Morgunblaðið - 12.04.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.04.1989, Blaðsíða 25
Sauðárkrókur MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRIL 1989 25 ICaupfélag Skagfírðínga 100 ára Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðárkróki heldur hátíðlegt 100 ára afinæli sitt 23. apríl nk. Það voru 11 bændur úr Skaga- fjarðarsýslu og einn úr Austur- Húnavatnssýslu, sem komu saman til fúndar á Sauðárkróki 23. apríl 1889 og stofnuðu fé- lagið. Tónleikar í Duus-húsi Hljómsveitin Stiftamtmann- svalsinn heldur tónleika í Du- us-húsi í kvðld, miðvikudags- kvöld. Einnig leika tvær gestahljóm- sveitir, Batterí og Vonleysa. Þeir hófu starfsemi sína með vörupöntun frá Englandi að and- virði 1.180 króna og seldu á móti 604 sauði og 27 hross fyrir sam- tals 1.200 krónur. Nú eru félags- menn Kaupfélags Skagfirðinga 1.727 í 14 félagsdeildum. Auk umfangsmikillar verslunar rekur félagið mjólkúrsamlag, slátur- og fiystihús, bíla- og vélaverkstæði, tvær saumastofur, fóðurblöndun- arstöð og Graskögglaverksmiðj- una í Vallhólmi. Það á Fiskiðju Sauðárkróks hf., sem rekur full- komið hraðfrystihús og gerir út togara. Kaupfélagið á m.a. hluti í Utgerðarfélagi Skagfirðinga hf., Steinullarverksmiðjunni hf. og Steypustöð Skagafjarðar hf. Velta kaupfélagsins sl. ár var kr. 1.883 millj. og Fiskiðjunnar hf. kr. 222 millj. eða samtals kr. 2.105 milljónir. Eigið fé félagsins var í árslok 1988 kr. 506.547 milljónir og hafði aukist á sl. ári um 35,8 milljónir. asts, sr. Hjálmars Jónssonar. Jó- hann Már Jóhannsson syngur ein- söng við undirleik Sigurðar Daní- elssonar. Avörp gesta. Starfs- mönnum með 25 ára starfsaldur veitt viðurkenning. Annálsbrot úr sögu kaupfélagsins í flutningi Leikfélags Sauðárkróks. Karla- kórinn Heimir undir stjórn Stefáns Gíslasonar syngur nokkur lög. Veitingar verða fram bornar að dagskráratriðum loknum. Allir Skagfirðingar heima og heiman svo og aðrir velunnarar kaupfé- lagsins eru velkomnir til þessarar hátíðar, segir í frétt frá kaup- félaginu. Að kveldi sunnudagsins 23. apríl verður unglingadansleikur í Félagsheimilinu Bifröst. Hljóm- sveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi frá kl. 21.00 til 1.00 eftir miðnætti. Aldurstak- mark 12-18 ár. í Menningarstofiiun Bandaríkjanna er sýning á Ijósmyndum af veggmálverkum eftir marga þekkta listamenn. Sýning í Menningar- stofnun Bandaríkjanna í VIKUNNI hófet sýning í Menningarstofhun Banda- rikjanna á Neshaga 16 á ljós- myndum af veggmálverkum gerðum í kreppunni á fjórða áratugnum í Bandaríkjunum. Ljósmyndimar á sýningunni sýna fjölbreytni í gerð þessara veggmálverka. Verk margra þekktra listamanna, t.a.m. Grant Wood, Stuart Davis, Reginald Marsh og Thomas Hart Benton, prýða sýninguna auk fjölda verka eftir minna þekkta listamenn. Sýningin, „A Culture of Demo- cracy: The New Mural Pro- grams“, verður til sýnis í Menn- ingarstofnun Bandaríkjanna til 27. apríl og er opin alla virka daga frá klukkan 11.30 til 17.30. Allir eru