Morgunblaðið - 29.04.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGURÍ 29. APRÍL 1989
29
Síðasta sýn-
ingarhelgi
SÝNINGU á 13 tillögum, sem
bárust í hugmyndasamkeppni
um endurbætur á Fossvogs-
kirkju, lýkur sunnudaginn 30.
april.
Sýningin er í rnatsal starfsfólks
í skrifstofubyggingu Kirkjugarð-
anna í Fossvogi. Hún verður opin
í dag og á morgun frá kl. 15 til
kl. 18.
Samþykkt
kennara í MR
Eftirfarandi var samþykkt sam-
hljóða: „Fundur kennara Mennta-
skólans í Reykjavík haldinn 27.
apríl 1989 lýsir yfir andstöðu við
allar hugmyndir um það að fella
niður próf í skólum vegna núver-
andi kjaradeilu."
Sólveig sýnir í
Hlégarði
SÝNING á verkum Sólveigar
Eggerz Pétursdóttur verður
opnuð í Hlégarði í Mosfellsbæ
1. mai.
Efni myndanna er frá Mosfells-
bæ og nágrenni, umhverfi tjarnar-
innar í Reykjavík og fantasíur.
Sýningin stendur í eina viku og
er opin daglega kl. 16—22. Henni
lýkur mánudaginn 8. maí.
Skólahljóm-
sveitin
leikur 1. maí
Skólahljómsveit Tónlistar-
skóla Njarðvíkur verður með
skemmtun á túninu við Ytri-
Njarðvíkurkirlgu mánudaginn
1. mai kl. 13.00.
í fréttatilkynningu segir að
þama verði m.a. lúðralukkumiðar,
þar sem stærsti vinningurinn er
utanlandsferð, og einnig verða
kökur á góðu verði, flóamarkað-
ur, uppboð, leikir, tónlist og heitt
kaffi á könnunni.
Málverkasýning
Jónina Sísí Bender heldur sína
aðra sýningu dagana 29. apríl
til 1. mai.
Með Jónínu sýna í fyrsta sinn
þeir Þórarinn Stefánsson frá Laug-
arvatni og Ingólfur Guðjónsson frá
Vestmannaeyjum.
Sýndar verða vatnslitamyndir,
krítarmyndir og olíumyndir. Sýn-
ingin er opin kl. 14.00 til 18.00
alla dagana.
Afgreiðslutími
Útvegsbankans
Breytingar á afgreiðslutíma
útibúa Utvegsbankans tóku gildi
nýlega. Hefur síðdegisafgreiðsla
á fimmtudögum verið felld niður
alls staðar nema á Siglufirði, í
Vestmannaeyjum og á Isafirði.
Þá hefur morgnnafgreiðsla ver-
ið aflögð í Hólagarði í Breið-
holti og á Smiðjuvegi í Kópa-
vogi. í þeim útibúuni er nú opið
frá kl. 12-16.
í staðinn verður opið í þremur
útibúum nærri verslunarkjörnum á
föstudögum milli kl. 17—18. Það
eru útibúin á Seltjamamesi, í
Glæsibæ í Reykjaví, og í Hamra-
borg í Kópavogi.
Sýningu List-
málara lýkur
Morgunblaðið/Emilía
Arthur Ragnarsson .
Arthur í Gall-
erí List
ARTHUR Ragnarsson opnar
sýningu á verkum sínum í Gall-
erí List í Skipholti 50b í dag,
laugardaginn 29. apríl.
Arthur stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1978—1981. 1982 flutti hann til
Gautaborgar í Svíþjóð og starfaði
þar í rúmlega fimm ár við listmál-
un, auglýsingateiknun, hljóðfæra-
leik og myndlistarkennslu.
Sýningin í Gallerí List er fyrsta
opinbera einkasýning Arthurs á
Islandi. Flestar myndanna em til
sölu.
Annar fimdur
Norræna sum-
arháskólans
„HORFUR í alþjóðamálum -
hvert þróast hernaðarbandalög-
in“ er yfirskrift annars fiindar
Norræna sumarháskólans um
breyttar aðstæður í Evrópu.
Fundurinn verður haldinn í
Norræna húsinu sunnudaginn
30. apríl kl. 14.00 og eru máls-
hefjendur þeir Ámi B'ergmann
og Vigfus Geirdal.
