Morgunblaðið - 27.05.1989, Page 24

Morgunblaðið - 27.05.1989, Page 24
INNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAI 1989 Alusuisse 100 ára: Stækkun ÍS AL andi. Verður það í fyrsta sinn sem Islendingur stýrir fiindi ráðherranefndarinnar, en vara- formenn á fundinum verða frá Belgíu og Kanada. Á fundi ráðherranefndar OECD verður að þessu sinni rædd mótun efnahagsstefnu til að tryggja áframhaldandi atvinnuskapandi hagvöxt án verðbólgu, og jafn- framt ýmis alþjóðleg vandamál, meðal annars á sviði umhverfis- máia, milliríkjaviðskipta og þróun- armála. Að fundinum loknum verð- ur gefin út fréttatilkynning, sem verður nokkurs konar stefnuyfir- lýsing og ársskýrsla Efnahags- og framfarastofnunarinnar. Jafn- framt munu Jón Sigurðsson, sem formaður ráðherranefndarinnar, og framkvæmdastjóri OECD, Je- an-Claude Paye, halda frétta- mannafund til þess að skýra frá gangi umræðna á fundinum. Fyrir íslands hönd munu auk Jóns Sigurðssonar sitja fund rðher- ranefndarinnar þeir Birgir Áma- son, aðstoðarmaður viðskiptaráð- herra, Jón Ögmundur Þormóðsson, skrifstofustjóri viðskiptaráðuneyt- isins, Ingimundur Friðriksson, for- stöðumaður alþjóðaráðs Seðla- banka íslands, Þorsteinn Ólafsson, efnahagsráðunautur forsætisráð- herra, Albert Guðmundsson, sendi- herra og Benedikt Jónsson, sendi- ráðunautur. Lamaðir og fatlaðir: STYRKTARFÉLAG lamaðra og fatlaðra og Kiwanisklúbbur- inn Viðey efna til fjölskylduhát- íðar á Hótel íslandi sunnudag- inn 28. maí kl. 15.00. Öllum ágóða af hátíðinni verður varið til byggingarframkvæmda að Reykjadal í Mosfellssveit, þar sem starfrækt er sumardvalar- heimili fyrir fötluð böm. Sumardvalarheimilið hefur ver- ið starfrækt um margra ára skeið og munu 72 börn dveljast þar í sumar. Hátíðin er þáttur í átaki líklegur kostur Ztiurich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunbiaðsins. YFIR þrjúhundruð karlmenn og örfóar konur héldu upp á stóraf- mæli Alusuisse í Neuhausen við Rínarfljót í gær, 26. maí. Svissn- eska álfyrirtækið hóf starfsemi sína þar fyrir eitthundrað áram og bauð til glæsilegs hádegis- verðar í álklæddu hátíðartjaldi af því tilefni. Jean-Pascal Dela- muraz, forseti Sviss þetta árið, og dr. Jóhannes Nordal, sem átti fund nteð ATLANTAL- hópnum í vikunni, voru meðal gesta auk fjölda gamalla og nýrra samstarfsmanna fyrir- tækisins. Fyrrverandi stjórn- endur þess, sem stóðu meðal annars fyrir smiði álvers Alusu- isse á íslandi á sínum tíma, voru ekki í afmælisboðinu. Af samtölum við starfsmenn Alusuisse má ráða að þeir hallast nú að því að álver ÍSALs verði stækkað og nýir aðilar teknir inn í rekstur þess frekar en að alveg nýtt álver verði byggt á íslandi. Framleiðsla verði aukin um 120.000 tonn og verði um 200.000 tonn á ári. Ef þessi valkostur verð- ur ofan á þá þykir ekki ólíklegt, eins og málin standa nú, að fram- kvæmdastjóm álversins verði áfram í höndum Svisslendinganna þar sem þeir hafa langa reynslu af starfsemi í landinu. Reynsla hefur sýnt að það er hagkvæmara að stækka gömul álver en byggja ný ef sá möguleiki er fyrir hendi. Þó er ekki endanlega búið að af- skrifa þann valkost að reisa nýtt álver í Straumsvík og verið að at- huga hvaða kosti það hefur í för með sér að meiri raforka fyrir það verður fáanleg fyrr en áður var ætlað. Austurríkismenn eru enn aðilar að ATLANTAL-hópnum en heldur ólíklegt þykir að þeir muni taka þátt í framkvæmdum þegar að þeim kemur þar sem þeir hafa nú snúið sér að Ástralíu og Kanada. Hollendingar og sérstaklega Svíar sýna mikinn áhuga á álframleiðslu á Islandi og Alusuisse á fastlega von á samvinnu við þá í Straumsvík í framtíðinni. . Morgunblaðið/Sverrir lngimundur Fnðnksson, forstöðumaður alþjóðaráðs Seðlabanka Islands, Jón Ögmundur Þormóðsson, ___________________ skrifstofústjóri viðskiptaráðuneytisins og Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra kynna væntan- legan ráðherrafúnd OECD fyrir fréttamönnum. Jón Sigurðsson formaður ráðherranefiidar OECD Hagvöxtur án verðbólgn er meðal markmiða OECD JÓN Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, mun gegna formennsku á árlegum fúndi ráðherranefiidar Efnahags- og framfarastofnunarinnar.OECD, sem