Morgunblaðið - 12.08.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.08.1989, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12, ÁGÚST 1989 Miniiing: Oktavía Jónasdóttir frá Leysingjastöðum Fædd 14. júní 1912 Dáin 2. ágúst 1989 Oktavía Jónasóttir fæddist hinn 14. júní árið 1912 að Marðarnúpi í Vatnsdal, Austur-Húnavatnssýslu. Hún var dóttir Jónasar Bergmann Guðmundssonar og konu hans, Kristínar Guðmundsdóttur. Árið 1938 giftist hún Halldóri Jónssyni frá Brekku í Húnaþingi, síðar bónda á Leysingjastöðum. Þau eignuðust einn son, Jónas Halldórs- son, en hann fæddist 10. maí árið 1936, og fórst í hörmulegu slysi hinn 23. ágúst 1973. Jónas og kona hans, Ingibjörg Baldursdóttir, eign- uðust 4 böm, tvíburana Oktavíu og Sigríði, Þórkötlu og Baldur. Auk Jónasar ólu þau hjónin upp tvö fóst- urbörn, Ástu Margréti Gunnars- dóttur, nú búsetta á Siglufirði, og Jón Tryggva Kristjánsson, sem býr í Garðabæ. Halldór Jónsson lést í janúar 1983, þá 79 ára að aldri. Fyrstu hjúskaparárin vora þau Oktavía og Halldór búsett á Akri, þar sem Halldór var ráðsmaður hjá Jóni Pálmasyni alþingismanni, en árið 1947 fluttu þau að Leysingja- stöðum i Húnaþingi, en þá jörð höfðu þau keypt árið 1938. Jónas sonur þeirra, sem þá var 10 eða 11 ára gamall lærði snemma að tefla, og kom fljótlega í ljós að þar var afburða skákmaður á ferð. Þrátt fyrir annir við sveitastörf, og þá einangrun sem þeim fylgdi, varð Jónas 5 sinnum skákmeistari Norð- urlands, og oft komu frægir skák- t Ástkær móðir okkar, KARÓLÍNA SIGURÐARDÓTTIR, Vestmannabraut 73, andaðist í sjúkrahúsi Vestmannaeyja fimmtudaginn 10. ágúst. Geirlaug Jónsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Sigurður Jónsson. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, AÐALHEIÐAR M. JÓHANNSDÓTTUR, Stóragerði 38. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki öldrunarlækningadeildar Borgarspítalans. Guðmundur Hallgrímsson, Jóhanna H. Gunnarsd. Hinz, Hans Gunnar Hinz, Ingibjörg Sigurðardóttir, Sverrir S. Gunnarsson, Sigríður H. Gunnarsdóttir, Hörður S. Gunnarsson, Ása Sólveig, Aðalheiður Birna Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýju vegna andláts ást- kærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, BENEDIKTS BOGASONAR verkfræðings og alþingismanns. Sérstakar þakkir færum víð Borgaraflokknum. Unnur S. Magnúsdóttir, Magnús G. Benediktsson, Birgitta Thorsteinson, Hólmfrfður Benediktsdóttir, Þorgils Ingvarsson, Unnur Ylfa Magnúsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐLAUGS STEFÁNSSONAR, Helgafellsbraut 21, Vestmannaeyjum. Inga og Ólafur M. Kristinsson, Guðfinna Guðlaugsdóttir, barnabörn og langafabarn. t Þökkum innilega vináttu, hlýhug og samúð vegna fráfalls ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, sonar, bróður og afa, MAGNÚSAR ÞÓRARINS GUÐMUNDSSONAR skipstjóra, Ólafsvík, er fórst með Sæborgu SH 7. mars sl. Elísabet Mortensen, Maríanna Björg Arnardóttir, Sigurður Hafsteinsson, Hafrún Freyja Sigurðardóttir, Guðmundur Magnússon, Magðalena Magnúsdóttir, Guðmundur Þórarinsson, Magðalena Kristjánsdóttir, Elisabet Þórdís Guðmundsd., Ágúst Tómasson, Kristján Guðmundsson, Kristjana Árnadóttir, Margrét Rögnvaldsdóttir. menn heim að Leysingjastöðum til að tefla við Jónas. