Morgunblaðið - 25.08.1989, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.08.1989, Blaðsíða 30
-30--------------------------------------------------------MORGtíNBLAÐÍÐÍ.: LÍé89. 'í • * I M-l * : 11 ? I 'i HIV, 111 .* ’ >.* Minning: * Kristján A. Þor- steinsson Akranesi Fæddur 20. nóvember 1908 Dáinn 16. ágúst 1989 Bláhvítur himinninn klæddist sínu besta skarti þennan dag, 16. ágúst. Drungalegt skýjaþykknið sópaðist burtu fyrir marglitum sólargeislum sem dönsuðu jafnt á iðandi strætinu og við mannlífið þar sem og þeir fögnuðu fengnu frelsi allt upp í eggj- ar Akrafjalls. Sýnu fegurst hefur útsýn yfir Hvalfjörð og Faxaflóa verið og þá ekki síðri í ríki þeirra Brynjólfs biskups Sveinssonar og stiftamtmanns Olafs Stephensens í Innri-Akraneshreppi. En ekkert er ljós án skugga og þegar betur var hugað að gætti ólundar í gnauði hafsins og hvítfextar öldurnar tóku alls ekki undir gleði himinsins. Á morgun, og á morgun, og á morgun, þumlungast þessi smáspor dag frá degi tij loká hinztu línu í tímans bók (Úr þýðingu Helga Hálfdanarsonar á Macbeth) Kristján Ásmundur Þorsteinsson fæddist á Efriteigi, Akranesi, 20. nóvember 1908. Foreldrar hans voru Þorsteinn Ólafsson og Kristín Eyjólfsdóttir. Þau bjuggu á Krossi í Innri-Akraneshreppi. Kristján Þorsteinsson og kona hans Vilborg Þjóðbjömsdóttir bjuggu á Indriðastöðum og síðan á Suður- götu 62B. Þau eignuðust eina dótt- ur, Sigríði Kristínu, f. 7. jan. 1939, röntgentæknir og húsmóðir í Reykjavík. Fyrir nokkrum árum missti Kristján konu sína. Kristján var um hríð vistmaður á Hrafnistu í Reykjavík og síðan á Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Römm er sú raug sem rekka dregur föðurtúna til. Kristjári vildi eyða ævikvöldinu á heimaslóðum þar sem hann var svo að segja borinn og bamfæddur. Fundum okkar Kristjáns bar sam- an árið 1967. Þá um haustið hafði hann spurnir af því að ég væri í at- vinnuleit og réð mig til starfa. Hann var þá flokksstjóri hjá Akraneskaup- stað og unnum við 4—5 við hirðun og losun sorps á vegum bæjarins. Pokakerfið var ekki komið til sög- unnar á þessum tíma heldur voru þetta tunnur misþungar og efnis- miklar. Kristján var allt í öllu og stjórnaði liði sínu af skörungsskap en sanngimi. Ekki hafði ég verið lengi undir stjóm hans þegar það rann upp fyrir mér að maðurinn var hafsjór af kveðskap þjóðskáldanna, kunni ógrynni af lausavísum og var margfróður um menn og málefni. í honum sameinaðist í einum punkti sagnahefðin; menningararfurinn frá kynslóð til kynslóðar. Hug hans allan átti Magnús Stefánsson skáld, betur þekktur undir skáldanafninu Örn Arnarson. Eg held helst að hann hafi kunnað flest ef ekki öll ljóð hans utanbókar. Kristján bjó yfir því næmi á þessu sviði, að þá þegar menn fóru með vísur fyrir hann meðtók hann þær á augabragði, end- urtekningar voru óþarfar. Þessi áhugi Kristjáns smitaði svo út frá sér að fyrr en varði hafði öll liðssveit- in umturnast í stórskáld og kepptist hver um annan þveran við að hnoða einhverju saman. Á laun var þessi kveðskapur oftsinnis borinn undir Kristján og fyrst í stað reyndust ljóð- stafir of