Morgunblaðið - 25.08.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.08.1989, Blaðsíða 38
«8 38 R8f?r T8U0A ðS .91 MORGUNBLAÐIÐ KU rn 1hiflnTCfflffl IÞROTTIR FÖSTUDAGU cue/.jaFíuoíioM FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST TÍBF HAFNARBOLTI / BANDARélKIN Hafnarbohahetja sett í lífstíðarbann Hafnarboltahetjan Pete Rose, sem á flest mögnleg met í bandarískum hafnarbolta, var í gær dæmdur frá allri þátttöku í íþrótt- inni það sem eftir er ævinnar, og hefur það í för með sér að hann má ekki einu sinni selja „heita hunda“ á vallarsvæði þar sem hafn- arbolti er leikinn. Rose, sem er haldinn mikilli spilafíkn, er sakaður um að hafa veðjað á hafnarbolta- leiki, þar á meðal leiki Cincinnati Reds, en hann hefur verið fram- kvæmdastjóri þess liðs síðan 1984. Pete Rose, sem er 48 ára, á einn 'fræknasta feril að baki í hafnar- bolta serh um getur. Hann lék með Cincinnati Reds til ársins 1986, en tveimur árum áður hafði hann tek- ið við framkvæmdastjórn þess. Hann er gífurlega fíkinn í veðmál, og hefur hann lagt háar fúlgur undir þegar veðreiðar og körfu- knattleikur hafa verið annars veg- ar. Ástæðan fyrir því að hann er dæmdur í lífstíðarbann frá íþrótt- inni, er sú, að hann er sagður hafa veðjað á hafnarboltaleiki, en slíkt hefur verið stranglega bannað síðan uppvíst varð um gífurlegt hneyksl- ismál árið 1919, þegar á daginn kom að leikmönnum Chicago White Sox hafði verið mútað til að tapa úrslitaleiknum gegn Cincinnati Reds. Þetta mál hefur vakið gífurlega athygli í flölmiðlum í Bandaríkjun- um, og í gærmorgun sýndu allar stærstu sjónvarpsstöðvarnár beint frá fréttamannafundi, þar sem Rose gerði grein fyrir sínum sjónarmið- um { málinu. Hann á þess kost að áfrýja dóm- inum eftir eitt ár, og það mun hann gera. Það sem hann hefur sér til málsbóta, er að ekki er vitað til þess að hann hafi nokkru sinni gert ráð fyrir tapi sinna manna og því alltaf veðjað á sigur Cincinnati Reds. Peter Rose, sem er haldinn mikilli spilafíkn, er sakaður um að hafa veðjað á hafnarboltaleiki, þar á meðal leiki Cincinnati Reds, en hann hefur verið fram- kvæmdastjóri þess liðs síðan 1984. Framarar! Fjolmennum á votlinn. ÖLVER, . Glæsibæ. HANDKNATTLEIKUR íslendingar sækja um HM U-21 árs 1993 Handknattleikssamband íslands hefur ákveðið að sækja um heimsmeistarakeppni piltalands- liða, yngri en 21 árs, árið 1993. Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ, fór út til Vínar til fund- ar við Bernharð Lange, forseta Alþjóða handknatt- leikssambandsins, og mun leggja fram umsókn ís- lendinga. „Þetta yrði góður undirbúningur fyrir heimsmeistarakeppnina 1993 og við eigum alla möguleika á að halda þessa keppni svo vel fari,“ sagði Jón Hjaltalín. Aóalfundur íþróttakennarafélags íslands verður haldinn miðvikudaginn 30. ágúst nk. í íþróttamiðstöð ÍSÍ á Laugarvatni og hefst kl. 20.30. Efni: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Grunnstig ISI Námskeið fyrir leiðbeinendur barna og unglinga í íþróttum verður haldið í íþróttamiðstöð ÍSI í Laugardal 1 .