Morgunblaðið - 12.04.1989, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 12.04.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRIL 1989 5 Borgarráð: Áhyggjur vegna sölu á Hótel Borg BORGARRÁÐ liefur samþykkt samhljóða tillögn Davíðs Odds- sonar borgarstjóra, vegna hugs- anlegra kaupa Alþingis á Hótel Borg, þar sem lýst er áhyggjum vegna hugsanlegrar yfirtöku Al- þingis á hótelinu. í tillögunni segir: „Borgarráð Reykjavíkur lýsir áhyggjum sínum yfir hugmyndum um að leggja niður hótelrekstur í miðbæ Reykjavíkur með hugsanlegri yfirtöku Alþingis á Hótel Borg. Óskar Reykjavíkurborg eftir viðræðum við Alþingi um hvort ekki megi finna leiðir til að leysa húsnæðisvanda Alþingis með öðrum hætti en þeim að taka úr rekstri elsta hótel borgarinnar sem jafn- framt er mikilvægur þáttur í lífi og starfi í hjarta borgarinnar." Hótel Borg metin á 120- 150 millj. FORSETAR Alþingis hafa leitað eftir heimild þingsins til að semja við eigendur að Hótel Borg um hugsanleg kaup á hótelinu. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins er talið að hugsanlegt kaup- verð sé á bilinu 120 til 150 milljón- ir króna. Gert er ráð fyrir að hótelið muni hýsa skrifstofur þingmanna, bóka- safn þingsins og fundarherbergi fyr- ir allt að 60 manns. Hótelinu fylgir byggingarréttur á lóðinni og er leyfi- legt samkvæmt skipulagi, að byggja í portinu aftan við húsið. Birgir'f sleifur Gunnarssoii: Andvígur kaupum á HótelBorg BIRGIR ísleifur Gunnarsson, seg- ir það orðum aukið hjá forseta Sameinaðs þings, Guðrúnu Helga- dóttur, að samstaða hafi tekist á Alþingi um að fest verði kaup á Hótel Borg og hótelinu breytt í skrifstofuhúsnæði fyrir alþingis- menn. „Ég tel þessa kostnaðará- ætlun Qarri öllu lagi og held að endurbætur á húsnæðinu eigi eftir að kosta miklu meir en þessar áætluðu 60 mil\jónir króna,“ sagði Birgir ísleifiir í samtali við Morg- unblaðið. Hann sagði að það væri þó ekki fyrst og fremst vegna kostnaðar sem hann væri andvígur þessum hug- myndum, eins og reyndar fleiri þing- menn Sjálfstæðisflokksins. „Ég held það yrði mikil blóðtaka fyrir mið- bæinn, ef þama hyrfi hótel og veit- ingahús, en skrifstofur kæmu í stað- inn. Miðbærinn þarf á því lífi að halda sem þessi starfsemi skapar," sagði Birgir ísleifur. Rætt hefur verið um að hugsan- legt kaupverð á Hótel Borg væri um 150 milljónir og að endurbætur og breytingar myndu kosta um 60 millj- ónir. Birgir ísleifur telur hér um vanmat að ræða. Hann sagðist auk þess vera því andvígur að Alþingi skriði eins og amaba um allan miðbæ Reykjavíkur og leggði undir sig alla þá starfsemi sem þar væri fyrir. „Alþingi á hér lóðir upp á fleiri hekt- ara, þar sem hægt er að byggja. Þar fyrir utan er autt skrifstofuhúsnæði hér allt í kringum Austurvöllinn. Til dæmis er laust Austurstræti 14, sem þingið hefur þegar leigt að hluta til, húsið þar við hliðina er laust og fleiri hús, sem ætti fyrst að líta til,“ sagði Birgir ísleifur. ftógangur ókeypis SOLUSYNINGI ] LAUGARDALSHÖLL 1tla/eró,il^é nnBraieins «Pm7 Pantanir veróa teknarísíma 91-686204 og 91-686337. \OYieimr tfy Sölusýning 9.—18.apríl í Laugardalshöllinni cr oöetns brol ot sem»boö*1 cr Opiófrákl.11 11122 alla daga. Sölusýningin VORLEIKUR hefur þegar sannaó gildi sitt. Annaö árió í röð bjóóum við til sölu amerískar gæóavörur á algjöru bolnverói. --------♦ ♦ » Viö bjóóum auk þess einstök greióslukjör fyrir þá, sem þess óska. ♦ ♦ »--------- ATH! Öll sýnishom, veröa seld og afgreidd strax aó sýningu lokinni. ♦ ♦ » taáttuinácid

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.