margir eða þeir í lágkveðu; stuðlasetningu ábótavant. Við og við sá Kristján aumur á okkur og gerði okkur það til geðs að samþykkja þennan endemis leirburð. Þetta hélt vélinni velsmurðri og gangandi og höfðum við oft hið mesta gaman af þessu. Spaugileg atvik voru svo snar þáttur í þessu starfi okkar að við gengum að því sem gefnu. Mörg þessara atvika voru svo kátleg og ótrúleg að gera mætti af því heila bók. Eg læt við það sitja að nefna lítið atvik sem varð mér nokkuð minnisstætt ekki síst fyrir þá sök hversu fumlaust Kristján gekk að verki sínu og hversu honum var lag- ið að leysa hvem einn vanda sem að höndum bar af einurð og öryggi. Einhveiju sinni var það að bæjaryfir- völd blésu í herlúðra og hvöttu bæj- arbúa til að hafa lok á sorpílátum sínum. Mig minnir að frá þessum ágætu yfirvöldum hafi það verið nefnt „lokuð sorpílát". Ekki virtist það þó valda neinum misskilningi. Flestir brugðust vel við þessum til- mælum en til voru þeir sem þráuð- ust við. í því tilviki voru tunnurnar ekki snertar og gat eigandi sjálfum sér um kennt að sitja uppi með gós- sið í heila víku til viðbótar. Það féll í minn hlut að sjá til þess að gleðiboð- skapur bæjaryfírvalda kæmist ör- ugglega til skila. Er mér minnisstæð- ur maður nokkur sem okkur tókst að beija út kl. 8.00 að morgni. Mað- urinn var snakillur og greinilega hálfsofandi og átti erfítt með að átta sig á því hvað um væri að vera. Eftir að hafa hrært hjarta hans með gleðiboðskapnum verður mér á fyrir misskilning eins og Sveik mundi hafa orðað það að breyta viku í ár. Maður- inn verður að saltstólpa í dyrunum en yfir ásjónu hans hvelfist öll áhyggja heimsins. Ég yfírgef mann- inn í þessu ástandi og er kominn langleiðina að næsta húsi, þegar maðurinn umvendist í hofmóð og það er eins og sprengju hafi verið varpað inn í þessa friðarparadís, fyrirgang- urinn og hávaðinn var á því stigi að allt nágrennið reif gluggatjöldin frá til þess að sjá þetta undur. Eftir að hafa tekið nokkur stökk og hopp sem jafnvel Daldonar hefðu getað verið fullsæmdir af upphefst hann og spyr hver beri ábyrgð á þessum vitleys- ingi. Kristján sem þarna var nær- staddur var ekki uppnæmur fyrir svo sjálfsagðri spurningu, — fór nokkr- um orðum um almennan misskilning og ónákvæmni í orðavali en útskýrði svo fyrir manninum vel og lengi til hvers lok væru höfð á tunnum, al- mennt talað og í bráð og lengd. Þessi ógæfusami tunnueigandi gapti í for- undran yfir framkomnum upplýsing- um en bað himnana að sjá til þess að við dyttum allir sem einn dauðir niður og það við fyrsta tækifæri. Þegar við komum þarna næst mátti sjá glampann af silfurgráu lokinu úr margra metra fjarlægð. Þegar tækifæri gafst voru menn teknir tali og þeir spurðir út í lífið og tilveruna. Kaupmenn heiðruðum við með nærveru okkar jafnan á föstudögum og þeir voru ófáir sem launuðu það í límonaði og Prince polo. Ekki get ég látið hjá líða að minn- ast þeirrar sérstöðu sem ríkti innan hópsins, nefnilega þeirri að allir töld- ust samábyrgir gagnvart hveijum öðrum. Gilti það jafnt um starfið sjálft sem utan þess. Af þessu leiddi að hugtakið