Morgunblaðið - 12.04.1989, Page 17

Morgunblaðið - 12.04.1989, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989 17 Látum ekki reykinn ráða okkur af dögimi — veljum reyklausa daga — eftir Guðrúnu Agnarsdóttur í dag er haldinn reyklaus dagur í fimmta sinn. Slíkur dagur hefur riú þegar orðið mörgum kærkomið til- efni til þess að hætta að reykja. Verulega hefur dregið úr reykingum hérlendis á undanförnum árum og ætla má að rúmlega 40.000 íslend- ingar séu nú hættir að reykja. Árið 1985 reyktu 40% 18-69 ára íslendinga daglega, 36% árið 1986, 35% árið 1987 og 34,7% árið 1988. Reykingafólk er því í minni hluta og fer fækkandi sem betur fer. Þetta kemur fram í könnunum sem Hag- vangur hefur gert fyrir Tóbaksvemd. Reykingar eru algengastar á fertugs- aldri en mun minni í yngri og eldri aldurshópunum eða um 20%. Andinn reiðubúinn, holdið veikt? Enginn vafi er á því að mjög - margir þeirra sem reykja vilja gjarn- an hætta. Ástæðumar em augljósar: reykingar eru heilsuspillandi, bæði fyrir þá sem reykja og líka fyrir þá sem umgangast reykingafólk og verða fyrir óbeinum eða nauðug- um reykingum. Langt er síðan rannsóknir hafa sýnt fram á að beint orsakasamband er milli lungnakrabbameins og reykinga en reykingamönnum er að jafnaði tíu sinnum hættara að fá þennan illvíga sjúkdóm en þeim sem ekki reykja. Hér á landi deyja nú að meðaltali (1981-1985) um 35 kárlar og 30 konur úr lungnakrabbameini og dán- artíðni íslenskra kvenna úr þessum sjúkdómi er ein hæsta í heiminum. Það er athyglisvert, að íslenskar konur virðast fremur fá lungna- krabbamein en erlendar kynsystur þeirra þrátt fyrir svipaða reykingat- íðni. Orsakir þessa mismunar eru ekki þekktar en þessi afleiðing tó- baksreykinga er sannarlega áhyggjuefni og alvarleg viðvörun. Lungnakrabbamein er nú næst al- gengasta krabbamein íslenskra kvenna og algengasta dánarorsök bæði kvenna og karla af völdum krabbameina. En ég minnist þess að Guðrún Agnarsdóttir „Konur hafa löngum gert heilbrig-öismál og velferðarmál að sínum baráttumálum. Er ekki mál til komið að konur taki sig saman og berjist gegn þeim heilsuspilli sem einna skæðast heijar á þær sjálfar, reykingunum? Við megum ekki missa þær tvö þúsund konur sem ætla má að deyi fyrir aldur fram vegna reykinga, fram til aldamóta. Ekki meg- um við heldur missa dýrmæta orku kvenna í baráttu við sjúkdóma af völdum reykinga þó að þeir dragi þær ekki til dauða.“ þegar ég lærði meinafræði í lækna- námi á árunum 1964-1966 var mér kennt að lungnakrabbamein væri afar sjaldgæft í konum. Á sl. 20 árum hefur sjúkdómsmynstrið þann- ig tekið stakkaskiptum til hins verra og konur súpa nú-seyðið af breyttum reykingavenjum undanfarinna ára- tuga. Reykingar meðal kvenna voru nær óþekktar þar til eftir fyrri heimsstyij- öldina en það var fyrst eftir seinni heimsstyijöldina að þær færðust verulega í vöxt eins og reykingar karla, en konur voru þó 2 til 3 áratug- um á eftir körlum í þessum efnum. Þær voru því hinn ópiægði akur fyr- ir tóbaksframleiðendur sem beindu og beina enn auglýsingum sínum óspart og óprúttnir að konum. Hlut- fallslega fleiri konur en karlar reykja sígarettur eða 33% kvenna en 27% karla á árinu 1988, en