Morgunblaðið - 27.05.1989, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1989
Yerktakastarfeemi á
Keflavíkurflugvelli
eftirHrein Loftsson
Að undanfömu hefur mikið verið
rætt í fjölmiðlum um tilhögun verkta-
kastarfsemi á Kefiavíkurflugvelli.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra hefur sagt, að hann hafi
sem fulltrúi ríkisvaldsins fullan hug
á því að auka eignarhlut þess í ís-
lenskum aðalverktökum, sem hafa
svo sem kunnugt er einkarétt á öllum
nýframkvæmdum á vegum vamar-
liðsins. Hugmynd Jóns Baldvins felst
í því að fyrirtækinu verði skipt í eign-
arhaldsfyrirtæki annars vegar og
eiginlegt verktakafyrirtæki hins veg-
ar. Verkefnum fyrmefnda félagsins
lýsir hann svo í viðtali við Morgun-
blaðið 18. maí sl. að það væri til
þess að skila uppsöfnuðum auði til
eigenda íslenskra aðalverktaka, en
síðamefnda félagið sæti áfram eitt
að nýframkvæmdum fyrir vamarlið-
ið. Rökin fyrir þeirri skipan mála eru
þau, samkvæmt fyrrgreindu viðtali,
að ríkið ákveði að það sé ekki rétt
að standa að almennum útboðum
meðal verktaka í landinu og því sé
eðlilegt að það sé ráðandi aðili í ís-
lenskum aðalverktökum.
Jón Baldvin hafnar þeirri leið að
nýframkvæmdir verði boðnar út og
telur að það muni leiða til þess, að
opna verði þennan markað fyrir er-
lendum aðilum, en það samræmist
ekki hagsmunum íslensku þjóðarinn-
ar. Hann óttast að slíkt muni auka
á hagsveiflur í efnahagslífinu og á
það sé vart bætandi. Hann vill að
ákvarðanir séu teknar á „pólitískum"
grundvelli um ráðstöfun þess hagn-
aðar, sem er af rekstri fyrirtækisins,
en vill afnema þá forréttindaaðstöðu,
sem einstökum fjölskyldum hafi ver-
ið sköpuð á sínum tíma af „forystu-
sauðum" Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarfiokksins.
Hermang Alþýðuflokksins
Þessar tillögur Jóns Baldvins eru
ekki skynsamlegar. Þær myndu að-
eins leiða til þess að stjórnmálamenn
fengju enn einn sjóðinn til að ausa
úr fjármunum til vanhugsaðra verk-
efna. Þótt gagnrýni Jóns Baldvins
geti átt rétt á sér, varðandi það að
óeðlilegt sé að svo miklir gármunir
safnist upp í skjóli einokunar, sem
ríkið hefur tryggt félaginu á undan-
gengnum áratugum, þá efast ég um,
að heppilegra hefði verið að stjórn-
málamenn hefðu ráðstafað þessu
íjármagni í stað þess að láta það
liggja í bankakerfinu og skapa þann-
ig möguleika til eðlilegrar lánastarf-
semi. Hugmyndir Jóns Baldvins miða
ekki að því að koma í veg fyrir að
þessir fjármunir myndist, með þeim
hætti sem verið hefur, þær miða að
þvi að auka vald stjómmálamanna
yfir ráðstöfun þeirra og opna fulltrú-
um Alþýðuflokksins leið inn að þess-
um fjársjóði og ráðstöfun hans. Svo
einfalt er það mál.
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins hefur mótmælt hug-
myndum Jóns Baldvins og telur að
eðlilegt sé, að opna framkvæmdir
fyiir vamarliðið fyrir öðmm innlend-
um verktökum, jafnframt því sem
fyrirtækið væri gert að almennings-
hlutafélagi. Þessu hefur Jón Baldvin
mótmælt og hann segir, að reglur
mannvirkjasjóðs Atlantshafsbanda-
lagsins séu með þeim hætti, að al-
mennt útboð yrði að ná til verktaka
í öllum aðildarríkjum Atlantshafs-
bandalagsins. Slíkt þjóni ekki hags-
munum íslendinga. En á móti má
þá spyija hvemig standi á því að
mannvirkjasjóður Atlantshafsbanda-
lagsins geti sætt sig við einokun eins
innlends fyrirtækis á þessum fram-
kvæmdum, sem safnar gífurlegum
gróða, en geti ekki þolað samkeppni
nokkurra innlendra fyrirtækja, sem
óhjákvæmilega hefði í för með sér
minni kostnað fyrir sjóðinn? Svarið
er einfalt: Engin könnun hefur farið
fram á afstöðu mannvirkjasjóðsins
til breyttrar tilhögunar og ekkert
bendir til þess, að ekki væri unnt
að fá sjóðinn til að samþykkja fyrir-
komulag, sem væri á allan hátt skyn-
samlegra og eðlilegra en það sem
verið hefur.
Við höfum hingað til ráðið með
hvaða hætti verktöku er háttað á
Keflavíkurflugvelli og hafa banda-
menn okkar í Atlantshafsbandalag-
inu sætt sig við þá skipan mála.
