Morgunblaðið - 12.04.1989, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MJÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Tékkar vilja fá landsliðið
í upphKunarmót fyrir HM
þátt í Super Cup í nóvember.
Áœtlar er að íslenska landsliðið
leiki yfir fjörtíu landsleiki fyrir
heimsmeistarakeppnina í Tékkó-
slóvakíu.
Þess má geta að Tékkar voru
áður búnir að bjóta iandsliði Ís-
lands á mót í janúar 1990.
Tékkar hafa boðið íslenska
landsliðinu til að taka þátt í
geysilega sterku móti í Tékkó-
slóvakíu í október. Sjö af fremstu
handknattleiksþjóðir heims hafa
fengið boð um að taka þátt í
keppninni, sem er upphitunar-
keppni fyrir heimsmeistaramótið,
sem fer fram í Tékkósióvakíu
1990.
Keppt verður á þeim stöðum,
sem leikið verður á í HM í
Tékkólslóvakíu. Tékkar ætla að
nota mótið til að sjá hvað þarf
að lagfæra í sambandi við HM.
HSÍ fékk boð um að taka þátt
í mótinu í gær, þannig að ekki
er enn búið að taka ákvörðun um
hvort boðið verður þegið. Eins og
hefur komið fram í Morgunblað-
inu hefur HSÍ fengið fjöldan allan
af boðum að undanförnu.
Óneitanlega er þetta boð mjög
freystandi eins og boðið frá V-
Þýskalandi um að landsliðið taki
HANDBOLTI
Magdeburg
lagði Minslc
Mótherjar FH unnu
einnig heima
Leikmenn Magdeburgar, sem
slóu Valsmenn út úr Evrópu-
keppni meistaraliða, lögðu sovéska
liðið Minsk í fyrri leik liðanna í
undanúrslitum - 26:25, í Magde-
burg. Drott frá Svíþjóð, mátti þola
tap, 23:24, heima gegn Steaua
Bukarest frá Rúmeníu.
Rúmenska liðið Dinamo Búkarest
vann franska félagið Créteil, 20:19,
í undanúrslitum Evrópukeppni bik-
arhafa og Bidasoa lagði Essen að
velli, 25:22, á Spáni.
Sovéska liðiðið Krasnodar, sem
sló FH út úr IHF-keppninni, vann
Vorward Frankfurt frá A-Þýska-
landi, 19:14, í fyrri leik liðanna -
í Krasnodar. Caja Madrid lagði
Diisseldorf að velli, 20:16, í hinum
undanúrslitaleiknum.
Ikvöld
Síðustu leikimir í 1. deild
karla á íslandsmótinu í hand-
knattleik fara fram í kvöld.
UBK og KA leika í Digranesi
kl. 20.00 og Stjaman og ÍBV
strax á eftir kl. 21.15.
■FH og KR leika í 8-liða
úrslitum bikarkeppni HSÍ í
meistaraflokki karla í Hafnar-
firði í kvöld kl. 20.00.
KORFUKNATTLEIKUR
Harlem Globetrotters:
Ekki tapað í 17 árl
Körfuboltasnillingarnir með tvær sýningar í Laugardalshöllinni
Það er ávalltmikið fjör á sýningum Harlem Globetrotters. Hér bregður Ha-
rold „Bobo“ Hubbard á leik.
SMILLINGARNIR og trúðarnir í
bandaríska körfuknattleikslið-
inu Harlem Globetrotters eru á
leið til íslands. Þeir munu halda
tvær sýningar í Laugardals-
höllinni 22. og 23. apríl. Þetta
er önnur heimsókn liðsins en
í en síðast sáu um 11.000
manns þrjár sýningar liðsins í
troðfullri Laugardalshöll. Sýn-
ingar liðsins í Höllinni eru liður
í heimsferð liðsins sem stend-
urfram á haust.
Harlem Globetrotters hlýtur að
vera eitt sigursælasta lið
heims. Það hefur ekki tapað leik
síðan 1971 eða í 17 ár. Reyndar
ekki til þess ætlast því leikir liðsins
eru meiri sýning en alvarlegur
körfuboltaleikur. Liðið var stofnað
1927 og hefur leikið 16.881 leik í
rúmlega 100 löndum. Þess má geta
að liðið hefur aðeins tapaði 331
sinni og vinningshlutfallið því 98%
sem hlýtur að vera met!
Lið Harlem hefur reyndar sett
mörg met og eitt þeirra mun líklega
aldrei falla. Það var þegar liðið lék
á Ólympíuleikvanginum í Berlín
árið 1951. Þá komu hvorki fleiri
né færri en 75.000. áhorfendur á
leik liðsins en aldrei hafa verið fleiri
áhorfendur á körfuboltaleik.
Forsala aðgöngumiða verður í
dag og á morgun í Laugardalshöll-
inni og íþróttahúsinu í Keflavík og
stendur frá kl. 16-20 báða dagana.
Einnig geta utanbæjarmenn pantað
miða í síma 685949. Þegar liðið
kom hingað síðast seldust allir mið-
arnir upp í forsölunni.
-ekkl
/M-
Laugardag |ur kl. 13:45
15. LEIKVIKA- 15. APRIL1989 11 m 2
Leikur 1 Everton - Norwich
Leiktv 2 Nott. For. ' - Liverpool im
Leikur 3 Arsenal - Newcastle
Leikur 4 Luton - Coventry
Leikur 5 Man. Utd. - Derby
Leikur 6 Q.P.R. - Middlesbro
Leikur 7 Wimbledon - Tottenham
Leikur 8 Blackburn - Man. City
Leikur 9 Bournemouth - Stoke
Leikur 10 Bradford - ipswich
Leikur 11 Leicester - Chelsea
Leikur 12 Swíndon - Watford
Símsvari hjá getraunum á laugardögum ef tir
kl. 16:15 er 91-84590 og -84464.
