Morgunblaðið - 12.04.1989, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989
41
"ÉCi SEQH hiú E'irssoca B>-r6rir>«ai=íttvt<->«. ivujmdi SQSJR'. te hRBinii_kor mhn þ«o cxk.i1'
Hver er höfundurinn?
Lesandi sendi eftirfarandi ljóð
eftir Borgþór V. Gunnarsson og
óskaði eftir upplýsingum um höf-
undinn og hvort hann hefði gefið
út ljóðabók.
Þórður Víkingur eins árs
Lít eg höfuð ljóft og frítt.
Liðið er fyrsta árið.
Silkimjúkt og silfurhvítt
sveipast í lokkum hárið.
Þessir hringdu . . .
Hringnr fannst í
laugunum
Ólöf hringdi.
Kvenmannsgullhringur fannst
í sundlauginni í Laugardal föstu-
daginn 7. apríl. Upplýsingar í
síma 32122 á kvöldin.
Kettlingnr í óskilum
Kolsvartur kettlingur líklega
þriggja mánaða fannst í Skipholti
á sunnudagskvöld. Hann er senni-
lega högni og er mjög gæfur.
Eigandi hringi í Rúnu í síma
609230 á daginn eða 22067 á
kvöldin.
Enginn kommúnisti í
Rípurhreppi
Ellilífeyrisþegi hringdi.
Ég var að lesa minningargrein
um skagfirskan bónda. í greininni
hefði mátt segja frá því að hann
var einu sinni skipaður skóla-
nefndarformaður í Rípurhreppi í
Skagafírði. Menntamálaráðherra
hafði skipað sanntrúaða stalínista
í allar skólanefndarformannsstöð-
ur alls staðar á landinu en í Rípur-
hreppi fannst enginn kommúnisti.
Þessi menntamálaráðherra skip-
aði líka skólastjóra í stærsta
hreppi landsins þá, mann sem
hafði það sér til ágætis að foreldr-
ar í þessu kauptúni höfðu tekið
börn sín frá honum og fengið
kennara á sinn eigin kostnað til
Nefið beint og munnur mær
myndar fríðan boga.
Undir brúnum augun skær
eins og stjömur loga.
Hefur þegar tennur tólf.
Telst það mikill fengur.
Upp í rúm og ofan á gólf
iðar lítill drengur.
Hvíldar sér hann aldrei ann,
æ sér þarf að flýta,
því að ótal hefur hann
homin í að lita.
að kenna bömunum. Mér finnst
að þessi saga ætti að liggja í
menntamálaráðuneytinu öðrum til
viðvörunar.
Meira fræðsluefni
M.J. frá Búrfellihringdi.
Ég er mjög ánægð með fjar-
kennsluna í sjónvarpinu en óska
eftir meira fræðsluefni í hana.
Einnig vil ég panta sjónvarps-
messur, þær eru svo áhrifamiklar.
Margt gamalt fólk er bundið
heimavið og kemst ekki í kirkju
þótt það langi.
Kettlingur týndur
Sunna hringdi.
Hálfstálpaður kettlingur, grá-
bröndóttur, týndist í Kópavogi
líklega einhvers staðar í Hvöm-
munum seint í síðustu viku.
Finnandi hringi vinsamlegast f
síma 46931.
Burt með miðdegissöguna
Elín hringdi.
Kæri Velvakandi. Viltu koma
áleiðis óánægju minni og fjölda
annarra yfir ógeðslegri miðdegis-
sögu, Riddaranum og drekanum.
Gæti Ríkisútvarpið ekki tekið
hana umsvifalaust af dagskrá?
Eins var sagan Blóðbrúðkaup ekki
beint geðsleg og engum hollt að
hlusta á svona endemi. Svo spyr
ég, hver velur þessar bókmenntir?
Þökk sé Reykvíkingi
Herdís Vigfusdóttir hringdi.
