Morgunblaðið - 12.04.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.04.1989, Blaðsíða 1
48 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 82. tbl. 77. árg. MIÐVIKUDAGUR 12. APRIL 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sovéskt dagblað um kafbátsslysið: Rangt að hafha aðstoð frá Noregi Reynt verður að ná kafbátnum af hafsbotni Moskvu, Ósló. Reuter. Daily Telegfraph. SOVÉSKA dagblaðið Komsomolskaja Pravda birti í gær grein um kafbátsslysið við Bjarnarey og er þar gefið i skyn að hægt hefði verið að bjarga lífi fleiri skipverja ef norsk yfirvöld hefðu verið beðin um hjálp. Bendir blaðið á að það tók sovésk skip átta klukku- stundir að komast á slysstaðinn. Yfirheyrslur yfir skipbrotsmönnum eru þegar hafnar. Blaðið ízvestíja skýrði frá því á mánudag að 38 af 42 fórnarlömbum slyssins hefðu drukknað eða farist af völdum kulda_ og vosbúðar í björgunarbátum. Áður hefur komið fram að ekki var lými fyrir alla áhöfnina í björgunarbátunum. Fjór- ir menn fórust í eldinum sem kom upp í vélarrými bátsins, sennilega í rafbúnaði, að sögn Ízvestíja. Vest- rænir sérfræðingar telja mögulegt að hluti áhafnarinnar hafi lokast inni í vélarrými bátsins sem vani sé að loka strax þegar eldur verður laus í kjarnorkukafbátum. 7ASS-fréttastofan sovéska sagði í gær að enn væru nokkur sovésk skip á slysstaðnum. Leitað væri að líkum og jafnframt mæld geisla- virkni en hún hefði ekki reynst óeðlilega há. Norsku geislavarnirn- ar hafa fengið sýni sem hafrann- sóknastofnunin í Björgvin lét taka á hafsbotni við slysstaðinn. Bráða- birgðaniðurstöður styðja fullyrðing- ar Sovétmanna en sérfræðingar munu rannsaka sýnin næstu daga. Sovétmenn hafa skýrt frá því að reynt verði að ná kafbátnum af hafsbotni en talið er að um borð sé mikið af háþróuðum, dýrmætum tækjum sem sovésk yfirvöld vilji ekki að komist í hendur annarra þjóða. Umræður munu fara fram í norska stórþinginu í dag, miðviku- dag, vegna gagnrýni á hernaðar- yfirvöld fyrir að skýra ekki frá slys- inu fýrr en mörgum klukkustundum eftir að norskir flugmenn sáu skip- brotsmenn af kafbátnum í björgun- arbátum. Johan Jorgen Holst varn- armálaráðherra hefur sagt að áætl- anir um samráð ráðuneyta varnar- mála og utanríkismála hafi brugð- ist. Norsku geislavarnirnar fengu heldur engar upplýsingar fyrr en fjölmiðlar komust í málið. Sjá einnig bls. 21: „Reynt verð- ur að ...“ Reuter Skipbrotsmenn á flotasjúkrahúsi í Murmansk. Mennirnir sögðu að kafbáturinn hefði sokkið mjög skyndilega og það hefði átt sinn þátt í að svo margir fórust. Kuldinn í sjónum hefði verið ægilegur. Sovésk- ur varaaðmíráll sagði í gær að maðurinn sem sá um að slökkva á kjarnaofnum kafbátsins hefði lifað af og búið væri að yfirheyra hann. Varsjárbandalagið: Vilja viðræð- ur við NATO Austur-Berlín. Reuter. Ráðherrar aðildarríkja Var- sjárbandalagsins samþykktu á fiindi sínum í Austur-Berlín í gær að fara fram á viðræður við Atl- antshafsbandalagið, NATO, um fækkun skammdrægra kjarn- orkueldflauga. Tadeusz Olechowski, utanríkis- ráðherra Póllands, sagði að--ráð- herrar Varsjárbandalagsins hefðu verið sammála um að hefja ætti samningaviðræður um fækkun skammdrægra kjarnorkueldflauga í kjölfar viðræðnanna í Vín um fækkun hefðbundinna vopna í Evr- ópu. Þjóðernisátökin í Grúsíu: Hátt í 500 manns handteknir í Tíflis Yfírvöld gera skotvopn í einkaeign upptæk Moskvu. Reuter. Daily Telegraph. TALIÐ er að hátt í 500 manns, sem virtu að vettugi útgöngubann sem sett var á aðfaranótt þriðjudags í Tíflis, höfuðborg Grúsíu, hafi verið handteknir í gær. Svartir fánar og borðar blöktu hvar- vetna í borgjnni til merkis um sorgina sem þar ríkir en alls létust 18 manns í óeirðunum sem brutust út á sunnudag þegar þjóðernis- sinnar kröfðust aðskilnaðar Grúsíu frá Sovétríkjunum. Yfirvöld gripu til þess ráðs í gær að skipa eigendum skotvopna að skila byssum sínum, en alls eru 66.000 skotvopn á skrá í lýðveldinu. Míkhaíl Gorb- atsjov Sovétleiðtogi sagði í gær að þrátt fyrir að fjáningarfrelsi væri í heiðri haft yrðu borgararnir að fara að lögum og að stjórnvöldum bæri skylda til að veija stefhu sína. Dagblað