Morgunblaðið - 25.08.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.08.1989, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1989 Ibúðir íyrir varnarliðið; Aðalverktakar velja samstarfsfyrirtæki Samkomulag um strand- flutningana undiritað ÍSLENSKIR aðalverktakar hafa nú valið fimm fyrirtæki til sam- starfs um hönnun 224 hermannaíbúða fyrir vamarliðið á Keflavík- urflugvelli. Þessi fyrirtæki em Verkfræðistofa Stefáns Ólafssonar, Arkitektar sf., Laufásvegi 19, Verkfræðistofan Hnit, Verkfræði- stofa Jóhanns Indriðasonar og Verkfræðistofan Hönnun. ' Samkvæmt bandarískum lögum kerfi innanhúss og utan og Verk- fer útboð á þessu verki fram í tvennu lagi. Annars vegar er ís- lenskum aðalverktökum gefinn kostur á að bjóða í það í sam- starfi við önnur íslensk fyrirtæki en hins vegar er sá möguleiki fyr- ir hendi, að keypt verði tilbúin ein- ingahús frá Bandaríkjunum. Er nú verið að bera saman þessa tvo kosti. Aðalverktakar hafa nú valið fímm fyrirtæki til að bjóða með sér í einstaka þætti hönnunar íbúð- anna, ef ákveðið verður að fara þá leið. Þessi fyrirtæki eru Arki- tektar sf., Laufásvegi 19, sem sjá mun um teikningu íbúðanna, burð- arþolsútreikningar verða í höndum Verkfræðistofu Stefáns Ólafsson- ar, Verkfræðistofan Hönnun hf. og Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar munu hanna lagna- Söluverð húseigna eykst að raunvirði SÖLUVERÐ einbýlis- og rað- húsa á höfuðborgarsvæðinu var 34-36% hærra á fyrri helmingi liðins árs en á fýrri helmingi ársins 1987. Hækkunin nemur 10-12% umfram hækkun láns- kjaravísitölu og um 17-20% umfram hækkun byggingarvísi- tölu, samkvæmt úttekt í frétta- bréfi Fasteignamats ríkisins. Raunverðshækkun náði há- marki á fyrsta ársfjórðungi 1988. Á tímabilinu hækkaði útborgun- arhlutfall einnig og fór úr 72,6% að meðaltali 1987 í 77,0% að með- altali árið 1988. Söluverð á fer- metra hækkaði um 35,8%, úr 30.751 krónu í 41.765 krónur, að meðaltali. Fleiri hús voru seld fyrri hluta 1988 en sama tíma 1987, 132 á móti 105. fræðistofan Hnit mun sjá mælir.gar og gatnahönnun. um Á gúmbát yfir N-Atlantshaf: Héldu áleið- is til Græn- lands í gær BRETARNIR þrír, sem haft hafa viðkomu hér á landi á leið sinni yfir Norður-Atlantshaf á opnum gúmbáti, héldu frá Sand- gerði áleiðis til Angmagssalik á Grænlandi í gær. Þeir munu hafa viðkomu á Patreksfirði og taka þar eldsneyti, en þeir gera ráð fyrir að siglingin þaðan til Angmagssalik muni taka um 13 klukkustundir. Gúmbátur Bretanna tók niðri á skeri þegar þeir voru að koma til hafnar í Sandgerði fyrir viku síðan, með þeim afleiðingum með- al annars að skrúfublöð á utan- borðsmótorum eyðilögðust. Þeir fengu senda varahluti frá Þýska- landi, og ætluðu að lokinni viðgerð að halda áleiðis til Græntands á miðvikudaginn, en frestuðu þá för sinni vegna óhagstæðs veðurútlits. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Skoðað í krabbagildru á bryggjunni í Vogum, þar sem aflinn reyndist 25-30 beitukóngar og 1 krabbi. Krabba- og beitukóngs- veiðar vinsælar í Vognm Vogum. KRABBA- og beitukóngsveiðar í gildrur hafa verið vinsælar hjá börnum í Vogum í sumar. Einhver hugvitssamur krakki setti tóg í krabbagildru sem lá ónotuð á bryggjunni, festi annan endann í gildruna en hinn í ljosa- staur á bryggjuendanum og síðan var veiðarfærinu varpað í sjóinn. Þar liggur gildran einhveija stund, til dæmis eina klukku- stund, yfir eina nótt eða það sem hentar hverju sinni. Krakkarnir vitja um gildrurnar með því að draga þær upp til að skoða í þær og athuga aflann. Aflinn sem hefur fengist eru krabbar, beitukóngur og mar- hnútur. Með því að taka upp notk- un á þessu veiðarfæri hefur krökkunum tekist að auka fjöl- breytnina í veiðinni~við bryggjuna þar sem hún hefur verið ufsi, koli, marhnútur og laxaseiði, en nú hafa bæst við nýjar tegundir. - EG SAMKOMULAG um aukna sam- vinnu Eimskipafélags íslands, Skipadeildar Sambandsins og Skipaútgerðar ríkisins í strand- flutningum var undirritað í gær. Samkomulagið felur í sér að unn- ið verði að gerð samnings milli þessara aðila til allt að fimm ára um samvinnu í strandflutningum, með það að markmiði að auka hagkvæmni þeirra og draga úr kostnaði við þá, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er gert ráð fyrir Skipaútgerð ríkis- ins verði lögð niður á því tímabili. Samkomulagið var