veikindadagar var nær óþekkt innan okkar hóps. Ef tekið er mið af vinnusálarfræði nútímans þá hafa Vesturlönd ekki náð að til- einka sér aðal þeirra fræða nerna að hluta til sökum margháttaðra kerfis- galla sem fyrr eða síðar rústar efna- hagskerfinu sem slíku ef menn sjá ekki að sér á meðan fremstu þjóðir á sviði verslunar og iðnaðar í Ásíu- löndum skilja ekki hvað átt er við með hugtakinu nútímavinnusálar- fræði því það sem í því felst er ekki annað en það sem þeim hefur verið eiginlegt í hundruð ára. Mér finnst það eftirtektarvert að flokksstjóra hjá Akranesbæ er þetta fullkomlega ljóst árið 1967 en hef ekki séð þess stað síðan. Kristján var samviskusamur svo af bar og fram- fylgdi því af stakri tnímennsku sem fyrir hann var lagt. I þeim tilvikum þar sem vafi lék á um verksvið þá var það jafnan leyst á staðnum af honum sjálfum. Þarþurfti enga milli- göngumenn. Kristján var trúr vinum sínum og talaði tæpitungulaust þegar hann sá þess þörf eða var til þess knúinn. í hátt var Kristján á stundum sér- kennilegur og því vafalítið að ókunn- ugum og jafnvel einhveijum sam- ferðámanna hans hafí yfirsést hversu merkilegur maður hann í raun var. Ekki veit ég hvort það er mæli- kvarði á manngildi hvort menn hafa siglt úfinn sæ eða lygnan eða fengið sitt lítið af hvoru. Hitt er víst að hin þunga undiralda er alda aldanna. Það er mín skoðun að Stjáni hafí staðið þá öldu. Hjarta mitt er eins og hafíð oft hvasst þar og brimað var og fjölmörg fögur perla er falin í ðjúpi þar. (Þýðing Yngva Jóhannessonar úr Heine.) Ættingjum, venzlafólki og vinum Kristjáns Þorsteinssonar sendi ég samúðarkveðjur. Guðni Björgólfsson Hann afi er allur. Hann kvaddi þennan heim með litlum sem engum aðdraganda að morgni 16. ágúst sl. tæplega 81 árs að aldri. Frá fyrstu tíð var okkur fullkunnugt um að afi Kristján væri ekki raunverulegur afi okkar. Hinn rétti afi hafði dáið þeg- ar pabbi var lítill strákur og amma giftist aftur. En barnið skilur slíkt ekki alveg. í huga þess er afí og amma tákn öryggis og hlýju, þar sem gott er að vera og allir eru ávallt velkomnir. Afi Kristján var sannar- lega hluti þessarar myndar. Okkar fyrstu minningar eru af Vesturgötu 21 á Akranesi (Indriða- stöðum), þar sem afi og amma bjuggu lengst af. Hversu oft var ekki skroppið til þeirra, setið við eld- húsborðið með eitthvert góðgæti fyr- ir framan sig, spjallað og horft út á sjóinn sem var svo stór hluti til- verunnar. Oft var afi ekki heima á stundum sem þessum. Hann var ein- hvers staðar úti á þessum stóra sjó. En þegar hann var heima, var ekki síður gamann að fylgjast með honum niðri í kjallara, þar sem hann var að hnýta net eða dútla við eitt og annað. Kjallarinn var gósenland for- vitins ungviðisins. Sterkast í minningunni eru þó áreiðanlega stundirnar með spilin. Afi kenndi okkur öllum að spila — börnum okkar raunar líka. Hversu ótrúlega þolinmæði gat hann ekki sýnt misjafnlega tregum og tapsár- um sálum í ólsen-ólsen, manna, rússa eða marías, að því ógleymdu að byggja heilu kastalana og borgirnar úr spilum sem síðar hrundu „alveg óvart“ til að halda afa aðeins lengur