Morgunblaðið - 12.08.1989, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1989
5
t
í
í
i
i
I
ÍSLENSKU fyrirtækin sem
stjórnvöld í Mexíkó hafa lýst
áhuga á að eiga viðskipti við
eru, að sögn Ingjalds Hannibals-
sonar framkvæmdastjóra Ut-
flutningsráðs íslands, Icecon,
Marel, Meka, Isvélar, Sæplast,
Plastos, Kassagerðin, Plastþrent
og Traust-verksmiðja. Þessi fyr-
irtæki framleiða vélar og tæki
fyrir sjávarútveg og sinna mark-
aðsráðgjöf og útfluningi á þekk-
ingu á honum.
í viðræðum Ólafs Ragnars
Grímssonar fjármálaráðherra við
mexíkönsk stjórnvöld, sem sagt var
frá í Morgunblaðinu á fimmtudag,
kom fram að Mexíkanar þurfa á
aðstoð að halda í sjávarútvegi þar
sem þá skortir reynslu í meðferð
og vinnslu aflans og á sviði mark-
aðssetningar og vörudreifingar. Því
var ákveðið að koma á fót íslenskum
útflutningsmarkaði í landinu.
„Tiltekin fyrirtæki verða látin
vita af áhuga mexíkanskra stjórn-
valda í dag, sagði Ingjaldur Hanni-
balsson í samtali við Morgunblaðið
í gærmorgun. í framhaldi af því
verður haldinn fundur með þessum
fyrirtækjum þar sem Olafur Ragnar
Grímsson mun gera nánari grein
fyrir viðræðum sínum við mexí-
kanska ráðamenn."
Stjórnvöld í Mexíkó óskuðu eftir
ítarlegri skýrslu með útfærslu á
hugsanlegu sölumagni, söluverði,
þjónustumöguleikum og greiðslu-
skilmálum að sögn fjármálaráð-
Ríkisútvarpið:
Fimm sækja
um stöðu tón-
listarstjóra
FIMM umsækjendur eru um
stöðu tónlistarstjóra Ríkisút-
varpsins. Tveir umsækjendanna
óska nafhleyndar.
Þeir sem ekki óska nafnleyndar
eru Bergþóra Jónsdóttir, Guðbrand-
ur Einarsson og Sigurður Einars-
son. Núverandi tónlistarstjóri
Ríkisútvarpsins er Jón Örn Marin-
ósson. Hann lætur af störfum 1.
septmber.
Umsóknirnar fimm voru lagðar
fyrir útvarpsráð í gær. Næsti fund-
ur ráðsins er næstkomandi föstu-
dag.
herra. Skýrslan á að vera tilbúin í
byrjun september og verður þá
kynnt fyrir mexíkönskum stjórn-
völdum.
Ekki er ólíklegt að fleiri fyrir-
tæki en þau sem þegar hafa verið
nefnd eigi eftir að koma inn í mynd-
ina að sögn Ingjaldar Hannibalsson-
ar. Hann nefndi Sölusamtök lag-
metis og jafnvel fleiri íslensk fyrir-
tæki með viðskipti í Bandaríkjun-
um. Hann sagðist telja víst að Mex-
íkanar hefðu áhuga á Bandaríkja-
markaði.
Verðbólgan
róm 20%
VÍSTALA framfærslukostnaðar
var 1,4% hærri í ágústbyrjun en
hún var í júlí eða 128,5 stig mið-
að við grunninn 100 i maí 1988.
Samsvarandi vísitala miðað við
eldri grunn er 315 stig. Undan-
farna þijá mánuði hefúr vísitaian
hækkað um 5,1% og jafngildir sú
hækkun 21,9% hækkun á heilu
ári, en sé tekið mið af síðastliðn-
um 12 mánuðum liefur fram-
færsluvísitalan hækkað um
17,6%.
Af þessari 1,4% hækkun vísi-
tölunnar í júlímánuði má nefna að
1,8% hækkun á matvöru olli um
0,4% hækkun hennar. Hækkun
áfengis um 8,3% þann 19. júlí olli
0,1% hækkun og 10,8% hækkun
tóbaks sama dag olli 0,2% hækkun.