velkomnir. Hafiiarfiörður: Vinnuslys á hjólbarða- verkstæði MAÐUR um fimmtugt slasaðist illa í andliti í vinnuslysi á hjól- barðaverkstæði Hagvirkis i Hafiiarfirði á laugardag. Maðurinn var ásamt öðrum að skipta um dekk á gömlum vö- rubíl. Annar dældi lofti í dekkið eftir tilsögn. Laus hringur, sem halda á dekkinu að felgunni, náði ekki festu, þeyttist af og í andlit mannsins sem b'ograði yfir dekk- inu. Hann hlaut talsverða áverka í andliti og var fluttur á slysadeild. Afmælisins verður m.a. minnst með hátíðardagskrá er hefst kl. 1.30 á afmælisdaginn, sunnudag- inn 23. aprfl, í Iþróttahúsinu á Sauðárkróki. Dagskrá er eftirfarandi: Kaup- félagsstjóri, Þórólfur Gíslason, setur hátíðina. Stjórnarformaður, Stefán Gestsson, flytur hátíðar- ræðu. Helgistund í umsjá próf- INNLEN-r Fiskverð á uppboðsmörkuðum 11. apríi. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hsesta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 54,00 54,00 54,00 3,114 168.156 Þorskur(óst) 49,00 35,00 41,46 23,674 981.508 Þorskur(smár) 15,00 15,00 15,00 0,016 248 Ýsa(óst) 76,00 76,00 76,00 0,411 31.274 Karfi 15,00 15,00 15,00 0,361 5.415 Ufsi 10,00 10,00 10,00 0,273 2.730 Steinbitur(óst) 15,00 15,00 15,00 0,198 2.970 Koli 59,00 59,00 59,00 0,053 3.127 Rauömagi 30,00 30,00 30,00 0,016 480 Hrogn 100,00 100,00 100,00 0,045 4.500 Samtals 42,62 28,162 1.200.413 Selt var úr ýmsum bátum. I dag verða meöal annars seld á markaöinum 36 tonn af karfa, 6 tonn af þorski, 4 tonn af ýsu og 5 tonn af blönduðum afla úr Otri HF, svo og óákveðið magn af blönduöum afla úr Frey ÁR og frá Fiskverkun Sigurðar Valdi- marssonar. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 55,00 53,00 54,38 0,129 7.015 Þorsk(ósl.l.bt) 54,00 40,00 50,27 2,932 147.392 Þorsk(ósl.dbt) 30,00 27,20 27,23 6,483 176.531 Þorsk(ósl1-2n) 39,00 38,00 38,13 2,034 77.561 Þorsk(ósl.1n.) 50,00 43,00 63,42 2,893 183.483 Ýsa 85,00 30,00 43,90 7,027 308.525 Ýsa(óst) 59,00 59,00 59,00 0,068 4.012 Steinbítur 15,00 15,00 15,00 0,484 7.260 Steinbítur(óst) 31,00 27,00 27,25 0,317 8.639 Hlýri+steinb. 15,00 15,00 15,00 0,175 2.625 Langa 26,00 26,00 26,00 1,659 43.134 Skarkoli 63,00 63,00 63,00 0,017 1.071 Skötuselur 140,00 140,00 140,00 0,025 3.500 Rauðmagi 67,00 55,00 63,59 0,403 25.626 Samtals 44,57 24,466 1.090.515 Selt var úr netabátum. i dag verður einnig selt úr netabátum á markaðinum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur(óst) 49,50 41,50 47,29 22,744 1.075.565 Ýsa(óst) 75,00 20,00 64,28 7,545 485.091 Karfi 29,50 20,00 27,79 8,711 242.041 Langa 15,00 15,00 15,00 0,200 3.000 Lúða 300,00 160,00 279,18 0,122 34.060 Keila 10,00 10,00 10,00 0,200 2.000 Skata 70,00 70,00 70,00 0,087 5.730 Samtals 46,38 40,030 1.856.773 Selt var aðallega úr Eldeyjar-Boða GK, Hraunsvík GK, Margréti HF og Mána HF. í dag verður selt úr dagróöra- og snurvoðarbát- um ef á sjó gefur. Félagsþjálfíin í öldnmarþjómistu Öldrunarráð íslands mun gangast fyrir námskeiði um fe- Iagsþjálfiin í öldrunarþjónustu i Borgartúni 