Á fundinum mun Ámi Qalla um
þjóðfélagsbreytingar sem em að
gerast í Austur-Evrópu og hug-
myndir Gorbatsjovs Sovétleiðtoga
um „Evrópuhúsið“, þ.e. sameigin-
lega ábyrgð allra þeirra ríkja sem
Evrópu byggja og aukin viðskipta
þeirra í milli.
Erindi Vigfúsar verður um ís-
land í ljósi evrópskra öryggishags-
muna. Gerður verður samanburður
á hemaðarbandalögum, greint frá
ágreiningi innan NATO og fjallað
um hugsanlegar leiðir til afvopnun-
ar og bættrar sambúðar í Evrópu.
Vorvaka Nor-
ræna félagsins
NORRÆNA félagið í Kópavogi
heldur aðalfúnd sinn og efiiir til
vorvöku í Þinghól, Hambraborg
11 í Kópavogi, á þriðjudaginn
kemur, 2. maí.
Aðalfundurinn hefst kl. 20.30
en að honum loknum hefst vorvaka
með líku sniði og þær sem fyrrum
vom stundum haldnar í tengslum
við aðalfundi félagsins.
Vorvakan verður að þessu sinni
helguð Færeyjum. Formaður Nor-
ræna félagsins í Kópavogi, Hjörtur
Pálsson, spjallar um Færeyjar og
Færeyinga, sýnd verður kynning-
arkvikmynd um land og þjóð, og
færeyski tónlistarmaðurinn, Jóg-
van Zachariassen, leikur færeyska
músík á fagott.
Slæmir draum-
ar í Bíóhöllinni
BÍÓHÖLLIN frumsýnir í dag,
laugardag, kvikmyndina Slæma
drauma (Bad dreams) með
Jennifer Rubin í aðalhlutverki.
Listmálarafélagið sýnir í vest-
ursal Kjarvalsstaða og er þetta Leikstjóri er Andrew Fleming.
samsýning 15 listamanna innan Myndin fjallar um unga stúlku,
félagsins. Síðasti sýningardagur- Cynthiu, sem ánetjast hópi ofsatrú-
inn er mánudagurinn 1. maí. Heið- arfólks undir stjórn manns sem
ursgestur sýningarinnar er Einar sannfærir áhangendur um að sæla
G. Baldvinsson, sem er 70 ára um sé fólgin í að deyja með söfnuðin-
þessar mundir. um.
Geir Haarde um úrskurð forseta Sameinaðs þings:
Röng og ósanngjöm takmörkun
Þingmenn
sljórnarand-
stöðu og
Hjörleifur
Guttormsson
(Abl/Af)
gagnrýndu
Guðrúnu
Helgadóttur,
forseta Sam-
einaðs þings,
í gær fyrir
meint þingskapabrot þegar hún
takmarkaði ræðutíma nokkurra
þingmanna í umræðu um ut-
anríkismál og setti umræðunni
í heild tímamörk.
Það bar til á næturfundi í um-
ræðu um skýrslu utanríkisráð-
herra að Guðrún Helgadóttir, for-
seti Sameinaðs þings, úrskurðaði
(að lokinni síðari ræðu utanríkis-
ráðherra, sem stóð í klukkutima)
að umræðunni skyldi lokið tíu
mínútum síðar (kl. 3.20), og að
þeir þrír þingmenn stjórnarand-
stöðu, sem á mælendaskrá vóru,
hefðu aðeins tvær mínútur hver
til umráða. Þetta gerði forseti án
þess að bera ákvörðun sína undir
viðstadda þingmenn, svo sem
þingsköp standa til. Af þessu til-
efni varð hörð umræðapum þing-
sköp á Alþingi i gær.
Geir Haarde (S/Rvk) vitnaði
til 38. greinar þingskapa, sem
heimilar forseta við vissar kring-
umstæður að takmarka ræðutíma
og kveða á um lok umræðu. Þar
segir: „Eigi má þó, meðan nokkur
þingmaður kveður sér hljóðs, tak-
marka ræðutíma við nokkra um-
ræðu svo að hún standi skemur
en þrjár klukkustundir alls. Tillög-
ur forseta skulu umræðulaust
bornar undir atkvæði í þing-
deild þeirri sem hlut á að máli,
eða sameinuðu þingi, og ræður
afl atkvæða."
