Morgunblaðið - 12.04.1989, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 12.04.1989, Qupperneq 44
* r SJOVA-ALMENNAR ISýtt l'ólag storkar rætur MIÐVIKUDAGUR 12. APRIL 1989 VERÐ I LAUSASOLU 80 KR. Mesta atvinnuleysi í mars frá upphafí skráningar: 2.500 manns án atvinnu í mars ATVINNULEYSI í mars var hið mesta í þeim mánuði frá því að skráning atvinnuleysisdaga hófst árið 1975. Að meðaltali voru 2.500 manns atvinnulausir á landinu öllu í mars og jafhgildir það 2% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Samkvæmt yfirliti um atvinnu- ástandið frá Vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins er at- vinnuleysið í mars óbreytt miðað við mánuðinn þar á undan. Hinsveg- "'ar hefur orðið nokkur breyting á dreifingu atvinnuleysisins milli landshluta. Þannig fjölgaði atvinnu- lausum á höfuðborgarsvæðinu en fækkaði utan þess öfugt við það sem gerðist í febrúar. Þijá fyrstu mánuði þessa árs hafa um 2.700 manns verið á at- vinnuleysisskrá að jafnaði í hverjum mánuði. Þetta eru mikil umskipti frá því sem var fyrstu þijá mánuði ársins í fyrra. Þá voru að jafnaði 900 manns á atvinnuleysisskrá eða um 0,8% af mannafla. í yfirliti Vinnumálaskrifstofunnar segir að samanburður milli áranna sé vart raunhæfur sökum hinnar miklu þenslu sem var á vinnumarkaðinum í ársbyrjun 1988. Sé tekið meðaltal þessa timabils síðustu þijú árin aft- ur í tímann kemur í ljós að atvinnu- lausir voru 1.200 talsins eða um 1% af mannafla. Háskólakennarar sam- þykkir verkfallsboðun FÉLAG háskólakennara hefúr naumlega samþykkt í almennri atkvæðagreiðslu að fara í verk- fall hinn 28. apríl næstkomandi hafí samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Þetta er í fyrsta skipti sem atkvæðagreiðsla um verkfall fer fram i félaginu. Komi til verkfalls fellur niður kennsla allra fastra kennara Háskólans, próf verða ekki haldin, og vinna á rannsóknarstofhunum fellur niður. Atkvæði voru talin í gær og féllu þannig að já sögðu 139 eða 51,1% og nei 123 eða 45,2%. Auðir seðlar voru 6 eða 2,2% og ógildir 4 eða 1,5%. 392 voru á kjörskrá og 272 greiddu atkvæði eða 69,4%. At- kvæðagreiðslan fór þannig fram að öllum félagsmönnum á kjörskrá var sendur atkvæðaséðill í ábyrgðar- pósti. Kjörkassi var á skrifstofu Háskólans og póstatkvæði bárust skrifstofu BHMR. Atkvæðagreiðslu lauk á föstudag. „Ég átti síður von á að það yrði samþykkt að fara í verkfall," sagði Jóhann Pétur Malmquist, formaður Félags háskólakennara. „En niður- staðan lýsir því vel að félagsmenn eru orðnir þreyttir á sínum kjörilm og að meirihluti er tilbúinn til þess að nota verkfallsvopnið til að bæta þau kjör.“ Hressir drengir Morgunblaðið/Þorkell Þeir virðast í sumarskapi, þessir drengir sem gantast í sundlauginni, enda er sumardagurinn fyrsti ekki langt undan. Hreystin skín af þeim og ekki er úr vegi að minna á, að dagurinn í dag er tileinkaður heilbrigði og „reykleysi“. Að sögn landlæknis eru reykingar mesta heilbrigðisvanda- mál þjóðarinnar. Reyklausi dagurinn er meðal annars haldinn til að gefa reykingamönnum tilefíii til að hvila sig og aðra á tóbaksreyknum. Morgunblaðið/Bjami Frá talningu atkvæða seinnipartinn í gærdag. Talin frá vinstri Páll Sigurðsson, Sigurður V. Friðþjófsson, Aðalheiður Ófeigsdóttir, Jó- hann Pétur Malmquist og Birgir Björn Siguijónsson. Húsiiæðismálastjórii: Fimrn s^jómarmeim gegn húsbréfekerfi FIMM af tíu stjórnarmönnum í Húsnæðisstofíiun rikisins hafa sent félagsmálaneftid Alþingis álitsgerð, þar sem þeir leggjast eindregið gegn því að tekið verði upp svokallað húsbréfakerfí, en félagsmála- ráðherra hefíir lagt fram stjórnarfrumvarp þar um á þingi. Stjórnar- mennirnir vilja að frekar verði reynt að bæta núverandi húsnæðis- lánakerfi. