Morgunblaðið - 29.04.1989, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.04.1989, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1989 Samherji: Álftafell- ið á veiðar í lok maí „VIÐ VONUMST til að skip- ið verði komið hingað norð- ur um mánaðamótin maí/- júní og feri þá strax á veið- ar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson framkvæmda- sljóri Samherja á Akureyri. Samheiji keypti Álftafellið SU fyrir skömmu og er það nú í viðgerð í Reykjavík. Samheiji keypti skipið á tæpar 180 milljónir króna og því fylgir um 1.500 þorskígilda kvóti. Búið er að veiða um 200 þorskígildi á þessu ári. Þor- steinn sagði að þeir Samheija- menn teldu sig vera komna með allgott skip í hendur þeg- ar viðgerð lyki og óttuðust ekki vélarbilanir, en vél skips- ins hefur talsvert strítt fyrri eigendum skipsins, Hrað- frystistöð Stöðvaríjarðar. Frímerkja- sýning í Húsi aldraðra FÉLAG frimerkjasafnara á Akureyri efhir til sýningar á frímerkjum og fleiri safn- gripum dagana 29. og 30. april. Til sýnis verður frímerkja- efni af ýmsu tagi og má þar nefna, að auk safna félags- manna verða sýndir 6 rammar með eftii úr bréfasafni Þjóð- minjasafns íslands og safn Páls Ásgeirssopar sem sýnir flugpóstssögu íslands til Ioka heimsstyijaldar. Safn Páls er margverðlaunað bæði hér á landi og erlendis. Auk frímerkja kennir ýmissa grasa á sýningunni, má þar nefna pennasafn, safn peningaseðla, greiðslukorta, minnispeninga, spila og margt fleira. Sýningin verður haldin í Húsi aldraðra og verður hún opin frá kl. 14.00-22.00 á laugardag og frá 10.00-22.00 á sunnudag og stendur hún aðeins þessa tvo daga. Fegnrðardísir í Sjallanum STÚLKURNAR tíu sem keppa til úrslita í Fegurð- arsamkeppni íslands 1989 koma fram i Sjallanum mið- vikudagskvöldið 3. maí næstkomandi. Linda Pétursdóttir alheims- fegurðardrottning verður sér- stakur gestur kvöldsins. Jón Axel Ólafsson kynnir stúlk- umar og Gróa Ásgeirsdóttir stjómar tískusýningu, en hún er jafnframt framkvæmda- stjóri fegurðarsamkeppni ís- lands. Sjallinn er opinn fyrir matargesti frá kl. 20.00 en á eftir er almennur dansleikur. Álafoss hf.: Gert upp við ullar- bændur ÁLAFOSS hf. gerði í gær að stærstum hluta upp skuld sína við ullarframleiðendur í Eyja- flrði. „Það má segja að kúfurinn sé farinn af, þetta er að ganga upp hjá okkur,“ sagði Ingi Björnsson ijármálastjóri Álafoss. Ullarframleiðendur á svæðinu höfðu ekki fengið greitt fyrir inn- lagða ull hjá fyrirtækinu frá því í september, eins og áður hefur verið sagt frá í Morgunblaðinu og á aðal- fundi Félags sauðfjárbænda við Eyjaflörð var ályktað harðlega vegna þess máls. Ingi sagði að fullnaðarskil við ullarframleiðendur yrðu gerð mjög fljótlega, en það sem eftir stendur af skuld fyrirtækisins við bænduma er greiðsla sem koma átti til fram- kvæmda'í apríl og vextir af heildar- skuldinni. Ekki vildi Ingi gefa upp hversu háa upphæð Álafoss hefði greitt ullarframleiðendum í gær, né heldur hvað eftir stæði af skuld- Morgunblaðið/Rúnar Þ6r Stelkarnir eru í hópum í fjörunni neðan Strandgötunnar á Akureyri, en þar er helst von um að þeir finni æti. Stelkarnir hafa vetursetu á Bretlandi og við strendur Mið- og Vestur-Evrópu, þar sem þeir Iife einkum á marflóm og burstormum, en um varptímann halda þeir sig aðallega á mýrlendi. Varp- Iönd fuglanna í Eyjafirði eru nú öll á kafi í snjó og eru fuglavinir uggandi um að varp takist i vor. _ Farfuglarnir koma einn af öðrum: