Morgunblaðið - 25.06.1989, Blaðsíða 22
22 C_______
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Heild korísins
Margar af þeim greinum sem
birtast í þessum pistli fjalla
um stjömumerkin og þá um
eitt stjömumerki í einu. Al-
gengt er að sagt sé að einung-
is sé verið að fjalla um hið
dæmigerða merki og að hver
maður eigi sér nokkur stjömu-
merki.
Hin merkin
Það hvaða stjömumerki menn
eiga, eða eru samansettir úr,
ákvarðast af stöðu pláneta í
merkjum og því hvaða merki
er að risa yfir sjóndeildar-
hringinn og hvaða merki er
hæst á lofti á fæðingardag og
-stund. Merki Sólar, Tungls
og Rísandi skipta mestu máli,
em aðalmerkin, og síðan
merki Merkúrs, Venusar,
Mars og Miðhimins. Sól er
táknræn fyrir grunneðli, vilja
og lífsorku, Tungl fyrir tilfinn-
ingar og daglegt hegðunar-
mynstur og Rísandi fyrir fas,
framkomu og persónulegan
stíl. Merkúr er táknrænn fyrir
hugsun, Venus fyrir ást, sam-
skipti og fegurð, Mars fyrir
framkvæmdaorku og Mið-
himinn fyrir markmið og
stefnu í þjóðféiaginu.
Samspil þátíanna
Það sem er skemmtilegast í
stjömuspeki er að spá í það
hvemig merkin vinna saman.
Það er undirstöðuatriði að
þekkja eðli hvers merkis fyrir
sig, en næsta skrefið er að spá
í samvinnu þeirra. Þessi sam-
vinna, eða ósamvinna merkj-
anna segir oft ansi mikið um
það af hveiju Jón lætur eins
og hann gerir.
Lík og ólík merki
Það má segja að ein regla í
stjömuspeki sé sú að ef helstu
merkin era lík megi búast við
jafnvægi í hegðun viðkomandi
manns, en ef þau eru ólík þá
megi búast við því að viðkom-
andi verði sjálfum sér ósam-
kvæmur og misjafn i hegðun
eftir tímabilum, eða þar til
hann hefur náð jafnvægi í
persónuleika sinn.
SviÖsskrekkur
Þegar Vog og Krabbi, sem eru
óh'k merki, era saman í korti
getur myndast hræðsia við
athafnir. Sviðsskrekkur eða
feimni er gott dæmi um það
sem getur háð viðkomandi, en
félagslyndi togast á við hlé-
drægni, viðkvæmni og var-
kámi.
Regluleg óregla
Útkoman getur orðið nokkuð
fyndin þegar Bogamaður og
Meyja era saman í korti. Þá
togast á frelsisþörf og þörf
fyrir öryggi og reglu. Dæmi-
gert fyrir það er að taka vel
til og raða fötum skipulega í
skápa, og mega síðan ekki
vera af því að ganga vel um.
Heimilið sveiflast þá á milli
snyrtimennsku og reglu og
þess að allt er í drasli. Hegðun-
in getur einnig orðið sérstök.'
Eina viku er lögð áhersla á
stundvísi, en þá næstu gleym-
ist slíkt og viðkomandi mætir
aldrei á réttum tíma á stefnu-
mót.
Sparsemi og eyösla
Þegar Naut og Ljón era saman
í korti getur viðkomandi
sveiflast á milli þess að vera
duglegur og sparsamur og
þess að vera eyðslusamur og
skemmtanasjúkur. Nautið
heldur fast í hveija krónu í
þijá mánuði, sparar klósett-
pappír og munnþurrkur og svo
ríkur Ljónið niður í bæ og
kaupir Mercedes Benz á tvær
milljónir. Maður sem hefur
Naut og Ljón í korti sinu þarf
að beijast við það að halda
jafnvægi á milli tekjuöflunar
og eyðslu. (Samspil Nauts og
Ljóns er sterkt í stjömukorti
íslands). Það er þetta sem
gerir hina raunveralegu
stjömuspeki skemmtilega, það
að spá í samspil merkjanna.
