Morgunblaðið - 12.04.1989, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989
21
V
Sovéskur kafbátur sekkur
Sovéskur kjarnorku- $ Bjarnarey
kafbátur af geröinni Mike
sökk um 100 sjómilur ^
suövestur af Bjarnarey
eftlr aö eldur haföi komlö f Baœnt
uppí honum Hérvarö haf
á föstudag slvsíö
MurrnansK
Nonegshaf
' '
fSLAND
SOVETRIKIN
•Lemngrad
•Moskva
Sovéskur Mike-kafbátur
Lengd:110m Breidd:12m Stærö: 6.400tonn Hraði: 25 hnútar
Knúnlngur: 2 kjamakljúfar og gufuhverflar; 60.000 hestöfl Vopn:
Stýriflaugar og tundurskeyti Áhöfn: 69, þar af fórust 42
Atburðarásin:
(Miðað er við fslenskan tfma)
Föstudagurinn 7. aprfl:
07.41 Eldur kemur upp I kafbátnum
13.15 Kafbáturinn sekkur f 1.500 m dýpi
13.45 Norskir eftirlitsflugmenn sjá aö minnsta kosti tvö Ifk
20.00 Bandarfsku sjónvarpsstöðvamar CNN flytja fyrstu fréttina af
slysinu, byggöa á heimildum frá bandarfska varnarmála-
ráðuneytinu
Laugardagur 8. apríl:
03.00 Gorbatsjov Sovótleiötogi veitir bandarfskum, breskum og
norskum stjórnvöldum upplýsingar
8.00 TASS skýrir fráfréttinni f Sovótrfkjunum
HEIMILDIR: Norska varnarmálaráöuneytiö, Jane’s Flghting Ships
Svíþjóð:
Hörð gagnrýni á
öryggislögregluna
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter.
I skýrslu sem gerð var opinber í Svíþjóð í gær er fullyrt að starfs-
menn sænsku öryggislögreglunnar (SAPO) haJB oftlega brotið gegn
réttindum sænskra ríkisborgara og farið út fyrir valdsvið sitt. Á
mánudag sagði yfirmaður SÁPO, Sune Sandström, af sér og var
afsögn hans rakin til upplýsinga þeirra sem fram koma í skýrslunni.
Höfundur skýrslunnar er Carl
Lindbom, sendiherra Svía í Frakk-
landi en sænská ríkisstjómin ákvað
á síðasta ári að láta gera úttekt á
starfsaðferðum öryggislögreglunn-
ar eftir að í ljós kom að óleyfílegum
aðferðum hafði verið beitt við rann-
sókn á morði Olofs Palme, fyrrum
forsætisráðherra Svíþjóðar árið
1986.
I skýrslunni, sem er 150 blaðsíð-
ur að lengd, segir höfundurinn að
starfsmenn SAPO hafí hlerað sam-
töl sænskra ríkisborgara án þess
að viðkomandi hafí verið gmnaðir
um morð eða önnur óhæfuverk.
Hæpið sé að réttlæta megi þetta
með tilvísun til gildandi reglna sem
kveða á um að beita megi hlerunum
ef öryggi ríkissins sé ógnað. Fram
kemur að samtöl grunaðara hryðju-
verkamanna hafí einnig verið hler-
uð og fullyrðir sendiherrann að
hryðjuverkamenn hafí „í ákveðnum
tilvikum" komið saman í Svíþjóð til
að skipuleggja óhæfuverk í öðrum
löndum eða farið huldu höfði þar í
Leiðrétting
Þau mistök urðu við myndbirtingu
í gær, að sagt var að mynd af
Vadim Medvedev hinum nýja hug-
myndafræðingi sovéska kommún-
istaflokksins væri af Roy Medvedev,
sem náði kjöri á sovéska fulltrúa-
þingið. Eru lesendur beðnir velvirð-
ingar.
landi. Höfundur segir að tilvika
þessara sé getið í leynilegum við-
auka við skýrsluna.
Sune Sandström sagði á mánu-
dag af sér sem yfirmaður öryggis-
lögreglunnar og sagði hann ástæðu
uppsagnarinnar vera þá að hann
teldi sig ekki hæfan til að endur-
skipuleggja starfsemi SÁPO.