Af þessari tilvitnun er ljóst,
sagði þingmaðurinn, að úrskurður
forseta var efnislega rangur í báð-
um atriðum og fór í bága við þing-
sköp. í fyrsta lagi var tillaga for-
seta um lok ræðutíma ekki borin 1
undir atkvæði og í öðru lagi var
umræðum að ljúka og höfðu ekki
dregizt úr hófi, en það er forsenda
fyrir því að forseti geti ákveðið
að beita tímatakmörkunum . . .
Úrskurður forseta var hins veg- __
ar ekki aðeins efnislega rangur'
heldur og ástæðulaus, þar sem
Ijóst var að umræðunni var að
ljúka ... Úrskurðurinn var
ranglátur og ósanngjarn í ljósi
þess að einn þingmaður úr flokki
forseta hafði talað tvisar í umræð-
unni, í fyrra skipti í rúmlega eina
og hálfa klukkustund og síðara
skiptið í um klukkustund en þing-
menn á mælendaskrá höfðu aðeins
talað einu sinni.“
Nokkrir þingmenn úr Sjálfstæð-
isflokki og Samtökum um kvenna-
lista tóku undir þessa gagnrýni.
Það gerði einnig Hjörleifur Gutt-
ormsson (Abl/Af), sem sagði að
ekkert samkomulag hafi legið fyr-"~
ir um ræðutíma þingmanna í um-
ræðunni og að ekki hafi verið far-
ið að þingskapareglum í málinu.
Guðrún Helgadóttir, forseti,
taldi fámenni á fundinum (8 þing-
menn) hafa valdið því að hún bar
Stuttar þingfréttir:
Sextíu dagskrármál
í gær vóru þrír fúndir á Alþingi, tveir í Sameinuðu þingi, einn
í neðri deild. Samtals vóru sextíu dagskrármál á þessum fúndum:
27 fyrirspurnir, 11 tillögur til þingsályktunar og 22 frumvörp,
einkum stjórnarfrumvörp. Auk þess urðu ekki færri en tvær þing-
skapaumræður.
Þinglausnir? Forgangsmál?
Ólafur G. Einarsson, formaður
þingflokks sjálfstæðismanna,
beindi þeirri fyrirspurn til forseta
sameinaðs þings í gær, hvort enn
stæði sú dagsetning þinglausna,
sem greind væri í starfsáætlun
Alþingis, þ.e. 6. mai nk. Hann
spurði jafnframt eftir því, hvort
ríkisstjómin hafi kunngjört forseta
einhvern forgangslista um þing-
mál, sem afgreiða þyrfti fyrir þing-
lausnir.
Forseti sagði að formleg
ákvörðun um aðra dagsetningu
þinglausna en starfsáætlun
greindi hefði ekki verið tekin. For-
gangslisti, sem um væri spurt,
hafi ekki borizt í sínar hendur.
Guðmundur Bjamason, heil-
brigðisráðherra, sagði það liggja
í augum uppi, að ríkisstjórnin hafi
tillögur fram að færa um for-
gangsröðun þingmála.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði það
enn eitt sýnishorn af ringulreið í
samstarfi ríkisstjómar og Alþingis
að þingforseti hafi ekki hugmynd
um forgangsröðun mála, sem ráð-
herra telji til staðar.
Lögreglurannsókn hjá
búQáreigendum
Stefán Valgeirsson (SJF) spurði
landbúnaðarráðherra hvaða
ástæður hafi legið til „lögreg-
lurannsóknar hjá búfjáreigend-
um“.
Steingrímur J. Sigfússon, land-
búnaðarráðherra, sagðist hafa fa-
lið Búnaðarfélagi íslands búfjár-
talningu. Það hafi síðan leitað
aðstoðar dómsmálaráðuneytis, þ.e.
sýslumanna, við talninguna.
Margháttað gagn mætti hafa af
slíkri gagnasöfnun, m.a. að kveða
niður orðróm, sem ráðherra gerði
ekki frekari grein fyrir.
Pálmi Jónsson og Egill Jónsson,
þingmenn Sjálfstæðisflokks,
gagnrýndu þessa talningu, sem
ekki væri reist á neinum lögum,
væri í raun ástæðulaus eignakönn-
un hjá einni starfsstétt þjóðfélags-
ins og bryti í bága við friðhelgi
heimilisins. Egill Jónsson krafði
ráðherra svara um hvaða „orð-
róm“ kveða ætti niður, en skýr
svör fengust ekki.
þings leggur til að Alþingi álykti
svo:
„Alþingi ályktar að fela
menntamálaráðherra að leita eftir
því við sjónvarpsstöðvarnar að þær
flytji reglulega þætti um íslenzkt
mál og hafi um gerð þeirra sam-
ráð við íslenzka málnefnd og
Fræðsluvarp."
ekki úrskurð sinn undir atkvæði.
