Morgunblaðið - 12.08.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.08.1989, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDACUR 12. ÁGÚST IÖ89 St)örnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Arið hjá Voginni Næsta ár hjá Voginni (23. september til 23. október) verður viðburðaríkt, enda verða afstöður frá mörgum plánetum á Sólina. Sviptingar Þeir sem eru fæddir frá 25.-29. september fa afstöð- ur frá Júpíter og Úranusi á Sól. Þeir sem eru fæddir frá 30. sept,—3.okt. fá afstöður frá Satúrnusi, Júpíter og Úr- anusi á sól. Þeir sem fæddir eru frá 3.-8. október fá spennuafstöður frá Satúrnusi, Neptúnusi og Júpíter á Sólina. í korti þeirra sem eru fæddir frá 9. til 18. október verða spennuafstöður frá Satúmusi og Júpíter á Sól á árinu. Breýtt vindátt Þeir sem eru fæddir í síðari hluta merkisins, eða frá 19.—23. október, fá engar afstöður frá hæggengari plá- netunum á Sólina, þó líklegt sé að þeir verði fyrir áhrifum af þeim sviptingum sem eiga sér stað, því vindáttin fer einnig að snúa til þeirra og algengt er að menn hafi ein- hveijar plánetur nálægt Sól- inni. Barningur Satúrnus virðist hafa tvenns konar áhrif á framvindu. 1 fyrsta lagi virðist hann oft „frysta" eða hægja á því sem hann snertir. Honum fylgir einnig álag og oft á tíðum hálfgerður bamingur, en líkast til stafa erfiðleikar þeg- ar Satúmus er annars vegar af óraunsæi og óþolinmæði. Orku Satúrnusar fylgir sjón á hinn blákalda raunveraleika. Við vöknum við illan draum ef illa hefur verið staðið að málum. Endurmat Hið jákvæða við orku Satúm- usar er að hún getur verið uppbyggileg og gefið kost á þvi að ná áþreifanlegum árangri. Hún er góð ef við þurfum að vinna. Ný uppbygging Orka Úranusar í framvindu kallar á þörf fyrir nýjungar, spennu og frelsi. Við viljum losa okkur undan viðjum for- tíðarinnar þegar Úranus er annars vegar. Segjá má að Satúrnus og Úranus saman gefi til kynna nýja vinnu og átök í sambandi við nýja upp- byggingu, eða nýja og raun- sæja sjón á sjálfið, kannski með tilheyrandi vonbrigðum í fyrstu. Andlegur þroski Orka Neptúnusar er óljós. Oft fylgir henni leiði með hinn gráa og venjulega veraleika. Ahugi á listum, m.a. tónlist, kvikmyndum og leikhúsi, get- ur aukist, sem og áhugi á andlegum málefnum. Það má segja að helstu áhrif Neptún- usar séu þau að auka næm- leika okkar og opna augun fyrir nýjum hugmyndum. Neptúnus á Sól dregur úr ein- staklingshyggju og eykur þörfina á að hjálpa öðrum. Samdráttur ogþensla Þegar Júpíter og Satúrnus eru að verki á sama tíma skapast oft barátta, eða eining, á milli þenslu og samdráttar, bjart- sýni og svartsýni, stórhugs og varkárni. Hið jákvæða er skipulög útfærsla. Sterk orka Þegar á heildina er litið má segja að komandi tími verði viðburðaríkur hjá Vogum. Hvað úr verður fer að sjálf- sögðu eftir fyrri aðstæðum og því hvernig hver og einn heldur á málum sínum. GARPUR GRETTIR BRENDA STARR ÞIE> yiLViE) A/MIG%gam7> ) ME0 eiTUGLytrjOt, /yi!