Hækkun á ferðalögum olli 0,3%
hækkun og verðhækkun ýmissa
annarra vöru- og þjónustuliða olli
0,6% hækkun. Á móti kemur lækk-
un fjármagnskostnaðar sem olli um
0,2% lækkun á vísitölunni.
Alþjóðasamband verslunarmanna:
Framkvæmdastjórnin fundar í Reykjavík
FRAMKVÆMDASTJORN Alþjóðasambands
verslunarmanna hélt fund sinn í Reykjavík fyrri
hluta þessarar viku. Þar var einkum rætt um
undirbúning næsta þings sambandsins, sem fara
á lram í San Fransisco í Bandarikjununi árið
1991.
í Alþjóðasambandi verslunarmanna eru rúmlega
9 milljónir manna í um 300 aðildarfélögum í 83
ríkjum. Fimm manna framkvæmdastjórn sambands-
ins heldur fundi tvisvar á ári og er þetta í fyrsta
skipti sem slíkur fundur er haldinn hér á Iandi.
Drýgið tekjumar!
Endurvinnslan hf. tekur við einnota öl- og
gosdrykkjaumbúðum gegn skilagjaldi.
Á móttökustöðum er skilagjaldið greitt út í
hönd. Til að flýta fyrir afgreiðslu eru menn beðnir
að flokka umbúðir og setja áldósir í einn poka,
plastdósir og -flöskur í annan og einnota gler-
flöskur í þann þriðja. Móttökustaðir eru opnir
virká daga frá mánudegi til föstudags.
Á söfnunarstöðum er tekið við óflokkuðum
umbúðum. Pær eru merktar og fluttar til Endur-
vinnslunnar í Reykjavík sem sendir eiganda ávísun
fyrir skilagjaldinu í pósti. Miðað er við að menn
safni a.m.k. 100 umbúðum í einn poka áður en
honum er skilað á söfnunarstað. Upplýsingar um
afgreiðslustað og tíma eru auglýstar á hverjum
stað.
Söfnunarstaðin
Borgarnes
Ólafsvík
Grundarfjörður
Stykkishólmur
Búðardalur
Patreksfjörður
Tálknafjörður
Bíldudalur
Pingeyri
Flateyri
Suðureyri
Bolungarvík
Súðavík
Hólmavík
Hvammstangi
Blönduós
Skagaströnd
Sauðárkrókur
Siglufjörður
Ólafsfjörður
Dalvík
Húsavík
Kópasker
Raufarhöfn
Þórshöfn
Vopnafjörður
Egilsstaðir
Seyðisfjörður
Neskaupstaður
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Búðir
Stöðvarfjörður
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Höfn
Kirkjubæjarklaustur
Vík
Hvolsvöllur
Hella
Hveragerði
Laugarvatn
Stokkseyri
Þorlákshöfn
Grindavík
Endurvinnsla stuðlar að hreinna umhverfi,
heilbrigðara verðmætamati og er auk þess dágóð
búbót fyrir duglega safnara.
tmmmuMM
Nýtt úr notuðu
Móttökustaðir:
Reykjavík: Dugguvogur 2, opið kl. 13-18.
Við Jaðarsel (hverfisstöð Gatnamálastjóra), opið
kl. 13-18.
í skemmu við Eiðisgraijda, opið kl. 13-18.
Kópavogur: Við Fífuhvammsveg, opið kl. 13-18.
Hafnarfjörður: Vinnuskóli við Flatahraun, opið
kl. 13-18.
Akranes: Smiðjuvellir 3, opið kl. 9-12.
ísafjörður: Hjallavegur 11, opið kl. 20-22.
Akureyri: Við KA-heimilið, opið kl. 13-18.
Vestmannaeyjar: Kaupfélag Vestmannaeyja, opið
á verslunartíma.
Selfoss: Vörumóttaka Kaupfélags Árnesinga, opið
kl. 13-17:30.
Keflavík: Iðavellir 9B, opið kl. 14-18.
Sjávarútvcffur í Mexíkó:
Mexíkanar vilja viðskipti
við níu íslensk fyrii'tæki