Morgunblaðið - 25.08.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.08.1989, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1989 * Hermann Arnason og SigurlaugH. Friðriks- dóttir — Hjónaminning Fæddur 21. nóvember 1905 Dáinn 10. júlí 1989 Fædd 14. ágúst 1909 Dáin 20. ágúst 1989 Elsku afi, Hermann Árnason og amma, Sigurlaug Herdís Friðriks- dóttir, eru dáin. Okkur langar til að minnast þeirra. Þann 10. júlí lést afi og aðeins 6 vikum seinna fylgdi amma honum. Amma var fædd í Efri-Miðvík 14. ágúst 1909, en afi að Leirum í Grunnavíkur- hreppi þann 21. nóvember 1905. Áfi fluttist til Hesteyrar með for- eldrum sínum og síðan til Aðalvíkur að Látrum upp í Urð eins og þau köiluðu það, en amma réð sig sem ráðskonu þangað aðeins 16 ára gömul. Eftir að hafa verið ráðskona hjá afa í þijú ár gengu þau í það heilaga þann 25. des. 1927. Afi og amma bjuggu í Efri-Miðvík á Sæ- bóli og á Látrum til 1948, en þaðan fluttust þau til Hnífsdals og síðan til Reykjavíkur. Það er svo margs að minnast með þeim og að hafa fengið að kynnast slíkum persónum sem gáfu svo mikið af sjálfum sér er ómetanlegt. Þær minningar sem við geymum í bijósti okkar varðveit- ast að eilífu. Þar eru til að mynda ferðirnar til Aðalvíkur á sumrin, skatan á Þorláksmessu og afmæli- sveislurnar í Drekavoginum og aldr- ei munu sögur þeirra líða okkur úr minni, þær voru ófáar. Drekavogur Merrild -hefur kennt íslendingum aö meta gott kaffi. Þú getur valið um þijár mismunandi tegundir af Merrild-kaffi. 103-MiUibrennt 304 - Dökkbrennt 104 - Mjög dökkbrennt Merrild-ilmandi og ljúffengt kaffi, sem bragð er af. 20 hefur ávallt verið miðstöð okkar allra. Það hefur ávallt verið marg- menni í kringum ömmu og afa, enda varð þeim 12 barna auðið sem öll eru á iífi. Þau eru: Árni Stefán, Helgi, kvæntur Önnu Ólafsdóttur, 8 börn; Friðrik Svavar, 3 börn, Þórunn Herborg, gift Davíð Guðbergssyni, 5 börn en misstu 1 son, Þorgerður Kristín, gift Gunnari Valdimars- syni, 5 börn; Gunnar Jóhannes, kvæntur Huldu Þorgrímsdóttur, 3 börn; Jónína Margrét gift Jakobi Sigurðssyni, 6 börn; Guðný Eygló, gift Halldóri Geirmundssyni, 6 börn; Óli Theodór, kvæntur Guðríði Hannibalsdóttur, 3 börn; Ingi Karl, kvæntur Ragnheiði Jónsdóttur, 2 böm; Bárður Gísli, kvæntur Mar- gréti Guðjónsdóttur, 6 börn; Ingi- björg Steinunn, í sambúð með Stef- áni Stefánssyni, 6 börn; Heiðar, kvæntur Herdísi Gísladóttur, 3 börn. Alls eru afkomendur þeirra orðnir 128. Með þakklæti minnumst við allra samverustundanna, þegar fjöl- skyldur okkar glöddust saman á góðri stund. Sú minning máist ekki úr huganunm og heldur ekki minn- ingin um þau sem með gleði og hlýju fegruðu umhverfi sitt. Það var í sannleika mannbætandi að um- gangast þau og erfitt að skilja svo skjótt. En vol og víl var ömmu og afa víðsfjarri. Blessuð sé minning þeirra. Guð mun fagna þeim báðum eins mikið og við munum sakna þeirra. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði. Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Guðjón, Stefanía, Ágústa, Bjarkar, Björk, Árni, Hrund Hermann og ívar. I dag verður jarðsungin frá kirkju Fíladelfíusafnaðarins í Reykjavík ELFA IvorticeI viftur í úrvali Loftviftur - baðherbergisviftur - eldhúsviftur - borðviftur - röraviftur - iðnaðarviftur Hagstætt verð. Einar Farestveit&Co.hf. Borgartúni 28. Sími 16995.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.