Morgunblaðið - 27.05.1989, Qupperneq 16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1989
'T
t ---------
Sumarfrí
Olíuslys í Orfirisey
og siglingar
eftir Össur
Skarphéðinsson
Forðu ekki í sólarlondaferð ðn þess að
kunna að sigla. Kunnótta í meðferð segl-
bóta er ávísun á velheppnað sumarfrí.
Hm.vins^lu
siglmganamskeid
Siglingaskólans hefjast í byrjun júní. Þau
eru bæði fyrir byrjendur og lengra komna
og fyrir alla aldurshópa 12 ára og eldri.
Kennsla fer fram kl. 08-16 mánudaga til
föstudaga eðo á kvöldin sömu daga frá
kl. 18-22 og um helgar frá kl. 08-18.
Verð frá 14.000 kr. Eldri
afslátt af námskeiðsgjaldi.
Ef 4 eða fleiri innritast í einu fá þeir sama afslátt
svo og meðlimir Siglingaklúbbs Veraldar (Ferða-
miðstöðin Veröld, Austurstræti 17).
Upplýsingar og innritun í síma 91-689885.
Innritun alla næstu viku frá kl. 16-18 um borð í
kennslubátnum BORG sem liggur í skútuhöfninni
við Ingólfsgarð (rétt hjá varðskipunum).
Við innritun greiðist staðfestingargjald sem er
25% af námskeiðsgjaldi.
Kreditkortaþjónusta.
nemendur skólans fá
meðlimur í Alþjóðasambandi siglingaskóla
/iGunGA/KOunn
Örfirisey er sögufrægur staður.
Þar stóð Þorbergur alsber framan
í norðangarra og skvetti upp um
sig sjó, og kallaði að stunda sjó-
böð. Þar er líka að finna einar
elstu sýnilegu leifar um mannvist
í Reykjavík. Og allt fram á síðasta
áratug gat þar að líta hógværa
ábendingu sem nafnlausir sæfarar
sloppnir úr kröppum dansi við
íslensk höf meitluðu fyrir árhundr-
uðum í eybergið norðanvert: Me-
mento mori — mundu dauðann.
Þegar sjór og landsig brutu und-
ir sig kaupstaðinn í Hólminum fyrir
líkast til þremur öldum var hann
fluttur í Örfírisey og stóð þar í
kringum 80 ár. Og á tímum innrétt-
inganna, þegar Skúli fógeti bjó í
Viðey og beið eftir að lax kæmi í
Sundin til að boða vorið, þá var
engin búð önnur í Reykjavík en sú
sem stóð í Örfiriseynni að norðan.
Sé einhvers staðar að finna andblæ
sögu í höfuðborg lýðveldisins er það
í Örfírisey, og sá er daufur sem
ekki skynjar þar bilið stutta milli
okkar og þeirra sem bjuggu til
kaupstað sem varð að borg í
Reykjavík.
Að sönnu er nú lax genginn á
Sundin en það vorar illa í Örfírisey.
Þar hafa tvö olíufélög numið
land. Einsog samir stórveldum hafa
þau rekið kyrrláta útþenslustefnu
sem hefur hægt og sígandi tak-
markað rétt Reykvíkinga til um-
ferðar um eyna. Skerðingin hefur
þó hverju sinni verið svo lítil, að
friðsamir borgarar hafa ekki hirt
um að draga vopn úr slíðrum og
Sól og gróður allt árið í
EINANGRUÐUM ELITE-SÓLSTOFUM
Framleiddar í stærðum: 9,1-15,4 og 24,3 ferm.
Möguleikar á öðrum stærðum samkv. sérpöntun.
Auðveldar í uppsetningu - Hagstætt verð.
HAFIÐ SAMBAND EF ÞIÐ ÓSKIÐ EFTIR
NÁNARI UPPLÝSINGUM
SINDRA
Pósthólf 880, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 627222
STALHF
LBé>3MMM
SÓLSTOFUR
verjast ásælni olíuguðsins. En nú
er of langt gengið, góðir Reyk-
víkingar, hinir ágætu forsvarsmenn
Esso og Skeljungs hafa nú bókstaf-
lega talað lokað fyrir umferð um
eyna norðanverða.