6, föstudaginn 14. apríl klukkan 13 — 17. Fyrirles- ari á námskeiðinu verður Lars Wernersson, yfirlæknir við öld- runarlækningadeild sjúkrahúss- ins í Kalmar í Svíþjóð. Einnig taka félagsþjálfar þátt í einstaklingsmeðferð. Svíar hafa fyrir fáeinum árum stofnað sér- Húsavík: Jón á Víði- völlum jarðsettur Húsavík. TIL moldar var borinn laugar- daginn 8. april Jón Kr. Kristj- ánsson fyrrverandi kennari og bóndi á Víðivöllum í Fnjóskad- al. 85 ára. Fæddur 29. júlí 1903. Sóknarpresturinn Yrsa Þórðar- dóttir jarðsöng og kirkjukór prestakallsins söng undir stjórn Ingu Hauksdóttur. Viðstaddir voru meðal annars 10 prestar. Jón var mjög vinsæll kennari yfir 40 ár auk þess sem hann gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína og sýslu. Fjölmenni var svo mikið við útförina að ekki helmingur viðstaddra komst í kirkjuna, en þeir sem úti voru í hinu besta veðri fylgdust með at- höfninni í hátölurum. Snjór var svo mikill í kirkjugarð- inum að 4ra metra þykkt snjólag varð fyrst að fjarlægja áður en til jarðar náðist til grafartektar. Eftirlifandi kona Jóns er Hulda B. Kristjánsdóttir og lifir hún mann sinn ásamt fimm bömum. - Fréttar. staka námsbraut í þessari grein á háskólastigi, sem er hugsuð sem framhaldsmenntun fyrir starfsfólk innan heilbrigðiskerfisins, hjúk- runarfræðingas, iðju/sjúkraþjálfara og félagsráðgjafa. Hvatamaðurinn að stofnun þessarar námsgreinar, Lars Wernersson, mun á námskeið- inu greina frá fyrirkomulagi náms- ins og starfsemi félagsþjálfunar- deilda. Að loknum fyrirlestrinum, sem verður túlkaður, munu starfa um- ræðuhópar undir leiðsögn fag- menntaðs starfsfólks í öldrunar- þjónustu og heilbrigðiskerfinu, en stjórnandi námskeiðsins verður Guðjón Magnússon, aðstoðarland- læknir. Námskeiðið er bæði ætlað fyrir faglært og ófaglært starfsfólk í öld- runarþjónustu, svo og annað áhuga- fólk. Námskeiðsgjald er krónur 1000 (síðdegiskaffi innifalið) og þátttaka í KVÖLD kl. 20.30 verður haldið (jóðakvöld í listasal Nýhafiiar í Hafnarstræti 18, en þar stendur nú yfir sýning á lágmyndum eftir Ingibjörgu Jónsdóttur. Að venju koma fram bæði óþekkt skáld, sem lítið hafa kveðið sér hljóðs og einnig skáld sem hafa getið sér góðan orðstír í gegnum tíðina. Þau sem lesa úr verkum sínum eru Nína Björk Árnadóttir, sem flyt- ur þýðingar sínar á verkum danskra höfunda, Þorgeir Þorgeirsson, en hann mun m.a. lesa úr þýðingum sínum úr verkum Federico Garcia Lorca, Hansína Ingólfsdóttir, Einar Már Guðmundsson, Björg Einars- dóttir, sem flytur áður óbirt ljóð eft- ir Oddnýju Kristjánsdóttur í Feiju- nesi, og Elísabet Jökulsdóttir. Kynn- ir er Ari Gísli Bragason. Kaffiveit- ingar eru í hléi. Lars Wernersson, yfirlæknir. tilkynnist í síma 91-688500 (Ölöf) til og með 13. apríl. - Fréttatilkynning Nína Björk Árnadóttir Ljóðakvöld í Nýhöfii 1989 M. AFLSTÝKI BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG . / \ / X E HEKLAHF verð rnA Laugavegi 170-172 Simi 695500 KR. 734.000.-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.