Sandström vlsaði í gær á bug ásök-
unum þess efnis að hann hefði sjálf-
ur fyrirskipað ólöglegar hleranir. í
skýrslu sinni leggur Carl Lidbom
til að öryggislögreglan þurfi fram-
vegis að leita eftir leyfí sænska
dómsmálaráðuneytisins til að beita
hlerunum og að skjöl er varða starf-
§emi stofnunarinnar verði varðveitt
en starfsmenn mega lögum sam-
kvæmt eyða trúnaðarskjölum sem
orðin eru eldri en þriggja mánaða.
KRTN
Reynt verður að ná flaki
kafbátsins af hafsbotni
Moskvu. Reuter. Daily Telegraph.
SOVÉTMENN hafa ákveðið að
reyna að bjarga flaki kjam-
orkukafbátsins, sem sökk við
Bjamarey, af hafsbotni. S. Varg-
in varaaðmíráll sagði í sjónvarps-
viðtali í gær að þetta væri talið
nauðsynlegt til að fínna orsakir
slyssins á föstudag. Vargin sagð-
ist álíta að báturinn væri í heilu
lagi; hann hefði sennilega ekki
lagst saman vegna þrýstingsins
þar sem hann hefði verið fúllur
af sjó.
Alls hafa sex kjamorkukafbátar
sokkið í heiminum, §órir sovéskir
og tveir bandarískir en ekki hefur
orðið vart við óeðlilega geislavirkni
við slysstaðina. 1986 varð spreng-
ing í sovéskum kafbát á Atlants-
hafi og sökk hann skammt frá
Bermuda-eyjum. Sovéski kafbátur-
inn er sökk á föstudag var af svo-
nefndri Mike-gerð og sá eini sinnar
tegundar. Vestrænir flotasérfræð-
ingar telja að bátstapinn sé mikið
áfall fyrir sovéska flotann þar sem
kafbáturinn hafí verið afar fullkom-
inn frá tæknilegu sjónarmiði og
sénnilega verið notaður við ýmsar
tilraunir. Aðrir segja þó að hönnun
bátsins, er var smíðaður 1983, hafi
verið misheppnuð frá upphafi,- t.d.
hafi hann aldrei náð þeim hraða,
35 hnútum, sem ætlast hafi verið til.
Báturinn liggur á alþjóðlegri sigl-
ingaleið. Bæði risaveldin ráða yfir
fullkomnum búnaði til að bjarga
hlutum af hafsbotni. Talið er að
vestræn ríki hafí fullan hug á að
reyna að komast yfir kafbátsflakið
eða hluta þess og því sé mögulegt
að nú hefjist kapphlaup sem reynd-
ar verður ekki án fordæma. Árið
1985 missti bandaríska flugvéla-
móðurskipið Nimitz orrustuþotu af
Tomcat-gerð í djúpið er það tók
þátt í æfingum á Atlantshafi. Er
björgunarskip Bandaríkjamanna
komu á staðinn gripu þau í tómt;
Sovétmenn voru búnir að klófesta
þotuna.
Líklegt er talið að bandaríska
leyniþjónustan, CIA, hafi árið 1974
reynt að nota Glomar Challenger,
sem þá var fullkomnasti björgun-
arkafbátur í heimi, til að ná flaki
sovésks kjarnorkukafbáts af Golf-
gerð upp en báturinn sökk skammt
frá Hawaii 1968. Bandaríkjamönn-
um mun hafa tekist að ná upp hluta
af skrokknum, með 70 lík innan-
borðs, en ekki tekist að ná upp
neinu af flóknum tækjabúnaði eða
mikilvægum leyniskjölum.
Grúsía:
Rosturnar eiga sér
langan aðdraganda
Moskvu. Daily Telegraph.
RÓSTUR höfðu lengi legið í loftinu í Grúsíu. Þjóðernisvakning í
lýðveldinu hafði valdið Kremlveijum miklum áhyggjum löngu áður
en þeir sýndu klærnar og sendu hundruð hermanna á vettvang með
þeim afleiðingum að í það minnsta 18 manns lágu í valnum á aðal-
torgi höfúðstaðarins, Tíflis, á sunnudag. Sú staðreynd að Edúard
Shevardnadze, utanrikisráðherra Sovétrílganna og fyrrum leiðtogi
kommúnistaflokks Grúsíu, var sendur til að stilla til friðar í lýðveld-
inu sýnir best hversu Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi lítur ástand-
ið alvarlegum augum.
