Morgunblaðið - 12.04.1989, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989
33
Leiðrétting
VEGNA tæknilegra mistaka í
grein Elínar Pálmadóttur „Lifað
í höggmyndalistinni“ i sunnudags-
blaði Morgunblaðsins birtum við
eftirfarandi kafla aftur og biðj-
umst velvirðingar á mistökunum.
Siglingakeppni til íslands
Lilja Skaftadóttir og Leonard Be-
netov komu á sl. sumri til íslands
með fríðu föruneyti til að vekja at-
hygli á og kanna mögtileikana á sigl-
ingakeppni á leiðinni frá Gravelin í
Norður-Frakklandi til íslands einu
leiðina sem frönsku fiskimennimir
sigldu áður fyrr. í hópnum voru þing-
maður, borgarstjóri, listamenn og
blaðafólk. í framhaldi af spjalli um
silungsrækt fjölskyldu Lilju á íslandi
berst í tal hvemig það hafi komið
tii. „Ég hefi ekkert verið í silungs-
ræktinni, en á tímabili var ég þó að
hugsa um að flytja silung til Frakk-
lands. Og var kominn í sambönd við
fískinnflytjendur í norðurhéruðum,"
segir Lilja. „Þá var þeirri hugmynd
slegið fram hvor ekki ætti að sigla
til Islands eins og gert var áður fyrr
og þá á nútímahátt.
Þetta vakti áhuga og til að koma
því í kring tókst samvinna milli okk-
ar hjónanna, iögfræðings nokkurs
og eiganda blaðsins VSD, sem kemur
út í 350 þúsund eintökum í Frakkl-
andi og oft styður svona. Stofnað
var félag um þetta sem við köllum
Laxalón. Kona eigandans á VSD-
blaðinu er siglingakona mikil og þau
hafa mikinn áhuga á þessu. Ég bauð
þeim því ásamt fleira fólki sem vildu
vera með til íslands. Þetta urðu alls
16 manns. Allir urðu mjög hrifnir
af íslandi og vildu auka samskiptin
milli landanna á ýmsum sviðum.
Frönsku sjómennimir komu mikið til
Fáskrúðsflarðar áður fyrr og borgar-
stjórinn í Gravelines var með og tók
upp samskipti við þá. Ég held að
aðilar á báðum stöðum séu nú að
vinna að því að íslenskir krakkar frá
Fáskrúðsfírði fari í heimsókn til Gra-
velines og séu famir að safna fyrir
ferðinni. Síðan fari krakkar frá Gra-
velines þangað. Borgarstjórinn hefur
mikinn áhuga og við erum að vinna
að því að fá KR.til að spila fótbolta
þar í maí. Einnig var tekið upp sam-
band við Kjarvalsstaði um sýninga-
skipti. Þetta varð mjög vel heppnuð
kynning, við fómm norður að Mý-
vatni, í Þórsmörk og austur á Fá-
skrúðsfjörð og þegar hefur birst mik-
ið myndskreytt grein í VSD-blaðinu.
Enda hafði eigandinn með sér ljós-
myndara og blaðamann.
Hvað fyrirhugaða siglingakeppni
sumarið 1990 snertir, þá er hug-
myndin sú að þarna keppi stórir segl-
bátar. Þá mundu koma 40—50 stórar
skútur og þarf legupláss í höfninni
og aðstöðu í Reykjavík. Við sendum
hugmyndir með uppdráttum fyrir jól
og emm að bíða eftir viðbrögðum frá
hafnarstjóra. Þá yrði siglt frá Gra-
velines fram hjá Hjaltlandi og stefnt
að því að sigla norður yfir heim-
skautsbaug og endað í Reykjavík.
Tabberlay, einn af frægustu sigling-
Suðureyri:
Sveinbjörn
Jónsson
sigraði á
skákmóti
Suðureyri.
SKÁKMÓT var haldið í fé-
lagsheimili Súgfirðinga á
annan í páskum. Tuttugu
manns tóku þátt og var kepp-
endum skipt nður í tvo flokka,
Qórtán ára og yngri og
Smmtán ára og eldri.
Sigurvegari í eldri flokknum
varð Sveinbjöm Jónsson með
fullt hús stiga og í yngri flokkn-
um varð Kristján Ibsen í fyrsta
sæti, Þorleifur Sigurvinsson í
öðm og Haukur Elvarsson í því
þriðja. Söluskáli Esso gaf verð-
launin, en það vom skákáhuga-
menn sem héldu mótið.
- R. Schmidt.
Flytur boðskap sinn í
skyru og myndríku máli
Lilja Skaftadóttir
aköppum hér, langar til að gera upp
bát föður síns og fara í reynsluférð
í sumar. Meðan við bíðum eftir svari
frá íslandi getum við lítið gert. En
við höfum tryggt mikið fé hér ef
áhugi verður á þessu. En enginn vill
troða sér upp á neinn og því er beð-
ið eftir viðbrögðum."
eftirHelga Elíasson
I Morgunblaðinu sunnudaginn 2.
apríl sl. las ég grein eða einskonar
palladóm um hinn nýkjöma biskup
Islands, séra Ólaf Skúlason, eftir tvo
blaðamenn.
Ég held að það sé trúlega eins-
dæmi í sögu íslensku kirkjunnar, að
kjörinn biskup fái slíka umfjöllun í
fjölmiðli. Mér þykir það mjög miður
að þár skuli vera reynt og það mjög
ómaklega að vekja efasemdir um
guðfræðilega boðun hins nýja bisk-
ups.
Þessi grein er vægast sagt
ósmekkleg, og átti ég alls ekki von
á því að lesa slíka grein á síðum
hins annars ágæta blaðs, sem Morg-
unblaðið er.
Ég hefí verið sóknarbam séra Ól-
afs í tæpa tvo áratugi og sótt kirkju
til hans. Hinn trúarlegi boðskapur
sem ég hefi heyrt séra Ólaf flytja
söfnuðinum er einmitt fagnaðarboð-
skapurinn um kærleika Guðs í Kristi
Jesú. Hann hefír dregið upp skíra
mynd af þeim Guði sem annt um
sköpun sína og vill koma til manns-
ins mitt í hringiðu lífsins, vill létta
byrðar þess sem erfitt á og vill fá
að rétta honum sína hlýju og gegn-
umstungnu hönd, og fá að leiða hann
gegnum lífið. Séra Ólafur Skúlason
flytur boðskap sinn í ským og
myndríku máli. Hann leggur áherslur
á gildi trúarinnar á hinn Krossfesta
og upprisna frelsara Jesúm Krist sem
er homsteinn kristinnar boðunar.
Hið ótvíræða kjör séra Ólafs
Skúlasonar sem biskup íslands sýnir
svo ekki verður um villst það traust
sem til hans er borið.
Það er mjög við hæfí, að friður
og djúp virðing ríki um hið mikil-
væga embætti biskups og þjóðin öll
standi einhuga að baki hinum ný-
kjöma biskupi íslands séra Ólafi
Skúlasyni, með fyrirbæn og hlýjum
huga.
Höfundur er fyrrverandi forseti
Gideon-hreyGngarinnar i fslandi
og stjórnarformaður i KFUM.
Aths.: — Afstaða Morgunblaðsins
birtist hvergi nema í forystugreinum
þess. Því er greinarhöfíindi bent á
forystugrein blaðsins sl. miðvikudag,
þar sem fjallað er um hinn nýkjöma
biskup og biskupskjör. — Ritstj.
AFKOST
ENDING
GÆÐI