Morgunblaðið - 25.08.1989, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 25.08.1989, Blaðsíða 40
sjóváoBálmennar hiiiiii FÉLAG FÓLKSINS EINKAREIKNINGUR ÞINN í LANDSBANKANUM a _________________JL FOSTUDAGUR 25. AGUST 1989 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. Slökkvilið kall- að á Ægisgarð SLÖKKVILIÐINU í Reykjavík barst tilkynning um bruna á Ægisgarði laust fyrir miðnætti í gærkvöldi. Þrír bílar slökkviliðsins voru sendir á vettvang. Þegar til kom var búið að slökkva eldinn, sem var í brú af gömlum báti. Brúnni hafði verið komið fyrir á vörubílspaili og beið hún þess að vera flutt út á land, þar sem fyrirhugað var að nota hana sem skýli fyrir gæsa- skyttur. Innsigli Skúla fógeta fiind- ið í Viðey Fornleifafræðingar hafa fúndið rúmlega tveggja alda gamalt inn- sigli Skúla Magnússonar land- fógeta í Viðey. Ólögulegur málmklumpur, sem kom upp úr yfirborðslögum við Viðeyjarstofu í fyrrasumar reyndist eftir hreinsun vera mjög vel varðveitt koparinnsigli, sem senniiega hef- ur ekki verið til embættisnota, heldur persónulegt innsigli Skúla. Sjá miðopnu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Regnbogasilungi slátrað Óli Jón Bogason starfsmaður hjá Faxalaxi hf. við Vogastapa blóð- gar vænan regnbogasilung úr eldiskvíum fyrirtækisins í Stakks- firði, en þeir Gunnar Haraldsson og Skúli Skaftason fylgjast með. í kvíunum eru 112 þúsund regnbogasilungar, sem samtals eru um 120 tonn, og slátrað verður fram til áramóta. Auk þess eru í kvíunum um það bil 200 þúsund laxar, sem nú eru um 130 tonn að þyngd, en þeim verður væntanlega ekki slátrað fyrr en á næsta ári. Samtals er því þarna um 250 tonn af eldisfiski að ræða og er tryggingarverðmæti þess um 65 miHjónir króna. Samþykkja urðun á sorpi í Alfsnesi Stefiit að byggingu böggunarstöðvar í grennd við Aburðarverksmiðjuna HREPPSNEFND Kjalarneshrepps samþykkti á fundi í gær samkomu- lagsdrög oddvita hreppsins og Davíðs Oddssonar borgarstjóra um að hreppurinn falli frá forkaupsrétti á landi Alfsness á Kjalarnesi, heimili urðun baggaðs sorps í landinu, Hitaveita Reykjavíkur yfir- taki hitaveitu hreppsins og fleira. Hreppsnefhdin hafði haftiað sam- komulagsdrögunum á fundi í síðustu viku. Þá var í gær undirritað sam- komulag um kaup borgarinnar á iandi Alfsnessins. Kaupverðið er tæpar 100 milljónir króna, að sögn- Jóns G. Tómassonar borgarritara. Hann segir að líklegast verði hætt við að reisa sorpböggunarstöð í Hafnarfirði og mun nú stefnt að því að stöðinni verði valinn staður á svæði í grennd við Áburðarverk- smiðjuna í Gufunesi. Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri í Hafnarfirði segir að ef meirihluti Sorpeyðingar höfuð- borgarsvæðisins taki ákvörðun um að koma fyrir böggunarstöð á þess- um stað, þá komi til greina að setja upp minni sorpböggunarstöð í Hafnarfirði til að þjóna suðursvæð- unum. Hann sagði þó að ef sam- staða allra aðila næðist um að heppilegast væri að bagga sorpið í Gufunesi og urða það í Álfsnesi þá myndi Hafnarfjörður taka því. „Það hefur ekki á neinu stigi málsins verið okkur Hafnfirðingum kapps- mál að hafa böggun og urðun sorps í landi Hafnarfjarðar. Það var ein- ungis boðið upp á þann möguleika til að leysa þann hnút sem þessi mál voru komin í á sínum tíma.