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra sagðist ekki hafa séð álitsgerðina í heild og ætti hún því erfitt með að tjá sig um hana efnis- lega. „Hún kom mér nokkuð á óvart, af því að Húsnæðismála- stjóm í heild treysti sér ekki til að segja álit á frumvarpinu. Sam- kvæmt því litla, sem ég hef heyrt, Á þriðja hundrað bíða nú eftir heymartækjum NÚ BÍÐA á þriðja hundrað manns eftir því að fá heyrnartæki og eru dæmi um að heyrnarskertir hafí beðið allt að hálft ár eftir að £á tæki. Heymartækin em á hafnarbakkanum í Reykjavik en Heyrnar- og talmeinastöðin hefíir ekki fengið fé til að leysa þau út. Þótt ástandið sé slæmt hefúr það verið verra áður eða fyrir þremur ámm er um 500 manns biðu eftir heyrnartækjum. Ingimar Sigurðsson stjómar- formaður Heymar- og talmeina- stöðvarinnar segir að þetta ástand eigi sér sínar skýringar. Fyrst og fremst þær að Heyrnar- og tal- meinastöðin hefur ekki fengið fjármagn til kaupa á tækjunum. Á síðasta ári var lagður söluskatt- ur á þessi tæki og hefði stöðin ekki fengið hann bættan nema að hluta til. Ingimar átti þó von á að úr því rættist á næstunni. „Vegna þess að söluskatturinn var ekki bættur nema að hluta í fyrra sátum við uppi með um tveggja milljóna króna skuld við Innkaupastofnun um síðustu ára- mót,“ segir Ingimar. „Vegnaþess- arar skuldar höfum við ekki getað Ieyst út tækin.“ í máli Ingimars kom fram að á síðasta ári hefði tekist að stytta biðina eftir þess- um tækjum mikið eða niður í tvo mánuði sem hann telur eðlilegt. Síðan hefur biðtíminn lengst aftur og er nú kominn í sex mánuði í einstaka tilvikum sem Ingimar sagði alls ekki nógu gott. telja fimmmenningarnir að það sé komið jafnvægi á húsnæðislána- kerfið, en ég tel að við höfum sýnt fram á það gagnstæða." Fimmmenningarnir eru þeir Björn Þórhallsson og Grétar Þor- steinsson, sem tilnefndir eru í stjórnina af Alþýðusambandinu, Grímur S. Runólfsson og Hákon Hákonarson, kosnir af Framsóknar- flokki, og Jón Gunnarsson, kosinn af Borgaraflokki. í álitsgerðinni segja fimmmenn- ingarnir meðal annars að húsbréfa- kerfið muni hafa skaðleg áhrif á fasteignamarkaðinn að því leyti að þeir, sem fái fé á húsbréfamarkaði, geti boðið upp verð fyrir þeim, sem bíði eftir láni frá Húsnæðisstofnun. Húsbréfakerfið geti valdið verð- sprengingu og þenslu á fasteigna- markaðnum, og jafnvel verðbólgu. Þá eyði það forgangi ungs fólks í húsnæðiskerfinu, í því séu engin félagsleg sjónarmið. Stjórnarmennirnir segja að nú- verandi húsnæðislánakerfi virðist vera að komast í jafnvægi og birta tölur því til stuðnings. Þeir leggja til endurbætur á kerfinu, sem með- al annars fela í sér, að gengið verði út frá óbreyttum skuldabréfakaup- um lífeyrissjóða. Þeir leggja einnig til að þeir, sem búa í eigin hús- næði, fái eitt lán, endurkaupalán, einnig þegar um nýbyggingu er að ræða. Það muni lækka lán til 30% umsækjenda og meira verði til ráð- stöfunar handa öðrum. Þá leggja þeir til að menn, sem ná ákveðinni' eignaviðmiðun, og þá ekki aðeins hvað húseignir varði, fái ekki lán. Einnig leggja þeir til lægri lán til einhleypinga, að þeir sem eru tekju- hærri, greiði lán sín hraðar en þeir tekjulægri, og að heimilt verið að geyma lánsrétt í ákveðinn tíma, sé hann ekki nýttur að fullu. KEAleggur niður þrjár verslanir Akureyri. Á FUNDI þjá Akureyrar- deild KEA í gærkvöldi kom fram að KEA hefur ákveðið að leggja niður þijár verslan- ir á Akureyri og á Hjalteyri. Var starfsfólki þessara versl- ana sagt upp störfúm um síðustu mánaðamót en rekstri verður hætt 1. júní. Hér er um þijár minnstu verslanir KEA að ræða. Þær eru á Hjalteyri, að Hafnar- stræti 91 og Ránargötu 10. Taprekstur hefur verið á þess- um verslunum undanfarin 5 ár. í gærdag mótmæltu íbúar við Ránargötuna því að versl- uninni þar skyldi lokað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.