Morgunblaðið - 27.05.1989, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1989
Svar við athugasemd
um sjónvarpsþátt
eftir Bjarna
Daníelsson
í Morgunblaðinu laugardaginn 20.
maí sl. gerir Einar Hákonarson at-
hugasemd við sjónvarpsþátt um
myndlist sem ég stjórnaði og sýndur
var í Ríkissjónvarpinu 16. maí sl.
Athugasemd Einars er sprottin af
því að klippt voru úr þættinum um-
mæli hans um synjun Kjarvalsstaða
á sýningaraðstöðu fyrir Listmálara-
félagið (á næsta ári).
Einar segir að þessi ummæli hafi
verið klippt út af „einhveijum annar-
legum ástæðum“ og að vinnubrögð
viðkomandi þáttargerðarmanna
minni á „svipaða starfshætti og
tíðkast í sumum austantjaldslöndum
þar sem skoðanafrelsi er fótum troð-
ið“.
Einnig segir Einar að þátturinn
hafi verið „snurfussaður og lagaður
til, svo sumir þátttakendur kæmu
betur út en efni stóðu til“.
Sannleikurinn í þessu máli er
miklu fátæklegri og einfaldari en
þessi samsærishugmynd Einars.
Þátturinn var tekinn upp seinni-
part fimmtudags 11. maí í sjón-
varpssal. Að þeirri upptöku lokinni
vissi ég ekki betur en þátturinn yrði
sendur út eins og þar var frá honum
gengið.
Laugardaginn 13. maí var hringt
til mín frá Sjónvarpinu og mér sagt
að þátturinn væri fjórum til fimm
Bjarni Daníelsson
mínútum of langur til að hann kæm-
ist fyrir á dagskrá sýningarkvöldsins
og því væri nauðsynlegt að stytta
hann sem því næmi. Ég fór þá yfir
myndband af upptökunni og gerði
W
SJALFSTÆÐISFLOKKIIRINN
BAKHJARL OG BRAUTRYÐJANDI /
(xfe.
Hugmyndaþing í Valhöll 27. mal
/ tilefni af 60 ára afmcéli Sjálfstœðisflokks-
ins efnir nefnd um framtíðarstefnumótun
flokksins til hugmyndaþings í Valhöll
laugardaginn 27. maí kl 10.00-15 00.
Sjálfstæðisstefaan og framtíðin - Hugmyndnþing
Dagskrá
Kl. 10.00 Májþingið sett með ávarpi
formanns Framtíðamefndar,
Davíðs Oddssonar,
borgarstjóra.
Kl. 10.10 Frelsi og framtak einstaklinga.
Erindi: Árdís Pórðardóttir,
framkvœmdastjóri. Umsögn:
HannesH. Gissurarson, lektor.
Fyrirsþumir úrsal.
Kl. 10.35 Þjáðin, sagan, tungan.
Erindi: Tómas Ingi Olrich,
menntaskólakennari. Umsögn:
Guðmundur Magnússon, sagn-
frceðingur. Fyrirsþumir úr sal.
Kl. 11.00 VeKerðarþíóðfélagið. Erindi:
Katrín Fjeldsted, lœknir.
Umsögn: Vilhjálmur Egilsson,
hagfrœðingur. Fyrirsþumir
úrsal.
Kl. 11.25 ísland og umheimurinn. F.rindi.
Bjöm Bjamason, aðstoðar-
ritstjóri. Umsögn.- Björg
Einarsdóttir, rithöfundur.
£ Fyrirsþumir úr sal.
1 Kl. 11.50 Atvinnuiífið og aldamótin.
f Erindi: Ólafur Davíðsson,
framkvœmdastjóri. Umsögn:
| Þorgeir Pálsson, þrófessor.
g Fyrirsþumir úr sal.
Kl. 12.15 Léttur hádegisverður í Valhöll.
Kl. 13.00 Pallborðsumrœður: Verkefni
Sjálfstæðisflokksins næsta
áratuginn. Stjómandi: Friðrik
Soþhusson, alþingismaður,
varaformaður Sjálfstœðis-
flokksins. Þátttakendur: Davíð
Oddsson, borgarstjóri, Einar
Oddur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri, Guðrún Zoéga,
verkfrœðingur, Hreinn Lofts-
son, lögfrœðingur, Sigríður
Þórðardóttir, kennari og
Valur Valsson, bankastjóri.
Fyrirsþumir úr sal.
Kl. 14-30 Teknir saman þræðir: Þorsteinn
Pálsson, alþingismaður,
formaður Sjálfstœðisflokksins.
Kl. 15-00 Hugmyndaþingi lýkur.
Ráðstefnustjóri erFriðrik
Soþhusson, alþingismaður,
varaformaður Sjálfstœðis-
flokksins.
„ Allar klippingarnar
voru gerðar með það
eitt í huga að stytta
þáttinn án þess að rjúfa
samhengi eða rýra
verulega upplýsinga-
gildi þess sem viðkom-
andi voru að segja.“
tillögur um nokkrar niðurfellingar
þar sem ég taldi að þær kæmu
minnst að sök.
Eitt af því sem ég benti á voru
ummæli Einars um Kjarvalsstaði.
Ástæðan var fyrst og fremst sú að
enginn fulltrúi Kjarvalsstaða var í
sjónvarpssal til andsvara, en einnig
að ummælin voru frekar óljós fyrir
þá sem ekki voru þegar kunnugir
málavöxtum.
Þátturinn var af minni hálfu ætl-
aður almenningi til fróðleiks, en ekki
innvígðum í málefni myndlistar. Ég
taldi því að þessi ummæli Einars
mættu missa sig þar sem engin
umræða gat orðið um þau til frekari
skýringar.
