Morgunblaðið - 25.08.1989, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 25.08.1989, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1989 15 Sigurlaug Herdís Friðriksdóttir. Sigurlaug fæddist á Látrum í Að- alvík, 14. ágúst 1909, dóttir hjón- anna, Þórunnar Maríu Þorbergs- dóttur og Friðriks Finnbogasonar er þar bjuggu. Sigurlaug, eða Lauga eins og hún var ætíð nefnd, ólst upp í stórum systkinahóp og við þær aðstæður sem mótuðu hvern einstakling, hef- ur hið ljúfa skaplyndi sem Laugu var meðfætt; samofið umburðar- lyndi og kærleika til allra manna og dýra, komið að góðum notum. Lauga var þolinmóð og vildi allra vanda leysa, Bað gott fyrir öllum, hvort sem það voru nákomnir eða ókunnugir. Hugarfar Laugu var fullt þeirri hlýju og góðvild til allra að slíkt er vart finnanlegt. Um all mörg ár hefur þrálátur liðagigtar- sjúkdómur heltekið hana alla og var mörgum undrunarefni hvað hún kvartaði sjaldan, þó auðséð væri hvað þjáning hennar var mikil. Um langan tíma stórundraðist maður hvað Lauga lagði mikið á sig við hannyrðir. Þegar komið var í heim- sókn og hún sat og heklaði stærðar- innar lopateppi sem maður undrað- ist hvernig hún gæti afkastað öðru eins. Þessi teppi eru nú í eigu all- margra nánustu afkomenda Laugu og þykja hinar mestu gersemar og ætíð streymir hlýja og notalegheit um mann þegar maður kúrir undir því á svölum vetrarkvöldum. Sigurlaug kynntist ungum manni, Hermanni Árnasyni, og gengu þau í hjónaband 25. desem- ber 1927, stofnuðu heimili og bjuggu í Aðalvík, síðan í Hnífsdal og síðast í Drekavogi 20 í Reykjavík. Sambúð þeirra reyndist farsæl og barnahópurinn varð stór. Það þarf mikinn kjark og trú til þesS að koma á legg tólf börnum. Það voru engir aukvisar sem komu slíku verki farsællega frá sér og trúlega hefur húsmóðirin á því heimili ekki gengið snemma til hvflu eða sofið út eins og húsmæður vilja margar hverjar gera í dag. Ennþá stækkar niðjahópurinn og Leiðrétting I minningargrein hér í blaðinu á föstudaginn var, 18. ágúst um Margréti J. Andersen, eftir systur hennar, Soffíu Jónsdóttur komst slæm prentvilia inn í niðurlagsorðin, sem gerði þau óskiljanleg. Á undan sálmi V. Briem „Kallið er komið“. Þannig áttu þau að hljóða. Með þessum sálmi vilja börn og barna- börn Margrétar minnast hennar. Beðist er velvirðingar á mistökun- um. Blomberq Kæliskápar fyrir minni heimili. 10 gerðir. Einstaklega hagstætt verð. GÓÐ GREIÐSLUKJÖR. ffilfl__ Einar Farestveit&Co.hf. BORGARTÚNI28, SÍM116995. telur í dag 128. Af þessum stóra hóp hefur einn látist, dóttursonur Sigurlaugar, Árni Davíðsson, en hann lést í bifreiðaslysi 1977._ En það var við kistulagningu Árna heitins að Lauga sýndi okkur hvílíkt þrek trúin gefur. Við sem vorum við þá athöfn munum aldrei gleyma þeirri stund. Eiginmaður Laugu, Hermann, andaðist 10. júlí sl. og má því segja að trúlega fylgjast þau að. Ekki lét almættið þau lengi vera aðskilin. Kemur það fram það sem sagt er við' hjónavígsluna, það sem Guð hefur tengt saman, má eigi maður sundur slíta. Sigurlaug dvaldi á hjúkrunar- heimilinu Skjóli síðustu mánuðina sem hún lifði og lést þar að morgni sunnudagsins 20. ágúst. Aðstand- endum senda starfsfólki þakkir fyr- ir umönnun og hjúkrun. Heimili Sigurlaugar og Her- manns er ekki lengur okkur sýni- legt. En við trúum að samvera þeirra í rúm sextíu ár hafi verið reynslutími og nú sé hin eilífa sam- vera hafin. Guð blessi minningu Sigurlaugar. Oss héðan klukkur kalla svo kallar Guð oss alla til sín úr heimi hér. Þá söfnuð hans vér sjáum og saman vera fáum í húsi því sem eilíft er. (Sálm. V.Briem) Jakob og fjölskylda Liðin er ævi yndislegra