Morgunblaðið - 25.08.1989, Side 11
MORGVNBIAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2.5. ÁGÚST.1S89
n
David Aller og Ingegerd Nilson í hlutverkum elskendanna. Linnea Sallay og Lars Pallarius fylgjast með
úr fjarska.
una af einstakri innlifun. Hlutverk
hennar er mjög erfitt en samt var
Ingegerd ótrúlega örugg allan
tímann og réð fullkomlega við það
sem hún var að gera.
David Aler söng hlutverk „hans“
og gerði það einnig af mikilli prýði.
Rödd hans er sérlega falleg en nokk-
uð há af barítón að vera og því réð
hann ekki alltaf við dýpstu tónana
sem honum voru ætlaðir. Reyndar
er þetta gamalkunnugt vandamál
þegar óperur eru annars vegar. Tón-
skáldið yeit sjaldan nákvæmlega
hvernig háttað er rödd einsöngvar-
ans sem fær hlutverkið í hendur og
þar sem söngvarar eru jafn mismun-
andi og þeir eru margir er erfitt að
búa hlutvérkið þannig úr garði að
öllum líki. Þetta kom þó engan veg-
inn að sök og spillti alls ekki heildar-
mynd verksins.
Þolrifm í Lars Pallerius voru reynd
til hins ítrasta á frumsýningunni.
Tenórinn var í hlutverki „fólksins"
ásamt mezzosópransöngkonunni
Linneu Sallay og stóð sig mæta vei.
Hann átti ekki í minnstu erfiðleikum
með hlutverk sitt enda þótt það lægi
ótrúlega hátt og krefðist mikils
krafts. Hann er léttur lýrískur tenór
og mjög efnilegur söngvari. Ekki
hefði verið verra ef hann hefði feng-
ið tækifæri til þess að sýna meiri
breidd í röddinni á sviðinu í Gamla
bíói því í barka hans liggur vafalítið
dýr gimsteinn grafínn.
Linnea Sallay sýndi ekki síður
öryggi í hlútverki sínu en stallsystir
hennar Ingegerd Nilsson. Eitt
áhrifamesta atriðið var tvísöngur
þeirra í þriðja þætti þar sem sú fyrr-
nefnda botnar orðin sem hin bugaða
unnusta reynir að bera fram á var-
irnar. Samsöngur þeirra var mjög
fallegur og þrunginn titrandi
spennu. Linnea er ung að árum eins
og félagar hennar og þau eru öll að
feta sín fyrstu spor á söngvarabraut-
inni. Full ástæða er til þess að óska
þeim hjartanlega til hamingju með
árangurinn.
Ný hljómsveit í gryfjunni
Undirleik að óperunni annaðist
nýstofnuð hljómsveit kennd við
Hundadagahátíðina. Hún er skipuð
ungum hljóðfæraleikurum sem
stefna að því að gera tónlistina að
lífsviðurværi sínu. Hljómsveitin var
mjög iðin við æfingar og náði undra-
fljótt tökum á tónlistinni. Enginn
viðvaningur sat heldur við stjórn-
völinn: Per Borin, sænskur hljóm-
sveitarstjóri, lá ekki á liði sínu hvorki
við æfíngar né þegar að flutningi
kom. Hann þekkti verkið svo vel að
hann hefði getað stjómað því utan-
bókar ef því hefði verið að skipta.
Hann er frábærlega fær stjórnandi
og væri mikill akkur í því fyrir
íslenska tónlistarmenn að fá tæki-
færi til þess að vinna með honum
sem fyrst aftur.
Tónlistin og ljóðið
Karólína Eiríksdóttir stígur hér
sín fýrstu spor sem óperutónskáld.
Hún fetar ótroðnar slóðir og kemur
á margan hátt mjög á óvart. Hún
hefur sérlega gótt vald á fínlegum
tónvefnaði og þar sem hann er hvað
fíngerðastur tekst henni best upp.
Hún notar sjaldan alla hljómsveitina
í einu heldur tengir hljóðfærin saman
sífellt á nýjan máta þannig að áferð
verksins er síkvik og seiðandi. Hún
gælir stundum aðeins við einstakan
þráð í hljómsveitarvefnum, hefur
sérstakt dálæti á klarinettunni og
einleiksfiðlunni en þau Guðni Franz-
son og Gerður Gunnarsdóttir kon-
sertmeistari skiluðu þessum hluta
með mikilli prýði. Þá notar hún slag-
verkshljóðfæri á áhrifaríkan hátt og
þar fór Eggert Pálsson á kostum
ásamt félögum sínum í hljómsveit-
inni.