sígarettur eru skaðvænlegri en aðrar tegundir tó- baks og meiri sjúkdómsvaldar. Reykingar eiga síðan þátt í mynd- un fleiri tegunda krabbameina t.d. í vélinda, brisi, munni, barkakýli, þvagblöðru, nýrum o.fl. Þær tengjast einnig myndun blóðrásarsjúkdóma af ýmsu tagi en talið er að um 30% dauðsfalla vegna kransæðasjúkdóma stafi af reyking- um. Langvinn berkjubólga og lungna- þemba auk annarra öndunarfæra- sjúkdóma verða síðan oft hlutskipti þeirra sem reykt hafa mikið og lengi. Þó að enn reyki aðeins fleiri karl- ar en konur, 35% karlar og 34% konur á árinu 1988, virðist konum þó ganga verr að hætta en körlum. Þetta getur átt sér ýmsar skýringar. Hlutskipti og ábyrgð kvenna Islenskar konur eru undir miklu álagi. Þær vinna almennt lengri vinnudag en gerist meðal ná- grannaþjóða, bæði utan og innan heimilis. Fjöldi einstæðra mæðra er meiri hérlendis og laun þeirra og annarra kvenna lægri og afkoma erfiðari en í nágrannalöndum okk- ar. Miklar kröfur eru gerðar til kvenna af hálfu annarra og þær gera miklar kröfur til sjálfra sín, en af þessum miklu kröfum leiðir stöðug sektarkennd. Jafnframt lifa íslenskar konur baráttutíma og miklar breytingar á kvenhlutverki og kvenímynd. Allt þetta veldur streitu, sem sumar telja að reyking- ar leysi. Það er þó skammgóður vermir. Flestar konur vita einnig að reykingar þeirra hafa áhrif á börn- in. Vitað er að reykingar kvenna á meðgöngutíma skaða fóstur og geta orðið orsök þess að börn fæðast andvana eða deyja fyrstu vikuna eftir fæðingu. AÍgengara er þó að börn kvenna sem reykja eru að jafn- aði mun minni en önnur við fæð- ingu. Algengara er þó að börn kvenna sem reykja eru að jafnaði mun minni en önnur við fæðingu og hafa oft ekki náð meðalþyngd. Þessi létta fæðingarþyngd getur síðan tengst aukinni hættu á bækl- un og vansköpun. Ennfremur er konum sem reykja á meðgöngutíma hættara við fósturláti og fylgjulosi en þeim sem ekki reykja. Börn sem verða fyrir óbeinum eða nauðugum reykingum á heimili þar sem annað eða bæði foreldrar reykja fá oftar öndunarfærasjúk- dóma en önnur böm og einkennin aukast eftir því sem meira er reykt. Ekki má svo gleyma því fordæmi sem slík böm alast upp með. Hér- lendar og erlendar kannanir hafa sýnt að þau börn sem eiga foreldra sem reykja eru mun líklegri til þess að reykja en börn foreldra sem ekki reykja. Börnin rata út úr reykjarkófinu Jákvæðasti árangurinn í baráttu gegn reykingum má sjá í hópi bama og unglinga. í kjölfar könnunar sem gerð var á reykingavenjum reyk- vískra gmnnskólanema árið 1974 á vegum borgarlæknis, var hafið skipulagt fræðslustarf í grunnskól- um á Reykjavíkursvæðinu. Kannan- ir hafa síðan verið endurteknar á fjögurra ára fresti og sýna að þeim gmnnskólanemendum sem reykja fer verulega fækkandi: Tóbaksnotkun grunnskólanema Aldur 1974 1986 12 ára 12% 3% 13 ára 25% 4% 14 ára 36% 13% 15 ára 45% 25% 16 ára 54% 31% Niðurstöður úr nýlegum könnun- um á vegum landlæknisembættisins sýna að tóbaksnotkun fer einnig minnkandi meðal framhaldsskóla- nema: Tóbaksnotkun 15-20 ára nemenda eítir kyni: 1984 1986 1989 Piltar 27,9% 20,8% 15,5% Stúlkur 33,8% 26,0% 21,6 Það vekur athygli í þessari könn- un að fleiri stúlkur reykja