Flestir virðast sammála um, að það
skipulag sem nú er hafí á síðustu
árum leitt til gífurlegrar eignamynd-
unar í bönkum og annars staðar, sem
hafi vissar hættur í för með sér fyr-
ir efnahagslífið í landinu. Hvérs
vegna ætti mannvirkjasjóður Atl-
antshafsbandalagsins að leggjast
gegn breytingum, sem miða að því
að koma þessum málum í svipað
horf og gildir í öðrum löndum Atl-
antshafsbandalagsins ef menn hyrfu
frá hreinni einokun íslenskra aðal-
verktaka og til fijálsari viðskipta-
hátta.
Verktakastarfsemin
er ekki auðlind
Á sínum tíma tókst íslendingum
að knýja fram breytingar á flutning-
um með skipum fyrir vamarliðið.
Bandarísk lög kváðu á um, að væru
Hreinn Loftsson
„Staðreynd er, að það
er tímabært að endur-
skoða verktakastarf-
semi á Keflavíkurflug-
velli og koma þar á
skipulagi sem tekur
mið af aðstæðum eins
og þær eru í dag. “
bandarísk skip í siglingu milli Norð-
ur-Ameríku og landa þar sem væru
bandarískar flotastöðvar ætti undan-
tekningarlaust að flytja vaming með
þeim. Þetta leiddi til þess, að íslensk
skip væru útilokuð frá flutningum,
sem þau þó höfðu sinnt um áratuga
skeið, vegna þess eins að dönskum
aðilum hugkvæmdist að stofna
skipafélag í Bandaríkjunum til að
notfæra sér þetta ákvæði. Þessu
mótmæltu íslendingar og fyrirkomu-
laginu var breytt með sérstökum
milliríkjasamningi sem leiddi til nið-
urstöðu, sem íslendingar sættu sig
við, enda lítum við svo á að vamarlið-
ið hér þjóni ekki aðeins bandarískum
heldur og íslenskum hagsmunum.
Þetta dæmi sýnir, að bandamenn
okkar eru reiðubúnir til að taka tillit
til sérstöðu íslands og komast að
samkomulagi við okkur um fyrir-
komulag viðskipta vegna samstarfs-
ins. Ég er því ekki í nokkrum vafa
um það, þegar sest verður niður til
að ræða málefni verktakastarfsemi
fyrir vamarliðið, að bandamenn okk-
ar verði reiðubúnir til að endurskoða
þau mál og búa til fyrirkomulag sem
tekur mið af hagsmunum allra aðila.
Hugmyndir Jóns Baldvins geta
ekki verið efniviður í þá umræðu
vegna þess að þær ganga út frá því
sjónarmiði að framkvæmdir fyrir
varnarliðið séu auðlind, en ekki óhjá-
kvæmileg afleiðing af stefnu okkar
í öryggis- og vamarmálum. Jón Bald-
vin er á móti „hermangi" ef hann
sjálfur fær ekki að vera með. Það
er hægt að býsnast yfír ráðherrabíl-
um þegar maður er utan ríkisstjórn-
ar og tala fjálglega um það, að rétt-
ast væri fyrir ráðherrana að aka á
ódýrum bílum, en þegar menn eru
sestir í ráðherrastólana er freistandi
að njóta lystisemda valdsins og
gleyma fyrri yfirlýsingum.
Staðreynd er, að það er tímabært
að endurskoða verktakastarfsemi á
Keflavíkurflugvelli og koma þar á
skipulagi sem tekur mið af aðstæðum
eins og þær eru í dag. Bandamenn
okkar hafa gert athugasemdir við
núverandi skipan mála og líklega
eiga kröfurnar frá þeirra hálfu um
breytingar eftir að verða enn hávær-
ari.
Hvaða leið væri skynsamlegast að
fara í þessum efnum?
Ég hygg að við getum lært af
öðrum ríkjum, sem búa við svipaðar
aðstæður og við, þótt stærri séu og
voldugri. Áður en ég svara spurning-
unni um það, hvemig við eigum að
skipa þessum málum í framtíðinni,
vil ég lýsa í nokkrum orðum hvemig
viðskiptum þýskra aðila við Atlants-
hafsbandalagið og bandaríska varn-
arliðið et' háttað, að því er varðar
framkvæmdir á vegum þessara aðila
í sambandslýðveldinu og ýmis mál
þeim skyld.
Framkvæmdir mann-
virkjasjóðs I V-Þýskalandi
Framkvæmdir á vegum Atlants-
hafsbandalagsins í Vestur-Þýska-
landi má greina í tvennt, annars
vegar þær, sem eru á vegum banda-
lagsins og greiddar af mannvirkja-
sjóði þess og hins vegar þær, sem
Bandaríkjamenn sjá um sjálfír og
greiddar eru beint af fjárlögum
Bandaríkjanna. í stórum dráttum
koma í fyrri flokkinn stórar fram-
kvæmdir svo sem flugvellir, skot-
pallar fyrir eldflaugar og birgða-
stöðvar fyrir herlið, sem sent yrði á
vettvang á stríðs- eða hættutímum.