Karólína er trú ljóði Marie Louise
Ramnefalk og dregur fram skemmti-
legar myndir tengdar textanum með
tónmáli sínu. Hugmyndimar em ót-
eljandi og frjóar og hún á fullt í
fangi með að koma þeim öllum á
nótnablaðið. Áheyrendur hefðu samt
örugglega kosið að heyra sumar
þeirra oftar en einu sinni eða tvisvar
því þær vom oft mjög snjallar og
að sama skapi áhugaverðar. Þessi
aðferð ber vitni um ákveðið eirðar-
leysi sem ef til vill tengist þó hug-
blæ verksins og því kann tónskáldið
að hafa unnið á þennan hátt af
ásettu ráði.
Hver hreyfing þrauthugsuð
Tveir leikstjórar stýra sýningunni,
þau Per-Erik Öhrn og Misela Cajc-
hanova. í raddskrá óperunnar er
hvergi getið um leikræna túlkun
verksins. Leikstjórunum em því
fijálsar hendur um útfærslu þess.
Algjört frelsi er að vissu leyti nauð-
synlegt skapandi listamönnum en
kann þó að bjóða ýmsum hættum
heim. Leiðin sem þau velja í túlkun
sinni er þó skýr og einföld. Öll hreyf-
ing á sviðinu er með minnsta móti
og fullkomlega í samræmi við
fíngerða tónlistina og ljóðið. Greini-
legt var að leikstjóramir höfðu út-
hugsað hveija minnstu hreyfíngu
söngvaranna. í raun var það maka-
laust hversu miklu þeir náðu fram
í jafn fáum dráttum.
Symbólismi og konan
Messíana Tómasdóttir gerir leik-
mynd og búninga að verkinu. Hún
leggur á sama hátt áherslu á einfald-
leika sýningarinnar. Sviðsmynd er
sáraeinföld, fléttaður tágastóll er
allt sem hún þarf auk nokkurra lit-
skyggna sem hún bregður á tjaldið
í hinu forna kvikmyndahúsi. Enda
þótt myndirnar virtust ekki láta
mikið yfir sér var samt mikill sym-
bólismi eða táknfræði falin að baki
þeirra. Óperan er öll sögð frá sjónar-
horni unnustunnar og þjáning henn-
ar og píslarvætti er táknuð með
krossi. Erfiðara er að skilja keiluna
sem sífellt birtist í bakgrunni sviðs-
ins. í fræðibókum um táknmyndir
er keilan sögð tengjast sólinni sem
oft er getið í óperunni og pýramídan-
um, en hann gefur til kynna einsemd
og kröm. Þetta kemur fullkomlega
heim og saman við efni verksins og
undirstrikar þjáningu „hennar" á
hrífandi hátt.
Að lokum skal þakkað það fram-
tak Hundadagahátíðarinnar að fá
Vilborgu Dagbjartsdóttur til þess að
þýða ljóðið „Mann hef ég séð“ á
íslensku. Það var flutt af segulbandi
fyrir sýningu og sáu nokkrir leikarar
um flufning þess. Þeirra verður ekki
getið hér, en flutningurinn var mjög
áheyrilegur og kom efni óperunnar
prýðilega til skila.
ÍSLENSm DAGAR!
söluhæstu plötur þessa sumars
(og dagsins í dag) á sérstöku
tilboðsverði, sem ekki er hægt að hafna.
Áður Tilboð
LP/kass. >1*007- 959,-
Geisladiskur 1.359,-
/ tilefni af kynningu á íslenskri framleiöslu gerum viö viö-
skiptamönnum okkar tilboö á þremur langvmsælustu plötum
sumarsins sem allar eru íslenskar. Rinnig lækkum viö verö
á 24 íslenskum úrvals kassettum úr kr.d^^ í 699,-
KR. mrf- 699,-
Hljómsveit Ólafs Gauks
- lög Oddgeirs Kristjánssonar
Magnús Eiríksson - 20 bestu lögin
Bubbi - isbjarnarblús
Spiiverk þjóðanna - Sturla
Rúnar Gunnarsson — Rúnar Gunnarsson
StuðmennSumar á Sýrlandi
Ómar Ragnarsson - Ómar Ragnarsson
Hljómsveit Ingimars Eydal
Haukur Morthens - Gullnar glæður
Hljómar - Gullnar glæður
Þorvaldur Halldórsson - syngur sjómannalög
Sávanna tríó - Folksongs
íslensk alþýðulög
Guðmundur Ingólfsson - Þjóðlegur fróðleikur
Ríó tríó - Á þjóðlegum nótum
Ríó tríó - Best af öllu
Lúdó og Stefán
Ellý og Vilhjálmur - syngja lög Sigfúsar
Þrjú á palli - Tekið i biökkina
Diddú og Egill - Þegar mamma var ung
Egó - Breyttir timar
Fjórtán fóstbræður - 40 lög
Grettir Björnsson
Brimkló - Eitt lag enn
Litla hryllingsbúðin
KAUPSTAÐUR Jtö'
ÍMJÓDD A1IKUG4RDUR
Athugiö aö tilboöiö stendur abeins
í dag og á morgun meöan birgöir endast.
ÍSLENSKAR
ÚRVALSKASSETTUR