Mistök
Hér er vitanlega um mistök að
ræða. Á okkar tímum hefur sú
stefna góðu heilli rutt sér til rúms
að reyna að bæta umhverfí borg-
anna, gera þær vistlegri sem bú-
svæði fýrir mannfólkið sem lifír
þar og deyr. Gildur þáttur í þess-
ari nýju stefnu hefur verið að hlúa
sem best að útivistarsvæðum inn-
an marka borgarlanda. í æ ríkari
mæli reyna menn að halda þeim
í sem upprunalegastri mynd og
gera þannig fólkinu kleift að njóta
náttúrunnar án þess að leita út
fyrir borgimar.
Vitanlega er þetta sú stefna sem
okkur — af hvaða pólitíska sauða-
húsi sem við erum — ber að fram-
fylgja til heilla fyrir Reylgavík.
Það hlýtur að vera einna efst á
forgangslista kjörinna fulltrúa í
stjóm borgarinnar, að efla mögu-
leika fólks til útivistar í borginni,
en ekki loka útivistarsvæðum. I
því sambandi er rétt að minna á,
að jafn ólíkir flokkar og Sjálfstæð-
isflokkurinn og Alþýðubandalagið
hafa gert umhverfismál að for-
gangsverkefni í Reykjavík.
Það er því með engu móti veij-
andi, að olíufélög fái að ganga
með þessum hætti á eitt af þeim
fáu 'útivistarsvæðum sem er að
fínna innan marka borgarinnar.
Því síður sem hér er um að ræða
eitt af sérstæðustu og mikilvæg-
ustu útivistarsvæðum í Reykjavík,
þar sem sagan drýpur af hveiju
gijóti. Þessi ákvörðun er því
pólitísk mistök, sem sjálfsagt er
að leiðrétta og raunar ósköp ein-
falt ef menn hafa vilja til þess.
Breytingamar, sem nú hafa leitt
til þess að ekki er lengur hægt
að aka eða ganga hinn hefðbundna
Örfíriseyjarhring, hafa fært veru-
Össur Skarphéðinsson
„Púlsinn á reykvísku
mannlífi er einfaldlega
hveraig- hægt að taka
einsog með því að
ganga einn hring á Or-
firisey og setjast svo inn
á Kaffivagninn á eftir.“
lega út landamörk olíufélaganna,
sem í sjálfu sér er lítið fagnaðar-
efni. Því miður sýnist mér líka af
skipulagskortum, að fyrirhugað sé
að láta þeim í té enn stærra flæmi.
Ég fæ ekki betur séð, að þegar
upp verði staðið muni fast að 60%
af Örfiriseynni vera farin undir
olíutanka og aðra starfsemi olíufé-
laganna.
Það tel ég sem Reykvíkingur
og Vesturbæingur hrikalega nið-
urstöðu.
í þessu máli er dálítið sorglegt,
að mér sýnist af samtölum mínum
við bæði stjómmálamenn og emb-
ættismenn úr borgarkerfinu, að
þeir hafi einfaldlega ekki gert sér
ljóst, að breytingamar á skipulagi
hafnarsvæðisins fælu í sér þessa
miklu takmörkun á umferð um
eyna.
mmnwkm.
k söuisná:
Traktorsgröfur:
Traktor:
Beltagröfur:
CAT 426 ’87
FORD COUNTY ’82
JCB 3XD4 ’82
JCB 3XD '80
CASE 580F ’80-’81
CASE 580G ’83-’87
CASE 680 '79
MF 50HX ’82
FORD 6610 ’88
CAT 225 ’80
IHJUMBO 630 '80
OK RH9 ’84
OK RH6 ’74
OK RH1 2 ’77
J.C.B. 807b •80
KOMATSU PC 200 '82
ALLAR UPPLYSINGAR HJA SOLUMANNI
[hIhekla hf
B a ‘ ..j:Laugavegi 170-174 Slmi 695500
Caterpiltar. Cat og CB eru skrásett vörumerki.
[0 CATERPILLAR
YFIR 40 ARA FORYSTA A ISLANDI