nálægt sér! Árin liðu, við eignuðumst okkar fjölskyldur og afi og amma fluttu. Fyrst á Suðurgötu 62b, þar sem líka var hægt að horfa út á sjóinn, en síðar, eða árið 1977, til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu í íbúð við Jökul- grunnið, tengt Hrafnistu, þar sem þau bjuggu þar til amma lést fyrir 5 árum. Þá flutti afi fljótlega aftur á Skagann og bjó á dvalarheimilinu Höfða til dauðadags. Þrátt fyrir bústaðaskipti breyttist ekki viðmótið. Alltaf var jafn gott að koma í heimsókn, alltaf var eitt- hvert góðgæti í skápnum, alltaf var nægur tími til að spjalla og spila. Afi var einstaklega geðgóður mað- ur, hvers manns hugljúfi, og aldrei sáum við hann skipta skapi. Hann var ekki fyrir það að trana sér fram, en var hins vegar æði oft hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi vegna þess ógrynnis af sögum og vísum sem hann kunni. Ekki naut hann sín síður þegar eitt hans mesta hugðar- efni bar á góma: hestar. Við eigum afa Kristjáni margt að þakka. Hann var okkur mikið og kenndi okkur margt án þess að um eiginlegar kennslustundir væri að ræða. Minningin um hann tengist óneitanlega þeirri heild sem hann og amma Villa skópu. En nú eru þau bæði horfin á braut og góðum kafla í reynsluheimi okkar er lokið. Eftir mun engu að síður lifa ljúf endur- minningin. Indriði, Ása María og Ingveldur Nú er hann afí minn' dáinn. Það var snemma að morgni miðvikudag- inn 16. ágúst, sem ég fékk þær frétt- ir að hann hefði veikst snögglega og verið fluttur á Sjúkrahús Akra- ness og ekki átt þaðan afturkvæmt. Þá voru liðin rétt rúm fimm ár síðan eiginkona hans og amma mín, hafði látist. Tímarnir breytast og mennimir með og smám saman er sú aldamóta- kynslóð sem lagði grunninn að okkar velferðarþjóðfélagi með eljusemi sinni og þolgæði, að hverfa á braut feðra sinna. Þetta fólk hefur gefið okkur meira en við fáum kannski nokkurn tíma skilið og væri hollt fyrir alla að staldra við og gefa sér tíma til að minnast þess. Amma og afí voru Akurnesingar og bjuggu þar alla sína tíð nema síðustu ár hennar voru þau á Hrafn- istu í Reykjavík, en eftir lát hennar fór afi fljótlega aftur uppá Akranes á Dvalarheimilið Höfða, sem stendur því sem næst á hans fæðingarstað. Það var alveg sérstök tilfinning að heimsækja ömmu Villu og afa Kristján á Akranesi, og verða þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast lífinu frá þeirra sjónarhóli. Margar ljúfustu æskuminningarnar eru frá þessum heimsóknum. Alltaf var nógur tími fyrir okkur barnabörnin, alltaf nógur tími til að kenna okkur að spila eða fara með okkur að „spásséra" niður á bryggju að skoða bátana, og alltaf virðist hafa verið nógur tími til að pijóna á okkur nýja peysu og vettl- inga. Það var eins og lífið gengi á öðrum hraða og lífsmatið væri öðruv- ísi en hjá okkur nútímafólkinu sem höfum sjaldnast tíma fyrir neitt ann- að en lífsgæðakapphlaupið. Þegar þau giftust, 20. nóvember 1937, var amma ekkja með tvo unga syni. Hennar fyrri maður, Indriði Jónsson, fórst í fiskiróðri í janúar 1933 og lét eftir sig tvo drengi, Valdimar f. 1925 og Oskar f. 1930. Lífið hefur