undirritað af Steingrími J. Sigfússyni samgöngu- ráðherra, Guðjóni B. Ólafssyni for- stjóra Sambandsins og Herði Sigur- gestssyni forstjóra Eimskipafélags- ins. Samkvæmt því er gert ráð fyr-. ir að sérstakt samsiglingakerfi samningsaðila verði tekið upp í síðasta lagi um næstu áramót, en jafnframt verði unnið að því að endurskipuleggja þjónustu í landi með það að leiðarljósi að gera vöru- afgreiðslu fyrir strandflutningá hagkvæmari og ódýrari. Alls annast sex skip strandflutn- inga nú, og náist samningur um flutningana er gert ráð fyrir að þegar verði eitt af þremur skipum Skipaútgerðarinnar tekið úr flutn- ingunum. Hörður Sigurgestsson segir að samvinna skipafélaganna muni fyrst og fremst hafa í för með sér ávinning fyrir skattgreiðendur vegna lækkunar á kostnaði vegna reksturs Skipaútgerðar ríkisins. Ávinningur Eimskips gæti orðið sá í framtíðinni að aukin hagkvæmni næðist með flutningi á auknu vöru- magni, en nú væri þessi rekstur rekinn með halla. Bifreiðainnflutningur fyrstu sjö mánuði ársins: Ríflega helmings samdrátt- ur frá sömu mánuðum í fyrra INNFLUTNINGUR nýrra fólks- bifreiða hefiir dregist saman sem nemur 53,6% fyrstu sjö mánuði þessa árs, miðað við sömu mánuði í fyrra. Á þessum tíma hafa alls selst 4.004 fólks- bílar, en voru á sama tíma í fyrra 8.634, samkvæmt yfirliti Bílgreinasambandsins. Mitsu- bishi er mest selda tegundin með 726 selda bíla. Næstflestir seldust af gerðinni Toyota, 478, þá koma Lada og Subaru með 446 hvor tegund. Forráðamenn Svía- konungur á hrein- dýra- veiðar Karl Gústaf II Svíakonungur kom til landsins í gærdag ásamt föruneyti sínu. Konungur er hér í einkaerindum og heldur í dag austur á land á hreindýra- veiðar. Hann mun dvelja á íslandi í þrjá daga. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal bílaumboðanna, sem Morgun- blaðið ræddi við, búast yfirleitt ekki við að salan taki mikið við sér það sem eftir lifir árinu og reikna flestir með að á næsta ári muni seljast sex til sjö þús- und bílar. Flestir viðmælendur blaðsins kváðust eiga nokkuð óselt af eldri árgerðum. Hjá Heklu hf. verða nýjar árgerðir kynntar um næstu helgi og þar er gert ráð fyrir að standi á endum að árgerð 1989 verði uppseld um leið. Hjá Toyota seinkar 1990 árgerðinni þar til í október og er jafnvel búist við að 1989 bílarnir verði uppseldir í september. Ingvar Helgason hf. á nokkra bíla enn óselda, en þar er þegar hafin sala á nokkrum gerð- um af 1990 árgerð og aðrar vænt- anlegar fljótlega. Sveinn Egilsson hf. á um 200 bíla af öllum gerðum óselda og segir Þórir Jónsson for- stjóri að hann búist við að þeir seljist á næstu tveimur til þremur mánuðum. Meðal annars er verið að undirbúa að selja 40-50 Suzuki Swift með afslætti. Bílvangur á um 40 bíla af árgerð 1988. Tvö bifreiðaumboð skera sig úr hvað varðar markaðshlutdeild í sölu fólksbíla, það eru Hekla hf. með 20,7% sölunnar og lngvar Helgason hf með 15,5%. Næst koma Toyota með 11,9%, Bifreiðar og landbúnaðarvélar með 11,8%, Jöfur hf. með 9,8%, Sveinn Egils- son hf. með 7,8% og Brimborg með 7,7%. Aðrir hafa minna. Framantalin umboð hafa um 85% sölunnar og fimm þau efstu um 70%. Af pallbifreiðum undir 7.500 kg heildarþunga hefur mest selst af Toyota, 99 bílar. Það eru nánast allt bílar af gerðinni Hi Lux. Næst koma Chevrolet og Mitsubishi með 12 selda bíla af hvorri tegund. Alls var seldur 151 léttur pallbíll fyrstu sjö mánuði ársins. M.A.N. hefur selst mest stærri vörubíla, 13 bílar seldir, næst koma jafnir Mercedes Benz, Scan- ia og Volvo með 11 bíla selda. 55 þungir vörubílar voru seldir á þess- um tíma. Heildarinnflutningur fyrstu sjö mánuðina var 4.786, þar af 510 notaðir. Sex tegundir fólksbíla geta státað af meiri sölu nú en í fyrra, U.A.Z. (Rússajeppi), Isuzu, Korando, Land Rover, LMC-1500 og Renault. Talsmenn bifreiðaumboðanna búast ekki við að markaðurinn taki kipp á þessu ári. Þeir giskuðu flestir á að um sex þúsund bílar seljist í heild, sumir nefndu þó sjö þúsund. Þeir spá nokkuð misjafn- lega um næsta ár, flestir sex til sjö þúsund bíla sölu, aðrir allt upp í níu þúsund, en enginn vildi fara hærra en það. Bifreiðaumboðin hafa slíkar spár til hliðsjónar þeg- ar panta þarf bíla af næstu árgerð og er yfirleitt búið að því um þetta leyti árs. 1 (i I c I M l i k I t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.