Morgunblaðið - 25.06.1989, Blaðsíða 15
CHURCHJLL
187+ -1Q6<Í
MQRGUNBtéítf© SU.NUi.UBAGVIÍ; 25,' íJÚNÍ,:1989
feiminn. Bartholomew segir í bók
sinni að á alþjóðlegum fundum sé
hann aivarlegur í bragði, hafi fátt
til málanna að leggja og minni á
skóladreng í sparifötum, sem hafi
allt í einu þurft að mæta á fund
með kennurum sínum. Blaðamenn
eiga ekki upp á pallborðið hjá hon-
um. Eitt sinn þegar hann var á fundi
með þeim vakti hann skelfingu
þeirra þegar hann hóf skothríð, en
í ljós kom að byssan var hlaðin púð-
urskotum.
Á síðasta áratug var soldáninn
tíður gestur í næturklúbbum í Lund-
únum og París og fékk orð fyrir að
vera glaumgosi. Vopnasalinn Adnan
Khashoggi, sem nýlega var hand-
tekinn í Sviss, kom sér í kynni við
hann í ábataskyni. Soldáninn þótti
lítt veraldarvanur og vinir hans segja
að Khashoggi kunni að hafa haft
miður heppileg áhrif á hann.
Soldáninn á tvær konur. Þegar
hann var 19 ára kvæntist hann 16
ára gamalli frænku sinni, Salehu
prinsessu. Um 1980 gekk hann að
eiga flugfreyju af malajískum,
skozkum og japönskum ættum,
Mariam Bell, sem var opnari og vin-
gjarnlegri en flestar stúlkur í Bru-
hann lét reisa handa Miriam, er
minnismerki þessa sigurs, en fyrri
höllina reisti hann handa Salehu
prinsessu, fyrri konu sinni.
í júlí 1985 kom aftur upp alvarleg-
ur krytur innan íjölskyldunnar. Fað-
ir soldánsins, sem hafði haldið áfram
að gegna hlutverki „æðsta leiðtoga
trúarinnar", mælti svo fyrir að hann
skyldi einnig ávarpaður „soldán og
æðsti stjómandi" í bænahúsum
landsins. Eins og Bartholomew
bendir á jafngilti tilkynning Saifudd-
ins yfírlýsingu um að hann ætlaði
sér að fara með öll æðstu völd og
soldáninn sagði: „Ef faðir minn vill
ná hásætinu aftur skal hann reyna
það.“
Þessar fjölskyldueijur stóðu í eitt
ár og enduðu með því að sir Hasa-
anal Bolkiah hélt völdum sínum yfír
lögreglunni, hemum, Qölmiðlunum
og trúarstofnunum og varð andlegur
leiðtogi þjóðarinnar. Saifuddin viður-
kenndi sig sigraðan og feðgamir
sættust heilum sáttum.
Keypti Dorchester-hótélið
Sem trúarleiðtogi hefur soldáninn
átt þátt í því að viðhalda hófsemi
landsmanna í trúmálum. Enginn er
Bmnei. Hann á til dæmis fræg lúx-
ushótel í erlendum stórborgum:
Dorchester í Lundúnum, Beverly
Hills í Los Angeles og Hyatt í Singa-
pore. Þegar dóttir hans varð 11 ára
hélt hann henni veizlu, sem kostaði
hann 100.000 pund, á Claridges-
hótelinu í Lundúnum.
Bankastjórar, vopnasalar, leyni-
þjónustumenn, smjaðrarar og svik-
arar hafa stöðugt sótzt eftir vin-
fengi hans. Khashoggi kynnti hann
fyrir vafasömum Indveija, krafta-
verkamanninum Shri Chandra
Swamiki Maharaj („Swarni").
Swami var vinur Pamellu Bordes,
fegurðardísarinnar sem fékk starf í
Neðri málstofunni og brezkir þing-
menn og ritstjórar áttu vingott við.
Indverska stjómin hefur sakað
Swami um gjaldeyrissvik og hann
bíður þess nú að verða leiddur fyrir
rétt eins og Khashoggi.
Sér til skelfíngar hefur soldáninn
hvað eftir annað dregizt inn í deilur
út af vafasamri sölu á brezka fyrir-
tækinu House of Fraser og „flagg-
skipi" þess, Harrods-verzluninni.
„Tiny“ Rowland, framkvæmdastjóri
Lonrho-fyrirtækisins, hefur haldið
því fram að soldáninn hafi hjálpað
Studdi „kontrana“
Soldáninn hefur slitið öllu sam-
bandi sínu við Al-Fayed-bræðuma.
Bartholomew segir að hann kunni
að hafa látið blekkjast vegna þess
að bræðumir hafi verið í slagtogi
með brezku ríkisstjórninni í þessu
máli. Skýrslan um rannsóknina get-
ur valdið soldáninum erfíðleikum og
blaðið The Guardian segir að það
sé ein af ástæðunum til þess að hún
hefur ekki verið birt.
Hvað sem þessu líður hefur Al-
Fayed-bræðmnum verið leyft að
halda Harrods — frægustu verzlun
heims. Soldáninn hefur hana í meiri
hávegum en nokkra aðra verzlun.
Þangað hefur hann jafnan farið til
að kaupa jólagjafír handa starfsfólki
sínu.
