Morgunblaðið - 12.08.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.08.1989, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. AGUST 1989 Hlaupista , brott Tvær víetnamskar konur sjást hér laumast út úr Sek Kong-flótta- mannabúðunum í Hong Kong á fímmtudag. Flótta- fólkinu er haldið í búðunum þar tii það getur sannað að flótt.inn hafl fyrst og fremst verið af pólitískum ástæðum en ekki vegna fátæktar í heimalandinu. —------------- ?é|t$ r''' '•= Reuter Kína: Lífstíðardómar fyrir að smána líkneski af Maó Peking. Reuter. KÍNVERSKUR dómstóll hefiir dæmt þrjá menn í lífstíðarfangelsi, 20 og 16 ár, fyrir að ata risastórt líkneski af Maó Tsetung á Torgi hins himneska friðar í Peking bleki og málningu, meðan andóf gegn sfjórnvöldum stóð þar yfir í maí. Kvöldblað í Peking sagði, að dómurinn hefði fundið Yu Zhijian, Yu Dongyue og Lu Decheng, alla úr Hunan-héraði, seka um „and- byltingarlega skemmdarstarfsemi og andbyltingaráróður". Fangels- Verkföll á frönskum flugvöllum París. Reuter. FRANSKIR rafvirkjar sem starfa á flugvöllum þar í landi samþykktu á fímmtudag að heQa fimm daga verkfall þar eð ekki hefði verið gengið að kröf- um þeirra um hærri laun. Búist er við að farþegaflug muni rask- ast verulega um helgina sökum þessa. Talsmaður flugmálayfirvalda kvaðst búast við því að tafir yrðu einkum á ferðum flugvéla milli Bretlands og Frakklands en áhrifa verkfallsins mun að líkindum gæta víða í Evrópu. Rafvirkjamir sjá um viðhald tölvu- og ratsjárbúnað- ar sem notaður er við flugum- ferðarstjóm en þetta er í þriðja skiptið á rúmum mánuði sem þeir leggja niður störf. isdómar þessir em meðal fárra dóma, sem stjómvöld hafa greint frá opinberlega, frá því að herinn barði með harðri hendi niður and- ófið á Torgi hins himneska friðar 3. og 4. júní síðastliðinn og drap þúsundir stjómarandstæðinga. Mennirnir þrír settu upp „áróð- ursskilti“ á torginu og hentu blek- byttum og plastpokum fullum af málningu í styttuna 23. maí, að sögn blaðsins. „Þeir notfærðu sér upplausnar- ástandið í Peking til að setja upp skilti með afturhaldsáróðri, fluttu áróðursræður og stóðu fyrir and- byltingarlegri skemmdarstarfsemi á Torgi hins himneska friðar," sagði blaðið og vitnaði þar í dóms- orðin yfir mönnunum. „Þeir eiga harða refsingu skilið." Grænland: Banvænn lifr- ar sjúkdómur rannsakaður Kuupniannnhöfn. Frá N. J. Bruun, frétta- ritara Morgunblaðsins. ARFGENGUR, sjaldgæfúr lifrar- sjúkdómur hefúr orðið 30 græn- lenskum börnum að fjörtjóni á þessum áratug og verður nú gerð rannsón á hegðun og útbreiðslu hans á austurströndinni þar sem hann hefúr heijað, einkum um- hverfis Ammassalik. Ótti við veikina hefúr valdið því að í mörgum fjölskyldum hafa konur verið hvattar til að flytja til ann- arra héraða til að koma í veg fyrir að væntanleg börn deyi fyr- ir aldur fram. Engin böm, sem fengið hafa sjúkdóminn, hafa náð 12 ára aldri. Latneska heitið á honum er Cole- statia Familiaris Grönlandica og er hann afar sjaldgæfur en hefur þó greinst í nokkrum löndum auk 'Grænlands, þ. á m. Belgíu, Banda- ríkjunum, Chile og Marokkó. í bæj- unum Isortoq, Kuumiut og Kulusuk á austurströndinni óttast