haldinn verður í París dag- ana 31. maí og 1. júní næstkom- * Aðalfundur Skáksambands Islands: Einar S. Einars- Aðildarríki OECD eru nú 24 talsins, 19 ríki í Vestur-Evrópu og að auki Bandaríkin, Kanada, Jap- an, Ástralía og Nýja-Sjáland, en aðsetur stofnunarinnar er í París. Stofnunin var sett. á laggirnar árið 1961, og hefur ísland átt aðild að • henni frá því hún tók til starfa. OECD hefur frá upphafi verið vett- vangur fyrir samráð iðnríkjanna um alþjóðleg efnahagsmál, og fer það fram í ráðherranefndinni, sem er æðsta stjóm stofnunarinnar, í framkvæmdaráðinu, sem mótar starf stofnunarinnar á grundvelli ákvarðana ráðherranefndarinnar, og í ýmsum embættismannanefnd- um sem starfa á afmörkuðum svið- um. Starf íslands á vettvangi OECD hefur meðal annars verið fólgið í þátttöku í hinum árlegu fundum ráðherranefndar stofnun- arinnar, en þar hafa íslendingar lagt ríka áherslu á eflingu fríversl- unar og að dregið verði úr hömlum í milliríkjaviðskiptum, til dæmis fyrir fisk og fiskafurðir. Þá sækja íslenskir embættismenn einnig reglulega fundi ýmissa nefnda á vegum OECD. Kiwanisklúbbsins Viðeyjar og Styrktarfélags lamaðra og fatl- aðra til að ljúka við byggingar- framkvæmdir þar. Fjölmörg fyrir- tæki hafa stutt átakið en tekið er við framlögum á gíróreikningi nr. 59 hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis. Fjölskylduhátíðin á Hótel ís- landi hefst kl. 15.00 á sunnudag- inn og verður þar boðið upp á fjöl- breytt skemmtiatriði. Áðgangs- eyrir er kr. 500 fyrir fullorðna en kr. 300 fyrir böm. Á sunnudaginn verður haldin fjölskylduhátíð á Hótel íslandi til styrktar sumardvalarheimili fyrir fötluð böra. son kjörinn forseti EINAR S. Einarsson var einróma kjörinn forseti Skáksambands íslands næsta árið á aðalfiindi sambandsins fyrir skömmu. Ein- ar hefúr áður verið forseti Skák- sambandsins í flögur ár, árin 1976-1980. „Það er ákaflega mikilvægt á þessum tímum að efla skákiðkun og skákstarfsemi, sérstaklega fyrir unglinga. Vegna þeirrar símötunar sem viðgengst í þjóðfélaginu í dag er ákaflega mikilvægt að efla sjálf- stæða hugsun og heilastarfsemi, sem skákin gerir,“ sagði Einar í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að mikið yrði um að vera í skákinni á næstunni. Skammt væri til einvígis Margeirs Péturs- sonar og Jóns L. Ámasonar um íslandsmeistaratitilinn og íslands- mótið í atskák yrði eftir mánuð. Þá yrði Norðurlandamót unglinga og Evrópumót félagsliða seinna í sumar, auk annarra atburða. Stærsti atburðurinn framundan væri Reykjavíkirskákmótið í febrú- ar á næsta ári og hugsanlegur und- anfari þess, keppni milli tíu manna sveita frá Sovétríkjunum, Banda- ríkjunum,.Bretlandi og Norðurlönd- unum. Löndin hefðu lýst áhuga sínum, en óljóst væri hvort tækist að fjármagna keppnina. Hann ætti von á að það myndi skýrast í sumar. Atelja fréttamennsku útvarps og sjónvarps INGA Jóna Þórðardóttir for- maður útvarpsráðs og Magnús Erlendsson útvarpsráðsmaður létu bóka mótmæli á fiindi ráðs- ins í gær vegna fréttaflutnings útvarps og sjónvarps í fyrradag af 60 ára afinæli sjálfstæðis- flokksins. Bókunin var í tilefni frétta útvarps og sjónvarps þar sem vitnað var til frétta Pressunnar af svokölluð- um leyniskjölum um innri málefni Sjálfstæðisflokksins og er svo- hljóðandi: „Undirrituð mótmæla umfjöllum fréttastofu hjóðvarps og sjónvarps um innri málefni Sjálfstæðisflokks- ins sem tekin var gagnrýnislaust upp úr Pressunni í fréttum í gær. Efnismeðferð frettastofunnar á þeim tveggja ára gömlu upplýsing- um sem hér um ræðir getur með engu móti talist eðlileg út frá fréttalegum sjónarmiðum. Af málsatvikum er ekki hægt að draga aðra ályktun en þá að „frétt“ þessi hafi verið flutt í annarlegum tilgangi. Vinnubrögð í máli þessu verða að teljast stórlega ámælis- verð“. Undir þessa bókun rita Inga Jóna Þórðardóttir og Magnús Er- lendsson. Kári Jónasson fréttastjóri út- varps sagði aðeins að þetta væri bókun tveggja nefndarmanna af sjö í útvarpsráði um viðbrögð fréttastofunnar. Bogi Ágústsson fréttastjóri sjónvarpsins kvaðst aðspurður ekki ræða einstakar fréttir sjónvarps. Fj ölsky lduhátíð á Hótel íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.