-3. september nk. Sér- og héraðs- sambönd ÍSÍ hafa fengið allar upplýsingar. Skráning hjá ÍSÍ í síma 83377. Fræðslunefnd ÍSÍ. SIGLINGAR Guðni Dagur bestur Um síðustu helgi var haldið ís- landsmót í opnum flokki kænusiglinga á Fossvogi. í opnum flokki etja menn saman bátum af mismunandi gerð og er notuð sér- stök forgjöf til að jafna út hraða- mun bátanna. Mótið átti upphaflega að halda í Búðardal helgina 12. til 14. ágúst og höfðu 30 bátar verið fluttir þang- að í þeim tilgangi. Keppendum var skipt í tvo flokka eftir stærð bátanna. Á minni bátum sigraði Guðni Dagur Kristjánsson, Optimist-kænu með yfirburðum, hlaut hann 0 refsistig. I öðru sæti varð Ragnar Már Stein- sen sem er fjórfaldur íslandsmeist- ari á Optimist-kænu en hann náði sér ekki á strik og hlaut 14,4 refsi- stig. í þriðja sæti varð Bjarki Gúst- afsson einnig á Optimist-kænu með 17 refsistig. í flokki stærri báta gekk á ýmsu og má helst telja það að Rúnar Steinsen og Finnur Torfí Stefáns- son brutu mastrið á Star-bát sínum og misstu þar með möguleika sína á verðlaunasæti. Úrslit urðu þau að Guðjón Ingvi Guðjónsson og Gunnlaugur Jónasson sigruðu á 470-bátnum Leifi heppna með 3 refsistig. í öðru sæti varð Jóhann Helgi Olafsson á Evrópu-kænu með 17,7 refsistig og í þriðja sæti varð Óttarr Hrafnkelsson einnig á Evr- ópu-kænu með 24,7 refsistig. ínémR FOLK ■ EINAR Vilhjálmsson, spjót- kastari, mun í dag kl. 17.00 af- henda Þresti Ólafssyni, fram- kvæmdastjóra Kaupstaðar/Mikla- garðs, áritað spjót í þakklætisskyni fyrir aðstoð fyrirtækisins við íþrót- takappann. Áthöfnin fer fram í Kaupstað í Mjódd. ■ FORSALA aðgöngumiða á bikarúrslitaleik KR og Fram, sem fram fer á Laugardalsvelii kl. 14.00 á sunnudag, stendur yfir í Austurstræti og í Kringlunni frá kl. 11.00 í dag. Einnig er hægt að fá miða í Framheimilinu og KR- heimilinu. Tekið er við greiðslu- kortum. Miðaverð: 900 kr. stúku- sæti, 600 kr. stæði og 250 kr. fyr- ir börn. Fyrstu 500 vallargestirnir sem koma í Adidas skóm fá gefins sérstaka Adidas sundpoka. ■ HÓLMBERT Friðjónsson og kona hans, Dagmar, verða gestir KR og Fram á bikarúrslitaleiknum. Hólmbert annaðist þjálfun Fram- liðsins í þrjú ár og síðan KR liðsins í önnur þrjú ár. Hann mun vera eini þjálfarinn sem starfað hefur fyrir bæði félögin. ■ JÓN Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, verður heiðurs- gestur á bikarúrslitaleiknum. Hann mun heilsa leikmönnum fyrir leik og afhenda sigurlaunin að leik lokn- um ásamt Ellerti B. Schram, form- anni KSI. Forgjafarflokkur Keppendur fá í verðlaun vöruútekt í OLÍS-búðunum. 1. sæti: 15.000 kr. verðmæti; 2. sæti: 10.000 kr. verð- mæti; 3. sæti: 5.000 kr. verðmæti. Allir keppendur fá glæsilegan gjafapakka og sá keppandi sem kemst næst því að slá holu í tveim höggum á 14. braut fær í verðlaun gasgrill af fullkomnustu gerð. Obna Olís -BP golfmótið ferfram í Grafarholti, helgina 26. og 27. ágúst VERIÐ UPPSELT - SKRÁIÐ YKKUR TÍMANLEGA í G0LFSKÁLANUM GRAFARHOLTI í SÍMA 8 2815. Leiknar verða 36 holur. Keppt verð- ur í karla- og kvennaflokki án for- gjafar og einum forgjafarflokki karla og kvenna. Keppni hefst kl. 8 báða dagana. Þátttökugjald er kr. 2.500,- Karlaflokkur 1. sæti: 25.000 kr.; 2. sæti: 15.000 kr.; 3. sæti: 10.000 kr. Kvennaflokkur Keppendur fá I verðlaun vöruútekt í OLIS-búðunum. 1. sæti: 15.000 kr. verðmæti; 2. sæti: 10.000 kr. verð- mæti; 3. sæti: 5.000 kr. verðmæti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.