Morgunblaðið - 12.04.1989, Page 2

Morgunblaðið - 12.04.1989, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989 Stöðugir fiindir í kjaradeilu BHMR Vika í kvöld frá því verkfall hófst UNNIÐ var af krafti í gær til að Snna lausn á kjaradeilu háskóla- menntaðra ríkisstarfsmanna og stjórnvalda, en ellefu félög ríkis- starfsmanna hafa verið tæpa viku í verkfalli. Vinnuhópar funduðu áfram í gær og samninganefnd BHMR kom tvívegis saman, í síðara skiptið klukkan níu í gærkveldi. Þá hafði Ólafur Ragnar Grímsson, Qármálaráðherra, nýlega yfirgefið Rúgbrauðsgerðina, þar sem samningaviðræðurnar fara fram. Hann mun hafa átt fimd með for- svarsmönnunm Hins íslenska kennarafélags og BHMR. Reiknað er með formlegum fundi samninganefndanna í dag, en ekki var búið að tímasetja fundinn í gærkveldi. Þá mun samninganefnd BHMR svara formiega hugmyndum stjómvalda um samning um launa- liði til skamms tíma, en samning um endurskoðun á uppbyggingu launkerfíé háskólamanna til lengri tíma. Kennnarasamband Íslands fund- aði einnig með Samninganefnd ríkisins í gær. Annar fundur hefur verið ákveðinn á föstudag. KÍ gerði það að kröfu sinni að sérmál kenn- ara yrðu rædd áður en tekið yrði til við að ræða önnur mál. Unnið að stofhun fagráða búgreina UNNIÐ er að stofnun fagráða fyrir hverja einstaka búgrein. Þegar hefiir verið ákveðið að stofiia fagráð fyrir loðdýrarækt- ina og kúabændur hafa sam- þykkt fyrir sitt leyti að stofha fagráð fyrir nautgriparækt. Hlutverk ráðanna er að sam- ræma starfsemi á sviði leiðbein- inga, firæðslu og rannsókna í við- komandi búgreinum. Að fagráði í loðdýrarækt hafa ákveðið að standa Búnaðarfélag íslands, Rannsóknastofnun land- þúnaðarins, bændaskólamir, Til- raunastöðin á Keldum og Samband íslenskra loðdýraræktenda. Fagráð- ið er skipað fulltrúum þessara að- ila. Meðai verkefiia sem ráðið fjallar um er: Rannsókna- og tilrauna- starfsemi í loðdýrarækt, m.a. for- gangsröðun rannsókna- og til- raunaverkefna og tillögugerð um skipulag þeirra. Námskeið og kennsla. Skipulagning þjálfunar leiðbeinenda, kennara og rannsókn- armanna. Skipulagning leiðbeining- ar- og heilbrigðisþjónustu. Og að lokum skipulagning kynbótastarfs. Landssamband kúabænda sam- þykkti á aðalfundi sínum fyrir skömmu að standa að stofnun fag- ráðs í nautgriparækt á grundvelli fyrirliggjandi draga að samstarfs- samningi. Gert er ráð fyrir að Bún- aðarfélag íslands, Rannsóknastofn- un landbúnaðarins, bændaskólamir og Rannsóknastofa mjólkuriðnað- arins standi að stofnun þess með Landssambandinu. Að auki verður áheymarfulltrúum boðið frá ýmsum öðmm félögum og stofnunum boðið á fundi ráðsins. Á árlegum sam- ráðsfundum er ætlast til að fulltrú- ar samstarfsaðila gefi skýrslu um starfsemi stofnana sinna og leggi fram áætlanir um verkefni. Þá skal fara fram mótandi umræða um þjónustu- og þróunarstarf í naut- griparækt. Á milli samráðsfunda starfar þriggja manna framkvæmd- aráð. Fjármálaráðherra: Morgunblaðið/Ámi Sœberg. Eins og sjá má þarf að skipta um allþykkt lag af steypu á ytra byrði turnsins. Skemmdir eru mun meiri en talið var unni og þarf að skipta um all- þykkt Iag af ytra byrði hennar. Steypuskemmdirnar á Hallgrímskirkjuturni eru mun meiri en áður var talið. Þórir Ólafsson framkvæmdastjóri Steypuviðgerða hf. sem annast endurbæturnar á turninum