Morgunblaðið - 29.04.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.04.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRIL 1989 ísland á bekk meðal stórþjóða sambandsins - segir formaður Alþjóðasam- bands Rauða kross félaga FORMAÐUR Alþjóðasambands félaga Rauða krossins og Rauða hálf- mánans, Venezuelamaðurinn Dr. Mario Villarroel Lander er staddur hérlendis og ávarpaði aðalfimd Rauða kross íslands í gærkvöldi. Með- an á dvöl hans hér stendur mun hann einnig hitta að máli forseta Is- lands og fulltrúa ríkisstjórnarinnar. í stuttu spjalli við blaðamann var hann fyrst spurður hver væru helstu verkeftii alþjóðasambandsins nú á tímum. „Aðild að sambandinu eiga Rauða kross félög 148 landa með meira en 250 milljónir félagsmanna, sagði dr. Lander. „Sambandið annast hjálpar- starf Rauða krossins á friðartímum með þeim hætti að það sér um að koma hjálparbeiðnum frá félögum í nauðstöddum löndum á framfæri al- þjóðlega, samhæfir hjálparstarf og sér um að miðla framlögum hvað- anæva að til neyðarsvæða. Sem stendur mæðir hvað mest á starfmu á jarðskjálftasvæðunum í Armeríu en einnig er mikið hjálparstarf unnið l.maífundur á Lækjartorgi Fulltrúaráð verkalýðsfélag- anna í Reykjavik, Bandalag starfs- manna ríkis og bæja og Iðnnema- samband íslands gangast fyrir hátíðarhöldum 1. maí í tileftii af alþjóðlegum baráttudegi verka- fólks. Safnast verður saman við Hlemm kl. 13.00 og gengið niður Laugaveg að Lækjartorgi þar sem fundur verð- ur haldinn. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur munu leika fyrir göngunni. Ræðumenn dagsins verða Örn Friðriksson annar varaforseti ASI og Ögmundur Jónasson formaður BSRB. Auk þeirra koma fram á fund- inum Sigrún Valgerður Guðjóns- dóttir og Sigursveinn Magnússon og munu þau syngja og leika á píanó. Fundarstjóri verður Hildur Kjartans- dóttir varaformaður Iðju. í Súdan og Eþíópíu. Aðrir þættir í starfi Alþjóðasambandsins eru að efla landsfélög á helstu áhættusvæð- um þannig. að þau verði betur fær um að mæta þeim vanda sem við er að glíma og einnig er unnið að efl- ingu friðar og friðsamlegra sam- skipta manna í heiminum. -Hver er staða Rauða kross ís- lands í alþjóðasambandinu og hvem- ig stenst starf hans alþjóðlegan sam- anburð? „Rauði kross íslands hefur unnið mjög gott starf bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi. Hann hefur nú umsjón með alþjóðlegum verkefnum í Djibuti og í Grenada og hefur sam- vinnu við önnur Norðurlönd um starf í Mið-Ameríku. Sérþekking og reynsla forystumanna Rauða kross íslands hefúr nýst samtökunum af- burðarvel á alþjóðavettvangi og þar vil ég sérstaklega nefna dr. Guðjón Magnússon. Starfsemi Rauða kross- ins innanlands er einnig mjög athygl- isverð, ég nefni sjálfboðaliðsstarf á sjúkrahúsum, starf við vemdaðan vinnustað fatlaðra og ekki síst Rauða kross húsið, þar sem unnið er að málum ungs fólks sem á við áfengis- og eiturlyfj avandamál að stríða. Þar er einstakt og stórmerkilegt starf unnið sem verður áreiðanlega Rauða kross félögum í öðrum löndum til fyrirmyndar. Heimsókn mín hingað er í viðurkenningarskyni við framlag sjálfboðaliða og forystumanna Rauða krossins. Vegna þeirra öfluga starfs er þessi litla þjóð á bekk með stór- þjóðum innan Rauða krossins," sagði dr. Mario Villarroel Lander.formaður Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánanans. VEÐURYFIRLIT Á HÁDEGI í GÆR ÞETTA kort er byggt á veðurlýsingu gærdagsins, sent frá Englandi í gegn um gervihnött og tekið af veðurkortarita hjá Radíómiðun, Grandagarði Reykjavík. Vegna verkfalls Félags íslenzkra náttúru- fræðinga eru ekki gerðar veðurspár hjá Veðurstofu íslands og verða lesendur Morgunblaðsins því sjálfir að spá í veðrið, eins og þeim er lagið. