Morgunblaðið - 25.06.1989, Síða 16
16 C MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 1989
- 6000 -
aukaspurningar
fyrir Trivial Pursuit á hálfvirði.
Fæst í öllum bóka- og
leikfangaverslunum um land allt.
Barnasuudbolir og bikiní
í miklu úrvali
5^ % • TV Ts dkz
únúF"
Sími 82922
Karvel Sigurgeirs-
son - Minningarorð
Fædd 2. ágríst 1908
Dáinn 19. júní 1989
Þann 19. júní síðastliðinn lést á
Landakotsspítala tengdafaðir minn,
Karvel Ágúst Sigurgeirsson. Karvel
var fæddur á ísafirði 2. ágúst árið
1908, sonur hjónanna Sigurgeirs
Kristjánssonar og Bjarneyjar Ein-
arsdóttur. Þar ólst hann upp í hópi
þrettán systkina þar sem mikið
reyndi á dugnað og samheldni því
systkinin misstu föður sinn ung að
árum, árið 1925 þegar Karvel var
sautján ára að aldri. Marga hef ég
heyrt minnast ósérhlifni og fórnfýsi
Karvels á þessum árum og þess
mikla stuðnings sem hann veitti
móður sinni þá og alla tíð síðan.
Sjálfsagt var að allir sem vettlingi
gátu valdið legðu sitt af mörkum til
þeirra starfa sem heimilið krafðist
og leituðust við að afla tekna til að
sjá fjölskyldunni farborða. Þar lét
Karvel sannarlega ekki sitt eftir
liggja og hóf þegar á unga aldri að
stunda sjómennsku, fyrst á vélbátum
en síðan á togurum, og hélt þeim
störfum áfram langt fram á fullorð-
insár. Einhverju sinni heyrði ég
Karvel minnast þess hversu heillaður
hann hefði orðið af stórum og glæsi-
legum seglskipum sem fyrir augun
bar á ísafirði er hann var ungur
drengur og mest hefði sig langað
til að freista gæfunnar á slíku skipi
og láta það bera sig um heimshöfin.
Ég minnist þessa sérstakiega vegna
þess að mér þótti slíkir æskudraum-
ar ákaflega fjarlægirþeim lífsreynda
og raunsæja manni sem mér fannst
einna lausastur við draumlyndi og
rómantík allra manna sem ég hef
kynnst um dagana. Aldrei heyrði ég
Karvel setja á langar ræður um sjó-
mennskuferil sinn, og víst er um það
að á efri árum horfði hann ekki til
þess tíma með neinum söknuði. Fyr-
ir fáeinum árum átti ég þess kost
TOEFL
- NÁMSKEIÐ -
TOEFL prófíð er talsvert frábrugðið þeim hefð-
bundnu prófum, sem tíðkast hafa á íslandi, og ein-
kenni þess er ^inkum að farið er nákvæmlega eftir
fyrirmælum um útfyllingu prófblaða, hver prófþátt-
ur hefur nákvæmlega afmarkaðan tíma og öll fyrir-
mæli eru á ensku.
TOEFL námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja
afla sér haldgóðrar undirstöðu undir prófið og vilja
þjálfa sig í próftökunni. Námskeiðið leggur áherslu
á hlustun, málfræði, lestrarskilning og orðaforða.
Að auki verður lögð áhersla á þá sérstöku próf-
tækni, sem þarf til að ná góðum árangri í TOEFL
prófinu og m.a. verða tekin allt að sex æfingarpróf.
Námskeið hefst þann 10. júlí og tekur 30 klst.
Leiðbeinandi verður Bjarni Gunnarsson M.A.
Bjarni hefur sérmenntun á sviði enskukennslu og
hefur m.a. unnið við að leggja TOEFL próf fyrir.
Þetta námskeið er nauðsynlegt fyrir alla þá,
sem vilja ná góðum árangri á TOEFL prófmu!
MÁLASKÓLINN,
Borgartúni 24,
símar 687590 og 625566.
JCB BELTAVÉIAR
Einstakt tækifæri
Getum útvegað JCB 820 HD
sýningarvélar, árgerð 1988, á
einstöku verði.