Sovétstjórnarinnar, íz- vestíja, sagði að 464 menn hefðu verið handteknir og að forsprakkar mótmælanna hefðu verið á meðal þeirra. Blaðið sagði jafnframt að hópur manna hefði ógnað verka- mönnum á leið til vinnu. Gennadíj Gerasimov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, sagði á blaðamannafundi í Moskvu að 200 manns hefðu verið hand- teknir og að eigendum skotvopna hefði verið skipað að skila þeim til yfirvalda. Jan Goreljov, fréttamaður grúsísku fréttastofunnar Gruzin- form, sagði í viðtali við fréttamann Reuters-fréttastofunnar að í það minnsta 140 manns af 250 sem lagðir voru inn á sjúkrahús væru alvarlega slasaðir. Dzumber Patíashvílí, leiðtogi kommúnistaflokks Grúsíu, hefur viðurkennt að honum hafi orðið á mistök þegar hann kvaddi herinn á vettvang. Fréttaskýrendur telja hugsanlegt að Patíashvílí verði lát- inn víkja sem leiðtogi kommúnista- flokksins í Grúsíu. Bretland: Kjarnasamruni eða óvenjuleg eftiahvörf? London. Reuter. BRESKUR vísindamaður, sem telur sig hafa komið af stað kjama- samruna með einföldum og ódýrum hætti, hefur ákveðið að fara „huldu höfði“ ef svo má segja til að geta unnið áfram að rann- sóknunum í ró og næði. Uppgötvunina gerði hann í samvinnu við bandarískan vísindamann og hefur hún vakið gífurlega athygli um heim allan. „Ég get ekki unnið með alla á herðunum," sagði Martin Fleisch- mann, prófessor við háskólann í Southampton, þegar hann hélt frá Englandi í gær og vildi hann ekki segja fréttamönnum hvar hann ætlaði að stunda rannsóknimar. Fleischmann og Stanley Pons, prófessor við háskólann í Utah í Bandaríkjunum, segjast hafa komið af stað kjamasamruna á venjulegri rannsóknastofu en samrunaorkan er markið, sem all- ir keppa að vegna þess, að hún má heita laus við mengun. Þeir Fleischmann og Poris segj- ast hafa framleitt flórum sinnum meiri orku en þeir notuðu við til- raunina og vísindamenn við land- búnaðar- og véltækniháskólann í Texas sögðu á mánudag, að þeir hefðu endurtekið tilraunina og framkallað 60-70% meiri orku en þeir notuðu sjálfir. Þeir lögðu þó áherslu á, að enn væri ekki full- ljóst hvort fremur væri um að ræða óvenjuleg efnahvörf eða kjamasamruna. Sumir vísindamenn draga i efa niðurstöður Fleischmann-Pons- tilraunarinnar en aðrir, þar á meðal vísindamenn við Brigham Young-háskólann í Utah og ung- verskir starfsbræður þeirra, segj- ast hafa komið af stað kjarna- samruna með sams konar aðferð. Fleischmann-Pons-tilraunin og sú, sem gerð var í Texas, fóru fram við stofuhita en sérfræðing- ar í kjarnasamruna hafa hingað til talið, að hann gæti ekki átt sér stað við minni hita en 100 milljón gráður á celsíus. Grænland: Norðmenn vilja reisa raforkuver Kaupmannahöfli. Frá Nils Jörgen Bruun, firéttaritara Morgunblaðsins. NORSKT verktakafyrirtæki hefur boðist til að reisa og fjármagna byggingu og rekstur vatnsorkuvers i Nu- uk á Grænlandi sem ráðgert er að muni kosta 1 milljarð danskra króna, rúma 7 millj- arða ísl. króna. Skilmálar Norðmannanna eru þeir að grænlenska landsstjórnin kaupi raforku frá verinu. Fulltrúar norska viðskipta- ráðuneytisins og norskir orkus- érfræðingar hafa kynnt tilboðið fyrir fulltrúum á grænlenska landsþinginu. Norðmennimir segja að unnt verði að lækka orkuverð á Grænlandi úr 2,10 dönskum krónum á kílóvatt- stund í 0,85 danskar krónur. Mads Christenson, yfirmaður orkumála á Grænlandi, og Emil Abelsen, sem á sæti í landsstjóminni, bera brigður á útreikninga Norðmannanna og telja þá byggjast á of mikilli bjartsýni. Róstur íJerúsalem Reuter Útför Palestínumannsins Khaleds Shawish, sem skotinn var til bana i miðborg Jerúsalem á mánudag, var gerð í gær. Fyrr en varði varð útforin vettvangur pólitiskra mótmæla. Grimuklæddir Palestínumenn strengdu fána palestínsku þjóðarinnar á hús Qölskyldu hans og skip- uðu syrgjendum að sitja kyrrir meðan ísraelski fáninn var brennd- ur. Síðan gekk líkfylgdin með kistu Shawish að al-Aqsa-moskunni i Jerúsalem. ísraelsk lögregla skaut gúmmíkúlum að syrgjendunum þegar þeir nálguðust moskuna og unglingar svöruðu með grjótkasti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.