Ég kann Reykvíkingi þökk fyr-
ir leiðréttingu á sláandi sagn-
fræðilegri villu sem ég gerði mig
seka um er ég nefndi Bjamaborg-
arbrunn í stað Nóakotslindar í
minningargrein um Guðnýju Sig-
mundsdóttur í Morgunblaðinu 4.
apríl, hvað ég hlýt jafnframt að
harma. Fáfræði mín og misminni
Hefur í gangi hringlur tvær,
hund og trukkinn stóra.
Bætti við nýjum bíl í gær
og bolta á hann fjóra.
Býsnamikið ber á því
að bílana þurfi að laga
og spunakringlan splunkuný
spinnur alla daga.
Komdu og leik þér, karlinn minn,
kátari þér er enginn.
Aldrei hrelli heimurinn,
hjartans kæra drenginn.
var þar að verki. Guðný hefði aldr-
ei gefið mér né öðrum rangar
upplýsingar.
Týndi úri
Bragihringdi.
Ég tapaði úri á Rauða ljóninu
á Eiðistorgi í síðustu viku. Skilvís
finnandi hafi samband í síma
26216.
Fær ekki aðgang
Áhyggjufull móðir hringdi.
Dóttir mín hefur oft um helgar
farið í Ölver í Glæsibæ. Á laugar-
daginn kemur hún heim og hafði
henni verið vísað frá. Starfsmenn
staðarins neituðu að láta uppskátt
hver ástæðan væri fýrir þessari
meðferð á dóttur minni. Er þetta
hægt?
Veski týndist
Ingvar hringdi.
Peningaveski tapaðist fyrir ut-
an sundlaugamar í Laugardal
föstudaginn síðastliðinn með pen-
ingum og skilríkjum. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 82085.
Páfagaukur sloppinn út
Albert Stefánsson hringdi.
Gulur páfagaukur slapp út í
Lundarbrekku 4 Kópavogi á
mánudagsmorgun. Þeir sem hafa
orðið hans varir gjöri svo vel að
hringja í síma 43439.
Leiðrétting
í Velvakanda í gær þriðjudag-
inn 11. apríl var rangt farið með
nafn konu sem hringdi vegna illr-
ar meðferðar á dýram. Rétt nafn
hennar er Sigríður Eymundsdóttir
en ekki Sigrún Eymundsdóttir.
Er beðist velvirðingar á þessum
mistökum.
NámskeiA í nuddi og austurlenskri heilun
(oriental healing)
Danski nuddarinn, Lone Svargo Riget, hefur snúið aftur til
íslands eftir að hafa sérhæft sig á Indlandi. Hún tekur fólk í
einkatíma og helgina 15.-16. apríl hyggst hún kenna nudd,
austurlenska sjúkdómsgreiningu, punktanudd (deep shiatsu),
„chintaido" o.fl.
Upplýsingar og pantanir eftir kl. 16.30 alla daga í síma 18128.
Oft var
fjora
HDS!
Hér meö er skoraö á alla nemendur Hlíöandalsskóla í Ölfusi
vetuma 1970-1973 að gefa sig fram hiö fyrsta þar sem
fyrirhugaö er aö hittast, rifja upp góöa daga oggömul kynni,
drekka djús og eitthvaö fleira á sameinuöu pilta- og
stúlknakvöldi í Víkingasal Hótel Loftleiöa, laugardaginn 15.
apríl kl. 20:00. Fyrrverandi, núverandi og tilvonandi makar
eru beðnir aö halda sigfjarverandi. Hafið samband viö Erlu
Bjamadótturs. 52389, JóhannesViðarBjamasons. 656171
Jón Finn Ögmundsson s. 84339, Jóhönnu Birgisdóttur s.
26046 sem allra, allra fyrst.
Nú má enginn sítja heima!
ÚTSALA
Karlmannaföt kr. 3995,-, 5500,-, 7995,- og 9995,-
Terytenebuxur kr. 995,- og 1195,-
Skyrtur, gallabuxur, flauelsbuxur o.fl. 6 lágu verði.
Jtndrés,
Skólavörðustíg 22, sími 18250.
FRÁBÆR ÍRSK ÞJÓÐLAGAHLJÓMSVEIT Á ÍSLANDI