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Staður hiti veður Staður hitl veður Akureyri kl.18 2 heiðskírt Genf 10 skýjað Reykjavík kl.18 6 léttskýjað Hamborg 15 heiðskírt Bergen Kaíró 32 heiðskírt Helsinki 16 skýjað Kanarí Kaupmannah. 12 heiðskírt London 10 skýjað Narssarssuaq Madrid 15 heiðskírt Nuuk Malaga 18 heiðskírt Osló 9 heiðskírt Mallorca 15 skúrir Stokkhólmur 10 skúrir Marseille 12 skýjað Þórshöfn Moskva 22 heiðskírt Aþena 24 heiðskírt París 10 heiðskírt Amsterdam 10 heiðskírt Prag 13 skúrir Berlín 13 heiðskírt Róm 13 skúrir Belgrad 21 heiðskírt Varsjá Briissel 12 heiðskírt Vín Frankfurt Ziirich Jakob Benediktsson að flytja erindi sitt. Frá setningu ráðstefiiunnar í gærkvöldi. Ráðstefiian „Skáldskaparmál“: Átján fi*æðimenn flytja erindi um íslenskar fornbókmenntir Svar við frumkvæði útlendinga, segja ráðstefnuhaldarar RÁÐSTEFNA um íslenskar fornbókmenntir hófst í ráðstefiiusöl- um ríkisins, rúgbrauðsgerðinni, í Borgartúni í gærkvöldi með setningu og erindi sem Jakob Benediktsson flutti um textafræði og miðaldarannsóknir. Ráðstefiian ber heitið Skáldskaparmál og stendur yfir í dag og á morgun og hefst báða daganna klukkan 10.00. AIls flytja 18 fræðimenn erindi um ýmis og ólík málefiii fornbókmenntanna, en skipuleggjendur ráðstefiiunnar eru þeir Örnólfiir Thorsson, Gunnar Á. Harðarson og Gísli Sigurðsson. „Segja má að þessi ráðstefna sé svar við þeirri tilfinningu að við íslendingar höfum misst af lestinni í rannsóknum á okkar eig- in fombókmenntum, fmmkvæðið hefur verið f höndum erlendra fræðimanna sem hafa að mörgu leyti verið fijórri og sótt sér inn- blástur í fombókmenntir okkar og fengið út ýmsa skemmtilega hluti. Islendingar hafa aftur á móti sinnt betur handritafræð- inni. Traustar textarannsóknir era sú undirstaða sem allt frekara starf byggir á. Þær era hins veg- ar ekki endastöðin heldur upphaf- ið,“ sagði Gunnar Á. Harðarson, einn af forsprökkum ráðstefnunn- ar í samtali við Morgunblaðið. í dagskrá ráðstefnunnar er tilgangi hennar lýst nánar. Þar stendur: „Þessi ráðstefna um íslenskar fombókmenntir sameinar ný við- horf í bókmenntafræðum og rann- sóknir á íslenskum miðaldabók- menntum. Hún gefur innsýn í við- fangsefni ungra fræðimanna, sem era að vonum margbreytileg en mest ber þó á rannsóknum á sviði frásagnarýni, flokkunarfræði og munnmennta, auk athugana á dróttkvæðum og túlkun einstakra sagna.“ Við þetta má bæta, að hér er að stærstum hluta um ungt fólk að ræða sem hefur stundað nám í íslensku og bókmennta- fræðum bæði við Háskóla íslands svo og við háskóla víða erlendis. Dagskrá laugardagsins hefst sem fyrr segir klukkan 10.00 með erindi Gísla Sigurðssonar, Munn- menntir og Fomsögur. Síðan rek- ur hvert erindið annað, Ömólfur Thorsson flytur „Leitin að landinu fagra“, Haljdór Guðmundsson ijallar um íslenskar sögur og skáldsagnagreiningu, Úlfar Bragason flytur erindið „Atburðir og Frásagnir", Baldur Hafstað flytur „Konungsmenn í