn skemmri tíma tekur það ef dregur úr villtum laxagöngum frá því sem var í fyrra. Þetta hafa sérfræðingar Veiðimálastofn- unar lesið úr 116 hreistursýnum sem tekin voru af Botnsárlöxum á síðasta sumri. Ekki eru til tölur úr Brynju- dalsá í Hvalfírði, en glöggir menn telja ástandið þar síst betra. í þeim ijórum laxveiðiám þar sem umtalsvert magn sýna var tekið í fyrra, Elliðaánum, Botnsá, Leir- vogsá og Úlfarsá, reyndist vera mikið af eldislaxi. Verst var þó ástandið í Botnsá. „Þetta eru miklu verri niður- stöður heldur en okkur óraði fyr- ir. Maður hélt eins og svo margir, að eldislaxamir væru að flækjast ráðalausir neðst í ánum, engum til ama, en raunin hefur svo reynst allt önnur," sagði Sigurður Guð- jónsson deildarstjóri á Veiðimála- stofnun í samtali við Morgun- blaðið. Hann sagði að með því að nota skandinavíska jöfnu, sem sýndi þann tíma sem það tæki að skipta út erfðaefni, fengist sá tími sem það tæki ákveðna stofnblönd- un að þurrka út náttúrulega stofna þessara laxveiðiáa. í Morgunblaðinu á föstudaginn var greint frá þéttleika eldislaxa í Elliðaánum og þeirri stofnblönd- un sem þar er hafín. Ef litið er aftur á Elliðaámar og miðað við sumarveiðina þar í fyrra, þá myndi náttúrulegi stofn árinnar hverfa á 50 árum miðað við 10 prósent blöndun. Á 25 árum mið- að við 20 prósent blöndun, sem er álíka blöndun og fiskifræðingar telja að hafi verið í fyrra. Miðað við 40 prósent blöndun tæki breyt- ingin milli 12 og 13 ár, en þess má geta, að um tíma í fyrra voru 40 prósent veiddra laxa í Elliðaán- um af eldis- og hafbeitaruppruna. Ef það drægi úr göngum villtu laxastofnanna myndi þessi breyt- ingartími styttast sem því næmi, að sögn Sigurðar. „Ef til þess kæmi, þyrftu ámar ekki að verða laxlausar. Það gæti komið nýr og margfalt lélegri fisk- ur. Lax sem myndi dafna til muna verr og vera liðfærri. Allt annar fiskur heldur en nú er,“ sagði Sigurður. „En þetta má alls ekki verða ofan á og næsta sumar mun Veiðimálastofnun gera átak í rannsóknum á þessu máli og treystum við á stuðning stjóm- valda í þeim efnum,“ bætti Sig- urður við. vögnum og bíl- stjórum ógnað „ÞAÐ KEMUR oft fyrir að vagn- arnir eru hálf rústaðir, sæti eyði- lögð og hent út, rúður brotnar og leiðslur rifiiar niður,“ sagði Sveinn Björnsson forstjóri Stræt- isvagna Reykjavíkur í samtali við Morgunblaðið. Aþetta sérstaklega við um síðustu ferðir vagnanna á leið 13 og 14 á föstudagskvöldum og hafa forráðamenn SVR ákveðið að leggja ferðimar niður verði ekki breyting þar á. Reikna má með að heildarkostnaður vegna skemmdar- verka, sem unnin era á strætisvögn- um og biðskýlum sé um 800 þúsund krónur á þessu ári. „Oft era ansi margir unglingar í þessum síðustu ferðum vagnanna þannig að vagnstjórinn getur ekki fylgst nægilega vel með því sem fram fer í vagninum,“ sagði Sveinn. „Enda getur hann kannski _ lítið gert, einn á móti fjöldanum. í eitt skipti vora unglingamir til dæmis með hnífa á lofti og reyndu að neyða vagnstjórann til að súpa á vínflösku." Biðröð eftir að komast að SEX LOÐNUSKIP voru að veiðum 3 mflur frá Akranes- höfii í gærmorgun. „Það fannst ágætis torfa við hafn- arkjaftinn á Akranesi," sagði Viðar Karlsson, skipstjóri á Víkingi AK, í samtali við Morgunblaðið. „Við fengum hér 200 tonna kast en þurf- um að bíða í röð eftir að komast að, því plássið er svo Iítið,“ sagði Viðar. Viðar sagði að dýpið væri einungis 18 faðmar þar sem skipin væra að veiðum og botn- inn harður. „Við höfum ekki þurft að taka þá áhættu fýrr að skemma veiðarfærin á þessu granna vatni en það er enga aðra loðnu að hafa á svæðinu frá Öndverðarnesi að Höfn í Homafirði.“ 48 sentimetra ja.fhfa.Hinn snjór á Hæli 33 SENTIMETRA jafnfallinn siqór féll í Reykjavik frá klukkan 18 á föstudag til til klukkan 9 að morgni laugardags. Mest snjóaði á Hæli í Hreppum; þar höfðu fall- ið 48 sentimetrar af snjó. Þetta er geysilega mikil úrkoma," sagði Bragi Jónsson veðurfræð- ingur, sem hafði enn ekki handbærar tölur um hvort þetta hefði verið úr- komumesti dagur vetrarins. Úrkom- an mældist 40 millimetrar að Hæli, 23 millimetrar á Eyrarbakka og Hellu en 22 millimetrar í Reykjavík. Fannfergið var rakið til grunnrar lægðar sem var kyrrstæð yfír Suðurl- andi aðfaranótt laugardagsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.