Búnaður:
1000 I norsk grjótskófla
600 mm belti
„Medium dipper"
3,3 km keyrsluhraði
1,22 m
að kynnast nokkuð náið þessum
kafla í ævi Karvels er hann svaraði
spumingum um togarasjómennsku
sem þjóðháttafræðingar lögðu fyrir
gamalreynda sjómenn. Þá varð mér
betur ljóst en áður hvers konar
mannraunir togarasjómenn máttu
iðulega þola á þessum árum, erfiða
og hættulega vinnu, illan aðbúnað
og langar fjarvistir frá ástvinum úti
á reginhafi þar sem ófriður geisaði
og hætturnar voru alls staðar nálæg-
ar. Öllu þessu tók Karvel af full-
komnu æðruleysi og samdi sig
átakalaust að þeim leikreglum sem
þarna giltu.
Karvel var búsettur á ísafirði til
ársins 1944 er hann fluttist til
Reykjavíkur. Árið áður hafði hann
kvænst Sigríði Þórðardóttur frá
Hvammstanga sem þá starfaði við
símstöðina á ísafirði. Þar var erfitt
fyrir efnalítið aðkomufólk á þeim
árum að koma undir sig fótunum í
Reykjavík. En Sigríður og Karvel
festu þegar kaup á íbúð og unnu
síðan að því samhent alla tíð að búa
í haginn fyrir sig og börnin. Dóttir
þeirra er Sigríður, sjúkraliði, fædd
1949, gift þeim sem þetta ritar.
Fóstursonur Karvels og sonur
Sigríðar er Þór Magnússon, þjóð-
minjavörður, fæddur 1937, kvæntur
Maríu Heiðdal. Þór ólst upp hjá
móður sinni og fósturföður frá tólf
ára aldri. Barnabörnin eru fimm tals-
ins.
Ég minnist margra samveru-
stunda á heimili Karvels og Sigríðar
á Bárugötu þar sem ævinlega var
tekið á móti vinum og vandamönnum
af einstæðum höfðingsskap og gest-
risni. Eftir langa dvöl í útlöndum
var mikið tilhlökkunarefni að koma
þangað og njóta þeirrar alúðar sem
þau hjónin bjuggu yfir í svo ríkum
mæli. Hjónaband þeirra Sigríðar
varð langt og farsælt en Sigríður
lést fyrir rösku ári.
Upp úr 1960 hætti Karvel sjó-
mennsku og starfaði eftir það sem
verkamaður í Reykjavík meðan
starfsþrekið entist eða allt fram á
áttræðisaldur. Þótt líkamlegir kraft-
ar færu þverrandi síðustu árin var
hugurinn síungur og vakandi allt til
loka.
Karvel var ákaflega heilsteyptur
maður og gerði miklar kröfur til
sjálfs sín. Að eðlisfari var hann frem-
ur dulur og ómannblendinn en gat
verið ræðinn og gamansamur í vina-
hópi. Best naut hann sín þó meðal
fjölskyldunnar og segja má að hún
hafi átt athygli hans og umhyggju
óskipta. Þess nutum við hjónin vel
og lengi og ekki síður börnin okkar
nú síðustu árin. Fyrir það allt viljum
við þakka af heilum hug.
Síðustu mánuðina átti Karvel við
alvarlegt heilsuleysi að stríða. Hann
lét þó hvergi bugast og fylgdist af
áhuga með málefnum líðandi stund-
ar og horfði ótrauður fram á veg-
inn. Kvöldið áður en hann lést heim-
sótti ég hann á Landakotsspítala og
okkur varð venju fremur skraf-
dijúgt. Ég vissi að ég mundi gleðja
hann með því að segja honum frá
skemmtilegum tilsvörum eða at-
hugasemdum barnabarnanna. Og
frásögnin var þessi: Kvöldið áður
höfðum við horft saman á sjónvarps-
dagskrá um Gunnar Gunnarsson
skáld. Brugðið er upp leiknu atriði
þar sem skáldið horfist í augu við
skelfingu heimsstyijaldar og ákallar
guð fullur efa og örvæntingar. Og
þá verður litlu dótturdótturinni á
orði: „Pabbi, hann veit ekki að guð
er til.“ Okkur var báðum ljóst að á
þessari stundu var ekkert betur við
hæfi en þetta barnslega trúartraust.
Jón Hilmar Jónsson.