Morgunblaðið - 27.05.1989, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1989
Máltíð dagsins
finnst alltaf sumarið vera komið, þegar
íslenskir tómatar koma á markaðinn, þótt svo
.hafi ekki verið að þessu sinni. En núna, þegar
þeir hafa lækkað í verði, hlýtur það að fara að koma.
Við fögnum alltaf íslensku tómötunum og finnum fljótt,
hve þeir eru miklu betri en þeir innfluttu. Þegar við
fáum svo fregnir af geislun og sprautum erlenda
grænmetisins, smjöttum við enn meir á þeim
íslensku. Margar vikur hafa nú liði milli
þátta hjá mér og er plássleysi í blað-
inu ástæðan. Vonandi er betri
tíð framundan með blóm
í haga og meira pláss í
blaðinu. Slæmt þætti mér,
ef sláturuppskriftimar
birtust um jól og jólamatur
um páska. En nú eru það
tómatamir. Enn er það
svo, að margir borða aldrei
tómata öðmvísi en ferska
og þá ofan á brauð, í salöt
eða þá að þeir stífa þá úr
hnefa. En að mínum dómi
eru tómatar ómissandi í
alla samansoðna rétti,
hvort heldur um er að ræða
hreina grænmetisrétti,
fisk- eða yötrétti.
Gullash með tómötum o.fl.
600 g nautakjöt skorið í litla
bita
. 4 dl vatn
2 msk matarolía
1 tsk salt
5 piparkom
3 negulnaglar
2 sm bútur kanilstöng
14tsk korianderkom (má
sleppa)
1 stór gulrót
1 stór laukur
5 meðalstórir tómatar
2 msk ijómaostur án bragð-
efna
1. Hitið helming matarolíunn-
ar á pönnu. Látið hitna vel og
smyrjið jafnt um pönnuna. Setjið
þá helming kjötsins á hana og
steikið á öllum hliðum. Setjið
kjötið í pott, skolið pönnuna með
helmingi vatnsins og setjið ýfír
kjötið. Steikið síðari hluta lqöts-
ins á sama hátt.
2. Stráið salti yfír kjötið. Setj-
ið síðan piparkom, negulnagla,
kanilstöng og korianderkom í
grisju, bindið fyrir og setjið í
pottinn. Nota má hvers konar
hreint bómullarstykki til að
klippa af og setja kryddið í.
3. Hreinsið gulrótina, skerið
í sneiðar og setjið út í. Afhýðið
lauk, skerið í sneiðar og setjið
út í.
4. Hellið sjóðandi vatni á tóm-
atana, flettið húðinni af. Skerið
þá tómatana í bita og setjið út í.
5. Sjóðið kjötið við mjög hæg-
an hita í 45 mínútur.
6. Setjið ijómaost með gaffli
út í. Jafnið vel saman við.
7. Fjarlægið kryddpokann.
8. Berið soðin hrísgijón með.
Soðin hrísgrjón
2 dl hrísgijón
5 dl vatn
%tsk salt
1. Setjið vatn og salt í pott
og látið sjóða.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
1 tsk salt
2 dl súrmjólk
3 dl heitt vatn úr krananum
1 msk hunang
1. Setjið hveiti, sólblómafræ,
þurrger og salt í skál.
2. Blandið saman súrmjólk og
heitu vatni úr krananum, setjið
út í ásamt hunangi. Hrærið sam-
an, best er að nota hrærivél.
3. Setjið volgt vatn í eld-
húsvaskinn, setjið skálina með
deiginu ofan í vatnið. Leggið
stykki yfír deigið og látið lyfta
sér í 30 mínútur.
4. Takið deigið úr skálinni,
skiptið í tvennt, fletjið síðan
hvom bút örlítið út með köku-
kefli, veflið síðan saman og búið
til 2 aflöng brauð.
5. Leggið brauðin á bökunar-
pappír á bökunarhellu, sam-
skeytin snúi niður. Skerið nokkr-
ar rifur á ská í brauðin með
beittum hníf. Hafíð snögg hand-
tök. Leggið stykkið aftur yfír
brauðin.
