Morgunblaðið - 29.04.1989, Page 26
26
MORGÚNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1989
Hjúkrunar-
forsljórar á
Hótel Örk
DEILD hjúkrunarforstjóra og
hjúkrunarfranikvæmdasljóra
heldur árlegan vorfúnd sinn á
Hótel Örk í Hveragerði 2. og 3.
mai nk.
Haldnir verða fyrirlestrar um
ábyrgð hjúkrunar í samfélaginu,
leiðir til að mæta breyttum aðstæð-
um hveiju sinni og þátt hjúkrunar-
fræðinga í forvörnum og eflingu
heilbrigðis. Einnig eru skoðaðar
leiðir til að auka jákvæða umfjöllun
um hjúkrunarstarfíð.
Heimamenn hafa boðið fundar-
gestum að skoða dvalarheimilið í
Kumbaravogi, Heilsugæslustöð
Selfoss, Sjúkrahús Suðurlands og
Heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði.
Fjölskyldu-
hlaup fjölnis
og Olís
Ungmennafélagið Fjölnir og
Olís verða með Qölskylduhlaup
1. maí nk. í Grafarvogi og hefet
skráning í Foldaskóla kl. 13.30.
Hlaupið hefst kl. 14.00 og verður
hlaupið niður Hverafold, Fjör-
gyn, út Logafold og Fjallkonu-
veg að marki við Foldaskólann.
Þetta er annað árið sem slíkt
hlaup er haldið en í fyrra tóku á
þriðja hundrað manns á öllum aldri
þátt í hlaupinu. í ár verður keppt
í þremur aldursflokkum; 10 ára og
yngri, 11—14 ára og 15 ára og
eldri. Veittir verða verðlaunapen-
ingar fyrir fyrstu þrjú sætin í hverj-
um flokki og allir fá viðurkenning-
arskjöl.
Kaffiboð Hún-
vetninga
Kaffíboð fyrir eldri Húnvetninga
verður í Glæsibæ, Álfheimum 74,
sunnudaginn 30. apríl kl. 15.00.
Félagsvist verður spiluð laugar-
daginn 29. apríl kl. 14 í Húnabúð.
Andsnes á tón-
leikum Tón-
listarfélagsins
SÍÐUSTU tóleikar Tónlistarfé-
lagsins á þessum starfsvetri
verða haldnir þriðjudaginn 2.
maí kl. 20.30 í íslensku óper-
unni. Þar kemur fram norski
píanóleikarinn Leif Ove Ands-
nes, sem er nýorðinn 19 ára.
Leif Ove Andsnes vakti athygli
hér í Reykjavík í október sl. er
hann lék á Tónlistarhátíð ungra
norrænna einleikara Píanókonsert
nr. 3 eftir Prokofíeff með Sinfóníu-
hljómsveit íslands og einnig á ein-
leiks tónleikum.
Leif Ove fæddist í Karmoy árið
1970 og hóf píanónám 5 ára gam-
all Hjá foreldrum sínum. Þegar
Kann var 8 ára hóf hann nám í
Tónlistarskólanum í Karmoy og
settist að loknu grunnskólaprófí í
Tónlistarkonservatoríið í Bergen
þar sem kennari hans er tékkneski
píanókennarinn Jiri Hlinka.
A efnisskránni eru verk eftir
Chopin, Grieg og Schubert.
Veislukaffi og
hlutavelta í
Drangey
Kvennadeild Skagfírðinga-
félagsins í Reykjavík verður með
hlutaveltu og veislukaffí í
Drangey, Síðumúla 35, mánu-
daginn 1. mai nk. kl. 14.00, til
eflingar starfeemi sinni.
Kvennadeildin, sem hefur starf-
að í 25 ár, hefur einkum sinnt
líknar- og menningarmálum. Má
þar nefna tækjakaup til Sjúkrahúss
Sauðárkróks og gjafír á heimili
aldraðra í Skagafírði. Þá styrkti
kvennadeildin einnig viðgerð á alt-
arisbrík Hóladómkirkju.
Verslónemend-
ur hittast
Gamlir nemendur úr Verslunar-
skóla íslands halda fagnað á Hótel
Sögu sunnudaginn 30. apríl og hefst
hann með borðhaldi kl. 19.00.
Ljósmæðrafé-
lagið 70 ára
Ljósmæðrafélag íslands verð-
ur 70 ára þriðjudaginn 2. maí nk.
Stjómarmeðlimir verða á skrif-
stofu félagsins á afmælisdaginn
milli kl. 14 og 17 en stjómina skipa
Hildur Kristjánsdóttir formaður,
Helga Sóley Torfadóttir varafor-
maður, Ólafía M. Guðmundsdóttir
ritari, Vigdís Björg Sigurgeirsdótt-
ir gjaldkeri, Margrét Guðmunds-
dóttir meðstjórnandi, Eva S. Ein-
arsdóttir vararitari og Anna Harð-
ardóttir varagjaldkeri.
Ljósmæðrafélag íslands var
fyrsta stéttarfélag faglærðra
kvenna á íslandi. Aðalhvatamaður
að stofnun þess var Þuríður
Bárðardóttir ljósmóðir í Reykjavík
og var hún jafnframt fyrsti formað-
ur þess.