hjóna, þeirra afa og ömmu. Þau kvöddu þennan jarðheim með aðeins fjöru- tíu daga millibili og sýnir það kannski best hve samhuga þau voru alla tíð. Alltaf var jafn notalegt að koma í heimsókn til afa og ömmu í Drekó, eins og við kölluðum þau oftast. Enda alltaf tekið á móti manni opn- um örmum, bæði með kræsingum og hjartahlýju, og fór maður ætíð glaður og þakklátur út frá þeim. Það er sárt til þess að hugsa að geta ekki komið við hjá afa og ömmu, og slegið á létta strengi um lífið og tilveruna í daglegu amstri nútímans. Þá sér í lagi um gamla daga og um lífið í Aðalvíkinni. Þeirra æsku- stöðvar, sem þeim þótti svo undur vænt um. Þótt lífið hefði oft verið erfitt í þá daga, eins og þau kom- ust svo oft að orði, og sveitin þeirra afskekkt og erfið yfirferðar, sáu þau ætíð björtu hliðarnar á tilver- unni. Þau voru svo hreykin af átt- högunum, enda bjuggu þau þar saman í yfír 22 ár af sínum 61 árs hjúskaparárum. Þau eignuðust 12 börn, 7 syni og 5 dætur, 56 barna- börn og barnabarnabörnin eru um 60. Þótti þeim sérstök ánægja að fá að fylgjast með og umgangast af- komendur sína, og stuðluðu að sam- heldni fjölskyldunnar. Afi hafði mjög gaman af léttu gamni, og átti auðvelt með að kitla hláturtaug- arnar þegar við átti, enda þekktur fyrir skemmtilega meinlausa stríðni sem hitti ávallt í mark og kom manni til að hlæja og hafa gaman að. Amma var aftur svo róleg og naut þess að segja manni sögur um pabba og þau hin systkinin, þegar þau voru að alast upp og um guð og trúna, sem hefur eflaust hjálpað henni og fjölskyidunni á erfiðum stundum oft á tíðum. Það er svo margs að minnast sem ekki er hægt að tjá í svo fátækleg- um orðum sem þessum. Hlutverki afa og ömmu er lokið hér á jörðu. Ég vil þakka þeim sam- fylgdina með hlýhug og söknuði. Kolbrún Friðriksdóttir og fjölskylda .. Sérútbúin .. FJOISKYLDIITOLVA SEM ÞIÐ GETIÐ EIGNAST FYRIR 14.990 KR. RAÐGREIÐSLUR * Þetta er IBM PS/2 einmennings- WwvKKS Hugbúnaðarpakki með RIT- í tölvuna eru sett upp nokkur dæmi tölva með hágæðaskjá, mús til að VINNSLU, TÖFLUREIKNI, GRAF- um notkuri, þau eru m.a.: lítið einfalda alla vinnslu, auk fjöl- ÍK og GAGNAGRUNNI. Hentar heimilisbókhald, kökuuppskri'fta- breytts hugbúnaðar sem gerir mjög vel til ritgerðasmiða, skýrslu- kerfi og safnarakerfi. Með Works hana að sérstæðri FJÖLSKYLDU- TÖLVU. í hugbúnaðinum finoa allir fjöl- skyldumeðlimimireitthvað sértil gagns og gamans. vinnu, fyrir heimilisbókhaldið o.fl. Works er músin þarfur þjónn. Það er ekki tilviljun að Works hefur fengið umsögnina „BESTI SAM- HÆFÐI HUGBÚNAÐURINN." áfyjUwWk f 'iMé? fylgir handbók og ítarlegur hjálpar- texti. IEIKXIR Þetta er splunkunýr leikur sem skerpir hugann og allir hafa gaman af. LOTTÓ Nú getur þú notið aðstoðar tölvunnar við að reyna við vænan lottóvinning. r1 m v ^ .r*- ^ r- nHp' /Bf Þetta eru þroskaleikir fyrir börn og unglinga sem eru m.a. notaðir við keðnslu. Atburðir úr daglega lífinu nýt- ast við að skilja betur stærðfræði og töl- fræði og gera þessi fög skemmtileg. rleg handbók á íslensku fylgir með. Auk alls þessa má síðan bæta við öðrum hugbúnaði. Reynslan sýnir að við notkun FJÖLSKYLDU- TÖLVUNNAR opnast ótal nýir möguleikar. IBM FJÖLSKYLDUTÖLVAN gagn og gaman allra ! En ykkur langar vafalaust til að skoða og vita meira um þennan kostagrip á svo hagstæðu verði. Til þess eru starfsmenn Gísla J.Johnsen á Nýbýlavegi 16 í Kópavogi reiðubúnir. ■hl SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. HVERFISGÖTU 33 SlMI 62 37 37 cm ■ Miðað er við raðgreiðslur í 11 mánuði. ■H LelA 4 stoppar vlA dymar ARGUS/SlA ODDIHF

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.