<s fr&l/yig l KÓNSUR.. — X He/RÞU NO, ÓG SNBKn OG ÞUEZT AB t ÞettA EKKt, ée>SHl/IKbi 1 elCkJ *"**-*& I ZÉTTEtNSOóV^*--- sl/kt ee til / /HOKeuAi /yiONDU/H, kóngok. LJOSKA FERDINAND SMAFOLK Hl, MARCIE..UJMAT PIP VOU PUT DOUIN FOR MOU) VOU 5PENT TOUR CHRI5TMA5 VACATIOKI7 I UJROTE ABOUT HOU) I ® VI5ITED TME MU5EUM, ANP CLEANED OUT OUR GARAéE ANP MELPEPMOM P0LI5H ALL TME SILVERWARE... Sæl, Magga. hvað skrifaðir þú um jólafríið? Ég skrifaði um heimsókn mína á safnið og að ég hreinsaði bílskúr- inn og hjálpaði mömmu að pússa allt silírið. Ég ætla að leggja á, Magga. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson „Hundurinn sem gelti ekki“ kemur víða við í brids. Oft tekur hann á sig mynd andstæðinga sem þegja þunnu hljóði í sögn- um, en hann er einnig alls stað- ar nálægur í úrspilinu. Málið er, að sumir taka eftir honum, aðrir ekki. Norður gefur; AV á hættu. Tvímenningur. Vestur Norður ♦ ÁD105 VÁ107 ♦ 3 ♦ ÁKG82 Austur *K64 ♦ G9 V KD98 ¥653 ♦ D76 ♦ K109842 ♦ 1043 ♦ D7 Suður Vestur ♦ 8732 ¥ G42 ♦ ÁG5 ♦ 965 Norður Austur Suður — 1 lauf Pass 1 spaði Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Utspil: hjartakóngur. Sagnhafi drap á hjartaás, fór heim á tígulás og svínaði spaða- drottningunni. Tók svo spaðaás og laufás og spilaði hjarta- tíunni. Nokkuð glæfraleg spila- mennska að - fría ekki laufið strax. Vestur tók á drottninguna og -spilaði tígli, og nú tapast spilið hreinlega ef vömin fær slag á lauf. Spilaranum tókst þó að bjarga sér í horn. Vissulega segir líkindafræðin að rétt sé að svína gosanum með slíkan lit, þar sem drottningin er fimmta úti. En líkindafræðin tekur ekkert tillit til geltandi eða þegjandi hunda. Sem suður gerði á hinn bóginn. Hann spurði sig: Hvers vegna dúkkaði vestur ekki hjartatíuna? Svarið blasir auðvitað Við um leið og spurningin er borin fram: Vestri er ekkert illa við að hleypa sagnhafa heim til að svína í lauf- inu. Sagnhafi lagði því niður laufkónginn og pakkaði saman 11 slögum. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Franska vörnin hefur sjaldan orðið fyrir þyngri áföllum en nú á afmælisári byltingarinnar. Nýj- asta höggið var greitt hinum var- færna sovézka stórmeistara Serg- ei Dolmatov á öflugu móti í Cler- mont Ferrand í Frakklandi í júlí: Hvítt: Sax, Ungverjalandi (2.580 stig), Svart: Dolmatov (2.610 stig), Frönsk vöm. 1. e4 - e6, 2. d4 - d5, 3. Rc3 - Bb4, 4. e5 - c5, 5. a3 - Bxc3+, 6. bxc3 - Re7, 7. Dg4 - 0-0, 8. Bd3 - Rd7. (Það hafa a.m.k. þrír stór- meistarar, Hubner, Uhlmann og Psakhis, legið í valnum eftir 8. - Rbc6?, 9. Dh5 - h6, 10. Bxh6! á þessu ári. Dolmatov reynir að endurbæta þetta.) 9. Rf3 - f5, 10. Dh3 - Rb6, 11. a4 - c4, 12. Be2 - a5, 13. Hgl! - De8, 14. g4 - Rxa4, 15. gxf5 - Rxf5, 16. Rg5 - h6, 17. Bh5 - Dc6, 18. Bg6! - Re7 St ta mm pf 19. Rh7! - Rxg6, 20. Rxf8 - Kxf8 (Svartur lætur af hendi skiptamun, því 20. - Rxf8, 21. Bxh6 - g6, 22. Bxf8 er alveg vonlaust.) 21. Hxg6 - De8, 22. Dg3 og Dolmatov gaf þessa von- lausu stöðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.