Minniháttar framkvæmdir sem ekki
falla undir þennan flokk eru síðan
framkvæmdar af Bandaríkjamönn-
um sjálfum. Framkvæmdir undir
fyrri liðnum eru skipulagðar af Vest-
ur-Þjóðveijum, sem eru svokölluð
„gistiþjóð" gagnvart mannvirkja-
sjóðnum. Þess má geta að Banda-
ríkjamenn eru „gistiþjóð" gagnvart
mannvirkjasjóði Atlantshafsbanda-
lagsins að því er varðar framkvæmd-
ir á íslandi.
Bandaríkjamenn leggja fram
fyrstu tillögur, en mjög er misjafnt
hversu vel þær eru undirbúnar'á því
stigi. Æðstu hermálayfírvöld Átl-
antshafsbandalagsins („SHAPE")
fara yfír tillögumar og veita þeim
stuðning, en áður en þær fara áfram
til sérstakrar greiðslunefndar í Atl-
antshafsbandalaginu fær þýska
vamarmálaráðuneytið tiliöguna til
umsagnar. Greiðslunefndin tekur svo
endanlega ákvörðun um tillögumar
og ráðstöfun fjár til framkvæmd-
anna. Eftir það fara svo fram útboð,
sem byggingaryfirvöld í hinum ein-
stöku löndum lýðveldisins annast.
Þar er um 150 aðila að ræða. Þær
geta þurft að vinna misjafnlega mik-
ið að undirbúningnum allt eftir því
hversu góð forvinnan hefur verið, en
það er eins og áður segir misjafnt.
Getur það verið allt frá því að fara
yfír fullhannað verk og í að taka við
grófum tillögum og hanna verkið að
fullu. Fyrir þetta fá þessi yfírvöld
greitt. Hvorki þessi yfírvöld eða
nokkur annar opinber aðili taka hins
vegar þátt í framkvæmdum sjálfum
heldur eru þær allar á vegum einka-
fyrirtækja.
Ekki er sjálfgefíð, að tillögur
Bandaríkjamanna um framkvæmdir
Atlantshafsbandalagsins séu sam-
þykktar að fullu og getur komið fyr-
ir að þær séu skomar niður. í sumum
tilvikum vilja Bandaríkjamenn ekki
sætta sig við slíkt og taka þá þann
kost að greiða af eigin fé til viðbótar
svo óskum þeirra um framkvæmdir
sé fullnægt. Þá getur það einnig
komið fyrir, að Þjóðverjar ákveði að
greiða viðbótarkostnað fram úr sam-
þykktum framkvæmdum. Þjóðveijar
greiða sjálfír þann umframkostnað,
sem af slíku hlýst. Allar byggingar-
framkvæmdir NATO verða að upp-
fylla þýskar kröfur og ganga yfír-
völd mjög eftir því að út af því verði
ekki bmgðið. Snýr þetta einkum að
umhverfisvemdarmálum og greiðir
Atlantshafsbandalagið þann kostn-
að, sem af því hlýst að þær kröfur
séu uppfylltar.
Framkvæmdir Banda-
ríkjamanna í
V estur-Þýskalandi
Framkvæmdin er nokkuð ólík
framangreindu þegar um er að ræða
framkvæmdir á vegum Bandaríkja-
manna sjálfra í Vestur-Þýskalandi.
Þar telja Þjóðveijar að þeir geti ekki
þvingað Bandaríkjamenn til að fylgja
eins stíft þýskum reglum og þeir
krefjast af Atlantshafsbandalaginu
og hefur m.a. komið til þess, að
samningar hafí ekki tekist milli þý-
skra stjómvalda og bandarískra t.d.
vegna krafna um umhverfisvernd í
sambandi við byggingaframkvæmd-
ir. Þjóðveijar hafa þá stundum sjálf-
ir greitt viðbótarkostnað til að upp-
fylla þýskar reglur.
Þegar umer að ræða framkvæmd-
ir, sem Bandaríkjamenn standa að
einir má skipta þeim í tvennt. Ann-
ars vegar framkvæmdir, sem þýsk
byggingaryfirvöld undirbúa og bjóða
út og er það mikill meirihluti þessar-
ar tegundar framkvæmda, en hins
vegar annast bandaríkjamenn sjálfir
um tiltekin útboð. Þýsk stjómvöld
reyna sem mest að hindra það, að
Bandaríkjamenn fari sjálfir á mark-
aðinn og hefur tekist það að mestu.
Ástæðurnar eru fyrst og fremst
þær, að tryggja með því að farið sé
að þýskum lögum og reglum um
byggingarframkvæmdir t.d. í sam-
bandi við umhverfísvandamál. Und-
antekning er þó ef um er að ræða
viðhaldsframkvæmdir eða stækkanir
RAFGEYMAMARKAÐUR
Rafgeymar fyrir öll farartæki
Rafgeymar fyrir báta
Rafgeymar fyrir sumarbústaði
Aðeins í dag laugardag kl. 10-16.
Hagstætt
verð
Ótrúleg
gæði
SKORRIHF.,
Bíldshöfða 12.