Morgunblaðið - 27.05.1989, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1989
37
Hundatunga í fullum blóma.
Hundatunga
Pulmonaria mollis
Blóm vikunnar
Ágústa Björnsdóttir
124. þáttur
I síðasta þætti var sagt frá
nokkrum Pulmonarium, ágæt-
ustu jurtum sem algengar eru í
görðum hér á landi og svo sem
eins og í framhaldi af því verður
nú getið enn einnar, þ.e. Hunda-
tungu — Pulminaria mollis. Af
jurt þessari hefur Herdís rækt-
unarkona í Fornhaga í Hörgárd-
al sagt eftirfarandi sögu:
„Fyrir allmörgum árum var
ég að bauka í garðinum mínum
og kom þá auga á fræplöntu sem
ég hugði vera kvöldstjörnu. Setti
ég hana í sólreit og fór hún fljót-
lega að dafna. Þegar blöðunum
íjölgaði sá ég að ekki gat þetta
verið kvöldstjarna, blöðin voru
lengri og mjúkhærð og nú varð
ég spennt að vita hvaða gestur
væri hér á ferðinni.
Að tveim árum liðum, strax
og snjóa leysti, kom upp blóm-
kollur jafnframtfyrstu blöðunum
og fljótlega sýndu fyrstu blómin
lit. Þau voru rauðleit en urðu blá
þegar frá leið. Ég sá strax að
þetta var forláta garðjurt en
hafði ekki hugmynd um nafn á
henni. Svo lifði hún og blómgað-
ist þó kalt væri í veðri og blóm-
stönglunum fjölgaði með árunum
og héldu áfram að koma fram
eftir sumri. Með tímanum varð
þetta föngulegur brúskur 35—40
sm hár og álíka mikill um sig.
Ég sýndi plöntuna Jóni heitnum
Rögnvaldssyni, þá forstöðu-
manni Lystigarðsins á Akureyri,
og sagði hann að hún héti Cyno-
glossum — Hundatunga á
íslensku.
Nú er hún flokkuð undir nafn-
inu Pulmonaria mollis.“ Hunda-
tunga hefur verið ræktuð hér
með góðum árangri bæði norðan-
lands og sunnan, en er þó mikl-
um mun fágætari en frænkur
hennar sem getið var um í
síðasta þætti. Hún hefur margt
til að bera sem ræktunarfólk
metur mikils, vex ekki mjög
hratt, leggir eru beinvaxnir og
stinnir og þurfa því engan stuðn-
ing. Harðger er hún svo af ber
og lætur verstu vorhret ekki
buga sig. Árum saman getur hún
staðið á sama stað án þess að
leggja undir sig mikið pláss og
litur stórra blómkollanna er
sannarlega frísklegur og fal-
legur, en gott er að klippa þá
af jafnóðum og þeir visna. Ekki
hef ég orðið þess vor að hún
myndi fræ og hef því fjölgað
henni með því að kljúfa sundur
hnausana á nokkurra ára fresti.
Sennilega er ekki mikið um
Hundatungu á almennum mark-
aði — hún hefur gengið þeim
mun meira manna á milli — þó
minnist ég þess að hafa ein-
hverntíma séð hana á plöntuskrá
frá gróðrarstöðinni Mörk og þá
nefnda Pulmonaria sp.
VIÐ FLYTJUM
Vinnumálasamband samvinnufé-
laganna flytur um helgina af Suður-
landsbraut 32 í nýja Sambandshúsið
á Kirkjusandi (Laugalæk 2a).
Þar verður það til húsa á 3. hæð.
Símanúmer
er óbreytt -
VMS 686855
Vinnumálasamband samvinnufelaganna.
ligneroset
M I R H L E
S V H I H G
Um helgina sýnum við
húsgögn frá ligne-roset.
Lögð verður sérstök áhersla
á Domus-línuna, sem hefur
hlotið fádæma vinsældir.
Húsgögn í Domus-línunni eru
ekki aðeins óvenju falleg og
fagurlega unnin; hönnun
þeirra öll ber með sér þá
sjaldgæfu fágun sem gerir
hana sígilda.
Á sýningunni eru
ennfremur húsgögn frá B&B
Italia en um næstu helgi
verða þeim gerð sérstök skil
á annarri sýningu.
Opið verður á laugardaginn
kl. 10-16 og sunnudag
frá kl. 14-17.
VIÐ I NGJAIHIG, SIMI 689155