MORGUNBLAÐIÐ
MYIMDASÖGUR sunnupagur
25. JÚNÍ 1989
BRENDA STARR
HOU) PO YOO ISJVITE VOUR OU)N
BROTHERTO AN"U6LV P06"
COSITE5T? I DON'T EVEN KNOU)
HOU) TO BE6IN THE LETTEK..
Hvernig býður maður bróður sínum
í keppni um Ijótasta hundinn? Ég
veit ekki einu sinni hvernig ég á að
byija bréfið.
Pear Ugly,
Kæri Ljótur, ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Tígull út er sagnhafa vissu-
lega í hag, en leysir þó ekki öll
vandamál. Spilið kom upp í úr-
slitaleik ítala og Bandaríkja-
manna á HM 1979, báðir sagn-
hafar fengu út tígul. Pittala
vann spilið en Goldman tapaði
því.
Norður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ ÁD73
¥ G10764
Vestur J Á764 Austur
♦ 9 ♦ 8652
¥K82 lllll ¥ ÁD5
♦ D1085 Suður ♦ 92
+ A6532 4 KG104 ♦ D1094
¥93
♦ KG3
♦ KG87
Vestur Norður Austur Suður
— 1 hjarta Pass 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 3 grönd
Pass 4 spaðar Pass Pass
Pass
Útspil: tígulúmma.
Þao blasir við að spila hjarta
í öðrum slag. Á báðum borðum
stakk vestur upp kóng og tromp-
aði út. Báðir sagnhafar drápu
heima og spiluðu aftur hjarta.
Gegn Pittala reyndi austur nú
lauftíuna, gosi, ás og trompað.
Trompásinn upplýsti leguna, en
Pittala hafði völdin. Hann fríaði
hjartað með trompun, stakk lauf
hátt og spilaði fríhjarta. Austur
trompaði, en Pittala henti tapara
og lagði upp.
Gegn Goldman spilaði Franco
í austur tígli þegar hann komst
inn á síðara hjartað. Goldman
drap í blindum og gat nú unnið
spilið auðveldlega með því að
trompa hjarta. En hann vissi
ekkert um 3—3 leguna og ætl-
aði að tryggja vinning í 3—2
tromplegu með því að taka
trompin og láta hjartagosann
rúlla. Hann lagði því niður
spaðaás. Trompaði svo hjarta,
fór inn á blindan á trompdrottn-
ingu og spilaði fríhjörtunum.
Franco henti tvívegis laufi, stakk
svo tígulinn sem kom næst og
spilaði laufi. DeFalco í vestur
fékk því fjórða slag vamarinnar
á tígul!
í æfmgaleik landsliðsins og
Pólaris var Sævar Þorbjömsson
sagnhafi. Hann fékk fyrsta slag-
inn á tígulgosa og spilaði strax
hjarta. Austur átti slaginn og
sá fram á það að hjartað myndi
fríast auðveldlega og besta von-
in væri að stytta blindan.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á heimsbikarmótinu í Rotter-
dam í Hollandi, sem nú er að
Ijúka, kom þessi staða upp í skák
hins sókndjarfa heimamanns
John Van der Wiel, sem hafði
hvítt og átti leik, og Jan Ehlvest,
Sovétríkjunum. Síðustu leikir voru
17. f4-f5 - c5-c4 og nú fléttaði
hvítur stórglæsilega:
18. &g6! - cxd3 19. gxh7+ -
Kh8 20. Rd5+ - fS 21. Dg4!!
(óvenjulega glæsilegur leikur.
Hvítur ætlar að svara 21. - exd5
með 22. Hxf6!! - Bxg4 23. Hf7+
og mátar og sama verður upp á
teningnum eftir 22. - Bxf6 23.
Bxf6+ - Kxh7 24. Dh5+) 21. -
e5 22. Dg8+! - Hxg8 23.
hxg8=D+ - Kxg8 24. Rxc7.
Hvítur hefur unnið skiptamun
og eftir u.þ.b. 20 leikja vonlausa
baráttu gafst svartur upp. Af þeim
rúmlega þijú þúsund fléttum og
fórnum sem ég hef birt hér í skák-
hominu undanfarin þrettán ár slá
fáar þessari við.