Morgunblaðið - 29.04.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.04.1989, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1989 Bæj arfiilltrúar Sjálfstæðisflokks í Kópavogi: Andvígir Fossvogsbraut — en einhliða yfirlýsing borgarstjórnar ekki vænleg til árangurs Vegna afgreiðslu bæjarstjórnar á ályktun um Fossvogsdal óskum við bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins að taka fram eftirfarandi: I upphafi viljum við ítreka ein- dregna andstöðu okkar við lagn- ingu Fossvogsbrautar, sú afstaða okkar hefúr lengi legið fyrir og ekkert breyst. Við teljum hinsvegar, að einhliða yfirlýsing bæjarstjómar um, að samningur um þetta efni frá 9. okt. 1973 við Reykjavíkurborg sé úr gildi fallinn, verði ekki til fram- dráttar því málefni, að í Fossvogs- dal verði útivistarsvæði en ekki hraðbraut. Lyktir á framkvæmd og tilveru áðurnefnds samnings geta einungis orðið með tvennum hætti, með sam- komulagi sveitafélaganna eða með dómsúrskurði, hvort sem það væri gerðardómur eða almennur dóm- stóll. Áætlanir um Fossvogsbraut eru komnar frá Reykjavíkurborg, þær áætlanir samþykktu bæjaryfirvöld í Kópavogi árið 1964, illu heilli, þó Bæjarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins lögðu fram eftirfarandi bók- un á fiindi bæjarstjórn- ar Kópavogs sl. þriðju- dag um Fossvogsbraut: með ábendingu um færslu brautar- innar til norðurs, í áætlunum hefur það verið gert. HOTEL BORG SUNNUD.30.APR. kl. 16:00 SUMARFATNAÐUR FRA BARTíAFATFÍADUR FRÁ SPÍYRTIVÖRUR FRÁ marimekko vén di LU M EN E FJF-n Hannes Wöhler & Co. UVJLTU heildsala, SÍMAR:34050-83574. (Clding. dJradinq (ddc mg. K^ompany HAfNARHVOU - TRYGGVAGÖTU SÍMAR: REYKJAVlK 15820-16303 mw- Lf. karel / t'ATNADUR - GJAFAVORUR Laugavegur13 © 624525 Áðurnefndur samningur frá 1973 var hagstæður Kópavogsbúum og jók mátt bæjarstjómar Kópavogs til baráttu gegn lagningu Fossvogs- brautar. Enginn vafi er á, að tíminn, sem liðinn er síðan 1973 hefur unn- ið með málstað okkar og viðhorf til umhverfismála hafa breyst mikið þeim sjónarmiðum í vil. Bæjarstjórn Kópavogs óskaði eftir því við Reykjavíkurborg að skipuð yrði nefnd af hálfu beggja sveitarfélaganna til viðræðna um málefni Fossvogsdals. Lengi stóð á samþykki Reykjavíkur, en það kom um síðir með bréfi borgarstjóra, sem lagt var fram í bæjarráði 6. ágúst 1987. Bæjarstjórn kaus sína fulltrúa til viðræðna 18. ág. 1987. Fyrsti og eini fundur nefndarinn- ar var haldinn 24. feb. 1988. Reyk- víkingar lögðu þá fram greinargerð sína um þýðingu Fossvogsbrautar fyrir stofnbrautakerfi höfuðborgar- svæðisins og lýstu því jafnframt yfir, að vilji væri til að leita lausn- ar, sem tæki tillit til umhverfissjón- armiða. Fulltrúar Kópavogs ætluðu síðan að skoða framlögð gögn. Á þessum fiindi var ekkert lagt fram af hálfii Kópavogs, hvorki greinargerð um útivistarsvæði eða önnur gögn. Það var síðan hlutverk fulltrúa Kópavogs að boða til næsta fundar. Síðan liðu 14 mánuðir og aldrei var boðað til fundar, eða ekki fyrr en sérstök samþykkt var gerð um það í bæjar- stjórn 11. apríl sl. og þá fyrst voru send einhver gögn til gagnaðila af hálfu Kópavogs, greinargerð um útivistarsvæði í dalnum o.fl. Síðan var boðað til fundar, sem að lokum skyldi haldinn 21. apríl sl. Þá upphófst deila um fundar- stað. Fulltrúar Reykjavíkur vildu halda fundinn í Reykjavík. Þetta endar síðan með því, að fulltrúar Kópavogs mættu ekki til fundarins þó óskin um fundinn væri frá Kópa- vogi. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í viðræðunefndinni vildi hinsvegar fara til fundarins. Við hörmum að svona skyldi fara, að aukaatriði ráði ferðinni í jafn þýðingarmiklu máli. Við áteljum harðlega þau vinnu- brögð sem viðhöfð hafa verið í þessu máli, sérstaklega af hálfu bæjar- stjóra, sem var í forsvari fyrir full- trúum Kópavogs. Bæjarstjórn ósk- aði samhljóða eftir þessum viðræð- um. Allur sá tími sem leið frá því að sú ósk var borin fram við yfír- völd Reykjavíkurborgar var ekki nýttur til undirbúnings og fulltrúar Kópavogs mættu tómhentir til fyrsta og eina fundar viðræðu- nefndanna. í 14 mánuði var ekki boðað til fundar af hálfu Kópavogs. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins spurð- ist oft fyrir um, hvort ekki yrði boðað til fundar. Sama gerði skipu- lagsstjórn ríkisins eða embættis- menn hennar. Þá var alltaf sagt, að fundur yrði bráðlega. Þetta lýsir ekki miklum áhuga á framgangi málsins. Við leggjum mikla áherslu á, að samningaleið sé reynd til þrautar, en það hefur ekki verið gert ennþá og á meðan aðilar talast ekki við er lítil von um árangur. Einhliða yfirlýsing um að samn- ingur sé fallinn úr gildi er ekki vænleg leið í samskiptum sveitarfé- laga. Samningurinn fellur ekki úr gildi við slíka einhliða samþykkt annars samningsaðilans. í málarekstri má hinsvegar færa fram mörg og gild rök gegn fram- kvæmd ákvæða samningsins varð- -andi Fossvogsbraut, verði sú niður- staða á viðræðum að samkomulag náist ekki. Að framansögðu teljum við ekki rétt, að bæjarstjóm geri slíka ein- hliða ályktun og tökum ekki þátt í þessari afgreiðslu. LADA 89 gerðiraf LADA bílum helgina 29. og 30. apríl frákl. 10-17. Mikið úrval skrásettra bíla til afhendingar strax. tAPA - góður kostur í bílakaupum tiíþSlU Ármúla 13 - 108 Reykiavík - ® 681200 Tökum gamla LADA bílinn upp í nýjan og semjum um eftirstöðvar. Veitingar verða á boóstólum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.