Morgunblaðið - 12.08.1989, Blaðsíða 27
.M,Ofe(pUNl?>A»I» ^AU(pA,Rlj)AGVR »12, ÁG,Úi? T 1089
fclk í
fréttum
KVIKMYNDIR
Hárrétt hjá Keaton
ÁST OG LEIKLIST
Vinkona
prinsins
Ulrika Jonsson er sænsk stúlka
sem flutti 14 ára gömul til
Englands. Hún fékk síðar meir
starf sem ritari á sjónvarpsstöð en
undir niðri blundaði draumur um
það að verða leikkona. Fyrr á þessu
ári birtu bresku blöðin frásagnir
af skammvinnu ástarævintýri
þeirra Ulriku og Játvarðs Breta-
prins en hann hefur einnig dreymt
um frama innan leiklistarinnar og
tekið þátt í áhugamannasýningum.
Þótt Ulriku þætti miður að dag-
blöðin fjölluðu um einkalíf sitt hafði
það þó í för með sér að yfirmaður
hennar á sjónvarpsstöðinni gerði
hana að veðurstúlku en svo nefn-
ast þær brosmildu stúlkur sem
flytja Bretum veðurfregnir með
morgunkaffinu. Uirika er afar án-
kærasta en gerir sér í staðinn von-
ir um að starfið á skjánum muni
auðvelda henni að láta draum sinn
um að verða leikkona rætast.
LONDON
Jerry Hall
vekur
athygli
Fyrirsætan Jerry Hali er glæsi-
leg sama hveiju hún klæðist.
Það sást þegar hún mætti i þessum
kanarígula búningi í samkvæmi í
London nýlega. Það skal tekið fram
að flestir gestirnir mættu í áber-
andi skrautlegum fötum.
ægð í sínu nýja starfi þótt því fylgi
að hún þurfi að fara á fætur klukk-
an hálf þijú á hveijum morgni.
Hún hefur því lítinn tíma fyrir
Bandaríkjamaðurinn Michael Keaton leikur Leðurblökumanninn, Bat-
man, í samnefndri mynd sem virðist ætla að slá öll aðsóknarmet þar
í landi. Jafn vel er talað um að svonefnt Batman-æði hafi runnið á ungl-
inga þar í landi. En þær stúlkur sem hafa fallið fyrir leikaranum vita
fæstar að í myndinni var hann með hártopp vegna þess að hans eigið hár
er nokkuð farið að þynnast. Keaton notar þó ekki hártoppinn utan kvik-
myndaversins heldur er hann hrifnari af sínu eigin hári.
Michael Keaton
eins og hann á
að sér að vera
og i hlutverki
sínu sem Leð-
urblökumaður-
inn.
*
Reuter
Hassanal Bolkiah, soldán af Brunei, heilsar gestum sínum á manndómsvígsluhátið sonar síns. Við hlið
soldánsins sitja eiginkonur hans tvær, Raja Isteri Pengiran Anak Saleha og Pengiran Isteri IIajjah
Mariam. ________________
MANNDÓMSVÍGSLUR
Mikið um dýrðir í Brunei
Mikið er um dýrðir á mann-
dómsvígsluhátíð Al-Muh-
tadees Biilahs prins af Brunei nú í
vikunni. Þar eru samankomnir sex
þjóðarleiðtogar ríkja í Suðaustur-
Asíu auk föður prinsins, Hassanals
Bolkiahs, soldáns af Brunei. Hátíðin
hófst 3. ágúst og stendur í níu daga
en hún er haldin til að fagna því
að prinsinn skuli tekinn í fullorðinna
manna tölu og í minningu þess er
hann var umskorinn fyrir nokkrum
árum.
Fjögurra alda hefð er fyrir slíkri
hátíð í Brunei. Múslímaprestar
sungu messu og trumbur og semb-
alar hljómuðu þegar tugir lífvarða
báru lensur, sverð, 'skildi, kerti og
konungsgersemar prinsins unga inn
í höll soldánsins. Þar sat hinn 15
ára gamli prins hljóður í hásæti.
Prinsinn bar gullkórónu á höfði al-
■ setta eðalsteinum og var í gullnum
og brúnum kyrtli með gullnum axl-
askúfum með rýting sér við bijóst.
Prinsinn fór svo í fararbroddi mikill-
ar fylkingar eftir götum Bandar
Seri Begawan, höfuðborgar Brunei.
Þúsundir barna veifuðu fánum og
hylltu prinsinn unga þar sem hann
sat í gullnum vagni.
Hassanal soldán er 43 ára gam-
all og á 10 börn með eiginkonum
sínum tveimur. Prinsinn er elsti
sonur Hassanals og tekur líklega
við af föður sínum.
Brunei fékk fullt sjálfstæði frá
Bretum árið 1984 og vegna mikilla
olíulinda landsins eru þjóðartekjur
á mann einar hæstu í heimi, 1 millj-
ón íslenskra króna á ári. Ibúar
landsins eru 226.000. Þeir njóta
ókeypis menntunar, heilsuþjónustu
og eftirlauna og þurfa ekki að
greiða neinn tekjuskatt. Soldáninn
af Brunei er einn auðugasti maður
heims og eru eigur hans metnar á
1450 milljarða ísl. kr.
COSPER
( Pl K
11193
Maðurinn minn er að fá sér síðdeigisblund. Hann er bílaviðgerð-
armaður.
<«
Nýtt greiðslukortatímabil
\<>’ vCH|
b-S99S'