en pilt- ar. Skynsamleg afstaða barna og unglinga í þessum efnum vekur þó góðar vonir um framtíðina, en mik- ilvægt er að við fullorðna fólkið veitum henni verðskuldaðan stuðn- ing ekki síst með því að búa unga fólkinu betra þjóðfélag og gefa góð fordæmi. Konur hafa löngum gert heil- brigðismál og velferðarmál að sínum baráttumálum. Er ekki mál til komið að konur taki sig saman og berjist gegn þeim heilsuspilli sem einna skæðast heij- ar á þær sjálfar, reykingunum? Við megum ekki missa þær tvö þúsund konur sem ætla má að deyi fyrir aldur fram vegna reykinga, fram til aldamóta. Ekki megum við heldur missa dýrmæta orku kvenna í baráttu við sjúkdóma af völdum reykinga þó að þeir dragi þær ekki til dauða. Það er ekki víst að langlífi íslenskra kvenna sem við höfum státað okkur af verði það sem nú er eftir nokkra áratugi ef konur breyta ekki reykingavenjum sínum. Konur, gefum hver annarri, börn- um okkar og körlum góð fordæmi. Styðjum hver aðra, hættum að reykja. Höfundur er læknir og þingkona Kvennalistans. SNYRTIVÖRU - { SYNNING A MORGUN fimmtud. 13. apríl kl. 10-18 \Ju & JóMyj PARIS SNYRTIVÖRUR SEM FAGFOLKIÐ VELUR HILMA snyrtistofa HÚSAVÍK íbúð sem kostar um 4 milljónir króna. Eigið framlag hennar er um 800 þúsund. Áhvílandi á íbúðinni fyrir eru lán frá Húsnæðisstofnun sem nema um 10% af íbúðarverðinu eða um 400 þúsund krónum. Þessi lán dragast frá nýjum lánum sem Hús- næðisstofnun veitir. Afganginn fjár- magnar Guðrún með bankalánum, lífeyrissjóðslánum og lánum frá selj- enda, sem er óverðtryggt með meðal- vöxtum banka og sparisjóða. f þess- um samanburði er miðað við að vext- ir fasteignaveðbréfs eða húsbréfs verði 7,5%, vextir banka og lífeyris- sjóða séu á bilinu 8 til 8,5% og núver- andi vextir húsnæðislána séu 3,5%. í þessu dæmi Guðrúnar er tekið til- lit til húsnæðisbóta í núverandi kerfi og vaxtabóta í húsbréfakerfi. Hveijar yrðu greiðslur Guðrúnar? Núv. húsn.l.kerfi Húsbréfakerfi 1. árið 496.000 303.000 2. árið 409.000 290.000 3. árið 360.000 278.000 4. árið 305.000 265.000 Það sem gerir greiðslubyrði Guð- rúnar léttari er það að hún þarf ekki að leita eftir þungum skammtímalán- um í bönkum sem oft hefur leitt til gjaldþrota hjá fólki. Þessi þungu skammtímalán í bönkum eru líka meginástæður greiðsluerfíðleikalána sem Húsnæðisstofnun ríkisins hefur þurt að standa fyrir undanfarin ár. Þess vegna er húsbréfakerfið hag- stæðara fyrir Guðrúnu eins og svo marga aðra í þessu þjóðfélagi. Höfiindur er féiagsmilaráðherra. VOLKSWAGEN L FRA HEKLU BORGAR SIG HEKLAHF verðfrákr. Laugavegi 170 172 Simi 695500 ^ qqq Sex, • •• ' sgo ogátta metra stangir álager. • Úr „glass fiber • 6,7 og 8 metra á lager. • Allar festingar og fylgi- hlutir innifalið í verðinu. • Stenst ágang veðurs. • Fislétt. • Fellanleg. • Gyllt plexiglerkúla. • Snúningsfótur kemur í veg fyrir að fáninn snúist upp á stöngina. • Auðveld í uppsetningu. • Útvegum aðila tii upp- setningar. 6 metra stöng kr. 22.600,- 7 metra stöng kr. 24.300,- 8 metra stöng kr. 26.400,- • Allir fyigihlutir eru fáan- legir stakir. • ÍSLENSKI FÁNiNN í ÖLLUM STÆRÐUM ÁLAGER Grandagarði 2, 101 Rvík. sími 28855. Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.