Morgunblaðið - 25.08.1989, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚSI' 1989
Stjórnmálamenn í hlutverki kjötkaupmanna.
Morgunblaðið/Þorkell
bili vegna enhverrar gjólu í stjóm-
málunum; hið sama má raunar segja
um viðmiðanir í viðskiptum eins og
vísitölur eða reglur um opinber hús-
næðislán. Um tíma var spamaður
mikil dyggð en nú heitir sparifé
fólks „fjármagn" á máli félags-
hyggjunnar og sparifjáreigendur
heita „fjármagnseigendur“ og með-
höndlunin er í samræmi við það.
Það þykir sjálfsagt að skattleggja
spamað, eins og hann hafi ekki
þegar verið skattlagður, eða gera
hann að engu með neikvæðum vöxt-
um. Áætlanir sem heimili og fyrir-
tæki reyna að gera um tekjur og
útgjöld verða marklausar vegna
þess, að stjórnmálamenn em sífellt
að breyta forsendunum sem á er
byggt eða halda svo klaufalega um
stjórnvölinn, að það eru engar for-
sendur til að byggja á og þess vegna
er ekki hægt að stefna að einu eða
neinu.
Það em tæpast ýkjur að segja,
að lýðræði og góðri reglu sé stefnt
í hættu, þegar stjómmálin og lands-
stjórnin em komin á þær varhuga-
verðu brautir sem þau hafa verið
að leiðast inn á að undanförnu og
ég hef verið að lýsa. Vinnubrögð
af þessu tagi fara í bága við hug-
myndina að lýðræðislegum stjórn-
málum, þá hugmynd sem stjórnskip-
an okkar hvílir á.
III
Afturför stjórnmálanna og fyrir-
ferð birtist hvergi betur en í sjón-
varpinu, nánar tiltekið í „fréttaleik-
húsinu", sem orðheppinn maður
nefnir svo. En við erum karinski flest
það upptekin af dramanu á skján-
um, ef nota má svo virðulegt orð
um sápu, að við veitum því ekki
athygli að á bak við leiktjöldin er
veruleiki sem varðar okkur öll. At-
burðir gerast með ævintýralegum
hraða í sjónvarpi og þar ræður
augnablikið, andartakið, ríkjum. Við
látum blekkjast af leikrænum til-
burðum, þar sem mælska og fram-
hleypni ber rökvísi og háttvísi ofur-
liði. Ég tek eftir því að margir trúa
því alls ekki eða leiða ekki hugann
að því, að stjórnmálamenn nota og
misnota fjölmiðla, ekki síst sjón-
varp, vísvitandi til að koma ár sinni
fyrir borð. Því miður virðist mér að
i hópi þeirra sem ekki átta sig á
þessu séu margir starfsmenn fjöi-
miðlanna, „fréttahaukarnir" sjálfir,
og er það sér á parti ærið áhyggju-
og umhugsunarefni.
Ég hef fram að þessu einkum
rætt um hnignun hinna sýnilegu
stjórnmála, þeirra sem við höfum
öll fyrir augunum og kastljós fjöl-
miðla beinast að. En stjórnmálin
hafa að undanförnu einnig verið að
fara inn á aðrar háskalegar brautir,
sem ekki eru eins sýnilegar öllum
almenningi. Stjórnmálamenn, eink-
um þeir sem kenna sig við félags-
hyggju, eru æ oftar að skipta sér
af málefnum sem þeir ættu við eðli-
legar aðstæður ekki að koma ná-
lægt. Stjórnmálin eru orðin fyrir-
ferðarmikil á þeim vettvangi
þjóðlífsins, þar sem þau eiga ekki
heima. Stundum er þetta grátbros-
legt og öllum sýnilegt: Stjómmála-
menn í hlutverki kjötkaupmanna
eins og nýlegt dæmi er um. Hitt er
alvarlegra og færri ljóst, þegar
stjórnmálamenn eru „með puttann
á fyrirtækjunum" eins og frægasti
sjóðakóngur íslenskra stjórnmála
orðaði það síðastliðið haust, án þess
að roðna. En „hæfileikinn til að
roðna“ svo notað sé orðalag Hall-
dórs Laxness, er líklega það sem
skilur á milli siðaðs stjórnmála-
manns og hins sem enga siði virðir.