1 VUrALUUH :4->:vx-x-xx-Xv:vX::->x-:v>x-X'X<:xx-:->:v>>.v:vX-:-Xvx-xvX-í>x?x-:vx PHfcNUIPC II jj
SKÍÐI / ALÞJÓÐAMÓT A AKUREYRI
Lichtenegger
vann aftur
MICH AEL Lichtenegger frá
Austurríki sigraði í síðara
stórsviginu á alþjóða skíða-
mótinu sem fram fór í Hlíðar-
fjalli í gær. Lichtenegger vann
einnig stórsvigið á mánudag.
Sama röð var á fyrstu þremur
keppendunum í stórsviginu í j
gær eins og á mánudaginn. Lich-
tenegger, sem er 18 ára, var í gær
rúmlega hálfri sekúndu á undan
Norðmanninum, Sverre Melby.
Partick Wirth, Austurríki, varð
þriðji.
Valdimar Valdimarsson, Akur-
eyri, stóð sig best íslendinganna í
gær - hafnaði í 6. sæti. Hann átti
mjög góða fyrri ferð og var þá með
fjórða besta brautartímann. Órnólf-
ur Valdimarsson var með sjötta
besta tímann eftir fyrri ferð en var
úr leik í þeirri síðari.
Veður var ekki eins og best verð-
ur á kosið í Hlíðaifyalli í gær -
svarta þoka og skyggni því lítið.
Keppendur flytja sig nú suður til
Reykjavíkur og keppa í svigi á
föstudag og laugardag í Bláfjöllum.
Úrslit:
1. Michael Lichtenegger, Austurr...2:06.66
2. Sverre Melby, Noregi............2:07.33
3. Patrick Wirth, Austurríki.......2:07.94
4. Tateru Takehana, Japan..........2:08.12
5. Uros Paulovicic, Júgóslavíu.....2:08.56
6. Valdimar Valdimarsson, Akureyri ..2:08.82
7. Takemi Fujiwara, Japan..........2:09.34
8. Danícl Hilmarsson, Dalvík.......2:09.80
9. Mads Ektvedt, Noregi............2:09.86
10. Takuei Fujiwara, Japan..........2:10.58
11. Vilhelm Þorsteinsson, Akureyri .2:11.83
12. Jóhannes Baldursson, Akureyri...2:12.29
13. Amór Gunnarsson, ísafirði.......2:13.05
14. Magnús Karlsson, Akureyri.......2:14.02
15. Egill Ingi Jónsson, Reykjavík...2:14.10
Stefano Tacconi
ífiRÚmR
FOLK
■ STEFANO Tacconi, mark-
vörður Juventus, sparkaði viljandi
í Argentínumanninn Pedro Pablo
Pasculli, leikmann Lecce, á sunnu-
dag. Dómarinn sá ekki atvikið og
meiðsli hlutust ekki af, en stjórn
Juve sætti sig ekki við framkomu
markvarðar síns og sektaði hann
um 75.000 ísl. krónur.
■ KATRIN Gutensohn, aust-
urríska brunkonan, hefur ákveðið
að keppa fyrir Vestur-Þýskaland
næsta vetur. Hún er gift vestur-
þýskum lækni sem starfar hjá
þýska hernum. Gutensohn, sem er
23 ára frá bænum Krichberg og
hefur verið í fremstu röð síðustu
árin, sagðist hugsanlega keppa aft-
ur fyrir Austurríki 1997 þegar
atvinnusamningur húsbóndans væri
útrunninn hjá hernum.
■ ENZO Scifo, landsliðsmaður
Belga sem leikur með Bordeaux í
Frakklandi, verður ekki valinn í
bclgíska landsliðshópinn nema að
hann komast í franska liðið, en
hann hefur ekki verið fastamaður
í liðinu að undanförnu. „Ef Scifo
er ekki nógu góður fyrir Bordeaux
er hann ekki ngou góður fyrir
belgíska landsliðið," sagði Guy
Thijs, landsliðsþjáflari Belga.
Belgar leika við Tékka í undan-
keppni HM í næstu viku.
NBA-deildin
Mánudagur:
New Jersey — Boston Celtics. .112:113
Atlanta — Charlotte Homets. .112:105
Detroit Pistons — Washington 124:100
Indiana Pacers — Dallas .110:103
Seattle — Antonio Spurs ...102:89
L.A. Clippers — L.A. Lakers... .116:133
Sacramento — Miami Heat.... ...108:69
FRJÁLSAR
Víðavangs-
hlaup IR
Víðavangshlaup ÍR fer fram á sum-
ardaginn fyrsta, 20. apríl, sem
endranær og verður nú haldið 74.
árið í röð. Hlaupið hefst í Hljómská-
lagarði klukkan 14.00. Búningsað-
staða fyrir keppendur verður í Mið-
bæjarbarnaskólanum. Þátttökutil-
kynningar berist í síðasta lagi næst-
komandi sunnudag, 16. apríl til
Guðmundar Þórarinssonar, s.
14387 Jónasar Egilssonar, s.
641788 eða Gunnars Páls Jóakims-
sonar, s. 28228.
FELAGSLIF
AðaKundur Víkings
Aðalfundur knattspyrnudeildar
Víkings verður haldinn þriðju-
daginn 18. apríl í Félagsheimilinu
við Hæðargarð. Fundurinn hefst
klukkan 20.30.