Morgunblaðið - 12.04.1989, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.04.1989, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRIL 1989 15 Kammertónleikar Tónlist Jón Asgeirsson Tónleikar með verkum eftir Hjálmar H. Ragnarsson voru haldn- ir í Listasafni Siguijóns Ólafssonar sl. laugardag. A efnisskrá voru fimm verk, sem öll hafa verið flutt áður og elstu verkin frá 1981. Tríó fyrir þrjú klarinett, Fimm Prelúdíur fyrir píanó, Rómanza (tríó fyrir flautu, klarinett og píanó), Tríó fyr- ir klarinett, selló og píanó og síðast tengsi, fyrir strengjakvartett og einsöng, við sex ljóð eftir Stefán Hörð Grímsson. Það sem einkum einkennir tónsmíðar Hjálmars er „tematísk" vinnutækni og er þá ýmist að tón- hugmynd er endurtekin á sama tón- stæði en með ýmsum hætti, hvað snertir styrk og blæ eða tónstaða hennar og tónbilaskipan er breyti- leg. Ur þessu vinnur Hjálmar lengri og margbreytilegri tónbálk en margir nútímahöfundar og reynir þar með nokkuð á hlustunarþol áheyrenda, einkum með predikandi endurtekningum, annaðhvort í ágengum styrk eða með svæfandi blíðu. Þessi leikur Hjálmars með andstæður heldur samt athygli hlustenda og skýr tónræn fram- vinda verkanna, þar sem spenna og slökun marka formfleti þeirra, gefur þeim oft skemmtilega og leik- ræna spennu. Þrátt fyrir nútímalega framsetn- ingu hugmyndanna, eru þær oft tónstæðar og söngrænt einfaldar. Utfærslan er einnig, jafnvel þar sem tónvefnaðurinn virðist flókinn og ómstríður, á stundum mjög tónteg- undabundin. Það eru þessi tengsl á milli þess gamla og nýja sem gerir tónlist Hjálmars m.a. áhugaverða og aðgengilega. Af þeim sem fluttu verk Hjálm- Ungversk tónlist Tónleikar sem haldnir voru á vegum Musica nova í Bústaðakirkju sl. föstudag voru eins konar fjöl- skyldutónleikar, auk þess sem ein- göngu var flutt ungversk tónlist. Einn úr Székely-fjölskyldunni, Ag- nes Székely, leikur á víólu í Sin- fóníuhljómsveit Islands en hingað til lands komu foreldrar hennar og bróðir og tækifærið var notað til að slá upp tónleikum, þar sem leik- ið var á víólu, píanó og orgel, verk eftir Bartók, Kurtág, Horusitzky, Szönyi og Sári. Bartók er sá eini sem þekktur er af áðurnefndum tónskáldum en eftir hann flutti Balázs Székely (1972) nokkra kafla úr Mikrokosm- os og 15 ungverska bændasöngva. Eftir Kurták lék Balázs eins konar skólatónlist, er ber nafnið Leikir, og einnig hluta af verki eftir full- trúa „minalismans" í Ungveija- landi, verki er ber nafnið Flashing Images en höfundur þess heitir Józ- sef Sári. Balázs Székely er efnileg- ur píanóleikari og lék t.d. Bænda- söngva Bartóks ágætlega. Víóluleikarinn Agnes Székely (1961) lék sónötu eftir Horusitzky og einleiksverk eftir Kurtág, sem höfundurinn nefnir Signs og var það skemmtilegasta verkið á tón- leikunum og vel leikið. Miklós Szék- ely (1935), sem er kórstjóri og orgelleikari flutti tvö orgelverk eft- ir Szönyi, það fyrra Preludíum, passacalia og fuga en síðara sam- leiksverk fyrir orgel og píanó er nefnist Evocatio. Szönyi lærði hjá Kodaly og einnig í París, hjá Aubin og Boulanger. Að frádregnu einleiksverki Kurt- ágs fyrir víólu og tónlist Bartóks, var ekki eftir miklu að slægjast í þessu sýnishorni af nýrri tónlist í Ungveijalandi. Flutningurinn í heild var þokkalegur en ekki meira, nema þá helst í einleiksverki Kurtágs og Bændadönsum Bartóks. ars, þá var píanóleikur Önnu Ás- laugar Ragnarsdóttur sérlega at- hyglisverður og Nora Kornblueh lék ágætlega vel eftirmálann í tríóinu. Jóhanna V. Þórhallsdóttir söng vel lögin við snilldarkvæðin eftir Stefán Hörð, þó nokkuð gætti að rödd hennar hefur dýpri legu en krafist er í lögum Hjálmars og átti því ekki auðvelt með að halda tón- blænum jöfnum. Þriðja lagið, „Spör“, er einstaklega skemmtilegt en mesta tónsmíðin er við ljóðin Þögnuðuholt. Hjálmar ætti að end- uivinna þetta verk, fyrir einsöng með píanóundirleik og þarf ekki spámann til að spá þessu verki vin- sælda sem viðfangsefni söngvara og dálæti hlustenda. Flytjendur ásamt höfundi í listasafni _ Sig- uijóns Ólafs- sonar. kr. 8.167,- á mánuði — vaxtalaust! Það bjóða ekki aðrir betur. Með raðgreiðslum Veraldar heíur tekist að lækka ferðakostn- aðinn og gera öllum kleift að komast í fríið með þessu þægilega og ódýra greiðslufyrir- komulagi. Þú greiðir með greiðslukorti og um hver mánaðamót er svo greiðslan skuldfærð á reikninginn þinn. Europa Center Þessi vinsæli gististaður fjölskyldunnar á Benidorm. __ . Einstök staðsetning. ZZ \ J / | Verð aðein^ kr. pr. mann. 2 íullorðnir m. 2 böm í júní Torre Levante Frábær aðbúnaður í sumarfriinu. Nýjar íbúðir, allar með loítkælingu. V Verð aðeins kr. pr. mann 2 fullorðnir m. 2 böm í júní HJÁ VERÖLD FÆRDU MEIRA FYRIR PENINGANA MRIAIIISlfillN Austurstræti 17, sími 622200 *Verð í 2 vikur í júní miðað við 4 í íbúð á Europa Center. 6 aíboiganir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.