Enginn þingmaður hafi borið fram
mótmæli þegar hún kvað upp úr-
skurð sinn. Forseti sagði og að
hún myndi láta kanna, hvort um
alvarlegt brot á þingsköpun væri^
að ræða. Ef svo reyndist myndi
hún biðja þingheim afsökunar á
atburðinum.
smá auglýsingar
Wélagslíf
□ MlMIR 598901047 - Lokaf.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn bænasamkoma í kvöld
kl. 20.30. Allir velkomnir.
VEGURINN
Kristið samfélag
Þarabakka 3
Almenn samkoma á morgun kl.
11.00. Predikun Björn Ingi Stef-
ánsson. Barnakirkja á meðan
predikun stendur.
Vakningarsamkoma annað kvöld
kl. 20.30. Predikun Ásmundur
Magnússon. Verið velkomin.
!5jJ Útivist
Sunnudagsferð 30. aprfl kl. 13
Básendar - Hunangshellar -
Ósar. Gengiö frá rústum versl-
unarstaðarins að Básendum
með ströndinni inn i Ósa. Stytt
útgáfa af einni vinsælustu
„strandgönguferðinni 1988“.
Meðal staöa á leiðinni má nefna
Pórshöfn, Báröarvog, Gamla
Kirkjuvog og Djúpavog.
Skemmtileg gönguleið. Verð
1.000,- kr., frítt f. börn m. full-
orðnum.
Mánudagur 1. maí kl. 13
Fjallahringurinn 1. ferð.
Gönguferð á Keili. Nú byrjum
við loksins á ferðasyrpunni
„Fjailahringurinn". Alls verður
gengið á sjö fjöll í syrpunni. Allir
ættu að kynnast þessu
skemmtilega útsýnisfjalli. Verð
900,- kr., frítt f. börn m. fullorön-
um. Brottför frá BSÍ, bensinsölu
(í Hafnarfirði v/Sjóminjasafnið).
Sjáumst!
Ktossinn
Auöbrekku 2.200 Köpavogur
Samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir
velkomnir. Ath.: samkoma á
morgun kl. 14.00.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferðir sunnudaginn
30. apríl:
Kl. 10.30. Skíðaganga yfir Kjöl.
Ekið i átt að Stíflisdal, gengið
þaðan yfir Kjöl, komiö niður hjá
Fossá i Hvalfiröi. Verð kr. 1000,-
Kl. 13. a) Skíöaganga í Jóseps-
dal. Verð kr. 600,-
b) Gönguferð inn Jósepsdal yfir
Ólafsskarð og milli hrauns og
hlíða að Suðurlandsvegi. Verð
kr. 600,-
Dagsferð mánudaginn 1.
maí:
Kl. 10.30. Hengill, göngu- og
skíðaferö. Verð kr. 600,-
Dagsferð fimmtudag 4. maí:
Kl. 13. Selvogsheiði-Svörtu-
björg-Hlíðarvatn.
Ekið um Þrengslaveg, gengiö
um Selvogsheiði að Svörtubjörg-
um og Eiríksvörðu. Komið niður
hjá Hliðarvatni. Verð kr. 1000,-
Dagsferð laugardag 6. maí:
Kl. 9.00. Skarðsheiði. Verð kr.
1.000,-.
Dagsferð sunnudag 7. maf:
Fuglaskoðunarferð á Suðurnes.
Kjörin fjölskylduferð. í fylgd sér-
fræðinga geta þátttakendur lært
að þekkja fugla og fræðst um
lifnaðarhætti þeirra. Skrá yfir
þær fuglategundir sem sést hafa
í fuglaskoðunarferðum Ferðafé-
lagsins, verður afhent í upphafi
ferðar og afar forvitnilegt er að
bera saman hvaða fuglar hafa
sést frá ári til árs. Brottför er
kl. 10 frá Umferðarmiöstöðinni,
austanmegin. Æskilegt aö hafa
með sjónauka og fuglabók.
Brottför i dagsferðirnar er frá
BSl, austanmegin. Farmiðar við
bfl. Frítt fyrir börn.
i
\
]
I
íslenzkt mál í sjónvarpi
Útivist, ferðafélag.
Ferðafélag (slands.
Félagsmálanefnd
Sameinaðs