Óánægja og reiði Grúsíumanna
er engin nýlunda. Soðið hefur upp
úr í lýðveldinu öðru hveiju í þrjá
áratugi. Grúsíumenn eru stoltir,
skapstórir og þjóðemissinnaðir.
Þeim er annt um tungu sína og
menningu og hefur roeð þrákelkni
tekist að varðveita þjóðareinkenni
sín.
Þeir hafa þráfaldlega neitað að
verða gerðir að Rússum, krafist
þess að fá að vera öðruvísi, að
vera þeir sjálfir: fjörmiklir,
vínhneigðir, skáldlegir, viðkvæmir,
höfðingjar heim að sækja og næst-
um sjúklega áhugasamir um knatt-
spymu. Þeir em dökkhærðir og
brosmildir og allt öðmvísi útlitis
en Rússar. Þeim hefur ætíð verið
í nöp við dauðyflislega skriffinna
ríkisforsjárinnar, en hafa á hinn
bóginn hneigst til fijáls framtaks.
Grúsíumenn segjast vita hvernig
eigi að lifa lífinu, elska og elda.
Þeir eru þekktir fyrir langlífí og
þeir sem em orðnir tíræðir að aldri
eða meira þakka það súrmjólkinni,
kornmetinu, hvítlauknum, víninu
og vodkanu - svo og áhyggjuleys-
inu. Lífskjör þeirra em með þeim
bestu í Sovétríkjunum og bílaeign
þeirra er meiri en annarra Sovét-
manna.
Líklega em Grúsíumenn best
aldir af öllum Sovétmönnum og
öfugj; við Moskvu er lífleg veitinga-
húsamenning í Grúsiu. Biðraðir i
matvömverslunum, sem em dag-
legt brauð í rússneskum stórborg-
um, þekkjast ekki í Grúsiu. Lýð-
veldið er þekkt fyrir léttvín sin og
sagt er að fjallahéraðið Kakhetia
sé Bordeaux Sovétríkjanna. Koní-
akið er einnig gott. Þegar Churc-
hill hélt upp á 70 ára afmælið sitt
sendi Stalín honum 70 flöskur.
Churchill skrifaði honum svarbréf
og sagðist óska þess að vera orðinn
hundrað ára.
Grúsíumenn hafa ólíkar skoðanir
á Stalín, þekktasta Grúsíumannin-
um. Margir af eldri kynslóðinni
bera enn virðingu fyrir honum.
Hins vegar fyrirlítur unga fólkið
Jósef Stalín, kunnasti Grúsí-
maðurinn, er enn dáður af
mörgum öldruðum löndum
sínum en fyrirlitinn af unga
fólkinu.
hann. Sumum finnst að harðstjóra-
orðstír hans sé smánarblettur á
Grúsíu.
Grúsía var að falli komin þegar
Rússar náðu ríkinu á sitt vald árið
1800. íbúamir voru aðeins
250.000. Undir verndarvæng
Rússaveldis fór Grúsía að vaxa og
dafna á ný, var sjálfstætt ríki í
þijú ár þar til Rauði herinn náði
ríkinu á sitt vald árið 1921. Fánalit-
ir Grúsíu frá þeim tíma hafa verið
áberandi á mótmælafundum þjóð-
emissinna að undanförnu.
\?/
ERLENT
Lausnin
fyrir
iagerinn
STAKAR HILLUR EÐA
HEIL HILLUKERFI
Lagerinn þarf að vera rétt
skipulagðurtil
aðréttnýtingnáistfram.
Kynntuþérmöguleikana
semviðbjóðum.
LAGERKERR FYRIR
VÖRUBRETTI
Mjög hentugt kerfi og sveigjanlegt við
mismunandi aðstæður. Greiður
aðgangur fyrir lyftara og vöruvagna.
STÁLHILLUR FYRIR
SMÆRRIEININGAR
Níðsterkarog
hentugar stálhillur.
Auðveld
uppsetning.
Margarog
stillaniegar stærðir.
Hentarnánast
allsstaðar.
UMBODS-0G HEILOVERSLUNIN