margir að veikin verði til þess að efnahagsleg- ur grundvöllur byggðar á stöðunum hrynji vegna fólksflótta, að sögn grænlenska blaðsins Sermitsiak. Stefnt er að því að allir 150 íbú- ar Isortoq gangist undir nákvæma heilbrigðisrannsókn sem gerð verð- ur af dönskum læknum með sér- þekkingu á bamasjúkdómum og arfgengi. Sem stendur er reynt að bjarga lífí sjö ára drengs sem er með sjúkdóminn og á að græða í hann nýja lifur í Belgíu. Reuter Bandarískur þingmaður týndur í Eþíópíu Bandarískur gervihnöttur greindi í gær öðru sinni merki sem mögulegt er að séu neyðarköll frá flugvél sem hvarf í Eþíópiu á mánudag, að sögn bandariska sendiráðsins í Addis Ababa, höfúð- borg landsins. Með vélinni var meðal ahnarra bandaríski fúlltrúa- deildarþingmaðurinn Mickey Leland sem var að kanna aðstæður í flóttamannabúðum í vesturhluta landsins. Eþiópískir björgunar- menn stefna nú á staðinn þar sem fyrra merkið var sent frá á fimmtudag en hann er í fjalllendi sunnarlega í landinu, um 200 km frá fyrirhugaðri flugleið Twin Otter-vélarinnar. Á myndinni sjást bandarískir hermenn ýta einni af fjórum Blackhawk-þyrlum, sem sendar voru til að aðstoða við leit að týndu flugvélinni, fram hjá sovéskri flugvél í Addis Ababa. Noregur: Vaxandi tap hjá stærsta tölvufyrirtæki landsins Ósló. Reuter. ROLF Skaar, stjórnarformaður tölvufyrirtækisins Norsk Data, Tugþúsundir Pólverja 1 mótmælaverkföllum Varsjá. Reuter. TUGÞÚSUNDIR Pólveija í Gdansk (Danzig) og nágrenni hennar, tóku þátt í klukkustund- arlöngu mótmælaverkfalli í gær. Vildi fólkið mótmæla gífúrlegum verðhækkunum á matvöru í síðustu viku. Talið er að alls hafi um 80.000 félagar í Samstöðu og þúsundir annarra Pólveija tekið þátt í verk- fallinu, en í fyrri viku hækkaði verð á matvöru um allt að 500%. Að sögn leiðtoga Samstöðu var þátt- takan í verkfallinu mun meiri en þejr höfðu búist við, jafnvel í verk- smiðjum þar sem Samstaða hefur ekki haft mikinn stuðning til þessa. hefúr sagt af sér. Hann stofriaði fyrirtækið fyrir 22 árum og gerði það að stórveldi i norskum iðnaði en miklar breytingar standa nú fyrir dyrum í rekstrinum. Norsk Data, sem rekið hefur verið með tapi síðustu 18 mánuð- ina, tilkynnti áfsögn Skaars á fimmtudag. Fylgdi það með, að tap- ið á fyrri helmingi þessa árs væri meira en á sama tíma 1988. í til- kynningunni sagði, að Erik Enge- bretsen, aðstoðarforstjóri Norsk Data, tæki við embætti Skaars. Búist er við, að tapið á fyrri helm- ingi þessa árs muni nema um 240 milljónum norskra króna (ríflega tveimur milljörðum fsl. kr.), en var 136 millj. nkr. (ríflega 1,1 milljarð- ur ísl. kr.) á sama tíma í fyrra. „Það er nauðsynlegt að endurskipu- leggja fyrirtækið til að komast í meiri nálægð við markaðinn og tengja betur ábyrgð og árangur í einstökum rekstrareiningum þess,“ segir Engebretsen. Er ætlunin að skipta fyrirtækinu upp í sjálfstæðar einingar. í janúarmánuði síðastliðnum voru gerðar miklar breytingar á rekstri Norsk Data og meðal ann- ars sagt upp um fimmtungi allra starfsmanna eða 800 manns. Sérfræðingar segja, að fyrirtæk- ið hafi ekki verið nægilega fljótt að bregðast við harðnandi sam- keppni á heimsmarkaðnum. Sovétmenn