Annað mál, sem hefur valdið sold-
áninum erfíðleikum, er stuðningur
hans við kontra-skæruliða í Nic-
aragua. í ljós kom fyrir þremur árum
að hann hafði gefíð 10 milljónir dala
í bandarískan leynisjóð, sem var
notaður til að standa straum af
kostnaði við uppreisn kontranna. En
peningarnir komu aldrei fram. Þeir
munu hafa verið lagðir á reikning
með röngu númeri í banka í Svíss
og eigandi reikningsins virðist hafa
hirt þá. Oliver North ofursti var
grunaður um að hafa átt einhveija
sök á þessum mistökum, en málið
hefur aldrei verið skýrt til hlítar.
Á 42 ára afmæli sir Hasaanal
Bolkiahs soldáns 15. júlí í fyrra lauk
10 daga hátíðahöldum með fjórum
Soldáninn á hersýningu:
•GúrkhsPhermenn veija lándið.
Azahari: uppreisn með
stuðningi Indónesa.
skrúðgöngum í Bandar Seri Begaw-
an. íbúar Brunei hylltu þjóðhöfð-
ingja sinn og fögnuðu bættum hag.
Árstekjur nema yfirleitt sem svarar
1,3 milljónum ísl. króna á ári og
enginn þarf að greiða tekjuskatt.
Annar hver maður á bíl og benzín
er hræódýrt. Menntun og læknis-
þjónusta eru ókeypis og góðir nem-
endur eru styrktir til náms erlendis.
Annar hver maður starfar fyrir
stjómina eða Shell og atvinnuleysi
þekkist varla. Auðvelt er að fá
vaxtalítil lán til íbúðakaupa og allir
hafa rétt á ellilífeyri.
Brunei er því sannkallað velferð-
arríki — eða shell-ferðarríki eins og
það hefur verið kallað. Olían og
jarðgasið munu ganga til þurrðar
fyrr eða síðar, en þjóðin skuldar
ekki neitt, enginn halli er á viðskipt-
um við útlönd og hún á meiri vara-
gjaldeyrisforða en Kínveijar — 20
milljarði dala. Þjóðin er svo fámenn
að hún mun geta lifað af tekjum af
fjárfestingum soldánsins og virðist
tiltölulega ánægð með ástandið eins
og það er og hafa lítinn áhuga á
að breyta því. Svo kann þó að fara
að hún krefjist aukinnar hlutdeildar
í olíuauðnum, þótt hann hljóti að
minnka.
grýttur fyrir brot á Kóraninum og
boðendur öfgafullrar múhameðstrú-
ar hafa fengið lítinn hljómgrunn.
Soldáninn hefur rækt skyldur sínar
sem trúarleiðtogi af samvizkusemi,
en lifir allt öðru lífi þegar hann kem-
ur ekki fram í því hlutverki, klæðist
fötum frá Saville Row í stað þjóð-
búnings og stundar fjárhættuspil í
Lundúnum.
Soldáninn á fjölda eigna utan
Ómar Saifuddin: faðirinn laut í
lægra haldi.
Elzti sonurinn í snóker meö
Terry Griffiths: kennslustundin
kostar 27.000 kr.
Gullhúðað hvolfþak
soldánshallarinnar:
Höllin kostaði 400 milljónir dollara.
egypzkum bræðrum að kaupa House
of Fraser. Soldáninn hefur harðiega
neitað því að hann hafí verið viðrið-
inn þetta mál, þótt hann viðurkenni
að hann sé góður kunningi annars
bróðurins, Mohameds Al-Fayeds,
sem er fyrrverandi mágur Khas-
hoggis.
Rannsókn var hafín á því á vegum
brezka viðskipta- og iðnaðarráðu-
neytisins hvað raunverulega gerðist
þegar House of Fraser var keypt.
Efni úr skýrslunni var lekið til viku-
blaðsins The Observer, sem er í eigu
Tiny Rowlands, og brezkur þing-
maður lét svo um mælt að Al-
Fayed-bræðumir væm „prettvísir
þorparar". Enginn virðist trúa sold-
áninum og brezka lögreglan, sem
rannsakar uppmna bræðranna, vill
fá áheym hjá honum.
Líkneski af Churchill í
Brunei: vinátta við Breta.
nei. Enginn hefði haft neitt við
að athuga, ef hann hefði gert hana
að hjákonu sinni, og landar hans
urðu undrandi þegar hann kvæntist
henni á laun. Þótt landsmenn séu
múhameðstrúar er ekki lengur talið
viðeigandi að menn taki sér fleiri
en eina konu.
Saifuddin, faðir soldánsins, sem
var valdamikill að tjaldabaki, reidd-
ist ráðahagnum og taldi hann alvar-
legustu ógnunina við völd sín síðan
hann setti son sinn í hásætið 14
árum áður. Hann kallaði hina nýju
konu sonar síns aldrei annað en
„þennan Japana“ og það lýsti vel
niðurbældri reiði hans og annarra
Bmnei-búa í garð Japana, sem her-
sátu landið í stríðinu.
Litlu munaðr að soldáninn glataði
hásætinu vegna þessa máls, sem
minnti að sumu leyti á reynslu Ját-
varðs VIII í Bretlandi. Hann hótaði
að leggja niður völd, en ákvað að
beijast öfugt við Játvarð og fór með
sigur af hólmi. Síðari höllin, sem
prins í heimsókn: kemur
til að spila póló.