Morgunblaðið - 29.04.1989, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 29.04.1989, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1989- m i i i i HOLLYWOOD Hvernig var fyrsta steftiumótið? Elísabetu Taylor fannst Ric- hard Burton ekki frum- legur við fyrstu kynni. Joan Collins hefur víst lent í ýmsu. Maður að nafni Bill Wiggins féli flat- ur fyrir henni þegar fundum þeirra bar fyrst saman. Vinur hans gerði honum lítinri grikk. Sá hafði lofað að kynna hann fyrir ungri stúlku og átti það að vera kostur að sú væri í ágætum efnum. Bill mætti á „stefnumótið" og við borðið sat þá engin önnur en forrík leikkona, Joan Collins. „Fyrirgefðu, ég náði ekki nafninu" sagði herramaðurinn og Joan veltist um af hlátri. Honum varð ljóst er leið á kvöldið að leikkon- an hafði gefið grænt ljós. „Ég hef ekkert sérstakt að gera á morgun. Þú vildir kannski bjóða mér út að borða í hádeginu?" sagði leikkonan. Bill þessi sagðist hafa verið sveittur um lófana á kvöldinu því. En ástar- samband þeirra stóð aldrei lengi. Brigitte Nielsen hefði eins getað sent Sylvester Stallone sprengju með póstinum, svo mjög varð honum um er hún sendi honum nektarmyndir af sjálfri sér. Áður hafði hún skrifað honum ástarbréf þar sem hún bað um að fá að hitta hann. En hann svaraði því ekki. Eftir hina óvæntu sendingu sló hann víst strax á þráð- inn. Það var upphafið að trúlofun, hjónabandi og einum þeim dýrasta skilnaði sem sögur fara af. Þeir sem á annað borð ætla að lenda í ástarævintýri geta oft verið heldur djarfir. En enginn slær hinni þekktu Grace Jones við. Þegar hún sá Dolph Lundgren í fyrsta skipti var það í samkvæmi í Sydney í Ástr- alíu. Leikkonan gekk þétt upp að honum þar sem hann stóð við veislu- borð og raðaði í sig ostapinnum. Beit hún, dýrslega er sagt, í eyra hans og hvíslaði hásum rómi: „Mmm, þetta er æðislegt." VERÐ II Patnck Duflfy bauð Carlyn í dans. HJÁ OKKUR FÆRÐU ÓDÝRA RÉni. PÖNNUSTEIKTUR KARFI, SÚPA, KAFFI, KR. 470.- LASAGNA, SÚPA, KAFFI, KR. 485.- HAKKABUFF, SÚPA, KAFFI, KR. 490.- GOS KR. 60.- PILSNER KR. 80.- V. NOATÚN VEL KANNAÐUR STAÐUR Augu mætast. . . rafmagnaður blossi . . . hlýir straumar . . . ást við fyrstu sýn? Vissulega er mik- il breidd í ástamálunum og eins og allir vita kjósa sumir rómantík og ljúft daður meðan aðrir falla fyrir „Me Tarzan-You Jane“ stílnum. Hér verður rakið upphaf ástarsambanda hjá nokkrum frægum leikurum. Hvernig bera þeir sig að? Tökurri Marlon Brando til dæmis. Þegar hann kynntist Önnu Kasfi, einni af þremur eiginkonum, voru engar rósir eða krúttlegar aðferðir. Hann einfaldlega bauð dömunni heim til að góna á sjónvarpið. Eftir nokkra stund stóð hann skyndilega upp, gekk að Önnu, slengdi henni yfir axlimar og bar hana inn í svefn- herbergi. „Marlon hefur allt sem hægt er að ætlast til af karlmanni" á hún að hafa sagt eftir þá nótt. Eitthvað annað var nú uppi á ten- ingnum hjá Rod Stewart er hann hitti fyrst sýningarstúlkuna Dee Harrington. Þau voru í samkvæmi þar sem dansað var og að sögn Rods þorði hann ekki fyrir sitt litla líf að fara og tala við stúlkuna. Hann mændi á hana allt kvöldið á meðan að hann dansaði við aðrar og ekki fyrr en í síðasta dansi rauk hann til og bauð henni upp. Brigitte Nielsen sendi Sylvester S one nektarmyndir með póstinum Patrick Duffy, eða Bobby Ewing, eins og flestir þekkja hann sagðist hafa haft hugann við kynlíf þegar hann hitti fyrst Carlyn eiginkonu sína á dansstað. „Þama sátu þær sex samari þegar ég kom að borðinu þeirra. Ég var búinn að ákveða að bjóða þeim öllum upp í dans og agtl- aði að byija frá vinstri. Sú fyrsta var Carlyn og við urðum strax ást- fangin“ segir Patrick. Og svo var það hið fræga par Richard Burton og Elísabet Taylor sem hittust fyrst á meðan á kvik- myndaupptöku stóð. Hann leit djúpt í augu hennar og sagði: „Hefur ein- hver sagt þér hvað þú ert falleg?“ Elísabet sagðist varla hafa trúað sínum eigin eyrum eftir fyrsta fund- inn. „Þetta kyntröll kvikmyndanna, þekktur fyrir gáfur og hnyttin til- svör, hafði ekkert frumlegra að segja við mig.“ En að minnsta kosti klúðr- aði hann engu, samband þeirra varð eitt heitasta sem sögur fara af í kandísheiminum. y y y . EB BÚIB AÐ SKOÐA BlLINIÍI MNN? Síðasta tala númersins segir til um skoðunarmánuðinn. Láttu skoða í tíma - öryggisins vegna! & 1 BIFREIÐASKOÐUN ÍSLANDS HF. Hægt er að panta skoðunartíma, pöntunarsími í Reykjavík cr 672811.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.