kreppu“, Guðmundur Andri Thorsson flytur „Þú ert Grettir, þjóðin mín“, Jón Torfason flytur „Góðar sögur og vondar", Viðar Hreinsson flytur „Gönguhrólfur á galeiðunni", Torfí Túliníus flytur „Landafræði og flokkun fomsagna" og loks á laugardaginn flytur Matthew Driscoll erindið „Þögnin mikla“. Á sunnudeginum er dagskráin með þeim hætti, að fyrst flytur Ástráður Eysteinsson erindið „Er Halldór Laxnes höfundur Fóst- bræðrasögu?", síðan rekur enn hvert erindið annað, Ámi Sigur- jónsson flytur erindið „Klysjustig íslenskra sagna“, Gunnar A. Harðarson fytur „Um náttúra- skynjun í dróttkvæðum," Guðrún Nordal flytur „Hlutverk og sér- kenni vísna í Sturlungu", Guðrún Ingólfsdóttir flytur „Hver maður kvað fy“, Bergljót Kristjánsdóttir flytur „Hvorki em eg fjölkunnig eða vísindakona" og loks flytur Sverrir Tómasson erindið „Sögu- ljóð — skrök — háð, viðhorf Snorra til kveðskapar“. Loks má geta þess, að ráð- stefnuhaldarar hafa í hyggju að gefa út tímarit um íslenskar bók- menntir fyrri alda og verða lestrar ráðstefnunnar efni fyrsta tölu- blaðs sem áætlað er að komi út með haustinu. Að sögn Gunnars Harðarsonar er ekki til hér á landi tímarit sem sinnir sérstaklega íslenskum bókmenntum og hug- myndasögu fyrri alda. Það fari svo eftir undirtektum hveiju fram vindur. Heljutenórinn varð að hætta VESTUR - þýski hetjutenórinn Norbert Orth varð að hætta söng með Sinfóníuhljómsveit Islands við flutning Tannhausers Wagn- • ers í Háskólabíói i fyrrakvöld. Varð Orth að draga sig í hlé eftir læknisskoðun, en sýningin hélt áfram með þeim annmörkum að enginn var til að syngja hlutverk Tannhausers. Orth verður að taka sér hvíld frá söng um hríð, en Bandaríkjamaðurinn Richard Versalle var væntanlegur til landsins frá Bayereuth í Vestur Þýskalandi seint I gærkvöldi. Að sögn Sigurðar Björnssonar fram- kvæmdastjóra Sinfóniuhljóm- sveitarinnar, er Versalle einn eft- irsóttasti hetjutenórinn í heimin- um í dag og hann hefur all oft sungið hlutverk Tannhausers. Óhappið í Iláskólabíói vekur upp óánægju i gegn um tíðina með þurrt loft þar í húsi. „Það er gömul saga“, sagði Sigurður Bjömsson í samtali við Morgunblað- ið,„ það er enginn vafí á því að þurra loftið í húsinu átti sína sök á því hvemig fór. Erlendu söngvaramir kvörtuðu allir sáran og hljóðfæraleik- arar hafa gert svo lengi. Eigendur hússins hefðu átt að setja upp raka- kerfí þama fyrir löngu síðan," bætti Sigurður við. „Þetta er verst þegar Veðurfar hefur verið eins og að undanfömu, kalt og þurrt. Þá verður loftið í hús- inu afar þurrt og með einföldum litl- um rakatælq'um sem við höfum sjálf komið með, höfum við séð að raka- stigið hefur farið langt undir æskileg mörk. Söngvarar, Kórar og blásarar hafa iðulega fengið í hálsinn, bólgnað og hóstað. Þá skaðar þetta hljóð- færin, sérstaklega tréhljóðfærin, en þau hafa jafn vel sprungið og losnað í sundur,“ sagði Sæbjöm Jónsson formaður starfsmannafélags Sin- fóníuhljómsveitarinnar. Morgunblaðið/Sverrir Bálför Hákons Bjarnasonar Bálfor Hákons Bjarnasonar skógræktarstjóra var gerð frá Foss- vogskirlyu í gær að viðstöddu fjölmenni. Séra Árni Pálsson jarð- söng. TÓnlist fluttu Þorvaldur Steingrímsson fiðluleikari og Mar- teinn Hunger Friðriksson organisti. Steindór Hjörleifsson og Margrét Ólafsdóttir fluttu ljóð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.