Á þremur öðrum stöðum voru
klipptir úr bútar, en það var í fyrsta
lagi inngangur sem ég hafði í upp-
hafi þáttarins, í öðru lagi hluti af
Iýsingu Gunnars Kvaran á starfsemi
Kjarvalsstaða og í þriðja lagi hluti
af lýsingu Beru Nordal á starfsemi
Listasafns íslands.
Aliar klippingarnar voru gerðar
með það eitt í huga að stytta þáttinn
án þess að ijúfa samhengi eða rýra
verulega upplýsingagildi þess sem
viðkomandi voru að segja.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sveini Einarssyni er það grundvallar-
regla hjá Sjónvarpinu að klippa ekki
til svona upptökur nema að höfðu
samráði við viðkomandi aðila. Mér
var því miður ekki kunnugt um þessa
reglu fyrr en eftirá og starfsmenn
Sveins hjá Sjónvarpinu virðast heldur
ekki hafa þessa grundvallarreglu á
hraðbergi. Því fór sem fór. Mér þyk-
ir afar leitt að hafa látið fella niður
úr þættinum ummæli sem Einari var
svo sárt um og tek heils hugar und-
ir það sjónarmið sem fram kemur í
athugasemd hans í Morgunblaðinu
að helst eigi að komast hjá klippingu
í svona tilfellum.
Ég frábið mér hins vegar aðdrótt-
anir Einars um annarlegar ástæður,
vanvirðu á skoðanafrelsi og snur-
funsun til að mismuna fólki. Þær
fullyrðingar eru langt sóttar af litlu
tilefni.
Ég bið alla hlutaðeigandi afsökun-
ar á þeim mistökum sem gerð voru.
Höfiindur er skólastjóri Myndlista-
og handíðaskóla íslands.
Lúðrasveit Árbæjar- og
Breiðholtsskóla 20 ára
eftir Sigurjón Ara
Sigurjónsson
Um þessar mundir eru rúmlega
tuttugu ár síðan Framfarafélag Ar-
bæjar- og Selásshverfa, FSÁ, lagði
grunn að stofnun lúðrasveitar bama
í_ hverfínu, og fékk til liðs við sig
Ólaf L. Kristjánsson til þess að kenna
börnunum. Má segja að með þessu
hafi FSÁ, ásamt foreldrum þeirra
bama sem fyrst nutu þessa fram-
taks, verið brautryðjendur á þessu
sviði.
Fáum hefði boðið í gmn að með
þessu hafi grundvallast það starf sem
hefur nú staðið í tvo áratugi, með
sama kennara allan tímann, og gefið
mörgu ungmenninu tækifæri til þess
að kynnast tónlist og læra að meta
hana.
Fljótlega eftir að FSÁ stofnaði
lúðrasveit barna í hverfinu, fór félag-
„Þeir eru orðnir margir
sem hugsa nú á þessum
merku tímamótum hlý-
lega til þess tíma er
þeir voru með sveit-
• • LL
mm.
ið þess á leit við borgaryfirvöld að
yfirtaka rekstur sveitarinnar, og með
góðum stuðningi og velvild varð til
Lúðrasveit Árbæjar- og Breiðholts-
skóla. Þetta átak má þakka mörgum
góðum mönnum, og held ég að ekki
sé hallað á einn eða annan þó að
sérstaklega séu nefndir menn eins
og Geir Hallgrímsson, þáverandi
borgarstjóri, og Jónas B. Jónsson
þáverandi fræðslustjóri.
Nú getur þessi lúðrasveit státað
af mörgum utanlandsferðum, þar
sem henni hefur verið vel tekið, fíöl-
margar lúðrasveitir njóta liðmanna
sem hófu sín fyrstu spor á listabraut-
inni í þessari lúðrasveit barna í
yngstu hverfum borgarinnar þá. Og
spor hafa legið til lengra náms, því
lengi býr að fyrstu gerð, lúðrasveitin
á fyrrverandi nemendur í Sinfóníu-
hljómsveitinni, nemendur í námi er-
lendis, eldri nemendur hafa verið við
kennslu í sveitinni hin síðari ár, Ól-
afi L. Kristjánssyni til aðstoðar og
svo mætti lengi telja.
Þakklátasta starf sveitarinnar er
þó fyrst og fremst það að hafa lagt
til þekkingu og samstarf barna og
unglinga við það að kynnast tónlist
og tónmennt, og ræktað í huga og
hjarta vilja til áframhaldandi náms.
Ekki verður að þessu sinni rakin
saga Lúðrasveitar Árbæjar- og
Breiðholtsskóla, en þó get ég ekki
látið hjá líða að segja frá tilfinningu
minni þegar lúðrasveitin hélt sína
fyrstu tónleika í Árbæjarskóla, og
hafði þá verið undir stjórn Ólafs í
þijá mánuði, og við buðum til tónleik-
anna öllum þeim sem höfðu lagt
sveitinni lið, á margvíslegan máta.
Skemmst er að segja frá því að það
voru afar stolt börn og aðstandendur
sem tóku á móti dynjandi lófaklappi,
og mörgum árnaðaróskum þann dag.
Það voru 14 börn sem nutu fyrstu
kennslunnar í sveitinni, þeim hefur
síðan fjölgað mikið, og eru nú um
40-70 böm og unglingar á hveiju ári
í sveitinni, og þeir eru orðnir margir
sem hugsa nú, á þessum merku tíma-
mótum, hlýlega til þess tíma er þeir
voru með sveitinni.
Ég óska Lúðrasveit Árbæjar- og
Breiðholtsskóla til hamingju með
þennan áfanga í starfi sínu, og á þá
ósk einlægasta, að starfið verði
áfram blómlegt og gott um langa
framtíð.
Höfundur er stórkaupmaður og
fyrrverandi formaður FSÁ.