Samtök kvenna á
vinnumarkaði;
Kaffisala á
Hallveigar-
stöðum 1. maí
SAMTÖK kvenna á vinnumark-
aði verða með kaffísölu á Hall-
veigarstöðum 1. maí eftir úti-
fíind verkalýðsfélaganna á
Lækjartorgi.
Safnast verður saman við Bún-
aðarbankann á Hlemmi kl. 13.30
og gengið undir merkjum og kröf-
um Samtaka kvenna á vinnumark-
aði niður á Lækjartorg.
I fréttatilkynningu segir að Sam-
tök kvenna á vinnumarkaði krefjist
þess að dagvinnulaun dugi til fram-
færslu og verðtryggingar á ums-
amin laun.
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
Verðlaunahafar Skeifudagsins frá vinstri talið: Sigurður Sigurðarson á Fjalari, Olga Marta Einarsdóttir
á Kolskör, Matthildur Hjálmarsdóttir á Sindra og Gro Anita á Elvari.
Bændaskólinn á Hólum:
Skeifukeppni haldin
í skugga verkfallsins
________Hestar_________
Valdimar Kristinsson
ALDREI fór það svo að skeifíi-
keppnin á Bændaskólanum á Hól-
um félli niður í ár. Á tímabili var
tvísýnt um að af keppninni yrði
þar sem Magnús Þórir Lárusson,
sem kennt hefiir hestamennsku í
vetur, er í verkfalli. Hestamanna-
félag staðarins, Hreinn, sem í eru
nemendur og staðarmenn, tók að
sér framkvæmd keppninnar að
þessu sinni.
Á undanfömum árum hefur
skeifukeppnin verið hluti af prófí í
hestamennsku en svo verður ekki nú
vegna verkfallsins.
En skeifudagurinn var haldinn í
fögru veðri í fyrradag og bar þar
hæstan hlut með 8,61 stig Sigurður
Sigurðarson frá Grafarholti í
Reykjavík sem keppti á hesti sínum
fjalari frá Ytri-Brekkum í Skaga-
fírði. Hlaut hann að launum Morgun-
blaðsskeifuna sem gefín er af Morg-
unblaðinu. í öðru sæti með 8,43 stig
varð Olga Marta Einarsdóttir frá
Einarsstöðum í N-Þingeyjarsýslu
sem keppti á hryssunni Kolskör frá
Varmalæk. í þriðja sæti með 8,33
stig varð svo Matthildur Hjálmars-
dóttir frá Bergsstöðum í V-Húna-
vatnssýslu en hún keppti á Sindra
frá Húnavöllum. Matthildur hlaut
einnig ásetuverðlaun Félags tamn-
ingamanna.
Eiðfaxabikarinn, sem veittur er
fyrir besta ástundun og hirðingu á
hesti sínum, Elvari frá Hólum, hlaut
norska stúlkan Gro Anita. Aðeins
átta nemendur tóku þátt í keppninni
að þessu sinni og eru það töluvert
færri en venjulega. Af þessum átta
keppendum vom aðeins tveir piltar
en auk Sigurðar, sem áður var nefnd-
ur, keppti Högni Fróðason á Blossa
frá Hólum.
Að sögn Jóns Bjamasonar var í
ráði að breyta fyrirkomulagi skeifu-
dagsins á Hólum á þann veg að nem-
endur myndu aðeins sýna hrossin á
sjálfum skeifudeginum en láta sjálfa
keppnina fara fram nokkram dögum
áður og sýna einnig hross úr ræktun
Hólabúsins til kynningar. Með þessu
móti taldi Jón að hægt væri að gera
þetta að hátíðlegri stund með styttri
dagskrá og að sjálfsögðu hefði þetta
þá verið haldið um helgi. Af þessu
gat ekki orðið að þessu sinni. Jón
taldi líklegt að þetta yrði reynt að ári.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Sigurður Sigurðarson á Fjalari frá Ytri-Brekkum.
Alltaf ákveðinn í að
stunda tamningar
- segir Sigurður Sigurðarson
„Ég stefndi alltaf að þessu marki en óneitanlega var ég í vafa um
hvort mér tækist að sigra eftir sýninguna," sagði Sigurður Sigurðar-
son eftir að úrslit í skeifukeppninni voru kunn.
Sagði Sigurður að sýningin hefði
sjálfsagt getað verið betri hjá sér en
erfítt væri að ná bestum hugsanleg-
um árangri þegar taugaspenna réði
ríkjum eins og alltaf er í skeifukeppn-
inni. Þegar Sigurður var spurður
hvort þessi árangur breytti einhvetju
um framtíðaráform sagði hann það
ekki vera því hann hafí alltaf hugsað
sér að ieggja tamningar fyrir sig og
hefði alla tíð haft brennandi áhuga
fyrir hestum.
í sumar mun Sigurður vinna hjá
Tilraunastöð Háskólans að Keldum
við bústörf en tamningar verða
aukabúgrein hjá honum ef svo má
að orði komast. Næsta vetur hyggst
hann hinsvegar starfa við tamningar
í fullu starfí.
5. maí til Beradoim
Ddýr vorferð á Hvítu ströndina W Blanca.
Viö bjóðum úrvals íbúðagistingu í ^"^^nýjum íbúðum á besta
itað. Athugið strax verð og greiðslukjör. Aðeins örfá sæti laus.
* 5.mai. 33.350 kr.:pr.mann: Tveir fullorðnir og tvö böm í ibúð.
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
AÐALSTRÆTI 16
SfMI 91-621490