segir að þetta hafi komið í þ'ós eftir að hafist var handa við verkið. Að mestu er um að ræða frostskemmdir á steyp- Vinna við verkið hófst í mars á síðasta ári og var aftur tekið til við verkið í síðasta mánuði eft- ir nokkurt hlé. Þórir segir að ekki hafi mátt seinna vera að hefjast handa, annars hefði verið um nær vonlaust verk að ræða. TUkynntum stofinun nýs þingflokks á morgun? ENN hefiir ekkert það gerst, sem bendir til þess að samkomulag sé að takast milli þeirra Inga Björns Albertssonar og Hreggviðar Jóns- sonar annars vegar og annarra þingmanna Borgaraflokksins hins vegar. Morgunblaðið hefur áreið- anlegar heimildir fyrir því að til- kynnt verði um stofhun nýs þing- flokks þeirra Inga Björns Alberts- sonar og Hreggviðar Jónssonar við upphaf þings á morgun. Hvorki Ingi Björn né Hreggviður vildu ijá sig um málið í gær. Viðræður um aðgang verk- fallsvarða SKÓLASTJÓRN Verzlunarskóla íslands hefur boðið fulltrúum Hins íslenska kennarafélags til viðræðna um aðgang verkfalls- varða að skólanum fyrir hádegi í dag. Verkfallsstjóm HIK sendi skóla- nefndinni erindi, þar sem þess er krafist að réttur verkfallsvarða til aðgangs að vinnustað verði viður- kenndur. Þorvarður Elíasson, skóla- stjóri VÍ, sagði að það lægi ljóst fyrir að ef verkfallsverðir bæðu um leyfi til þess að fara inn í skólann væri það þeim heimilt. Málið hefði hins vegar strandað á því að verk- fallsverðir hefðu ekki talið sig þurfa heimild frá neinum til að fara inn í skólann. Vaxtalækkun á ríkisskulda- bréfum mun bíða um sinn 'O ÓLAFUR Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, segir að verið sé að vinna að lækkun vaxta á ríkisskuldabréfum, í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar, sem á sínum tíma hefði verið kynnt Seðlabankanum, en eðlilegt sé að bíða þess að samningar takist við lífeyrissjóðina um vaxtalækkun, áður en ákveðið verði að lækka vexti af spariskírteinum ríkissjóðs. „Samningar við lífeyrissjóðina þess yrði vonandi um lækkun á INNLENT standa nú yfir og þegar niðurstaða þeirra liggur fyrir mun vonandi koma þar fram lækkun á vaxta- stiginu í samningum milli ríkisins og lífeyrissjóðanna," sagði fjár- málaráðherra í samtali við Morg- unblaðið. Hann sagði að í kjölfar vaxtastigi spariskírteina ríkissjóðs að ræða. Fjármálaráðherra var spurður hvemig sala á spariskírteinum ríkissjóðs hefði gengið: „Hún hefur gengið með svipuðum hætti og við áttum von á. Á síðasta ári var Lagt tíl að Alþingi kaupi tvær bifiæiðar Aksturskostnaður meira en 10 milljónir í fyrra KOSTNAÐUR Alþingis á síðasta ári vegna leigubifreiða, afnota af bifreiðum starfsmanna og annars aksturs nam rúmlega 10 milljónum króna. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoð- unar um starfsemi Alþingis síðustu tvö ár. Þar eru einnig ábendingar um það, sem talið er að betur mætti fara og er meðal annars lagt til að athuguð verði hagkvæmni þess að Alþingi kaupi og reki tvær bifreiðar til nota vegna forseta þingsins, gesta þeirra og sendiferða af ýmsu tagi. Forsetar þingsins og skrifstofustjóri hafa ekki tekið afstöðu til þessarar ábendingar. Skýrsla Ríkisendurskoðunar tek- ur yfir árin 1987 og 1988. Þar er tekið á flestum þáttum í rekstri Alþingis og ýmislegt nefnt, sem talið er að betur mætti fara. Starfs- menn Ríkisendurskoðunar hafa í