Morgunblaðið - 25.08.1989, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1989
Þorsteinn Pálsson:
Metum hvort lögð verð-
ur fram vantrauststillaga
ÞORSTEINN Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir að sjálf-
stæðismenn muni meta það er til þings kemur hvort þeir leggi fram
vantrauststillögu á ríkisstjómina. „Það er í samræmi við þá afstöðu,
sem við höfum tekið - að ríkisstjómin fari frá og efni til nýrra kosn-
inga nú þegar - að bera fram tillögur þar að lútandi, hafí sfjórain
ekki gert það þegar Alþingi kemur saman,“ sagði Þorsteinn í sam-
tali við Morgunblaðið.
Þorsteinn sagðist lítið mark taka
á yfirlýsingum Júlíusar Sólnes um
að Borgaraflokkurinn myndi snúast
gegn ríkisstjóminni ef ekki gengi
saman í stjómarmyndunarviðræð-
um fyrir mánaðamót. „Mér sýnist
ekkert benda til þess enn sem kom-
ið er að Borgaraflokkurinn ætli að
láta af hækjuhlutverki sínu,“ sagði
Þorsteinn. Eg geri engan greinar-
mun á því hvort þeir leika þetta
hækjuhlutverk í ráðherrastólum eða
utan þeirra. Ég spyr fyrst: er Borg-
araflokkurinn, sem átti til að mynda
þátt í að koma ekkjuskattinum á,
tiibúinn að taka.þátt í því með okk-
ur þegar til þings kemur að afnema
það óréttlæti, sem samþykkt var á
síðasta þingi? Getur Borgaraflokk-
urinn tryggt að allir þingmenn hans
taki þátt í því? Um leið og við fáum
jákvæð svör við spumingum af
þessu tagi frá Borgaraflokknum
getum við farið að tala saman, til
dæmis um nefndakjör. Ef Borgara-
flokkurinn eða hluti hans stendur
ábyrgur fyrir skattheimtu af þessu
tagi er ekki mikið að tala við okk-
ur, því að við ætlum okkur að af-
nema þetta óréttlæti, sem Ólafur
Ragnar kom á. Við emm ekki til
samstarfs við þá sem styðja það.“
Þorsteinn sagði að á síðastliðnu
vori hefði Júlíus Sólnes rætt um
það við sig hvort hann væri tilbúinn
að leggja fram vantrauststillögu á
ríkisstjórnina með Borgaraflokks-
mönnum. „Ég sagðist vera tilbúinn
til þess að hafa um það breiða sam-
vinnu ef allir þingmenn Borgara-
flokksins og Samtök um jafnrétti
og félagshyggju væm tilbúin að
taka þátt í því, þannig að tryggt
yrði að það næði fram að ganga.
Flokkur Stefáns Valgeirssonar var
ekki tilbúinn til þess þá, og ég hygg
að allir þingmenn Borgaraflokksins
hafi ekki verið það heldur. Þess
vegna varð ekki úr því þá,“ sagði
Þorsteinn. „Eigi að samþykkja van-
traust á flokkana þijá, sem em í
stjórn, þarf stuðning Kvennalista
og Sjálfstæðisflokks, sem em í
stjórnarandstöðu, og flokkanna sem
styðja stjórnina en eiga ekki ráð-
herra, Borgaraflokksins og Sam-
taka um jafnrétti og félagshyggju."
VEÐUR
Heimild: Veðurstota íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
í DAG kl. 12.00:
VEÐURHORFUR í DAG, 25. ÁGÚST
YFIRLIT í GÆR: Um 500 km suðaustur af Hvarfi er 998 mb lægð
á hreyfingu austur en yfir vesturströnd Grænlands er 1.020 mb
hæð og þaðan hæðarhryggur suðaustur yfir (sland. Hiti verður
10-16 stig sunnanlands að deginum en nokkru svalara norðanlands.
SPÁ: Hægur vindur milli norðurs og austurs eða hæg, breytileg
átt. Þurrt veður um allt land og víða léttskýjað.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg norðlæg eða breytileg átt. Þurrt
að kalla og víða léttskýjað. Fremur svalt, einkum norðanlands.
HORFUR Á SUIYNUDAG:Hægviðri í fyrstu en þykknar síðan upp
með vaxandi suðaustanátt, fyrst vestanlands. Hiti 7-13 stig að
deginum.
■j Q° Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V E'
= Þoka
— Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
- i. Skafrenningur
|”<^ Þrumuveður
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
*' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri 8 skýjað
Reykjavík 13 léttskýjað
Bergen 12 skýjað
Helsinki 11 rlgning
Kaupmannah. 18 skýjað
Narssarssuaq 5 alskýjað
Nuuk 4 skýjað
Ósló 17 skúr
Stokkhólmur 17 skýjað
Þórshöfn 12 skýjað
Algarve 33 skýjað
Amsterdam 19 hálfskýjað
Barcetona 30 skýjað
Berlfn 23 skýjað
Chicago 20 alskýjað
Feneyjar 30 þokumóða
Frankfurt 25 léttskýjað
Glasgow 15 rigning
Hamborg 18 rignlng
tas Palmas 33 hálfskýjað
London 24 skýjað
Los Angeles 18 skýjað
Lúxemborg 22 heiðskírt
Madríd 32 mistur
Malaga 31 léttskýjað
Mallorca 32 skýjað
Montreal 14 léttskýjað
New York 21 léttskýjað
Orlando 26 skýjað
París 25 léttskýjað
Róm 30 þokumóða
Vín 23 mistur
Washington 23 skýjað
Winnipeg vantar
Morgunblaðið/BAR
Vigdís íMiklagarði
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, heimsótti Miklagarð við
Sund í gær og kynnti sér íslenska framleiðslu sem þar hefiir
verið kynnt undanfarið á íslenskum dögum. íslenskir dagar hafa
verið haldnir í sex verslunum Miklagarðs, Kaupstaðar og Mið-
vangs en þeim lýkur í dag með margvíslegum kynningum, tónlist-
amppákomum og tískusýningum í Miklagarði við Sund og Kaup-
stað í Mjódd.