“ Sjá nánar á miðopnu. Ensk stálka hrap- aði um 450 metra Bolungarvík. BRESK stúlka um tvítugt hrap- aði um 450-460 metra í svokall- aðri Snjálfsgjá í Stigahlíð rétt utan við Bolungarvík í gær. Þykir það ganga kraftaverki næst hversu vel stúlkan slapp en við fyrstu athugun virtist hún óbrotin en talsvert skrámuð og marin og kvartaði undan eymsl- um í baki. Stúlkan var ásamt félaga sínum í fjallgöngu í hlíðinni og hugðust þau klífa gilið upp á fjallsbrún eða upp á svokallað Flatafjall sem er milli Traðarhyrnu og Bolafjalls. Þarna er fjallið um 500 metra hátt. Er þau áttu um 40—50 metra eftir upp á íjallsbrúnina skrikaði stúlkunni fótur og hrapaði hún niður í um 60—70 metra hæð áður en hún náði að stöðva sig. Félagi hennar kallaði til hennar að haida kyrru fyrir þar meðan að hann freistaði þess að klífa alla leið upp og sækja hjálp í ratsjárstöðina á BolaQalli, en þangað eru um 4 km Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Séð upp eftir Stigahlíðinni þar sem slysið varð í gær. Allt að 20 krónur greiddar fyrir kíló af óveiddum þorski Margir falast eftir auknum kvóta en lítið fi*amboð, segir Kristján Ragnarsson ÓVEIDDUR þorskur selst nú á allt að 20 krónur kílóið og dæmi em um að lítið magn seljist á hærra verði til kaupenda sem veitt hafa meira en kvóti þeirra leyfir og eiga yfir höfði sér refsingu þess vegna. Algengt gangverð mun vera 15 til 18 krónur og hefur hækk- að síðan í sumar er það var 12 til 15 krónur. Þrátt fyrir þetta verð er framboð mjög lítið og viðmælendur Morgunblaðsins, sem hafa nýlega auglýst eftir kvóta, hafa engin viðbrögð fengið. „Eftirspurnin er örugglega mikil, en það er lítið framboð og þar með er lítið um viðskipti,“ segir Kristján Ragnarsson framkvæmdastjóri LÍU. Hann segir skýringuna vera einkum þá að vel hafi veiðst í upp- hafi árs og því lítið eftir til að selja nú. „Við auglýstum eftir kvóta núna um heigina og á þriðjudaginn, ég held að síminn hérna hafi aldrei þagað eins og síðan," sagði Eiríkur Tómasson hjá Þorbirni hf. í Grindavík. Hann segir að fyrirtækið vanti fisk til að brúa bil í vinnsl- unni þar til síldveiðar hefjast í haust. „Við ætluðum að kanna hvað menn vildu selja þetta á, ég var með í huga að fara ekki upp fyrir 15 krónur,“ sagði Eiríkur. Skagstrendingur hf. á Skaga- strönd hefur einnig auglýst nýlega eftir þorskkvóta, án árangurs. Magnús Sigurðsson segir að aug- íýst hafi verið staðgreiðsla á hæsta gangverði, sem hann segir vera frá 15" upp í 18 krónur fyrir kílóið. „Maður hefur heyrt upp í 20 krón- ur, síðan hafa verið að fara smá slattar á eitthvað meira, en það eru þá fyrst og fremst þeir sem eru komnir fram yfir kvóta sem kaupa og eiga engra kosta völ,“ sagði Magnús. Hann segir Skagstrending hafa keypt um 150 tonna kvóta á árinu i þorskígildum. Nokkuð er um að útgerðir, sem jafnframt eru með fiskvinnslu, framselji þorskkvóta til annarra báta, gegn því að bátarnir leggi upp hjá þeim aflann. Þá er oftast um að ræða tiltölulega lítið magn, þó er Morgunblaðinu kunnugt um að um 50 tonna þorskkvóti sé fram- seldur með þeim hætti. í þvi tilviki þykir útgerðinni ekki hagkvæmt að búa bátinn á haustveiðar og halda honum úti, fyrir þennan afla. Miðað við 18 króna verð fyrir kílóið, er það metið til 900 þúsund króna að fá allan afla þiggjandans keyptan inn í vinnsluna. frá fjallsbrúninni. Stuttu eftir það missti stúlkan haldið vegna gijót- hruns og hrapaði áfram niður. Hún stöðvaðist ekki fyrr en rétt ofan við grýtta fjöruna. Svo virðist sem stúlkan hafi að mestu hrasað og runnið niður hlíðina eftir lækjar- farvegi. Félagi stúlkunnar hljóp að. rat- sjárstöðinni og tilkynnti um slysið. Hjálparbeiðni barst björgunar- sveitinni Erni í Bolungarvík um klukkan 15.40 og fóru fjórir björg- unarsveitarmenn á báti að slys- staðnum. Þeir og voru komnir með stúlkuna til Bolungarvíkur um klukkutíma síðar. Gert var að meiðslum stúlkunnar þar, en hún síðan flutt á sjúkrahúsið á ísafirði til frekari skoðunar. -Gunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.