ekki verið auðvelt í þéirri stöðu á þeim árum, en amma var þeirrar gæfu aðnjótandi að hitta annan góðan mann, Kristján Þor- geirsson, og gekk hann drengjunum í föður stað og síðan eignuðust þau saman eina dóttur, Sigríði f. 1939. Nú eru barnabömin 5 og bama- barnabömin 11 og búum við öll að því að hafa fengið leiðsögn ömmu og afa í lífsnestið. Blessuð sé minning þeirra. Kristján Oskarsson Kristján fóstri eins og ég nefndi hann hefur kvatt og hafið ferðina yfir landamærin sem bíða allra. Hans er sárt saknað af börnum, tengdabörnum, barnabörnum, barnabarnabörnum, ættingjum og vinum, en við sem eftir sitjum þökk- um samt fyrir að hann fékk að fara þessa hinstu ferð án þess að þurfa að upplifa langa sjúkrahúslegu og þjáninga vegna heilaskaða frá stór- áfalli. I söknuði okkar höfum við að leiðarljósi hans miklu óeigingimi, sem aldrei brást allt til endadægurs. Hann fæddist 20. nóvember 1908 á Efri Teig, sem var við Suðurgötuna á Akranesi. Hann fluttist með for- eldrum sínum að Krossi, Innra- Akraneshreppi um eins árs aldur og ólst þar upp til fermingaraldurs. Um tvítugt fer hann svo að Kjaransstöð- um Innra-Akraneshreppi, og er þar til 29 ára aldurs. Foreldrar hans voru Þorsteinn Ól- afsson og kona hans Kristín Eyjólfs- dóttir. Ólafur Jónsson, afi hans, var ættaður frá Borgarfirði. Hann og kona hans, Ásgerður, bjuggu á Fells- öxl, en fluttu til Reykjavíkur alda- mótaárið. Kristján átti 6 systkini, sem öll eru látin utan eitt, Steinunn, sem býr nú á Hrafnistu í Reykjavík. Veit ég að hún var bróður sínum mjög kær. Þetta er ramminn í hnotskum um líf Kristjáns, þar til hann kvæntist og hóf sitt fjölskyldulíf. Á 29 ára afmælisdeginum 20. nóvember 1937 kvæntist hann Vil- borgu Þjóðbjörnsdóttur, Vesturgötu 21, Akranesi. Vilborg var ekkja með tvo syni, Óskar 7 ára og Valdimar 12 ára. Indriði Jónsson, eiginmaður- inn og faðirinn, hafði farist með mb. Kveldúlfi, en hann fórst 20. janúar 1933 í aftakaveðri. Kristján var svo óeigingjarn að hann var tilbúinn að vinna þessari fjölskyldu allt það sem að í hans valdi stóð. Allir sem sáu hann og eiginkonu hans saman fóru ekki í grafgötur með hve heitt hann unni henni. Aldrei vaf hægt að merkja að fóstursynir hans væra honum ekki eins kærir og einkadóttirin, sem þau hjón eignuðust 7. janúar 1939 og var skírð Sigríður Kristín. Hún var þeirra ljós frá vöggu til þeirra dánardægurs. Valdimar er kvæntur Ingibjörgu Ólafsdóttur. Þau búa á Akranesi. Börn þeirra era Indriði, kvæntur Sig- urlaugu Guðmundsdóttur. Þeirra börn era Sigríður, Ingibjörg og Valdi- mar. Búsett á Akranesi. Ása María. Hennar synir era Valdimar og Ólafur Svavarssynir, búsett í Hafnarfirði. Ingveldur gift Lúðvíki Helgasyni Ibsen, þeirra börn era Þórir, Vilborg og Ingólfur, búsett á Akranesi. Óskar er kvæntur Selmu Júlíus- dóttur. Þau búa í Reykjavík. Þeirra sonur er Kristján, kvæntúr Marilyn Mellk og fósturdóttir, Margrét Erla Guðmundsdóttir. Börn Kristjáns og Marilynar era Eva Ósk og Kristján Indriði, búsett í Reykjavík. Sigríður Kristín er gift Jóni Otta Sigurðssyni. Þau búa I Reykjavík. Sonur þeirra er Sigurður Jón, kvænt- ur