Hve margir skyldu þeir annars vera
stjórnmálamennirnir sem varðveita
og rækta hæfileikann til að roðna?
Ég þarf ekki að fara mörgum
orðum um það á þessum stað, hvað
í því felst að „hafa puttann á fyrir-
tækjunum". Það þýðir einfaldlega
að „þeir sem ferðinni ráða“ í stjórn-
málunum ráða því hvaða fýrirtæki
vaxa og dafna annars vegar og er
gert ókleift að starfa hins vegar.
Þetta er gert með því að gera fyrir-
tæki háð opinberri fyrirgreiðslu, lán-
um og leyfum.
Þessi stefna var orðuð með skýr-
um hætti í forystugrein í Þjóðviljan-
um, höfuðmálgagni núverandi ríkis-
stjórnar, í nóvember á síðasta ári:
„Það er fráleitt," stóð þar, „að ieysa
vanda fiskvinnslunnar með almenn-
um. aðgerðum á borð við gengis-
fellingu. Þvert á móti verður að
skoða og skilgreina hvert sjúk-
dómstilfelli fyrir sig og beita síðan
einstaklingsbundinni lyfjameðferð,
ef þeir sem ferðinni ráða vilja á
annað borð að viðkomandi sjúkling-
ur lifi.“
Stjórnlyndi íslenskra ráðamanna
verður ekki betur lýst en með þeirra
eigin orðum. Hér er það boðað, að
atvinnufyrirtæki eigi ekki að sitja
við sama borð og keppa í fijálsum
viðskiptum heldur eigi stjómmála-
menn og stjórnmálasjónarmið að
ráða gengi þeirra. Og veitið því at-
hygli, að þetta eru ekki orðin tóm:
Atvinnutryggingarsjóði útflutnings-
greina, ekki vantar nafngiftimar!
og Hlutafjársjóði var komið á fót í
þeim tilgangi að stjórnmálamenn
og umboðsmenn þeirra gætu fengist
við vanda einstakra fyrirtækja og
ráðið framtíð þeirra. Þetta hefur
með réttu verið nefnt „þjóðnýting
bakdyramegin" og er engu betri en
sú þjóðnýting fyrir opnum tjöldum
sem var hugsjón ýmissa stjórn-
málamanna, áður en sósíalisminn
beið endanlegt skipbrot. Vinnu-
brögðin við innheimtu söluskatts á
dögunum þar sem fyirtækjum var
vísvitandi mismunað, er svo annað
dæmi um stefnuna að „hafa puttann
á fyrirtækjunum" í framkvæmd.
IV
Það er við hæfi að spytja eftir
allar þessar ófögru lýsingar á
ástandi íslenskra stjórnmála, hvers
vegna þetta hefur gerst. Hvers
vegna hefur stjórnmálunum farið
aftur í stað þess að miða enn fram
á við? Einföld, einhlít svör' eru ekki
til, enda er sagan, og þar á meðal
rás viðburða í stjórnmálum, að miklu
leyti hendingar sem við höfum oft
litla stjórn á. Vafalaust kemur hér
margt til: óvenju hraðar þjóðfélags-
breytingar undanfarinna ára, kyn-
slóðaskipti í stjórnmálaflokkunum,
gerbreytt fjölmiðlun, erlendir hug-
mynda- og menningarstraumar.
Önnur ástæða, og kannski aðal-
ástæðan þegar öllu er á botninn
hvolft, fyrir því, hvemig komið er
fyrir stjórnmálunum er ef til vill sú,
að stjórnmálamenn skortir skýrar
hugmyndir um það, hvert á að vera
verksvið þeirra sjálfra og flokka
þeirra í nútímaþjóðfélagi. Nátengt
þessu er það álitaefni, hvar marka
á umsvifum hins opinbera, ríkis og
sveitarfélaga, bás. Það er tilgangs-
laust, svo dæmi sé tekið, að liggja
yfir fjárlagafrumvarpi eða tölum um
rekstur ríkisins og velta fyrir sér
möguleikum á sparnaði og sam-
drætti fyrir en menn gera sér grein
fyrir markmiðunum með slíkri
vinnu, þeim grunni sem menn vilja
standa á.