vilja selja MiG-29 til Vesturlanda Abbotsford í Bresku Kólumbíu. Reuter. SOVÉSKIR embættismenn, sem viðstaddir eru kanadiska flugsýningu í Abbotsford í Bresku Kólumbíu, sögðu á fimmtudag að þeir hefðu hug á að selja orrustuþotuna MiG-29 hvert á land sem er, svo framar- lega sem kaupandinn er reiðubúinn að láta 20 milljónir Bandarikja- dala fyrir eintakið. Segja Rússar að ekkert sé því til fyrirstöðu að ríki Atlantshafsbandalagsins kaupi orrustuþotuna. „Það spyija okkur margir hvort Belosvet, sem er í 108 manna við myndum selja þotuna til Banda- ríkjanna eða Kanada,“ sagði Ana- tolíj Belosvet, hönnuður hjá MiG- verksmiðjunum, í samtali við Reut- ers-fréttastofuna. „Svarið er já.“ Að vísu tók hann fram að ef af slíkri sölu yrði, væri ekki nema undirstöðubúnaður í vélinni. Að sögn Belosvets hefur orrustu- þotan, sem flogið getur á meira en tvöföldum hljóðhraða og þykir eink- ar lipur, þegar verið seld til íraks, Sýrlands, Júgóslavíu og Indlands. sovéskri sendinefnd við flugsýning- una, sagði að bandarískur vopna- sali hefði þegar sýnt vélinni áhuga í því skyni að selja hana áfram til annarra landa. „Við höfum rætt saman í Moskvu, en ekkert hefur verið ákveðið ennþá,“ sagði Belos- vet, sem vildi ekki gefa upp nafn vopnasalans. Hann sagði að breski flugherinn hefði einnnig sýnt mál- inu áhuga, en taldi að fulltrúar hans hefðu meira verið að þreifa fyrir sér í gamni en alvöru. Sovétmenn komu með tvær MiG-29 þotur til flugsýningarinnar; annars vegar eins sætis orrustuþotu og hins vegar tveggja sæta þjálfun- arvél. Þetta er í fyrsta skipti sem orrustuþota sovéska flughersins kemur til Norður-Ameríku. Sovétmenn sýna einnig An-225 flutningavél á sýningunni, en það er stærsta flutningaflugvél heims- ins, með tvöfalt meiri burðargetu en júmbóþotan Boeing 747. Að sögn sovésku fulltrúanna hyggjast þeir leita frekar fyrir sér um sölu á so- véskum flugvélum á næstu árum. Anatolíj Kvottsjúr, flugmaðurinn sem lifði af brotlendingu MiG-29 vélar sinnar á Parísarflugsýning- unni fyrr á árinu, og Valeríj Menítskíj, yfirtilraunaflugmaður MiG-29 orrustuþota eins og Sovétmenn segjast vera reiðubúnir að selja til Vesturlanda. MiG, kváðust báðir vonsviknir yfir því að bandarískir og kanadískir flugmenn orrustuþotunnar F-18 Hornet skyldu ekki hafa tekið áskorun sinni um að skiptast á þot- um við sig í eitt flug. Sovéska sendi- nefndin bauð þetta í síðustu viku en kanadíski flugherinn afþakkaði boðið. Að sögn bandarískra stjórn- arerindreka er flugher Banda- ríkjanna ennþá að velta boðinu fyr- ir sér. F-18 Hornet er að mörgu leyti sambærileg við MiG-29, en hver þeirra kostar á bilinu 27-35 milljón- ir Bandaríkjadala eftir því hvaða rafeindabúnaður er um borð. Sú tegund MiG-29, sem Sovét- menn selja úr landi er sérstaklega ætluð til útflutnings og því ekki jafn vel búin tækjum og þær, sem Sovétmenn nota sjálfir. Hins vegar segjast Sovétmenn geta búið þot- una samkvæmt séróskum hvers kaupanda. Vélin getur borið allt að sex flugskeytum til loftbardaga, 30 mm fallbyssu, auk sprengna og eld- flauga til árása á skotmörk á jörðu niðri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.