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að dveljast nokkur sumur í sveit á Leysingjastöðum hjá þessu heiðursfólki. Mér er þá minnisstætt er ég kom þangað í fyrsta sinn árið 1962, þá 9 ára gamall, til sum- ardvalar. Heimilsfólkið tók vel á móti mér eins og þeirra var von og vísa, og var þessi fyrsta heimsókn mín vísirinn að ógleymanlegum kynnum við fólk sem kunni að meta fleira en veraldleg gæði. Á þessum áram var margt; heim- ili á Leysingjastöðum, því auk þeirra sem getið er hér að ofan bjuggu tvö gamalmenni á heimilinu, og man ég einungis eftir þeim sem Fríðu og Júlíusi. í þá daga var minna um elliheimili en nú er, og reyndi því á sveitunga með dvalar- stað í ellinni. Þrátt fyrir að margt Fæddur 26. ágústl966 Dáinn 30. júlí 1989 Það er erfitt að trúa og sætta sig við að einn besti vinur manns sé hrifinn á brott aðeins 23 ára að aldri. Já, Raggi minn er dáinn. Ég var að enda við að setja bréf í póst til hans þegar hringt var í mig og mér sagt frá slysinu. Þó svo ég hafi þekkt Ragga í mörg ár var það ekki fyrr en rétt eftir páska, þegar hann bauð mér í fyrstu flugferðina, að við urðum perluvinir. Aldrei hvarflaði það að mér að kvöldið áður en ég fór út yrði okkar síðasta kveðjustund. Raggi var einn af þeim sem öllum þykir vænt um, hann vann hug og hjörtu allra sein horium kynntust. Það flnnst mér heldur ekkert skrítið, það var alltaf svo gott að tala við hann. Þeir voru ófáir tímarnir sem við eyddum í að spjaila um lífið og tilveruna. Hann var einn sá einlægasti og traustasti vinur sem ég hef átt. Það er sárt til þess að vita að hafa hann ekki lengur á meðal okkar, en ég vil trúa því að það sé tilgangur með þessu öllu og Birting af- mælis og minningar- greina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldsláust. Tekið er við greinum á rit- sljóm blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. væri í heimili dró Oktavía aldrei af sér við útiverkin, og er það mér afar minnisstætt hve mikil vinnu- gleði hennar var við hin daglegu störf, hvort sem var í heyskap, þar sem öll tún vora hreinrökuð eftir vélarnar til að ekkert færi til spill- is, eða við veiði í Hópinu, þar sem hún lagði net og dró silung í soðið í mörg ár. Aldrei brást það að Otta vitjaði um netin kvölds og morgna á meðan veiðitíminn stóð, og skipti þá ekki máli hvemig viðraði. Það var sérstætt við þessa veiði, að allt- af óð hún út í ískalt vatnið, og ekki vora vöðlur notaðar nema endram og eins. Rafvæðing sveita var í fullum gangi um þetta leyti, og kom raf- magn að Leysingjastöðum árið 1965. Fram að þeim tíma var yfír- leitt notast við steinolíulampa og kerti til lýsingar, en við elda- mennsku og bakstur var notuð for- láta kokseldavél. Viðbrigðin við að koma úr Reykjavík í sveitina við þessar að- stæður vora geysileg, auk þess sem þetta þótti mikið ferðalag í þá daga. Það hvíldi ævintýrablær yfír bæn- um þeirra Ottu og Halldórs, og uðra til margar kynjamyndir í huga borgarbarnsins þegar bjarmi frá kertaljósi varpaði smá ljósglætu út á hlað, út frá eldhúsglugganum þar sem oftast var setið þegar tími gafst til, á kvöldin. Það var margt brallað á Leys- ingjastöðum í þá daga, og mætti rifja upp margár sögur af þeim vettvangi. Ekki er það þó meining- in, en eitt atvik nefndi Otta oft eft- ir að dvöl minni á Leysingjastöðum lauk, en það var þegar tveir ungir piltar tóku upp á því að sjóða sér egg í gömlum niðursuðudósum þeg- ar þeir vora sendir í hænsnakofann að kvöldi hvers dags. Var þetta hin honum sé ætlað æðra hlutverk ann- ars staðar. Kveð ég góðan vin með söknuði. Fjölskyldu hans sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Kaupmannahöfn, Helga Þórdís Fjöldi hugsana flaug í gegnum huga okkar er við heyrðum að lítil flugvél hefði farist seinni part sunnudagsins þrítugasta júlí, og með henni ungur maður. Þetta voru óþægilegar hugsanir og með von- inni var þeim ýtt í burtu. Mánudag- urinn rann upp heiðskír og fagur. En það dimmdi snögglega því okkur var færð sú harmafregn að hann Raggi vinur okkar og félagi væri dáinn. í fyrstu greip um sig vantrú. Ekki hann Raggi okkar. Ekki hann Raggi sem við þekktum, alltaf bros- andi og alltaf tilbúinn í allt. Kaldur raunveruleikinn skall framan í okkur og reiðin varð van- trúnni sterkari. Vanmáttug reiði sem beindist að einhveiju sem við vitum ekki hvað er. Af