Á sama hátt og stjórnmálamenn
koma sér undan því að svara grund-
vallarspurningum um hlutverk
síjórnmála leiða þeir að mestu hjá
sér þýðingarmikil efni eins og til
dæmis togstreituna á milli almanna-
hagsmuna annars vegar og sér-
hagsmuna hins vegar. Og þó er það
einmitt þessi togstreita sem er rótin
að fiestum vandræðunum í efna-
hags- og atvinnulífi okkar. Þetta
blasir t.d. við í sjávarútvegi og land-
búnaði, en hefur lengst af verið
feimnismál í íslenskum stjórnmál-
um.
Efnahagsmálin eru ær og kýr
stjórnmálamanna og þeir virðast
flestir hafa afskaplega takmarkað-
an, ef nokkurn, áhuga á öðrum
málefnum þjóðlífsins. Þeir fara þá
leynt með það! Þetta hefur í för
með sér að mörgum finnst stjórn-
mál afar leiðinleg, einhæf og and-
laus. Mörg úrlausnarefni á vett-
vangi skóla, mennta og lista eða
vísinda og tækniþróunar eru stjórn-
málalegs eðlis og það skapar margv-
íslegan vanda þegar fram hjá því
er horft. Tökum dæmi: Á ári hveiju
veitum við milljörðum króna í skóla-
kerfið, en enginn getur svarað því
hver hin opinbera skólastefna er.
Enda er hún tæpast til. Á móti má
kannski segja, að við getum verið
guðs lifandi fegin að stjórnmála-
mennirnir láta þessi svið þjóðlífsins
í friði meðan þeim gengur ekki bet-
ur en raun ber vitni, að fást við þau
verkefni, sem þeir telja sig þekkja
allar hliðar á.
Ég hef kallað þetta spjall mitt
hér „Eru stjórnmálin komin að nið-
urlotum?" Ég er þá að tala um
stjórnmálin eins og þau eru iðkuð
hér á landi um þessar mundir, eink-
um í nafni félagshyggju og ég hef
lýst. Vissulega eru slík stjórnmál
gengin sér til húðar, komin í þrot;
þau eru tímaskekkja. Og hið sama
er að segja um stjórnmálamennina
sem á þeim bera ábyrgð.
Viðreisn stjórnmálanna er mikil
og brýn nauðsyn. En hún felst ekki
í nýjum stjórnmálaflokkum, það
væri mikil einföldun að halda það,
heldur hinu, að halda uppi vægðar-
lausri gagmýni á stjórnmálastarfið
og stjórnmálahugmyndirnar eða
hugmyndaleysið, innan flokkanna
sem utan, og knýja stjórnmálamenn
til að horfast í augu við það, að
stjórnmálin eru í ógöngum og út
úr þeim verður að finna leið.
Höfundur er ritsljóri tímaritsins
Frelsið. Grein þessi erað mestu
samhljóða erindi sem hann flutti
á fundi á Gauki á Stöng í
Reykjavík laugardaginn 12. ágúst
sl.
17
BORÐ-, PALL-, KRÓK-, TELJARA-
OG GÓLFVOGIR
Margar gerðir eða frá 15 kg. að 6000 kg. með
mismunandi nákvæmni. Einnig fáanlegar vatnsvarðar
(IP65) og með ryðfríum palli.
Möguleikar á tengingu við tölvur og prentara.
Viðgerðir á allflestum gerðum voga og breytum eldri
gerðum voga í rafvogir.
HAGSTÆTT VERÐ. LEITIÐ UPPLÝSINGA.
ÓLAfUS OlSlA-SOM & CO. Slf.
SUNDABORG 22 SÍMI91-84800
VOGAÞJÓNUSTA SMIÐSHÖFÐA 10 SÍMI 91-686970
Viö rýmum sófasettalagerinn í dag og næstu
viku. Tugir sófasetta verða seldir á hlægilega
lágu veröi, áöur en haustvörurnar koma.
Nokkur sett meö smávægilega útlitsgalla
veröa seld á enn lægra verði.
Nú er færi á að eignast stórkostleg sófasett
með úrvalsleöri eöavönduöu áklæöi viö verði,
sem slær allt út.
ALLT NIÐUR í
KR. 68.300!!!
SMIÐJUVEGI 6, KÓPAVOGI, S: 45670 - 44544
N4ASTER