framhaldi skýrslugerðarinnar rætt við forseta Alþingis um mögulegar úrbætur, sem ekki fela þó í sér miklar breytingar á starfsháttum, heldur fyrst og fremst að sniðnir verði ýmsir agnúar af núverandi starfsháttum. Alþingi á engar bif- reiðar en hefur í einhveijum mæli greitt starfsmönnum fyrir afnot af einkabifreiðum þeirra svo og greitt fyrir leigu- og sendiferðabifreiðar; á síðasta ári fyrir meira en 10 millj- ónir króna. Ríkisendurskoðun telur að með rekstri tveggja bifreiða í eigu Alþingis megi anna megninu af þörfínni með minni tilkostnaði. Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri Alþingis, sagði í samtali við Morg- unblaðið, að ekki hefði verið tekin afstaða til ábendingar Ríkisendur- skoðunar hvað varðaði kaup á tveimur bifreiðum, en verið væri að fara yfir ýmsa þætti í rekstri Alþingis. salan færð yfir í bankakerfið og það hefur verið vanrækt að vinna upp almennan markað meðal al- mennings. Við höfum á undanf- ömum mánuðum verið að hefja kynningarstarf sem mun skila ár: angri, þegar til lengdar lætur. í öðru lagi fórum við með vextina á spariskírteinUm ríkissjóðs fyrst niður og það allverulega. Það var gagngert gert til þess að sýna að okkur væri alvara og til að vega upp á móti þeirri gagnrýni sem forsvarsmenn lífeyrissjóðanna höfðu sett fram á fyrri ríkisstjóm- ir, það er að þær hefðu bara heimt- að vaxtalækkun hjá lífeyrissjóðun- um en haldið síðan vöxtum á spa- riskírteinum ríkisins mun hærri.“ Ráðherra sagði ríkisstjómina hafa talið nauðsynlegt að ganga á undan með góðu fordæmi, þó að hún hafi gert sér grein fyrir því að það myndi um einhvern tíma, nokkrar vikur, eða einn tvo mánuði hafa þau áhrif á sölu spa- riskírteinanna, að hún yrði eitt- hvað dræmari. Hann kvaðst ekki hafa nákvæmar upplýsingar um það hvað mikið hefði selst af spa- riskírteinum að undanförnu. „Það er ljóst að framundan er vaxtalækkun, sem þýðir að þau spariskírteini sem nú eru boðin em mjög hagstæð vara miðað við það að vextimir á næstu spariskírtein- um, sem gefín verða út, verða lægri," sagði Ólafur Ragnar. Ráðherra sagði að það hefði gefist nokkuð vel að bjóða fólki upp á að kaupa spariskírteini í áskrift, en aðspurður um hvort þessi kynningarherferð ríkissjóðs, að senda dýra, litprentaða bækl- inga um spariskírteini ríkissjóðs inn á hvert heimili, hefði gefið þann árangur sem vonast var eft- ir, svaraði ráðherra: „Við litum fyrst og fremst á þessa herferð sem ákveðið undirbúningsstarf. Kynning á spariskírteinum sem spamaðarformi hafði í langan tíma verið vanrækt. Við höfum verið að byggja upp langtíma- markað, þannig að spariskírteini ríkissjóðs festist í sessi sem örugg- asta og algengasta spamaðarfor- mið í landinu.“ Hittir græn- friðunga í Þýskalandi HALLDÓR Ásgrímsson sjáv- arútvegsráðherra mun hittir fulltrúa grænfriðunga að máli, meðan á opinberri heimsókn hans í Vestur- Þýskalandi stendur. Heim- sókn Halldórs, sem hefet í dag, er í boði Wolfgang von Geldern, sjávarútvegsráð- herra V-Þýskalands. Grænfriðungar óskuðu eftir því að hitta Halldór, meðan á heimsókninni stæði, að sögn Ros Reeve, talsmanni Greenpe- ace-samtakanna. Halldór sagði Morgunblaðinu að hann hefði fallist á þessa ósk, en ekki væri enn ákveðið hvenær fund- ur hans og grænfriðunga yrði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.