Fuglavinir uggandi um varpið HELDUR er hún óskemmtileg, aðkoman fyrir farfuglana, sem nú koma í hópum til landsins. Fuglavinir eru heldur uggandi um að varp íuglanna takist á þessu harða vori. Ef ekki hlýnar verulega nú á næstunni má búast við að varpið misfarist, en nú eru varplönd á Norðurlandi enn á kafi i snjó. Jón Magnússon fuglaáhugamað- ur sagði ýmsar tegundir farfugla þegar komnar í Eyjafjörðinn. Nefndi hann jarðröku, tjaldinn, stelkinn og ýmsar andategundir í því sambandi. „Aðkoman er heldur óskemmtileg, enn er mikill snjór í varplöndum og ekki gott að segja hvað gerist í vor þegar fuglamir hefla varp,“ sagði Jón. Hann sagði að ef til vill myndu fuglar eitthvað fresta varpi, eða hreinlega hætta við. Þeir fuglar sem verpa tvisvar, þrisvar yfir sumarið væru ekki betur settir, því búa þyrfti ungana fyrir brottför og það hvfldi nánast dauðadómur yfir ung- um þeirra fugla sem seint myndu verpa. Þeir væru engan veginn til- búnir til brottfarar. Fuglamir halda sig mest út við sjóinn þessa daga, þar sem helst . er von um æti, en Jón sagði fugl- ana oft gjörsamlega búna eftir flug- ið yfir hafíð og því þyrftu þeir að komast í gott æti. Jón sagðist fljót- löndin og hvemig fuglunum reiðir nema veðrið breytist vemlega til lega ætla á stúfana og skoða varp- af. „Mér líst illa á að varpið takist, batnaðar," sagði hann. Morgunblaðið/Rúnar Þór Starfsmenn útibús Verkfræðiskrifetofu Sigurðar Thoroddsen gerðu sér glaðan dag í tilefni 25 ára af- mælis útibúsins á Akureyri. Verkfræðiskrifstofa Sigurðar Thoroddsen: Starfað á Akureyri í 25 ár fítmhjólp Akureyringar Samhjálparsamkoma verður í Hvítasunnukirkjunni á sunnudag kl. 16.00. Vitnisburður. Einsöng syngur Gunn- björg Óladóttir. RæðumaðurÓliÁgústsson. Allirvelkomnir. Samhjálp STARFSMENN Verkfræðiskrifetofu Sigurðar Thoroddsen á Akur- eyri gerðu sér glaðan dag af tilefhi 25 ára afmælis útibús verk- fræðistofunnar á Akureyri. Sigurður Thoroddsen hóf rekstur verk- fræðistofu í Reykjavík árið 1932 og var einna fyrstur íslenskra verk- fræðinga til að stofha slíkt fyrirtæki. Árið 1964 var útibúið á Akureyri og em hluthafar nú 39, þar af 4 á stofnað, en síðan hafa verið stofnuð útibú á Seyðisfirði, Isafirði, Borgar- nesi, Selfossi, Neskaupstað, Hellis- sandi og Stykkishólmi. Fimm þess- ara útibúa em nú starfrækt, en báðum útibúunum á Austurlandi hefur verið lokað, bæði vegna verk- efnaskorts og þess hve erfiðlega hefur gengið að manna þau. Árið 1976 var stofnað hlutafélag um rekstur verkfræðiskrifstofunnar Akureyri. Hluthafamir em allir starfsmenn fyrirtækisins og eiga þeir jafnan hlut. Sigurður Thoroddsen var fram- kvæmdastjóri verkfræðiskrifstof- unnar frá upphafi til ársins 1974, er Loftur Þorsteinsson tók við fram- kvæmdastjóm og hefur hann ann- ast hana síðan. Það var Pétur Pátmason, einn af eigendum verkfræðiskrifstofunn- ar, sem setti útibúið á Akureyri á fót fyrir 25 ámm. Hann var útibús- stjóri þar til hann lézt árið 1984, en þá tók Haraldur Sveinbjömsson við. í fyrstu starfaði Pétur einn við útibúið, en starfsmönnum fjölgaði jafnt og þétt fram yfir 1980 þegar þeir vom 10, en síðustu ár hefur þeim fækkað nokkuð og vinna nú 8 manns hjá útibúinu. Útibúið annast alla alhliða þjón- ustu á sviði byggingar- og vélaverk- fræði og unnið hefur verið að margskonar verkefnum á sviði húsagerðar, jarðvarmavirkjana, hita- og vatnsveitna, gatnagerða og fleira.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.