Guðnýju Jónsdóttur, þeirra sonur er Jón Otti, búsett í Danmörku. Allir þessir niðjar eiga margs að minnast þegar horft er til baka. Þeg- ar ég kynntist Kristjáni var ég 16 ára, nýtrúlofuð fóstursyni hans. Frá fyrstu kynnum hef ég dáðst að óeig- ingirni hans, sem var svo mikil að aldrei brást hún og virtist sem hann þekkti ekki fyrsta persónufornafnið ég. Hann og Vilborg nutu sín best, þegar barnabörnin voru í heimsókn og nutu leiðsagnar þeirra, bæði við spilamennskuna, sem þau lærðu öll fyrst hjá þeim og var Kristján þar í forastuhlutverkinu, en amma við að kenna þeim einnig fyrstu sporin í lestramáminu. Þau barnabörnin sem áttu heima á Akranesi vora daglegir gestir, en drengirnir sem bjuggu í Reykjavík voru afar stuttir í loftinu þegar að þeir ferðuðust með Akra- borginni á milli, vel geymdir í brú skipsins í umsjón skipstjórnarmann- anna og hinum megin fjarðarins tók Akranesfólkið á móti þeim. Síðar bættust svo barnabarnabörnin í hóp þeirra sem nutu návistar og tilsagnar langafa og langömmu. Kristján var sérkennilegur maður, hann barst lítið á, vann sín verk með mikilli samviskusemi og ekki vissu allir sem umgengust hann hversu mikill hafsjór af fróðleik hann var. Hann var svo stálminnugur að það virtist vera prentað fast í huga hans það sem hann einu sinni hafði lesið eða heyrt. Hann kunni utanbókar bækur eins og Horfnir góðhestar og hægt var að fletta upp í ættarskrám góðhestanna í huga hans. Vísur og kvæði voru honum mjög hugleikin. og gat hann munað heilu kvæðabálk- ana frá gömlum tímum og lausavísur sem erfitt var að ná í á prenti og flestir búnir að gleyma. Hann þekkti hvem bæ og hver landamerki heilla sveita þó svo hann hefði aldrei ferð- ast til þeirra. Þessi fróðleikur kom best í ljós, þegar að stritið var að baki og hann var sestur í helgan stein. Margir nutu góðs af þessari minnisgáfu, bæði- til skemmtunar og fróðleiks um liðna tíð. Kærleikur Kristjáns til konu sinnar kom best í ljós síðustu 7 ár lífs hennar, en þá bjuggu þau í hjóna- íbúð í Jökulgranni 1, Reykjavík. Hún var þá farin að heilsu og Kristján studdi hana og hjúkraði henni af svo mikilli alúð að ekki var betra á kos- ið. Þegar að hún svo kvaddi var hugur hans fyrst og fremst á gömlum slóðum og með góðra manna hjálp fékk hann inni á Höfða á Akranesi þar sem hann dvaldi síðastliðin tæp fjögur ár. Þar eignaðist hann vini og kunningja, margir þeirra voru gamlir samstarfsmenn og félagar. I viðtali við forstöðumanninn eftir lát hans hafði hann að orði að vistmenn og starfsmenn heimilisins misstu góðan stuðningsmann í daglegu lífi, þar sem oft hefði Kristján getað miðlað málum, þegar þunglyndi og leiði hefði þjáð einhvern vistmann- anna. Kristján átti þar einn sérstakan vin, en það var Margrét Jónsdóttir, og var það umhugsunarefni þeim sem á horfðu hversu fagur sá vin- skapur var. Þau studdu hvort annað og fegurð hjartna þeirra endurspe- glaðist í vináttu þeirra. Það er erfitt fyrir 96 ára gamla konu, að þurfa að sjá á eftir svo kæram vini. Ég bið Guð um að styðja hana í söknuði hennar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.