6. Setjið heitt vatn í vaskinn,
leggið plötuna með brauðunum
milli barmanna á honum. Látið
lyfta sér í 30 mínútur.
7. Hitið bakarofn í 210°C,
blástursofn í 190°C, setjið
brauðin í miðjan ofnin og bakið
í 25-30 mínútur.
8. Takið brauðin úr ofninum,
leggið stykki yfir þau og látið
kólna örlítið áður en þið skerið
þau.
2. Setjið gijónin út í, látið
suðuna koma up, minnkið þá
hitann og sjóðið í 10 mínútur
undir hlemm.
3. Hreyfið hlemminn ekki, en
slökkvið á hellunni og látið
gijónin standa í pottinum í aðrar
10 mínútur.
Hveitibrauð með
sólblómafræjum
10 dl hveiti
1 dl sólblómafræ
3 tsk þurrger
Sumarhns
í sérf lokki
AÐ TRÖNUHRAUNI 8 HAFNARFIRÐI
Okkur hjó Transit hf. er sönn ónægja að tilkynna yður að ó
30 óra afmæli fyrirtækis okkar bjóðum við til sölu i fyrsto
skipti mjög traust, hlý og vönduð (heilsórs) sumarhús, sem
við erum afskoplega stoltir of.
Fróbært hugvit (innlent og erlent) svo og alúð hefur ein-
kennt allo hónnun og smíði ó þessum húsum. Húsin eru hlý,
enda er 4 tommu einongrun í öllum útveggjum og
6 tommu einangrun i gólfi og lofti.
TRANSIT HF. býður nú glæsilegt sumarhús af
GISELLA ÍSLAND gerð, sem er 48 fm að flotarmóli ouk 22
fm svefnlofts eðo olls 70 fm innanhúss.
Auk þess er yfirbyggð verönd 35 fm. Samtols eru því 105
fm undir þaki.
Við hönnun húsanna hefur hver þumlungur verið skoðaður
goumgæfilega af fogmbnnum og vegna hagstæðro viðskipta-
samningo okkar getum við haldið öllum kostnaði í olgjöru
lógmorki.
Verð á CISELLA ÍSLAND sumarhúsi
óuppsettu er f ró kr. 1.210.OOO,-
Við munum ó næstu dögum bjóðo nokkur hús of
GISELLA ISLAND gerð ó einstöku kynningarverði, fró
aöeíns kr. 1.079.000,-
Greiðslukjör eru fróbær og erum við mjög sveigjanlegir
í samningum.
1) Við samning greiðist 15% at kaupverði.
2) Við afhendingu greiðíst 40% af kaupverði.
3) Eftirsföðvar greiðast síðan t.d. á 2 árum.
Ef þér viljið kynnast GISELLA ÍSLAND nónor þó verið velkomin
i Trönuhroun 8, Hafnorfirði, skoðið sýningorhús okkor staðsett
ó baklóð og fóið frekari upplýsingar.
SinARIIIS ER EKKIRARVIJARLÆGUR RRAIJIVIIR
- ÞAD H\m\ OKKAR VERD OG GREIDSLIJKJÖR
Sjón er sögu ríkari.
WANSÍT r
TRÖNUHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI, SÍMI 652501
Selfoss:
Göngubrú
yfir Olfusá
SelfossL
SAMKVÆMT vegaáætlun næsta
árs, 1990, er áætjað að byggja
göngubrú utan á Ölfúsárbrú.
Göngubrúin verður hengd utan á
brúna, að austanverðu. Hún verður
höfð'eins létt og mögulegt er, úr
stáli og áli. Búið er að gera frum-
drög að brúnni sem verður tveir
metrar á breidd.
Göngubrúin verður til mikilla
bóta fyrir gangandi vegfarendur
um Ölfusárbrú. Þeir hafa verið í
stórhættu á sjálfri brúnni, einkum
bömin.
— Sig. Jóns.
Námskeið
í sjálfcrækt
um helgina
HELGARNÁMSKEIÐ í sjálfs-
rækt verður haldið 2. til 4. júní
næstkomandi. Leiðbeinandi
verður Ingrid Hering sálgreinir.
Helga Bahr veitir nánari upplýs-
ingar um námskeiðið og skráir þátt-
takendur.