Fríkirkjumálið:
Utburður heimilaður
BORGARFÓGETI hefúr heimilað með úrskurði að séra Gunnar
Björasson verði borinn út úr prestsbústað Fríkirkjusafiiaðarins við
Garðastræti. Að sögn Einars Kristins Jónssonar formanns stjórnar
safiiaðarins hefur lögmanni stjómarinnar verið falið að að fylgja
málinu eftir. „Við vonum að ekki þurfi að koma til útburðar," sagði
Einar Kristinn.
Krafa um útburð var sett fram
við borgarfógeta 22. júní síðastlið-
inn. Málið var fimm sinnum tekið
fyrir án þess að nokkur væri mætt-
ur af hálfu séra Gunnars. í úr-
skurði fógeta er þess getið að ár-
angurslaust hafi verið reynt með
almennum póstsendingum, ábyrgð-
arbréfum, símskeytum og sam-
töíum við lögmann að boða Gunnar
eða fulltrúa hans til að mæta við
fyrirtöku málsins.
Ekki náðist í séra Gunnar Björns-
son í gær. Hann hefur tekið kalli
til preststarfa í Holti í Önundarfirði
og mun hverfa til þeirra starfa á
næstunni.
Júlíus Sólnes, Borgaraflokknum:
Reynum að fella stjórn-
ina náist samningar ekki
JÚLÍUS Sólnes, formaður Borgaraflokksins, segir að verði ekki gerðir
samningar fyrir mánaðamót um að flokkurinn fari inn í ríkisstjórnina,
muni hann reyna að fella hana. Borgaraflokksmenn séu famir að und-
irbúa kosningar og harða stjórnarandstöðu.
Sjálfstæðismenn hafa lýst því yfír
að þeir muni ekki hafa samstarf við
Borgaraflokkinn um nefndakjör á
Alþingi á meðan stjótnarmyndunar-
viðræðum flokksins og ríkisstjórnar-
innar sé haldið áfram. „Sjálfstæðis-
flokkurinn ætlar greinilega að halda
hlífiskildi yfir stjóminni í vetur, hann
neitar alltént að reyna að ná með
okkur meirihluta í nefndunum,"
sagði Júlíus. „Það verður þá í verka-
hring Sjálfstæðisflokksins að verja
stjómina. Við munum hins vegar
reyna að beita okkur af alefli að því
að reyna að fella hana ef þessir
samningar verða ekki búnir fyrir
mánaðamót.
Júlíus sagði að stjómarandstaða
Borgaraflokksins yrði fyrst og fremst
málefnaleg. Flokkurinn myndi flytja
á þingi þau mál, sem hann hefði
barizt fyrir, svo sem afnám matar-
skatts, hvort sem stjómin félli á þeim
eða ekki. Svo kynni einnig að fara'
að borgaraflokksmenn huguðu að því
að flytja vantraust á stjórnina, en
það hefði ekki verið rætt endanlega.
Stj órnarformaður íslensks markaðar hf.:
Greiðum 32-33 millj. kr.
húsaleign í flugstöðinni
„REKSTUR íslensks markaðar gengur ekki upp vegna hárrar húsaleigu
í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli og samdráttar í sölu á ullarvörum,"
sagði Óskar Gunnarsson, sljómarformaður fyrirtækisins, í samtali við
Morgunblaðið. Óskar sagði að rekstur íslensks markaðar hf. yrði allur
stokkaður upp og þvi hefði öllum starfsmönnum fyrirtækisins, 24 tals-
ins, verið sagt upp störfiim frá 1. ágúst sl. með þriggja mánaða fyrir-
vara. íslenskur markaður greiðir 32 til 33 milljónir króna á ári í húsa-
leigu og sameiginlegan kostnað I flugstöðinni, að sögn Óskars.
„Ég hygg að því miður verði húsnæði sem við getum ekki nýtt
starfsmennirnir ekki allir endurráðn-
ir,“ sagði Óskar Gunnarsson. Óskar
sagði að til greina kæmi að selja
skrifstofu- og lagerhúsnæði fyrir-
tækisins í Keflavík. Hann sagði að
rúmlega 20 iðnfyrirtæki væru hlut-
hafar í íslenskufn markaði og þau
legðu mikla áherslu á að geta haldið
rekstrinum í flugstöðinni áfram. „í
húsaleigusamningi okkar í flugstöð-
inni, sem gildir til ársins 1992, er
og við höfum fyrst og fremst farið
fram á að verða leystir undan því.
Við það myndi reksturinn lagast
mjög verulega."
Óskar sagði að vegna samdráttar
hjá Flugleiðum í flugi á Norður-
Atlantshafsleiðinni hefði viðkomu-
farþegum frá Bandaríkjunum fækk-
að en þeir hefðu keyptu mest af ullar-
vörum íslensks markaðar.
i
L'
i
»
I.
t
I
1