hveiju hann, af hveiju núna? Ungu fólki er ekki ætlað að deyja heldur á það að eiga framtíðina fyrir sér, sjá drauma sína rætast og verða hamingjusamt. En hver sem öll okkar áform eru þá ráða lífið og dauðinn. Kynni okkar af Ragga voru ekki löng í áram talið. Við kynntumst honum fyrst er hann fór að venja komur sínar á Reykjavíkurflugvöll og stunda eitt aðal áhugamál sitt, flugið. Hann iðaði af lífi og bros hans og glettnar athugasemdir hans vörpuðu birtu sinni á ískalda morgna síðastliðins veturs er hann stundaði nám sitt á flugliðabraut- inni. Það fór ekki mikið fyrir honum Ragga en þú vissir alltaf ef hann var nálægur. Það var alltaf hægt að setjast niður með Ragga og tala. Spyija spurninga og leita svara. Þá var hinum ýmsu málum velt á alla kanta, stundum fundum við svör, stundum bara fleiri spurning- ar. Þess á milli var tekið upp létt- ara hjal því alltaf var stutt í glens og grín. merkilegasta athöfn, og átu dreng- irnir vel af soðnum eggjum þann tíma sem þetta þótti spennandi: Það lýsir Ottu vel að aldrei minntist hún á þetta meðan á því stóð, en hafði hinsvegar hið mesta gaman af eins og fyrr segir. Aldrei man ég eftir að Otta skipti skapi þrátt fyrir hin ýmsu prakkarastrik sem við dreng- irnir gerðum okkur seka um. Sá atburður sem ég hygg að hafi haft mest áhrif á hana, var án efa þegar Jónas sonur þeirra hjóna drakknaði í Hópinu árið 1973. Sorg þeirra var mikil eins og gefur að skilja, en börn Jónasar hafa ávallt sýnt Ottu mikla ástúð, og fyrir tæpum 4 áram eignaðist Þór- katla dreng, sem var skírður Jórias í höfuðið á afa sínum. Ekki er laust við að drengurinn beri svip af Jón- asi afa sínum, og er það vel. Eitt af heilræðum Ottu var, að aldrei skyldi maður sofna að kvöldi, nema sáttur við allt og alla. Víst er að hún hefur sofnað vel að loknu ævikvöldi, og kveð ég hana með þakklæti í huga, fyrir mína hönd og fjölskyldu minnar. Halldór Jónsson, eiginmaður Oktavíu var mikill fræðimaður og áhugamaður um þjóðmál. Hann átti mjög stórt bókasafn, og var það talið eitt stærsta bóksafn til sveita. Halldór var hagmæltur vel, og finnst mér vel við hæfí að hann eigi síðustu orðin í þessum fátæk- lega pistli: Sólris um fagrar og breiðar byggðir boðandi nýjan dag. Lífsgeislar speglast í daggardropum, sem dreymir um sólarlag. Fuglamir he§a morgunmessu og moldbúar fara á kreik. Allt sem vomóttin færði friðinn, fagnar á nýjan leik. Valgeir Hallvarðsson Við minnumst Ragga í þátíð, hann var. En í huga okkar er hann og þar mun minning hans lifa. Á svona stundum læðist vonleysið inn samfara sorginni. Maður skynjar hversu lítils megnugur maðurinn er, hversu lítils hann má sín gegn æðri máttarvöldum. Það hefur stórt skarð myndast í hópnum nú þegar Raggi er farinn. Skarð sem minningar okkar um góðan dreng munu deyfa en skarð sem aldrei verður fyllt. Það voru mikil forréttindi að fá að kynnast Rag;ga og eiga hann sem vin. For- réttindi sem við eram hreykin af. Við hugsum ekki oft um dauð- ann. Hann hefur verið eitthvað fjar- lægt og tákn um óbifanleg endalok. Við' verðum að trúa því að Ragg'i hafi verið fenginn til einhverra ann- arra starfa á öðram stað og að dauðinn sé aðeins færsla milli staða. Þar munum við hitta hann á ný einhvern tíma seinna og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Við biðjum að allt gott í heimin- um vaki yfir ættingjum hans og vinum, iíeiti þeim blessun sína og gefi þeim styrk. Megi minningin um góða dreng lifa. Hafi hann þökk fyrir allt og allt. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér. Hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár. Minn sáttmáli við Guð um þúsund ár. (Halldór Kiljan Laxness) Helga Þórarinsdóttir, Elín Erlingsdóttir. Ragnar Ágúst Sigurðs- son — Kveðjuorð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.